Morgunblaðið - 19.10.1977, Síða 2

Morgunblaðið - 19.10.1977, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1977 Ekki talin ástæða til gæzluvarðhalds - þegar fyrra nauðgunarmálið var í rannsókn VEGNA fréttar í blaðinu í gær um nauðgunarmál í Keflavík. en þar hefur 19 ára piltur verið handtekinn tvisvar á nokkrum vikum fvrir slík brot, hafði Mbl. samband við Þóri Oddsson, stað- gengil rannsóknarlögreglustjóra, og spurði hann hvernig mál af þessu tagi væru meðhöndluð og hvort fangelsunum væri ekki beitt. Þórir svaraði því til, að venjan væri sú að þegar nauðgun væri kærð og hinn seki næðist og játaði fullkomlega brot sitt, væri honum Framhald á bls 18. Langlínustöðin í Breiðholti bilaði: V erkf allsv er ðirnir virtu ekki úrskurð k j aradeilunefndar VIÐGERÐARMONNUM frá Pósti & síma var í gær meinaður að- gangur að langlínustöðinni í Breiðholti til viðgerðar, af verk- fallsvörðum BSRB, en viðgerðar- mennirnir höfðu þá undir hönd- um úrskurð kjaradeilunefndar, þar sem leyfi var veitt til viðgerð- ar á stöðinni, þar sem það var talið varða öryggi íbúa Mývatns- sveitar. En yfir helmingur allra símaiína til Mývatnssveitar liggja í gegnum langlínustöðina. Verk- fallsverðir BSRB neituðu þeim um inngöngu á þeirri forsendu að fyrir lægi bréf frá verkfallsnefnd BSRB, þar sem bann væri við því að hle.vpa nokkrum þarna inn. Morgunblaðið sneri sér til Þor- varðar Jónssonar yfirverkfræð- ings hjá Pósti & síma, en hann var viðstaddur þegar viðgeröarmöaji- um þeirra var meinaður aðgangur að stöðinni og innti hann eftir forsendum fyrir þessari undan- þágubeiðni Pósts & síma. — Þessi beiðni okkar er fyrst og fremst send þar sem þessi bilun er talin varða öryggi íbúa Mývatnssveitar, en allar línur frá Reykjavík þarna norður liggja í gegnum stöðina í Breiðholti. Við urðum því í hæsta máta undrandi þegar okkur var meinaður aðgangur, með úrskurð kjaradeilunefndar upp á vasann. Þá sneri Morgunblaðið sér til Pfls Guðmundssonar hjá verk- fallsnefnd BSRB og spurði hannn um afstöðu nefndarinnar í þessu máli. — Við höfnuðum beiðni um viðgerð í langlínustöðinni í Breið- holti á þeirri forsendu að kunnug- ir menn töldu að nóg væri að gera við bilunina i aðalstöðinni i mið- bæ til þess að samband kæmist á við Mývatnssveit og sú viðgerð hefur þegar farið fram. Við myndum að sjálfsögðu aldrei standa í vegi fyrir öryggi Mývetn- inga á nokkurn hátt, sagði Páll að lokum. Átök í stjómarráði — segja verkfallsverðir Ekki beinlínis átök — segir ráðuneytisstjóri TIL ATAKA kom í gær milli starfsmanna í stjórnarráðinu og verkfallsvaröa BSRB, sem höfðu stillt sér upp fyrir fram- an dyr mötuneytis starfs- manna, en starfsmennirnir ætl- uðu inn I mötuneytiö til að fá sér kaffisopa. Stjórn BSRB ræddi þelta mál á fundi í ga*r og vítti meint lagabrot og of- beldi af hendi ráðuneytisstjóra og háttsettra embættismanna í launadeild f jármálaráðuneytis- ins, en þeir munu hafa ætlað að fá sér kaffisopa. Morgunblað- inu barst í gærkvöldi frásögn verkfallsvarða BSRB I Arnar- hvoli af þessum athuröi og fer frásögnin hér á eftir: Strax í upphafi verkfalls opinberra starfsmanna reis ágreiningur um starfrækslu mötuneytis Stjórnarráðsins i Arnarhvoli. ^greiningurinn