Morgunblaðið - 19.10.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1977
Ekki talin ástæða
til gæzluvarðhalds
- þegar fyrra nauðgunarmálið var í rannsókn
VEGNA fréttar í blaðinu í gær
um nauðgunarmál í Keflavík. en
þar hefur 19 ára piltur verið
handtekinn tvisvar á nokkrum
vikum fvrir slík brot, hafði Mbl.
samband við Þóri Oddsson, stað-
gengil rannsóknarlögreglustjóra,
og spurði hann hvernig mál af
þessu tagi væru meðhöndluð og
hvort fangelsunum væri ekki
beitt.
Þórir svaraði því til, að venjan
væri sú að þegar nauðgun væri
kærð og hinn seki næðist og játaði
fullkomlega brot sitt, væri honum
Framhald á bls 18.
Langlínustöðin í Breiðholti bilaði:
V erkf allsv er ðirnir
virtu ekki úrskurð
k j aradeilunefndar
VIÐGERÐARMONNUM frá Pósti
& síma var í gær meinaður að-
gangur að langlínustöðinni í
Breiðholti til viðgerðar, af verk-
fallsvörðum BSRB, en viðgerðar-
mennirnir höfðu þá undir hönd-
um úrskurð kjaradeilunefndar,
þar sem leyfi var veitt til viðgerð-
ar á stöðinni, þar sem það var
talið varða öryggi íbúa Mývatns-
sveitar. En yfir helmingur allra
símaiína til Mývatnssveitar liggja
í gegnum langlínustöðina. Verk-
fallsverðir BSRB neituðu þeim
um inngöngu á þeirri forsendu að
fyrir lægi bréf frá verkfallsnefnd
BSRB, þar sem bann væri við því
að hle.vpa nokkrum þarna inn.
Morgunblaðið sneri sér til Þor-
varðar Jónssonar yfirverkfræð-
ings hjá Pósti & síma, en hann var
viðstaddur þegar viðgeröarmöaji-
um þeirra var meinaður aðgangur
að stöðinni og innti hann eftir
forsendum fyrir þessari undan-
þágubeiðni Pósts & síma. — Þessi
beiðni okkar er fyrst og fremst
send þar sem þessi bilun er talin
varða öryggi íbúa Mývatnssveitar,
en allar línur frá Reykjavík þarna
norður liggja í gegnum stöðina í
Breiðholti. Við urðum því í hæsta
máta undrandi þegar okkur var
meinaður aðgangur, með úrskurð
kjaradeilunefndar upp á vasann.
Þá sneri Morgunblaðið sér til
Pfls Guðmundssonar hjá verk-
fallsnefnd BSRB og spurði hannn
um afstöðu nefndarinnar í þessu
máli. — Við höfnuðum beiðni um
viðgerð í langlínustöðinni í Breið-
holti á þeirri forsendu að kunnug-
ir menn töldu að nóg væri að gera
við bilunina i aðalstöðinni i mið-
bæ til þess að samband kæmist á
við Mývatnssveit og sú viðgerð
hefur þegar farið fram. Við
myndum að sjálfsögðu aldrei
standa í vegi fyrir öryggi Mývetn-
inga á nokkurn hátt, sagði Páll að
lokum.
Átök í stjómarráði
— segja verkfallsverðir
Ekki beinlínis átök
— segir ráðuneytisstjóri
TIL ATAKA kom í gær milli
starfsmanna í stjórnarráðinu
og verkfallsvaröa BSRB, sem
höfðu stillt sér upp fyrir fram-
an dyr mötuneytis starfs-
manna, en starfsmennirnir ætl-
uðu inn I mötuneytiö til að fá
sér kaffisopa. Stjórn BSRB
ræddi þelta mál á fundi í ga*r
og vítti meint lagabrot og of-
beldi af hendi ráðuneytisstjóra
og háttsettra embættismanna í
launadeild f jármálaráðuneytis-
ins, en þeir munu hafa ætlað að
fá sér kaffisopa. Morgunblað-
inu barst í gærkvöldi frásögn
verkfallsvarða BSRB I Arnar-
hvoli af þessum athuröi og fer
frásögnin hér á eftir:
Strax í upphafi verkfalls
opinberra starfsmanna reis
ágreiningur um starfrækslu
mötuneytis Stjórnarráðsins i
Arnarhvoli. ^greiningurinn
var milli fjármálaráðuneytisins
og verkfallsnefndar Félags
starfsmanna Stjórnarráðsins.
