Morgunblaðið - 15.10.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977
15
Jón E. Ragnarsson hrl.:
„Krefst opinberrar rannsóknar á því
hvers vegna ég er dreginn inn í málið,,
Ætlar að stefna Tímanum fyrir meiðyrði
JÓN E. Ragnarsson hæstarréttarlög-
ma8ur hefur ákveðið a8 Aska eftir
þvi við rikissaksóknara aS hafin
verSi opinber rannsókn aS því hvers
vegna hann hafi veriS dreginn inn i
mál þaS, sem kom upp i vikunni, er
SigurSur Óttar Hreinsson. helzta
vitniS i Geirfinnsmálinu. dró fram-
burS sinn til baka. Vegna þessa
breytta framburSar SigurSar hóf
Rannsóknarlögregla rikisins rann-
sókn á þætti hans i málinu og reyndi
aS grafast fyrir um ástæSur hins
breytta framburSar. Var lögfræSing-
ur SigurSar, Róbert Ámi HreiSars-
son, af þeim sökum kallaSur til yfir-
heyrslu og ennfremur Jón E. Ragn-
arsson hrl., en Róbert Ámi hefur um
skeiS veriS fulltrúi hans. f dagblaS-
inu Timanum birtist i gær frétt um
máliS og segir þar á einum staS aS
varSandi hinn breytta framburS Sig-
urðar verSi „væntanlega rannsakaS
hvort um samsæri hans og lögfræS-
inganna Róberts Árna og Jóns E.
Ragnarssonar hafi verið aS ræða".
Hefur Jón ákveðiS aS höfSa meiS-
yrSamál á hendur Timanum vegna
þessara ummæla.
Morgunblaðið snéri sér i gær til
Jóns E. Ragnarssonar og innti hann
eftir máli þessu Jón sagði.1 „Ég
furða mig mjög á þessu máli öllu og þó
sérstaklega á skrifum þeím, sem birt-
ust i Timanum i dag Er það athugun-
arefni frá hvaða aðilum slíkar fréttir
koma, því hér er um mjög alvarlegar
ásakanir að ræða og þær grófustu.
sem mér er kunnugt um að birst hafi á
prenti um lögmann fyrr og siðar.
Það rétta er að ég var kvaddur i
stutta yfirheyrslu hjá Rannsóknarlög-
reglu rikisins og hef ég i sjálfu sér
ekkert við það að athuga Fréttaburður
um eitthvert samsæri af minni hálfu er
svo gjörsamlega tilhæfulaus og án
allra forsendna og mun ég að sjálf-
sögðu gera ráðstafanir til þess að fá
upplýst með hvaða hætti jafn fáránleg-
ar ásakanir eru tilkomnar og þær berist
siðan til fjölmiðla.
í skýrslu minni til Rannsóknarlög-
reglunnar skýrði ég algjörlega og tæm-
andi frá þessu máli að því er mig
varðar. _Ég heyrði fyrst um þetta mál
Sigurðar Óttars Hreinssonar klukkan
11 að morgni þess dags, sem ég var
kallaður til yfirheyrslu. Þá kom Róbert
Árni Hreiðarsson á heimili mitt en áður
hafði hann boðað að hann þyrfti að
bera undir mig „erfitt mál" án frekari
skýringa Róbert Árni afhenti mér tvær
möppur með gögnum. sem hann kvað
fengnar hjá Páli A. Pálssyni hdl. Vildi
hann ráðgast við mig um erfitt mál,
sem varðaði menn. em komið hefðu
fyrir dóm i svokölluðu Geirfinnsmáli.
Hefði þessi maður. þ.e. Sigurður Óttar
Hreinsson. fyrst haft samband við sig i
desember s.l. og teldi hann nú. að
maðurinn væri mjög miður sin vegna
framburðar sins i málinu. Bað hann
mig að lesa skjölin með hliðsjón af
réttarstöðu mannsins. m.a hvað varð-
aði ábyrgð hans að lögum um rangan
framburð. Ég tók við möppunni og las
mjög snögglega það sem þar stóð án
þess að gera mér heildarmynd af mál-
inu, enda hafði ég aldrei heyrt á þenn-
an mann minnzt fyrr.
Ég hafði ekki tima til að ihuga þetta
mál frekar þann dag og næsta sem ég
heyrði var að Róbert Árni hringdi til
min um klukkan hálfniu sama dag og
sagðist hafa verið i yfirheyrslum hjá
Rannsóknarlpgreglunni og kvaðst
mundu koma heim til min í millitiðinni
ræddi ég við nokkra menn, þá Gunn-
laug Briem sakadómara, Hallvarð Ein-
varðsson rannsóknarlögreglustjóra.
Páll Arnór Pálsson hdl. og Sigurð
Hafði ekkert um-
boð til að aftur-
kalla skýrsluna
-segir lögfrœð-
ingur Sigurð-
ar Óttars
Hreinssonar
EFTIR AÐ eitt aðalvitnið í Geir-
finnsmálinu, Sigurður Óttar
Hreinsson, dró framburð sinn um
veru sína i dráttarbrautinni í
Keflavik kvöldið sem Geirfinnur
Einarsson hverf. til baka, hefði
Morgunblaðið samband við
Róbert Áma Hreiðarsson, lögfræð-
ing Sigurðar, og spurðist fyrir um
afskipti hans af þessu máli.
