Morgunblaðið - 16.10.1977, Page 1
68 SÍÐUR
229. tbl. 64. árg.
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nýjar reglur um heims-
meistaraeinvígid í skák
Caracas. 15. október. Reuter.
NÝJAR reglur um heims-
meistaraeinvígið í skák
hafa verið samþykktar á
49. alþjöðaskákþinginu í
Caraeas og koma í stað
gamla kerfisins sem hefur
verið umdeilt.
Þingið samþykkti einnig
að heimsmeistarinn skyldi
halda titlinum í eitt ár í
stað þriggja áður.
Karpov vill tefla vid Fischer.
Samkvæmt hinum nýju
reglum sem Alþjóðaskák-
sambandið (Fide) hefur
Langferðabifreið
rænt í Japan í gær
Nagasaki, 15. október. AP
TVEIR grímuklæddir menn
vopnaðir haglabyssum og
sprengjuefni rændu í dag lang-
ferðabifreið með 20 manns,
Hillary
hressari
Nýju Delhi. 15. október. AP.
SIR EDMUND Hillary, sem fyrst-
ur manna kleif Mount Everest,
veiktist f fjallgöngu í 17.000 feta
hæð í Himalaya-fjöllum í gær og
var fluttur í þyrlu til bæjarins
Dareilly þar sem hann er á góðum
batavegi. Hann hyggist snúa aftur
til félaga sinna úr fjallgöngu-
leiðangrinum eftir stutta hvild.
Sir Edmund Hillarv
skammt frá Nagasaki f Japan.
Segjast mennirnir vera félagar í
víkingasveitum ASO Rauða hers-
ins, sem ekki hefur heyrst um
áður og ekki vitað hvort er í
tengslum við Rauða herinn,
hryðjuverkasamtökin, sem rændu
farþegaþotunni í fyrri viku og
fengu 6 féiaga sína lausa úr haldi
og 6 milljón dollara í skiptum
fyrir farþega og áhöfn þotunnar.
Mennirnir hafa krafist að fá að
tala við háttsetta japanska em-
bættismenn. þ.á m. dómsmálaráð-
herra landsins, en þeir höfðu ekki
skýrt frá kröfum sínum, er Mbl.
fór í prentun síðdegis í gær.
samþykkt hlýtur sá sem
fyrst vinnur sex skákir
heimsmeistaratitilinn.
Jafntefli reiknast ekki
með og fjöldi skáka í loka-
einvíginu verður ótak-
markaður.
Samkvæmt gamla
kerfinu skulu 24 skákir
tefldar og jafntefli talin
með. Þar sem Bobby Fisch-
er fyrrverandi heims-
meistari var óánægður
með þessar reglur hætti
hann þátttöku í lokaúrslit-
um 1975 og þar með glataði
hann titlinum og Anatoly
Karpov varð heimsmeist-
ari.
Karpov sótti þingið í Caracas og
sagði blaðamönnum: „Það voru
mistök að ná ekki samkomulagi
urn þetta 1975 þegar ég átti að
tefla við Fischer. Ég vil mjög
gjarnan tefla við hann og ég helda
að nú séu mjög góðar likur á því.“
Karpov teflir annað hvort við
Viktor Korchnoi eða Boris
Spassky um heimsmeistaratitil-
inn. Einvígi Korchnois og
Spasskys hefst 14. nóvember í
Hollandi.
Karpov vann 22 skákir og gerði
þrjú jafntefli i fjöltefli í Caracas.
BÆJARLÍFIÐ — Svona Iftur spegilmynd af haustinu út f þéttbýlinu. I
stað lygna pollsins sem Ijósmyndarinn hefði-fundið sér uppi f sveit til
þess að láta konuna og tréð speglast í finnur borgarljósmyndarinn sér
það sem alltaf er tiltækt, nefnilega þakið á rétt einni blikkbeljunni.
(Ljósm: Friðþj.)
