Morgunblaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1977
25
Utlendingar
út — íslend-
ingar heim
Á SUNNUDAG fóru Ivær flug-
vélar Flugleiða frá Kefiavík
með farþega þá sem hér hafa
dvalizt lengur en þeir ætluðu.
Verkfallsnefnd BSRB veitti
Flugleiðum þetta leyfi á fundi
sínum á laugardag. Þá veitti
nefndin Arnarflugi leyfi til að
fljúga tvær ferðir til Mallorka
til að sækja þangað farþega,
sem þar hafa dvalið.
í tilkynningu frá verkfalls-
nefnd BSRB, sem blaðamönn-
um var afhent á fundi i gær-
morgun, sagði, að Flugleiðavél-
arnar hafi farið til Glasgow og
Kaupmannahafnar annars veg-
ar og Luxemborgar og London
hins vegar. Leyfi til heimflugs-
ins hafi verið bundið við is-
lenzka ríkisborgara og erlenda
ríkisborgara sem búa hér á
landi. _
Þá segir að Arnarflug hafi
fengið leyfi til að fljúga tvær
ferðir til Mallorka á vegum
ferðaskrifstofanna Sunnu og
Samvinnuferða. Var önnur
ferðin farin á sunnudag, en
hina átti að fara i gær. Var leyfi
Arnarflugs bundið því, að engir
farþegar færu utan með vélun-
um, en alls voru það 245 farþeg-
ar sem sækja átti til Mallorka.
Undanþága var gefin til
venjulegrar tollafgreiðslu þeg-
ar vélarnar komu heim.
Útlendingarnir, sem Flug-
leiðavélarnar fluttu úr landi,
voru alls 204, auk þess sem
nokkrir Islendingar búsettir
erlendis fóru með vélunum.
Aður en útlendingarnir yfir-
gáfu landið sendu þeir verk-
fallsnefnd BSRB þakkarbréf,
og er bréfið undirritað af Norð-
manninum Tore Midtvedt og
Svíanum Bernt Persson.
I bréfinu stendur:
„Fyrir hönd útlendinga sem
dvalizt hafa á Íslandí lengur en
ætlað var, viljum við flytja
verkfallsnefnd BSRB þakkir
fyrir þátt hennar í þvi að við
getum nú haldið heimleiðis.
Við höldum heim með því hug-
arfari, að allir Íslendingar hafi
hlustað með skilningi á vanda-
mál okkar, þrátt fyrir eigin
vanda, og hafi reynt að leysa
málin, strax og við færðum þau
í tal.
Við hverfum héðan með þá
reynslu i vegarnesti, að þetta sé
kleift með samvinnu og einhug,
þótt þjóðerni og tunga skilji
okkur að.
Við vonumst til að koma hing-
að aftur ''
Brottför útlendinganna:
• •
Orvæntingin hafði breytzt i gleði
„ÖRVÆNTING þeirra farþega
sem lengst hafa beðið hefur nú
bre.vtzt í mikla gleði. Það þarf
engan að undra það. þar sem
sumt af þessu fólki hefur ekki
getað látið vita af sér í um það
bil eina viku, og fjölskyldur
þeirra og vinir erlendis vita
ekkert hvað gerzt hefur hér á
landi," sagði Tore Midtvedt í
samtali við Mbl„ en hann er
talsmaður erlendu ferðamann-
anna, sem hafa verið inni-
lokaðir á tslandi frá s.l. þriðju-
degi, að verkfall BSRB hófst.
Við hittum Midtvedt aðeins að
máli skömmu áður en hann fór
af landi brott á sunnudags-
morgun ásamt rösklega 200 far-
þegum öðrum.
„Það var seint í gærkvöldi,
sem hringt var i mig og mér
tilkynnt að undanþága hefði
fengizá fyrir flug með okkur
útlendingana úr landi og þegar
hringt var hafði örvæntingin
heltekið marga. Að sjálfsögóu
var strax hafizt handa við að
láta fólkið vita og um leið
breyttist skapið. "
„Við erum mjög ánægðir með
að forystumenn BSRB skyldu
að lokum skilja okkar sjónar-
mið, enda er ekki hægt að halda
fólki sem gíslum í lvðfrjálsu
landi. Þá vil ég koma þökkum
til dagblaða hér og erlendis sem
vöktu athygli á okkar málstað,
og ég held að fjölmiðlarnir hafi
átt sinn þátt i að þetta mál
leystist, og ennfremur veittu
sendiráðin i Reykjavík okkur
dýrmæta aðstoð.