Félagiö taldi að þar sem for-
i stöðukona mötuneytisins tekur
laun samkvæmt samningi
B.S.R.B., þá bæri að loka mötu-
neytinu. Verkfallsnefnd hafði
fyrir daginn í dag gert tvær
Framhald á bls. 21.
Verkfallsverðir BSRB við Langlínustöðina í Breiðholti skoða úrskurð kjaradeilu-
nefndar hjá viðgerðarmönnum Pósts & síma, en meina þeim eigi að síður aðgang.
BSEB veitti undanþágu
til launagreiðslnanna
UNDANÞAGA hefur nú verið
veitt til þess að rfkisstofnanir geti
gengið frá launagreiðslum til
vikulaunamanna úr röðum iðnað-
ar- og verkamanna, sem vinna hjá
stofnunum og fyrirtækjum ríkis-
ins. Eins og fram kom I Mbl. í gær
fengu þessir aðilar ekki greidd
laun sl. föstudag, eins og samn-
ingar gera ráð fyrir vegna verk-
fallsBSRB.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands
Islands, skýrði Mbl. svo frá í gær,
að vinsamlegum viðræðum BSRB-
manna og fulltrúa almennra
verkalýðsfélaga um þetta efni
hefði l.vktað á þá lund að BSRB
hefði fyrir sitt leyti veitt heimild
til þess aö launagreiðslur til þess-
ara starfsmanna gætu farið frarn.
Þó væri ekki gert ráð fyrir að
fullnaðaruppgjör launa færi fram
heldur yrði um að ræða eina fasta
greiðslu. Guðmundur bjóst við að
reynt yrði að hrinda þessu í fram-
kvæmd í dag.
Guðmundur gat þess ennfrem-
ur, að verkamenn og iðnaðar-
menn hjá Reykjavíkurborg hefðu
strax um hádegi í fyrradag fengið
greidd laun sín. Strax og samning-
ar hefðu tekizt á sunnudagskvöld.
hefði fjöldi fólks verið fenginn til
þess að fara í þessa launaútreikn-
inga og tekizt að ljúka því verki á
þessari einu nóttu sem alla jafnan
tæki 3—4 daga. „Þetta er frábær-
lega vel að verki staðið,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson og
benti á að þarna hefði verið um að
ræða launaútreikninga 4—500
manna.
Ekkert heflað vegna
verkfallsins og vegir
víða orðnir holóttir
Vilja verk-
fallsréttinn
A DAGLEGUM fundi Starfs-
mannafélags rikisstofnana í dag
voru 105 mættir. Þar var meðal
annars rætt um verkfallsrétt
vegna endurskoðunar á launalið
væntanlegra kjarasamninga.
Greidd voru atkvæði um þetta
mál og urðu úrslit þau að 104
vildu verkfailsrétt með endur-
skoðunarákvæðunum og einn var
mótfallinn verkfallsrétti.
(Frfllalilk. frá BSRB).
Verkfallsmálum meðal
lögreglumanna breytt
BREYTT hefur verið fram-
kvæmd verkfallsmála hjá lög-
reglunni, en eins og kunnugt er
hafði Lögreglufélag Reykjavlk-
ur gefið út bréf, þar sem sagði
að eftirlit skyldi vera í lág-
marki og að eftirlitsferðir væru
verkfallsbrot. Nú hefur hins
vegar verið tekinn upp sá hátt-
ur, að árdegis verða daglegar
viðræður milli yfirmanna lög-
reglunnar og fulltrúa hinna
ýmsu deilda. Verður þar rætt
um það, hvernig ástand mála
er, og á hvern h'átt lögreglu-
stjóri hafi ákveðið að haga lög-
gæzlu.
