Morgunblaðið - 15.10.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÖBER 1977
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
notaða hér áður fyrr, en það er
varðandi fjáröflun. Mætti ekki
taka upp aftur vegatoll í ein-
hverri mynd, þá á ég við beinan
toll, en ekki innifalinn í hinum
eða þessum rekstrarlið bílanna.
Víða erlendis eru vegatollar al-
gengir, ég veit náttúrlega ekkert
hversu vinsælir þeir eru en vænt-
anlega fjáröflunarleið samt.
Er það einhver voðaleg goðgá
að taka upp vegatoll 1 einhverju
formi á þeim vegum, sem búnir
eru varanlegu slitlagi eða öllu
heldur á þeim vegum sem verða
búnir varanlegu slitlagi á næstu
árum. Þetta myndi án efa gefa
einhverjar tekjur og menn
myndu ekki finna eins fyrir þess-
um útgjöldum og bensínhækkun-
um, þær verða áreiðanlega nógu
margar samt. (Gengishækkun, er-
lend hækkun, dreifingarkostnað-
arhækkun o.fl. o.fl.)
Ég held að álögur á bifreiðaeig-
endur í landinu séu orðnar alltof
miklar. Við verðum að viður-
kenna að bfllinn er ekki lengur
Ieiktæki og sport fárra manna og
ríkra heldur nauðsynjahlutur,
sem margir geta ekki verið án og
því alrangt að leggja svo mikla
skatta á bifreiðaeigendur að þeim
sé nánast gert það ómögulegt að
reka þá. Hvað um það, ég vona að
menn vilji tjá sig eitthvað um
þessar hugmyndir, sem hér koma
fram, mér finnst það alveg nauð-
synlegt að bifreiðaeigendur láti i
sér heyra meira og held að við
séum of aðgerðalitil, okkur vantar
meiri samstöðu eins og það
heitir. Bifreiðaeigendi.“
Velvakandi tekur undir það
með þessum bifreiðaeiganda að
vel mætti ræða þessar hugmyndir
og aðrar, sem menn eru e.t.v. með
í kollinum um vegamál og bensin-
verð og fleira tengt rektrarkostn-
aði bifreiðaeigenda og hvetur
hann til þess að menn sendi linu,
þær má leggja inn : afgreiðslu
blaðsins eða hringja milli kl. 10 og
11 f.h.
0 Fyrirspurnir til
verkfallsmanna
Nokkrir félagar í leikfimi
hafa sent Velbakanda spurn-
ingar, sem þeir vilja beina til
forráðamanna BSRB og fara þær
hér á eftir:
1. A Islandi er nálægt 5. hver
vinnandi maður I opinberri þjón-
ustu. Við höldum að það megi
þeim fækka um 10% að meðaltali,
misjafnt eftir fyrirtækjum og
stofnunum. Að þessu gerðu væri
öruggiega hægt að hækka kaup
hinna nægilega. Hvað segja BSRB
menn um þetta?
2. Við teljum að það þekkist að
fólk i vinnu hjá því opinbera
drolii í dagvinnunni til að fá eftir-
vinnu. Er það rétt?
3. Er haft eftirlit með að fólk í
opinberri þjónustu taki ekki
nema hálftima í mat þar sent svo
er samið um?
4. Er haft eftirlit með því að
fólk, sem kaupir stórlega niður-
greiddan mat af rikinu, telji það
til hlunninda?
5. Er hugsanlegt að talsverður
hluti opinberra starfsmanna
treysti sér ekki til að taka störf á
hinum almenna vinnumarkaði?
Nokkrir félagar
f leikfimi."
Þessum spurningum er hér með
beint áfram til þeirra, sem gætu
svarað, en það þurfa sjálfsagt
margir aðilar að svara ef vel á að
vera t.d. varðandi skattamál, en
varla er hægt að búast við svörum
skattstofunnar meðan hún er
væntanlega í verkfalli.
Þessir hringdu . .
0 Leiðrétting
Þessi sami maður benti á að
ökuskýrteinið fslenska væri nú
8x10,5 sm, en ekki 5x9 sm eins og
nefnt var hjá Velvakanda í fyrra-
dag undir fyrirsögninni Of stór
skirteini. En þessi villa skrifast
ekki á reikning konunnar í Kefla-
vík heldur Velvakanda, þvi
eitthvað höfðu tölurnar snúizt við
í meðförum hans.
0 Gera aðeins
skyldu sína
Starfsmaður á Keflavíkur-
flugvelli hafði samband við Vel-
vakanda og vildi benda á nokkur
atriði varðandi umferð um hliðið
og völlinn:
— Mér finnst það nú hálf-
hlægilegt að halda að hver sem er
ætti óhindrað að fá að fara þarna
um flugvallarsvæðið, eins og bor-
ið hefur á í sambandi við þessar
aðgerðir í hliðinu. Þessir
lögreglumenn, sem eru beztu
menn, eru aðeins að gera skyldu
sína og framfylgja því sem þeim
ber. Við sem vinnum hjá varnar-
liðinu þurfum oft að fara inn á
,,heit“ svæði hjá þeim og þá er
það algert skilyrði að vegabréfið
sé i lagi. Hef ég þar af leiðandi
ekki orðið fyrir óþægindum af
þessum sökum, nema hvað maður
hefur þurft að bíða lengi vegna
hinna, sem ekki hafa sin skilríki i
lagi.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóölega skákmótinu í Sao
Paulo í sumar kom þessi staða
upp i skák Brasilíumannanna
Hermans, sem hafði hvítt og átti
leik, og Rocha.
31. H7xd6+ — cxd6, 32. IIxd6+ —
Kf5, 33. Dd3+. Svartur gafst upp.
Eftir 33 . . . De4, 34. Hd5+ tapar
hann drottningunni og eftir
33 .. . Kg4, 34. Dh3 er hann mát.
HÓGNI HREKKVÍSI
0 ©1977
>'* McNaught Syod., lac.
Þad segir hér í blaðinu, að nokkrum skipum í
flotanum hafi hlekkzt á!
Bazar og kaffisala
Kvennadeild Barðstrendingafélagsins í Reykja-
vík hefur bazar og kaffisölu sunnudaginn 16.
október n.k. kl. 2 e.h. í Domus Medica. Margt
góðra muna og gómsætar kökur. Allir velkomn-
ir.
Kvennadeildin.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa, allsherjar at-
kvæðagreiðslu, í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur, um kjör fulltrúa á 1 1 . þing Landssam-
bands íslenzkra verzlunarmanna.
Kjörnir verða 52 fulltrúar, og jafn margir til
vara.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjóra fyrir kl. 1 2,
mánudaginn 17. okt. n.k.
Kjörstjórnin.
Vegg- og loftklæðningar
á ótrúlega hagstæðu verði
Koto Kr. 1.990 -
Gullálmur Kr. 2.590 -
Oregon pine Kr. 3.150-
Eik Kr. 3.370 -
Teak Kr. 3.370 -
Hnota Kr. 3.440 -
Palisander Kr. 3.580 -
Strigaáferð Kr. 1.410-
Öll verð pr. fermeter
— með scluskatti.
Ennfremur eigum við
furu- og grenipanel
í 6 mismunandi gerðum.
Gerið verðsamanburð
— það borgar sig.
^Bif^ípMvjvii'örui'erzíwMÍi^,
BJÖRNINN,
Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik
Kjúklingar
990 kr. kg.
10 stk. í kassa.
Unghænur
690 kr. kg.
10 stk. í kassa.
Opið til hádegis
Laugalæk 2, REYKJAVIK, Simi 3 5o2o