Róbert sagði að 15 desember i
fyrra hefði Sigurður komið til sin
eftir að hafa verið i yfirheyrslum hjá
lögreglunni 13. og 14 sama mán-
aðar. Hann hefði að eigin sögn fyrri
daginn gefið skýrslu sem hefði verið
sannleikanum samkvæm, en seinni
daginn hefðu yfirheyrslurnar verið
mjög strangar. fyrir hann hefðu
verið lagðar leiðandi spurningar og
skýrslur sakborninganna í málinu
lesnar upp fyrir hann. Hefði hann þá
verið hættur að trúa sjálfum sér og
sinni eigin skynsemi og allt i einu
fundist að atburðir hefðu allir verið i
samræmi við frásögn lögreglunnar,
og að hann hefði verið staddur á
meintum morðstað þetta kvöld.
Þennan sama dag hefði þriðja
skýrslan verið tekin af honum og i
henni borin saman atburðarás, sem
hann hefði staðfest sem rétta. þar
sem að öðrum kosti hefði honum
verið hótað gæzluvarðhaldi i allt að
30 daga.
Róbert Árni gat þess á þessu stigi
frásagnar sinnar, að Sigurður þjáð-
ist af asma. og hefði m.a. þennan
dag fengið ofnæmissprautu hjá
lækni sem lögreglan hefði kallað til.
Þessar yfirheyrslur, sem hefðu feng-
ið mjög á Sigurð. hefðu orsakað það
að sjúkdómurinn magnaðist mjög
og að hann hefði verið mjög slæmur
af asmanum.
Eftir þessar yfireyrzlur hafði
Sigurður siðan komið til Róberts og
skýrt honum frá þessum málum
Róbert hefði þá spurt hann um það
hvort hann vildi að hann hlutaðist til
um það, að afturkalla þessa siðustu
skýrslu hans. Þvi hefði Sigurður
neitað, þar sem hann hefði ekki
vitað sitt rjúkandi ráð um hvað væri
sannleikurinn og hvað ekki. Hann
hefði verið hræddur við lögregluna
og verið i óvissu um öll efnisatriði
málsins og hefði hann lagt fyrir
Róbert Árna að aðhafast ekkert i
málinu, fyrr en Sigurður sjálfur
mundi óska eftir þvi, enda kvaðst
Róbert ekkert umboð hafa haft til
frekari aðgerða Hann tók það fram
að sálarástand Sigurðar hefði verið
slikt að erfitt hefði verið að henda
reiður á frásögn hans.
Næst kom Sigurður á fund
Róberts i febrúar s.l., en þá hafði
nafn hans verið birt í fjölmiðlum og
bendlað við þetta mál. Það hefði
komið honum mjög á óvart, þar sem
lögreglan hefði lofað honum þvi, að
það yrði ekki birt opinberlega í
tengslum við Geirfinnsmálið. Hefði
Sigurður farið fram á það við Róbert
að hann hlutaðist til um að leiðrétta
þennan villandi fréttaflutning sem
hann taldi að hefði átt sér stað. Þetta
hefði Róbert gert með yfirlýsingu i
blöðum.
í siðustu viku eða 5 október hefði
Sigurður siðan enn komið á skrif-
stofu Róberts og kvartað þar yfir að
vera bendlaður við Geirfinnsmálið
enn á ný i blöðunum. Hefði Róbert
þá persónulega sent yfirlýsingu til
blaðanna og varið þar mál Sigurðar
Mánudaginn siðasta hefði Sig-
urður svo komið á skrifstofuna og
beðið Róbert Árna um að koma
þvi á framfæri við rétta aðila að
hann vildi breyta framburði sinum
og draga játningarnar til baka. Hefði
Róbert þá spurt hann hvort hann
hefði eiðsvarið framburð sinn fyrir
dómi, og hefði Sigurður þá sagt að
hann vissi það ekki. Hefði Róbert þá
Framhald á bls. 22.
Georgsson hdl. til þess að fá vitneskju
um hvað væri að ske, en litið kom fram
i þessum samtölum.
Litlu siðar hringdi Þórir Oddsson
fulltrúi við Rannsóknarlögregluna til
min og boðaði mig til skýrslugjafar.
sem ég gerði og hafði ég möppurnar
með mér og afhenti Þóri Oddssyni
þær. Gaf ég siðan skýrslu um málið og
itrekaði sérstaklega að ég hefði aldrei
setið á neinum fundum neinna aðila
um þetta mál og ég gæti varla sagt að
ég þekkti málavöxtu nema af blaða-
skrifum, umfram það sem ég las i
gögnum þeim, sem Róþert hafði með-
ferðis.