var milli fjármálaráðuneytisins og verkfallsnefndar Félags starfsmanna Stjórnarráðsins. Félagiö taldi að þar sem for- i stöðukona mötuneytisins tekur laun samkvæmt samningi B.S.R.B., þá bæri að loka mötu- neytinu. Verkfallsnefnd hafði fyrir daginn í dag gert tvær Framhald á bls. 21. Verkfallsverðir BSRB við Langlínustöðina í Breiðholti skoða úrskurð kjaradeilu- nefndar hjá viðgerðarmönnum Pósts & síma, en meina þeim eigi að síður aðgang. BSEB veitti undanþágu til launagreiðslnanna UNDANÞAGA hefur nú verið veitt til þess að rfkisstofnanir geti gengið frá launagreiðslum til vikulaunamanna úr röðum iðnað- ar- og verkamanna, sem vinna hjá stofnunum og fyrirtækjum ríkis- ins. Eins og fram kom I Mbl. í gær fengu þessir aðilar ekki greidd laun sl. föstudag, eins og samn- ingar gera ráð fyrir vegna verk- fallsBSRB. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Islands, skýrði Mbl. svo frá í gær, að vinsamlegum viðræðum BSRB- manna og fulltrúa almennra verkalýðsfélaga um þetta efni hefði l.vktað á þá lund að BSRB hefði fyrir sitt leyti veitt heimild til þess aö launagreiðslur til þess- ara starfsmanna gætu farið frarn. Þó væri ekki gert ráð fyrir að fullnaðaruppgjör launa færi fram heldur yrði um að ræða eina fasta greiðslu. Guðmundur bjóst við að reynt yrði að hrinda þessu í fram- kvæmd í dag. Guðmundur gat þess ennfrem- ur, að verkamenn og iðnaðar- menn hjá Reykjavíkurborg hefðu strax um hádegi í fyrradag fengið greidd laun sín. Strax og samning- ar hefðu tekizt á sunnudagskvöld. hefði fjöldi fólks verið fenginn til þess að fara í þessa launaútreikn- inga og tekizt að ljúka því verki á þessari einu nóttu sem alla jafnan tæki 3—4 daga. „Þetta er frábær- lega vel að verki staðið,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson og benti á að þarna hefði verið um að ræða launaútreikninga 4—500 manna. Ekkert heflað vegna verkfallsins og vegir víða orðnir holóttir Vilja verk- fallsréttinn A DAGLEGUM fundi Starfs- mannafélags rikisstofnana í dag voru 105 mættir. Þar var meðal annars rætt um verkfallsrétt vegna endurskoðunar á launalið væntanlegra kjarasamninga. Greidd voru atkvæði um þetta mál og urðu úrslit þau að 104 vildu verkfailsrétt með endur- skoðunarákvæðunum og einn var mótfallinn verkfallsrétti. (Frfllalilk. frá BSRB). Verkfallsmálum meðal lögreglumanna breytt BREYTT hefur verið fram- kvæmd verkfallsmála hjá lög- reglunni, en eins og kunnugt er hafði Lögreglufélag Reykjavlk- ur gefið út bréf, þar sem sagði að eftirlit skyldi vera í lág- marki og að eftirlitsferðir væru verkfallsbrot. Nú hefur hins vegar verið tekinn upp sá hátt- ur, að árdegis verða daglegar viðræður milli yfirmanna lög- reglunnar og fulltrúa hinna ýmsu deilda. Verður þar rætt um það, hvernig ástand mála er, og á hvern h'átt lögreglu- stjóri hafi ákveðið að haga lög- gæzlu. Björn Sigurðsson, formaður Lögreglufélagsins sagði í sam- taii við Morgunblaðið í gær, að þetta nýja bréf félagsins, sem útgefið var i gær til allra lög- reglumanna, hefði verið samið í ljósi þess að ástandið væri breytingum háð. Rætt verður á fundunum ástand næturinnar og á hvern hátt lögreglustjóri ætli að haga iöggæzlu. Björn kvað mikla