Morgunblaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1977
GUNNAR LOKAÐI
MARKINU ER
HAUKARLÖGÐU VAL
FRÁBÆR f rammistaða Gunnars
Einarssonar, markvarðar í Hauk
um, varð öðru fremur til að færa
liði hans sigur yfir íslandsmeist
urum Vals er liðin mættust í
Laugardalshöllinni i gærkvöldi.
Úrslit leiksins urðu 16—14 sigur
Hauka, sem náðu mest 7 marka
forystu snemma í seinni hálfleik
Lokaði Gunnar Haukamarkinu
langtímum saman og varði hann
m.a. fimm vítaköst i leiknum. Var
það ekki fyrr en undir lokin. þegar
sigur Hauka var raunverulega
tryggður, að í slandsmeistararnir
tóku að síga á, en Haukarnir vo;u
þó nær allan leikinn betri aðilinn
og léku ágætan og skynsamlegan
handknattleik. Sérstaklega var
varnarleikur liðsins ákveðinn og
virkur, og máttu stórskyttur Vals-
liðsins sin oft lítils.
Úrslit leiks þessa komu gifur-
lega á óvart, þar sem fæstir höfðu
búizt við miklu af Haukunum, eftir
að þeir misstu markakóng sinn,
Hörð Sigmarsson, í 2. deildar liðið
Leikni, en úrslit leiksins i gær-
kvöldi sýna að H ukarnir eru til
alls visir og verða ekki auðunnir
V__________________________________
með svo frábærri markvörzlu sem
Gunnar Einarsson sýndi.
Mörk Vals i leiknum skoruðu:
Bjarni Jónsson 3, Jón Karlsson 4
(3v), Þorbjörn Guðmundsson 2
(2v), Jón Pétur Jónsson 1, Björn
Björnsson 1, Bjarni Guðmundsson
1, Steindór Gunnarsson 2.
Mörk Hauka: Elias Jónasson 5,
Andrés Kristjansson 4 (2), Árni
Hermannsson 2, Ingimar Haralds-
son 1, Guðmundur Haraldsson 1.
Sigurgeir Marteinsson 1, Svavar
Geirsson 1. Þorgeir Haraldsson 1.
Þá kepptu ÍR og KR i gærkvöldi
og lauk þeim leik með sigri KR
inga sem skoruðu 24 mörk gegn
20. Staðan í hálfleik var 13—10
fyrir KR. Flest mörk KR-inga skor-
uðu Björn Pétursson 10 og Hauk-
ur Ottesen 7, en Brynjólfur
Markússon var markhæstur ÍR
inga.
í kvöld fara svo fram tveir leikir
i Laugardalshöllinni. kl. 20.00
leika þar Fram og Haukar i 1. deild
kvenna og strax að þeim leik lokn
um, eða kl. 21.00, leika Ármann I
og FH i 1. deild karla.
J
Réykjavíkurmótinu i körfuknatt-
leik veróur fram haldið í Iþrótta-
húsi Ragaskólans í kvöld. Kl. 18
hefst keppni með tveimur
leikjum í 4. fl., en síðan fara frarn
tveir leikir í mfl. karla. Kl. 19.30
leika Fram og ÍR og að þeim leik
loknum eða um kl. 21 hefst leikur
Vals oglS. Framarar ættu ekki að
eiga í erfiðleikum með IR, en
leikur Vals og stúdenta verður
vafalaust spennandi. Vegna verk-
fallsins hefur orðið að fresta
mörgum leikjum í Reykjavíkur-
mótinu, og hefur nú verið ákveðiö
að þeir Ieikir fari allir fram í
þessari viku í Íþróttahúsi Haga-
skólans.
Búlgarar unnu
BÚLGARSKA LIÐIÐ Georgij
Dimitrov sigraði ítalska liðið
Volani með 24 mörkum gegn 19 í
fyrri leik liðanna í Evrópubikar-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik. Leikur þessi fór fram í
Sofia. Staða í hálfleik var 10—5
fyrir húlgarska liðið. Seinni
leikur liðanna fer fram á
heimavelli ftalska liðsins.