Björn Sigurðsson, formaður
Lögreglufélagsins sagði í sam-
taii við Morgunblaðið í gær, að
þetta nýja bréf félagsins, sem
útgefið var i gær til allra lög-
reglumanna, hefði verið samið í
ljósi þess að ástandið væri
breytingum háð. Rætt verður á
fundunum ástand næturinnar
og á hvern hátt lögreglustjóri
ætli að haga iöggæzlu. Björn
kvað mikla breytingu hafa orð-
ið á þörf fyrir lögreglueftirlíti
eftir að samningar tókust við
Reykjavíkurborg, en í verk-
fallsástandinu hefði einnig um-
ferð orðið mun hraðari og
menn ekið ógætilegar en áður.
Þá kvað Björn Sigurðsson
innbrot hafa verið að aukast
eftir því sem á verkfailið hefur
liðið. Nefndi hann sem dæmi að
i Árbæjarhverfi hefði undan-
farin misseri verið mjög rólegt,
en þar hefði ástand hins vegar
nú breytzt til hins verra. Hefði
þessi breyting verið iögreglu-
mönnum mikið áhyggjuefni,
einkum með tilliti til þess, að
Arbæjarhverfi væri stórt, en
lögreglulið þar fámennt. Fjall-
að hefði verið um þessi mál í
gær, m.a. á stjórnar- og trún-
aðarmannaráðsfundi í Lög-
reglufélaginu, þar sem yfirlög-
regluþjónar voru einnig við-
staddir.
FÆRÐ er víðast hvar með bezta
móti á landinu og er það að þakka
einstakri haustblíöu. að því er
Arnkell Einarsson hjá vegaeftir-
litinu tjáði Mbl. í gær. Hins vegar
eru vegir víða orönir holóttir þar
eö þeir hafa ekki verið heflaöir í
rúma viku vegna verkfalls BSRB,
en flestir verkstjórar Y'egageröar-
innar eru meölimir bandalagsins.
Annars hefur vegaeftirlitið
fengið mjög stopular fréttir að
undanförnu vegna lélegs sima-
sambands og verkfallsins. Þó er
ljóst að Breiðdalsheiði er orðin
ófær en Þorskafjarðarheiði er að
öllum líkindum fær ennþá.
Vegurinn við Ös í Breiðdal fór i
sundur vegna vatnavaxta aðfarar-
nótt s.l. laugardags en undanþága
fékkst tll að lagfæra veginn.
Arnkell vildi koma því á fram-
færi, að fljótt gætu skipast veður i
lofti þegar komið væri svona
langt fram á haustið og ef vegir
teppast vegna snjóa yrði ekkert
mokað vegna verkfallsins.
Valur, FH og
landsliðið
fá undanþágu
VERKFALLSNEFND BSRB
ákvað á fundi í gærkvöldi aö veita
þremur handknattleiksflokkum
undanþágu til aö fara flugleiðis í
keppni í útlöndum.
Umræddir flokkar eru Valur,
sem keppir í Evrópumóti meist-
araliða í Færeyjum, FH, sem
keppir i Evrópukeppni bikar-
meistara i Finnlandi og íslenzka
kvennalandsliðið, sem er að fara
til keppni í Þýzkalandi.
Valur og FH höfðu óskað und-
anþágu til að komast til leikjanna
ytra, en fengu þá neitun. í ráði er
að allir flokkarnir fari utan i
sömu flugvél á morgun.
Yfirlýsing frá Starfs-
mannafélagi Ríkisútvarps
Morgunblaöinu barst I gær eft-
irfarandi frá Starfsmannafélagi
Rfkisútvarpsins:
Þar sem Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar lætur Morg-
unblaðinu í té þær upplýsingar í
dag, aó verkfallsnefnd B.S.R.B.
hafi neitað félaginu um að „aug-
lýsa mætti afboðun verkfalls í út-
varpinu með veðurfregnum kl.
22.15 um kvöldið", er rétt að upp-
lýsa eftirfarandi:
1. Á félagsfundi Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar, mánu-
daginn 10. okt. tilkynnti formaður
félagsins undir lok fundarins að
úrslit atkvæðagreiðslunnar um
samningana, yrðu tilkynnt i út-
varpi morguninn eftir um leið og
veðurfregnir yrðu lesnar. Þetta
var mörg hundruð manns tilkynnt
án þess að nokkuð samráð væri
haft við Starfsmannafélag Ríkis-
útvarpsins eða aðra sem málið
varðaði, eftir þvi sem best er vit-
að.
2. Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar beit svo höfuðiö af
skömminni með því að læða úr-
Framhald á bls 18.