Þetta var efnislega, það sem ég
skýrði Rannsóknarlögreglunni frá Ég á
nú ekki annars úrkosta en kerfjast
opinberrar rannsóknar á þvi hvers
vegna ég er dreginn inn í þetta mál
með þeim hætti sem gert hefur, en það
kann að reynast annmörkum háð, þar
sem rannsóknaraðilarnir, bæði Rann-
sóknarlögregla rikisins og embætti
rikissaksóknara eru þeir aðilar, sem að
þessari aðför standa á hendur mér og
það getur orðið þungur róðurinn á
þeim vettvangi. Þá mun ég að sjálf-
sögðu höfða meiðyrðamál á hendur
Timanum vegna sérstaklega gálausrar
og ábyrgðarlausrar blaðamennsku sem
er bæði meiðandi fyrir mig persónu-
lega og sem hæstaréttarlögmann Ég
tel fulla ástæðu til að óttast um réttar-
farið i landinu eftir þessa siðustu at-
burði og réttarstöðu borgaranna gagn-
vart fölskum aðdróttunum og ásökun-
um og jafnframt þar sem ofangreindir
Óþolandi að setja
lögmenn á sama
bekk og sakbominga”
—segir formaður Lögmannafélags íslands
MER finnst hafa verið komið illa
fram við lögfræðinga f máli
þessu. Þeim ber skylda til að gæta
hagsmuna skjólstæðinga sinna f
hvívetna,“ sagði Guðjón Stein-
grfmsson hrl. formaður Lög-
mannafélags fslands, er Mbl.
ræddi við hann í gær.
„Ég vil ítreka það,“ sagði Guð-
jón, „að t.d. réttargæzlumenn
njóta vissrar réttarstöðu. Þeir eru
t.d. undanþegnir vitnaskyldu. Til
er tilskipun frá 19. júlí 1793, sem
er í fullu gildi enn í dag, þaf sem
lögfræðingum er bannað að bera
vitni um þá vitneskju, sem þeir
öðlast um skjólstæðinga sína. Og
þótt lögmaður taki að sér að
leggja einhverjum manni Iið,
hvort sem hann er sakborningur
eða vitni, sem riðinn er við opin-
bert mál, er það óþolandi að lög-
maðurinn sé settur á sama bekk
og viðkomandi sakborningur eða
vitni. Ég hef verið að velta fyrir
mér tilganginum með yfirheyrsl-
unum yfir lögmönnunum tveim-
ur, sem hér um ræðir. Það kemur
ekki nema tvennt til greina að
minu mati, að lögreglan hafi verið
að slægjast eftir upplýsingum,
sem þeir lögum samkvæmt mega
ekki skýra fra, eða lögreglan telji
a9 viðkomandi lögmenn hafi verið
vitorðsmenn sakborningsins og
lögreglan hafi þannig búið til ein-
hverja samsæriskenningu, sem
hún hafi ætlað að reyna að
sanna."
Jón E. Ragnarsson hrl.
opinberir aðilar virðast ekki skilja eða
virða réttarstöðu lögmanna i réttarkerf-
inu. Þeir virðast einfaldlega hættir að
gera greinarmun á sökunautum annars
vegar og lögmönnum þeirra hins veg-
ar. Kannski verður það næsta skrefið
að verjendur i Geirfinnsmálinu verði
handteknir fyrir að halda uppi vörnum
lögum samkvæmt? Rannsóknaraðila er
auðvitað rétt og skylt að rannsaka allar
grunsemdir en þeir mega ekki veifa
sverði réttvísinnar af slikum vigamóði
að nánast tilviljun geti verið háð hver
fyrir verður.
Þegar ég vaknaði i morgun átti ég
sist von á þvi að ég væri orðinn aðili að
þessu Geiffinnsmáli, að þvi er virðist
fyrir lausmælgi og ámælisverð vinnu-
brögð opinberra aðila Ég vona bara að
i fyrramálið, þegar ég fer að lesa blöð-
in, að mér verði ekki borið á brýn að ég
hafi drepið Kennedy forseta!
Ég vil sem almennur borgari aðeins
segja, að mér finnst þeir aðilar. sem
staðið hafa að rannsókn þessa erfiða
dómsmáls, eyddu betur tíma sínum i
raunveruleg efnisatriði málsins án þess
eins og á galdraöldinni, að sjá djöfla i
hverju skoti og vera að eltast við óvið-
komandi menn úti i bæ Ábyrgð þess-
ara manna er mikil." sagði Jón E
Ragnarsson að lokum
„Vil ekkert um málið
segja að svo stöddu
—segir rannsóknarlögreglustjóri
99
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gærkvöldi samband við Hall-
varð Einvarðsson yfirmann Rannsóknarlögreglu rikisins
og innti eftir máli því, sem gert er að umtalsefni hér á
síðunni, og bar undir hann ásakanir lögfræðinganna
tveggja.
Hallvarður kvaðst ekki vilja tjá sig neitt um málið að
svo stöddu hvað sem síðar yrði.
GLÆSILEG
BAÐSETT
FRÁ ÍTALÍU
Pantið
tímanlega
OPIÐ
LAUGARDAG
9-6
ÍÍA1
BYGGINGAMARKAÐURINNhf
VERZLANAHÖLLINNI GRETTISG. / LAUGAV. Simi 13285