breytingu hafa orð- ið á þörf fyrir lögreglueftirlíti eftir að samningar tókust við Reykjavíkurborg, en í verk- fallsástandinu hefði einnig um- ferð orðið mun hraðari og menn ekið ógætilegar en áður. Þá kvað Björn Sigurðsson innbrot hafa verið að aukast eftir því sem á verkfailið hefur liðið. Nefndi hann sem dæmi að i Árbæjarhverfi hefði undan- farin misseri verið mjög rólegt, en þar hefði ástand hins vegar nú breytzt til hins verra. Hefði þessi breyting verið iögreglu- mönnum mikið áhyggjuefni, einkum með tilliti til þess, að Arbæjarhverfi væri stórt, en lögreglulið þar fámennt. Fjall- að hefði verið um þessi mál í gær, m.a. á stjórnar- og trún- aðarmannaráðsfundi í Lög- reglufélaginu, þar sem yfirlög- regluþjónar voru einnig við- staddir. FÆRÐ er víðast hvar með bezta móti á landinu og er það að þakka einstakri haustblíöu. að því er Arnkell Einarsson hjá vegaeftir- litinu tjáði Mbl. í gær. Hins vegar eru vegir víða orönir holóttir þar eö þeir hafa ekki verið heflaöir í rúma viku vegna verkfalls BSRB, en flestir verkstjórar Y'egageröar- innar eru meölimir bandalagsins. Annars hefur vegaeftirlitið fengið mjög stopular fréttir að undanförnu vegna lélegs sima- sambands og verkfallsins. Þó er ljóst að Breiðdalsheiði er orðin ófær en Þorskafjarðarheiði er að öllum líkindum fær ennþá. Vegurinn við Ös í Breiðdal fór i sundur vegna vatnavaxta aðfarar- nótt s.l. laugardags en undanþága fékkst tll að lagfæra veginn. Arnkell vildi koma því á fram- færi, að fljótt gætu skipast veður i lofti þegar komið væri svona langt fram á haustið og ef vegir teppast vegna snjóa yrði ekkert mokað vegna verkfallsins. Valur, FH og landsliðið fá undanþágu VERKFALLSNEFND BSRB ákvað á fundi í gærkvöldi aö veita þremur handknattleiksflokkum undanþágu til aö fara flugleiðis í keppni í útlöndum. Umræddir flokkar eru Valur, sem keppir í Evrópumóti meist- araliða í Færeyjum, FH, sem keppir i Evrópukeppni bikar- meistara i Finnlandi og íslenzka kvennalandsliðið, sem er að fara til keppni í Þýzkalandi. Valur og FH höfðu óskað und- anþágu til að komast til leikjanna ytra, en fengu þá neitun. í ráði er að allir flokkarnir fari utan i sömu flugvél á morgun. Yfirlýsing frá Starfs- mannafélagi Ríkisútvarps Morgunblaöinu barst I gær eft- irfarandi frá Starfsmannafélagi Rfkisútvarpsins: Þar sem Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lætur Morg- unblaðinu í té þær upplýsingar í dag, aó verkfallsnefnd B.S.R.B. hafi neitað félaginu um að „aug- lýsa mætti afboðun verkfalls í út- varpinu með veðurfregnum kl. 22.15 um kvöldið", er rétt að upp- lýsa eftirfarandi: 1. Á félagsfundi Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar, mánu- daginn 10. okt. tilkynnti formaður félagsins undir lok fundarins að úrslit atkvæðagreiðslunnar um samningana, yrðu tilkynnt i út- varpi morguninn eftir um leið og veðurfregnir yrðu lesnar. Þetta var mörg hundruð manns tilkynnt án þess að nokkuð samráð væri haft við Starfsmannafélag Ríkis- útvarpsins eða aðra sem málið varðaði, eftir þvi sem best er vit- að. 2. Starfsmannafélag Reykjavík- urborgar beit svo höfuðiö af skömminni með því að læða úr- Framhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.