Dregið hjá Val
DREGIÐ hefur verið í happdrætti
knattspyrnudeildar Vals og komu
upp eftirtalin númer: 1.
vinningur nr. 7196, 2. vinningur
nr. 5274 og 3. vinningur 3636.
Vinningsnúmerin eru bírt ón
ábyrgðar.
ftalir skelltu hurðinni á Eng-
lendinga með sigrí yfir Rnnum
„ÍTALIH hafa lokaö hurðinni á
Englendinga." Þannig hljóðuðu
fyrirsagnir bre/ku blaðanna eftir
landsleik Italíu og Finnlands í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knaltspyrnu, en leik
þessum sem fram fór í Turin á
Ítalíu á sunnudaginn lauk með
yfirhurðasigri Ítalanna, 6—1. Þar
nieð er nánast útilokað að
Englendingar komist í loka-
keppnina í Argentínu. Til þess að
svo megi verða þurfa Ítalir að
gera jafntefli við I.uxemhurgara,
eða Englendingar að vinna þá
með mjög miklum markamun.
Auóséð var strax í upphafi
leiksins í Turin að Finnarnir ætl-
uðu að leika harðan varnarleik,
og freista þess þannig að sleppa
við markasúpu. Lengst af léku
þeir með átta manna vörn og til að
byrja með gekk þeim nokkuð vel
að verjast ásókn ítalska liösins.
Var sérstaklega rómuð frammi-
staða miövarðarins Ari Makynen,
sem vann hvert einasta skallaein-
vígi sem hann lenti i við Italana,
og markvarðarins Görans Enekel-
man, sem varði mjög vel.
Þegar 15 minútur voru til loka
fyrri hálfleiks var staðan enn
0—0, en þá opnuöust
flóðgáttirnar. Há fyrirgjöf kom
fyrir mark Finnanna, þar sem
Bettega stökk allra manna hæst
ogskallaði knöttinn af miklu afli í
finnska markið. Nokkru síöar var
dæmd hornspyrna á Finnland.
Franeo Causio sem tók horn-
spyrnuna var fljótur að átta sig á
því að Bettega var ekki gætt og
sendi knöttinn hárnákvæmt ö
kollinn á honum. Atti Bettega
ekki í erfiðleikum með að skalla í
markiö og breyta stöðunni í 2—0.
Á síðustu minútu hálfleiksins
bætti svo Franeeseo Graziano
þriðja markinu við með lausu
skoti af löngu færi.
Seinni hálfleikurinn var mun
skemmtilegri en sá fyrri, mest
vegna þess að nú reyndu Finnarn-
ir að sækja og skora. Það tókst
einu sinnj, er Kai Haaskivi sneri á
hinn fræga markvörð Dino Zoff
sem misreiknaði skot hans af
löngu færi.
Þetta kom þó ekki að sök fyrir
ítali þar sem Bettega bætti
tveimur mörkum við i hálf-
leiknum og Zaeearelli einu,
þannig að lokastaöan varð 6—1.
Meðal áhorfenda að leiknum
var enski landsliðsþjálfarinn, Ron
Greenwood, og var hann fátalaður
er blaðamenn ætluðu að ræða við
hann eftir leikinn. — Eftir þessi
úrslit eru Englendingar úr leik,
var það eina sem hann sagði, —
jafnvel þótt við vinnum itali á
Wembley þá er markamunurinn
orðinn alltof mikill.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Ítalía 4 4 00 15—2 8
England 5 40 1 13—4 8
Finnland 6 2 04 11—16 4
Luxemburg 5 00 5 2—19 0
Leikir sem eftir eru: Ítalía —
Luxemburg, England — ítalía.
EIRIKUR OG AGUST KARLSSON
KOMAST EKKI TIL GRIMSÁS í
SVÍÞJÓÐ VEGNA VERKFALLSINS
TVEIR knattspyrnunienn
(slen/kir hugðust fara út til
Svfþjóðar á sunnudaginn og
kynna sér aðstæður hjá 2. félag-
inu Grimsás. Þar sem allt milli-
landaflug er í lágmarki komust
þeir ekki af landi brott og er
þvi alls óvíst hvaö verður í sam-
bandi við ferð knattspyrnu-
mannanna tveggja. Voru það
þeir Eiríkur Þorsteinsson,
fyrirliði 1. deildarliðs Vfkings,
og Agúsl Karisson, leikmaður
með F.vlki, sem ætluðu utan til
að kynna sér aðstæður hjá
Grimsas.