Hótuðu að myrða Schleyer og
sprengja þotuna fyrir hádegi
Bonn. 15. október. AP
HELMUT Schmidt, kansl-
ari V-Þýzkalands, sat
síðdegis í dag á neyðar-
fundi með ríkisstjórn sinni
og nefnd þeirri, sem
skipuð var til að fjalla um
ránið á Hanns Martin
Schleyer og nú ránið á v-
þýzku Lufthansaþotunni,
þar sem 4 flugræningjar
halda um 90 manns í
gíslingu á flugvellinum í
Dubai. Hafa ræningjar
Schleyers hótað að taka
hann af lífi kl. 08.00 í
fyrramálið, sunnudag, ef
11 félögum þeirra í fang-
elsum í V-Þýzkalandi verði
ekki sleppt, og flug-
ræningjarnir hafa hótað að
sprengja flugvélina í loft
upp með öllum innanborðs
kl. 12 á hádegi ef ekki
verði gengið að kröfum
þeirra um, að 11-
menningunum verði
„Okkur er haldið sem
gíslum í Reykjavík,,
Utlendingarnir senda neydarkall til erlendra fréttastofa
Ósló, 15. október. AP.
tlTLENDINGARNIR sem lokaðir eru inni
vegna verkfaila opinberra starfsmanna á
Isiandi hafa sent neyðarkall til umheims-
ins og beðið erlendar fréttastofur að skýra
frá nauðum sínum til að hjálpa þeim að
komast úr landi. Norskur læknir, Tore
Midtvedt, sagði í samtali við Aftenposten,
en blaðamaður náði af hendingu sambandi
við hann í Reykjavík, að útlendingunum
væri haldið sem gíslum af verkfallsnefnd
opinberra starfsmanna, sem hefði sagt
þeim, aö hún teldi það jákva*tt fyrir sig að
geta notað útiendingana til að leggja
áherzlu á kröfur sfnar.
Midtvedt, sem er aðstoðarlæknir við ríkis-
sjúkrahúsið i Ösló, var á leið á læknaþing i
New York, er hann lokaðist inni. Sagði
hann að engar flugvélar fengju að fara í
loftið frá Keflavíkurflugvelli og hefði
sænski sendiherrann í Reykjavík tekið að
sér að reka mál útlendinganna við íslenzk
stjórnvöld.
Fréttamaður AP-fréttastofunnar i Ösló
náði sambandi við bandariska konu, sem
einnig er lokuð inni í Reykjavik, frú Renötu
Blechinger. Frú Blechinger, sem starfar við
ferðaskrifstofu i New York, sagðist hafa
komið til íslands á þriðjudag með Loftleið-
um, en sér hefði ekki verið sagt frá verk-
fallinu. Sagðist hún ekki hafa getað látið
atvinnuveitanda sinn í New York vita, né
fjölskyldu sina, því að hún og aðrir útlend-
ingar fengju ekki að senda skeyti eða
hringja til útlanda. Bað hún AP að láta
umheiminn vita hvað væri að gerast ,,til að
við komumst frá Reykjavík eins fljótt og
mögulegl er“.
sleppt úr haldi ásamt
tveimur palestínskum
hryðjuverkamönnum, sem
eru í fangelsum í Tyrk-
landi, og 15 milljón dollara
lausnargjald.
Er þess krafist að v-þýzka
stjórnin sendi flugvél með
hryðjuverkamennina til S-Yemen
Sómalíu eða Vietnams að því er
talsmaður Bonnstjórnarinnar
skýrði frá i dag. Fregnir frá Bonn
í dag hermdu að v-þýzka stjórnin
hefði ætlað að greiða 15 milljón
dollara lausnargjaldið, en hætt
við það, er fjölmiðlar í
V-Þýzkalandi höfðu skýrt frá
ákvörðuninni.
Fólkið um borð í þotunni hefur
fengið mat og drykk um borð, en
ræningjarnir hafa neitað að leyfa
þremur sjúklingum að fará frá
borði og 7 börnum. Hins vegar
leyfðu þeir að börnunum yrðu
send leikföng til að dunda sér við.
Ræningjarnir eru, eins og áður
hefur verið skýrt frá, tveir karlar
og tvær konur. Þotunni var rænt
á fimmtudag skömmu eftir flut-
tak frá Mallorka á leið til Frank-
furt, en Hanns Martin Schleyer
var rænt 5. september af hryðju-
verkamönnum úr Rauðu herdeild
Baader-Meinhofsamtakanna.
Flugræningjarnir segjast vera
félagar í samtökum til baráttu
gegn heimsvaldasinnum og
aðgerðirnar séu framhald af ráni
Schleyers.