Morgunblaðið - 16.10.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÖBER 1977 Þórir S. Guðbergsson Rúna Gislarfóttir Baraa- og fjölskyldosíðan Til gamans Segðu mér, hvað þú ert að gera. Ég, ekkert. Blessaður segðu mér, hvernig þú ferð að því! Veistu, hver er munurinn á póst- kassa og hesti? Nei, ég veit það ekki. Nú, þá get ég ekki sent þig með bréf í póstkassann! Jæja, þá kem ég með síðustu af- borgunina af barnavagninum. Þakka þér kærlega fyrir. Hvernig líður barninu? Agætlega, þakka þér fyrir. Hann stendur nú hérna við hliðina á mér, drengurinn! Brátt eigum við allra veðra von á íslandi. Þá er gott að eiga góð hlífðargöt. Nú á dögum er meira úrval af fötum en nokkru sinni fyrr. Og það er oft erfitt að velja og hafna. Tískufatnað- ur er mikið auglýstur og margir foreldrar eiga oft í erfiðleikum gagnvart börnum sínum. Þau heimta að fá ákveðin föt, sem kannski eru dýr og auk þess óhentug. Margt ber að athuga. Föt úr gerviefni eru aldrei eins hlý og ullarfatnaður á köldum vetrardögum. Einnig kemur fyrir að börn hafa ofnæmi fyrir ákveðnum efnum t.d. gerviefnum eða ull. Tískan getur stundum verið hættuleg. Börn sem hafa verið með eyrnabólgu hafa neitað að fara í skólann með húfur af því að þeim yrði strítt eða af því að „það er ekki í tísku“! Við gerum e.t.v. of lítið af þvi að skiptast á um föt, erfa föt hvert hjá öðru. Börn þurfa að læra að klæða sig sjálf. Snagar, körfur og hengi þurfa því að vera í þeirri hæð, sem hentar börnunum — og þau þurfa góðan tima til þess að læra! Oft gengur þeim hægt og seint og þá verðum við, hin fullorðnu, óþolin- móð og viljum endilega flýta fyrir og hjálpa þeim. Allt verður að gerast hratt og fljótt. Okkur liggur á! Allt hefur sinn tíma! Leyfum börnunum að sjá um sig sjálf. Ætli það séu „hundrað í hætt- unni“, þó að börnin hneppi ekki nákvæmlega í rétt göt eða allt fari vel og sitji nákvæmlega á sinum stað? Leyfum þeim að þreifa sig áfram og læra af reynslunni. P* L l"" / 11 Vetrarjiiónusta CHEVROLET BUICK VAUXHALL OPEL 1. Mótorþvottur 2. Hreinsun á rafgeyma- samböndum 3. Mæling á rafgeymi og hleöslu 4. Viftureim athuguð 5. Skipt um platínur 6. Skipt um kerti 7. Loftsía athuguö 8. Skipt um bensínsíu í blöndungi Mótorstilling Kælikerfi þrýstiprófaö Mælt frostþol +°C Stillt kúpling Yfirfarin öll Ijós Aðalljós stillt Hemlar reyndir Stýrisbúnaður skoöaður Rúðuþurrkur athugaðar Rúðusprautur athugaðar og settur á frostvari Efni, sem innifalið er í verði: Kerti, platínur, frostvari og bensinsía. Verð: 4 strokka vél kr. 10.932.- 6 strokka vél kr. 12.802.- 8 strokka vél kr. 14.673.- Gildir 1/10 - 1/12 SAMBANDIÐ VÉLADEILD ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ HÖFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.; 85539 Verzb 84245 84710 LÖKK A BiLINN BÍLAEIGENDUR, BÍLAMÁLARAR ÞARF AÐ BLETTA EÐA SPRAUTA BÍUNN ? Dupont lökkin LUCITE og IMLAR eru gædavara, margreynd og henta íslenskum staðháttum. Gefið okkur upp bílategund, árgerð og litanúmer. Við afgreiðum litinn með stuttum fyrirvara. í Dupont blöndunarkerfinu eru 7000 litaafbrigði möguleg. Öll undirefni svo sem grunnar, þynn- ar og sparsl fást einnig hjá okkur. LliCITE •uLfccii Laugavegi I78 simi 38000 » » * « it t * f iiijim ittttti tt > i«»«t»4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.