Eiríkur hefur að baki nokkra
landsleiki, auk unglingalands-
leikja og auk þess að vera fyrir-
iiði Víkings, er hann einn
reyndasti leikmaður liðsins.
Agúst Karlsson er einn af
hurðarásunum í Fylkisliðinu
og hefur unglingalandsleiki að
haki. Yrði það því skarð fyrir
skildi ef þeir færu utan, en eins
og málin standa nú er útlit
fyrir að verkfall BSRB komi í
veg fyrir að þeir kornist til
félagsins.
Grimsas var lengi vel f sumar
um miðhik 2. deildarinnar
sænsku, en liðið leikur í sama
riðli og Halmstad og Jönköpin.
lið Matthíasar og Teits. I seinni
hluta keppninnar i 2. deild
hefur hins vegar sigið mjög á
ógæfuhliöina hjá Grimsas og er
liðið nú svo gott sem fallið
niður í þriðju deild. Forystu-
menn félagsins hyggjast þó
ekki lengi a-tla að stjórna
þriðju deildar liði og höfðu í
vikunni smalað saman knatt-
spyrnumönnum úr ýmsum
áttum til æfinga og aukaleikja.
Var sfðan ætlun félagsins að
bjóða þeim sterkustu úr
þessum hópi að skrifa undir
samning við félagið.
Isiandsmötlð 2. delld
Grótta byrjaði vel
og vann Leikni 20-18
Grótta, sem féll.í 2. deild í
f.vrravor, byrjaði keppnistíma-
bilið vel, er liðið sigraði Breið-
holtsfélagið Leikni með 20
mörkum gegn 18 í lþróttahús-
inu á Seltjarnarnesi s.l. sunnu-
dag, eftir að hafa haft tvö mörk
yfir, 12:10, í hálfleik. Grótta
hefur misst nokkra af beztu
leikmönnum félagsins yfir í
önnur félög, svo sem þá Björn
Pétursson og Árna Indriðason,
en eigi að síður er ekki ólíklegt
að liðiö verði í hópi efri liðanna
í 2. deild í vetur.
Leikurinn á sunnudaginn var
heldur stórskorinn og grófur.
Grótta lagði áherzlu á að gæta
markakóngsins Harðar Sig-
marssonar vel, og var hann
ekki tekinn neinum vettlinga-
tökum. Sáu dómarar leiksins
furðulega oft í gegnum fingur
sér við gæzlumenn Harðar, sem
með réttu hefðu átt að fá meira
en tiltal á stundum. Annars er
greinilegt að Hörður nýtur sín
ekki með Leiknisiiðinu, og er
hann aðeins svipur hjá sjón frá
í fyrra.
Leikurinn var jafn framan
af, og um miðjan fyrri hálfleik
var staðan t.d. 7:7. Grótta komst
síðan yfir og lét ekki forystuna
af hendi eftir það. Var mestur
munurinn 4 mörk undir lok
leiksins, en Leiknismönnum
tókst að hleypa nokkurri
spennu í leikinn á lokamínút-
unum, en skorti yfirvegun og
rósemi til þess að jafna.
Bezti leikmaður Gróttuliðsins
i leikrium var Þór Ottesen, sem
þó tók aðeins þátt í sóknar-
leiknum. Var hann furðu nask-
ur við að sjá smugurnar í
Leiknisvörninni og notfæra sér
þær. Aðrir sem stóðu sig vel í
Gróttuliðinu voru þeir Guð-
mundur Ingimundarson, mark-
vörður og Reynir Erlingsson,
sem er greinilega mikið efni.
Hjá Leikni átti Finnbogi
markvörður ágætan leik, svo og
Hafliði Pétursson, sem var þó
stundum of bráður að skjóta. Í
heild virðist Leiknisliðið ákaf-
lega svipað að styrkleika og það
hefur verið undanfarin ár, én
vel má vera að þar hressist
meira ef Hörður Sigmarsson
nær sér betur á strik.
