Morgunblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977
33
fclk í
fréttum
Flóamarkaður
Fimleikadeild íþróttafélagsins Gerplu Kópa-
vogi, heldur flóamarkað i dag, laugardaginn
1 5. okt., að Hamraborg 1, Kópavogi kl. 2.
Stjórnin.
Vill
breyta
um
hlutverk
+ Við erum vön að sjá
Raymond Burr í fremur
harðsnúnum hlutverkum á
sjónvarpsskerminum en þó
skín alltaf í gegn að hann er
hlýr og mannlegur. Þannig
er hann einnig í einkalifi
sinu. innan fjögurra veggja
heimilisins eyðir hann tim-
anum i að hugsa um orki-
deurnar sinar, hitta vini
sina og elda góðan mat.
Hann á einnig mikið safn
verðmætra listaverka.
Þekktastur er Raymond
Burr fyrir leik sinn i sjón-
varpsþáttunum um „Perry
Mason" og „tronside".
Hann er nú orðinn sextugur
og segist hafa náð þeim
aldri að timinn skipti miklu
máli. Þess vegna muni
hann hugsa sig vel um áður
en hann tekur að sér ný
hlutverk. „Perry Mason og
Ironside tóku fimm ár af
ævi minni," segir hann.
„Þegar ég var ungur leikari
i New York og bjó i litilli
íbúð dreymdi mig um að
eignast heimili þar sem ég
gæti látið vinum mínum
liða vel. Þessi draumur hef-
ur rætst. Ég bý i húsi i Los
Angeles og á annað á Fiji-
eyjunum i Kyrrahafinu.
Þangað eru vinir minir allt-
af velkomnir og geta fengið
allt sem hugurinn girnist i
mat og drykk. Ég hef með
árunum orðið ágætis kokk-
ur og finnst gaman að sýsla
með potta og pönnur. Þeg-
ar ég var ungur dreymdi
mig einnig um að verða
listmálari, en ég komst
fljótlega að þvi að mig
skorti hæfileika og ákvað
þvi að safna listaverkum i
staðinn. Ég var svo heppinn
að eiga móður sem gaf mér
tækifæri til að ferðast um
heiminn og kynna mér listir
og listasögu." Raymond
Burr er i eðli sinu mikill
mannvinur og hann hefur
siðan árið 1951 heimsótt
Okinawa, Japan, Filipps-
eyjar, Vietnam og Kóreu til
að skemmta hermönnum.
Að tokum segir Raymond
Burr „Næstu sjónvarps-
þættir sem ég tek þátt i
verða að vera bæði mann-
legir og spennandi. ! fram-
haldsþáttum sem gerðir eru
i dag fyrir sjónvarp er aðal-
persónan annað hvort
læknir, lögfræðingur eða
lögregla. Ef við hefðum
haft sjónvarp fyrir 40 árum
hefði örugglega verið meira
um trúarlegt efni i þvi en er
nú til dags. Þetta þykir mér
leitt, því ég hefði gjarnan
viljað vera með i gerð sjón-
varpsþátta um trúarleg
efni," segir Raymond Burr
að lokum.
Raymond Burr i hlutverki sínu i „Ironside".
+ Nýlega voru seldir á uppboði
hjá Sotheby í London eyrnalokk-
ar úr gulli með smarögðum, perl-
um og rúhínum sem Margrét syst-
ir Elísabetar drottningar hafði
átt. Hún vildi fá minnst 900 þús-
und krónur fyrir þá en þeir seld-
ust á rúmar 3 milljónir. Sagt er að
eyrnalokkarnir hafi verið gjöf frá
fyrrverandi eiginmanni hennar,
Anthony Armstrong Jones.
+ George Harrison fyrrverandi Bítill hefur fundið sér
nýjan lífsmáta. Eftir að hann hitti kínverska lækninn
Zion Yu, sem með nálarstunguaðferð læknaði Harrison
af lifrarsjúkdömi heimsækir hann lækninn alltaf öðru
hverju til að láta hann stinga sig með nálum. „Ég get
ekki án þess verið,“ segir Harrison.
Sölufólk
Ferðahappdrætti HSÍ
Komið á skrifstofu HSÍ, íþróttamiðstöðinni,
Laugardal laugardaginn 1 5. október kl. 9 — 1 2
og 13 —15.
Takið miða
GÓÐ SÖLULAUN
Handknattleikssamband íslands.
BLUGGATJOEÖ
SKIPHOUI17A SÍM117563
Det Danske Selskap
afholder Andespil
sondag den 16. oktober kl. 20.30 pá Hótel
Loftleiðir, Kristalsal. Medlemmer gratis ad-
gang. Gæstebilletter kr. 150 — Pladerne kost-
er kr. 300. — stk.
Mange fine gevnister Dans eftir Andespillet.
Det Danske Selskap
heldur Andespil — Bingo
sunnudaginn 16. októbesr kl. 20.30 að Hótel
Loftleiðum, Víkingasal. Ókeypis aðgangur fyrir
meðlimi. Aðgöngumiði gesta kr. 1 50 —
Spjöldin kosta kr. 300. —
Margir góðir vinningar Dans verður að loknu
„Andespillet".
T ollstjórinn í Reykjavík
tilkynnir
Gjaldendur geta greitt gjöld sín í bönkum og
sparisjóðum á giróreikning embættisins nr.
88500 eða með ávísunum í póstkassa emb-
ættisins i anddyri Tollhússins, Tryggvagötu 1 9.
Upplýsingar um starfsemi embættisins meðan
á verkfalli B.S.R.B. stendur verða veittar sem
hér segir:
Tollstjóraskrifstofan s^mi 18504.
Tollbæzlan símar 24127 og 12969.
Telexnúmer embættisins er 21 28 custom is.
Tollstjórinn í Reykjavík.