Það voru margir hér sem lof-
uóu sífellt öllu fögru, og nánast
eini aðilinn, sem stóð við sitt,
var verkfallsnefnd BSRB. Þar
fengum við aldrei nein loforð
fyrr en okkur var tilkynnt um
undanþáguna og við út-
lendingarnir höfum þegar
skrifað þakkarbréf til verk-
fallsnefndarinnar, sem mér
hefur verið falið aö afhenda,
áður en ég fer til Keflavíkur,"
sagði Tore Midtvedt.
Þá sagði hann, að erlendu
ferðamennirnir hefðu byrjað
að ræða unt einhverjar aðgerðir
s.l. föstudag og þeijra atlaga
hefði staðið i um það bil tvo
sólarhringa.
„Ég er búinn að vera tepptur
hér heima siðan á mánudag, og
átti ég að mæta til vinnu á
þriðjudag, og það sem verra er,
að nú er ég kominn út af launa-
skrá,“ sagði Sigurður
Guðmundsson. sem býr i New
York og vinnur þar hjá Loft-
leiðum. Kvaðst Sigurður hafa
ætlað að stoppa i nokkra daga á
Islandi, en konan hefði orðió
eftir úti.
„Það versta við þetta verkfall
var að maður gat lítt eða ekki
haft samband heim til sín, en
engu að siður tókst mér að
koma nokkrum skeytum gegn-
um fjarrita en annars var ég
búinn að gefa upp alla von um
að komast heim fyrr en verk-
fallið leystist. Maður hefur
beðið við simann alla dagana.
og það var fyrst i nótt sem
síminn hringdi með þessa gleði-
fregn."
„Ég hef aldrei k.vnnzt svona
löguðu fyrr," sagði japanski
kaupsýslumaðurinn Tateishi.
„Sjálfur hef ég heyrt um verk-
föll, en að maður skuli stöðvað-
ur i landinu að ósekju. það er
hryllilegt. Ég átti að vera kom-
inn tii New York fyrir tveimur
dögum á mikilvægan fund, og
sem betur fer tókst mér að
koma skilaboðum tímanlega
Annars skil ég ekki svona
vinnubrögð."
Tvær ungar stúlkur frá
Winnipeg í Kanada. þær
Bonnie Halstead og Sharon
Peterson, kváðust hafa pantað
far i gær. mánudag. en þær
hefðu ekki þorað annað en að
taka sér far með vélinni núna,
ef verkfallið skvldi dragast á
langinn. enda ekki vilað til að
fleiri undanþágur yrðu gefnar.
„Við höfum sem sagt ekkert
Framhald á bls. 27
Tore Midtvedt. Ljósm. Mbl.:
Friðþjófur.
Alcopley
Útlendingarnir voru almennt ánægðir á svip I farþegaafgreiðslunni
á Loftleiðahótelinu á sunnudagsmorgun.
Bonnie Halstead og Sharon Peterson
Sigurður Guðmundsson
Tateishi frá Japan
„U mferðarreglurnar
eru settar þín vegna”
SJÁLFSAGT eru þau mörg boð-
orðin, sem æskilegt va‘ri að
ökumenn færu eftir. A skrif-
borði Óskars Ólasonar. yfirlög-
regluþjóns Umferðardeildar
lögreglunnar í Reykjavík,
fundum við þau heilræði, sem
hér fara á eftir:
1. Arekstrar og slys i umferð-
inni verða ekki af sjálfu sér,
þeim er valdió af vegfarendum.
2. Hver ökumaður ræður að-
eins yfir þvi ökutæki, sem hann
sjálfur stjórnar. Það er ekki
afsökun að segja: Ég hélt, aó
hinn ökumaöurinn ætlaði að
gera þetta eða hitt, þv^ um þaö
getið þið engu ráðið. Ef hver
hugsar um að gæta sin, þá kent-
ur örugglega i ljós að hægt er
að fækka umferðarslysum.
3. Umferðarmerkingar eru
settar til þess að eftir þeim sé
farið. Oft finnst manni að veg-
farendur haldi að nierkin séu
sett upp fyrir lögregluna og ef
engin lögregla er nálæg, þá sé
sjálfsagt að virða ekki merking-
arnar. Merkingarnar eru hjálp-
artæki til að skapa öryggi og
þvi verða allir vegfarendur að
virða þær.
4. Umferðarreglurnar eru
settar þín vegna. Ef þú virðir
þær ekki hvernig gelurðu þá
búist við að aðrir geri það.
5. Oft getur örlítil dvöl sparað
sára kvöl.
6. Veistu hvað meðaltjón i
árekstri kostar? E^f ekki þá
kynntu þér það strax og áður en
þú veröur þátttakandi í óhappi
og fjárhagur þinn segir þér
þetta.