IVIörk Gróttu: Þór Oltesen 6,
Gunnar Lúðvíksson 4 (lv),
Grétar Vilmundarson 3 (lv),
Reynir Erlingsson 2, Axel Frið-
riksson 2, Pétúr Gunnarsson 1,
Hörður Lúðvíksson 1, Kristján
Georgsson 1.
IWörk Leiknis: Hafliði Péturs-
son 8 (2v), Hörður Sigmarsson
3 (lv), Hafliði Kristinsson 2,
Finnbjörn Finnbjörnsson 2,
Árni Jóhannesson 1, Ásmundur
Kristinsson 1, Guðmundur
Hjartarson 1. — stjl.
Reynsluleysi háir HK
sem tapaði fyrír Fylki
Eftir 22—17 sigur yfir nýlið-
unum í 2. deild, HK, hefur
Fylkir tekið forystu í 2. deildar
keppni íslandsmótsins I hand-
knattleik, unnið báða leiki sina.
Ekkj þykir þó undirrituðum
líklegt að Fylkir haldi þeirri
stöðu þegar á mótið líður. Liðið
virðist mjög svipað og það hef-
ur verið undanfarin ár — gerir
oft skemmtilega hluti, en dett-
ur þess á milli algjörlega niður.
Er furðulegt hvað Fylkisliðinu
gengur erfiðlega að ná sér vel á
strik, þar sem það er að stofni
til skipað ágætum hand-
knattleiksmönnúm.
Flestir leikmenn HK eru
mjög ungir að árum, og.skortir
sýnilega reynslu. Kom þetta
einkum fram i byrjun leiksins á
sunnudaginn í Garðabæ, þar
sem reynd voru ótímabær skot,
og fullmikið var um mistök í
vörninni. Í seinni hálfleik hafði
liðið í fullu tré við Fylki, þótt
leikaðferðin væri dálítið
glannaleg, þ.e. stundum voru
þrír Fylkismenn teknir úr um-
ferð í einu.
Fylkir náði fljótlega góðri
forystu í leiknum á sunnudag-
inn. Þannig var staðan um
niiðjan hálfleikinn orðin 7—4
fyrir Fylki og eftir það tókst
HK mönnum ekki að skora eitt
einasta mark fram að leikhléi,
þrátt fyrir góð tækifæri. Var
staðan orðin 10—4 fyrir Fylki í
hálfleik og vonlitið að Kópa-
vogsbúarnir gætu náð stigi í
leiknum.
i seinni hálfleik var hins
vegar miklu meira líf í þeim, og
lék liðið þá oft laglega i sóknar-
leik sínum — notaði vel línuna
og eftir að „gamli maðurinn"
Karl Jóhannsson, fyrrverandi
landsliösmaður úr KR, kom
inná var góð ógnun að utan.
Skoraði HK einu marki meira
en Fylkir í seinni hálfleiknum,
og má ætla að þetta lið geti
staðið í hvaða liði sem er í 2.
Karl Jóhannsson i KR-
búningnum. Nú leikur hann
með nýliðum HK í 2. deild og
sýndi í leiknum á sunnudaginn
að lengi lifir í gömlum glæðum.
deild, þegar það er komið af
stað.
Beztu leikmenn Fylkisliösins
voru þeir Halldór Sigurðsson
og Gunnar Baldursson, svo og
markvörðurinn Ragnar Arna-
son sem varði oft með ágætum.
Það gerði einnig „kollegi" hans
i HK-markinu, Einar Ö.
Þorvarðarsón, sem var bezti
maður liðs síns ásamt þeim
Karli Jóhannssyni, Kristni
Ölafssyni og Hilmari Sigur-
gíslasyni.
IVlörk HK: Karl Jóhannsson 5
(2v), Ragnar Ólafsson 4,
Hilmar Sigurgíslason 3, Krist-
inn Ólafsson 2, Björn Blöndal 2,
Einar Ö Þorvarðarson 1.
IVIörk Fylkis: Iialldór
Sigurðsson 8 (lv), Gunnar
Baldursson 5, Einar Agústsson
3, Stefán Hjálmarsson 2, Einar
Einarsson 1, Gunnr Hilmarsson
1, Jón Ágústsson 1.
—stjl.