Morgunblaðið - 19.10.1977, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKT0BER 1977
SIGURINN I MOGADISHU
Foríngí flugræningj anna kall-
aði sig Mohammed píslarvott
Bonn. 18. okt. Reuter.
FLUGRÆNINGJARNIR fjórir
sem yfirbusaðir voru á
IVtogadishuflugvelli eru félagar í
samtökum sem fram ad þessu
hafa verið óþekkt, en talin eru
arahisk að uppruna. Þessi samtök
hafa lýst ótvíræðum tengslum við
vestur-þýzka borgarskæruliða.
I yfirlýsingu sem afhent var
fréttamanni Reuters i Beirut
skömmu eftir ránið á fimmtudag
var markmiðum þeirra lýst. Orð-
sending þessi var skrifuð á kór-
réttri arabisku og þar var ísra-
elska stjórnin hrakyrt og sömu-
leiðis var stjórnin í Bonn sökuð
um að reyna að endurvekja nas-
isma.
Undir yfirlýsinguna var ritað:
„Baráttusamtök gegn heimsvalda-
stefnu". Þar sagði að flugræningj-
arnir freistuðu með aðgerðum
sínum að tryggja að sleppt yrði úr
haldi félögum sem sætu i fangels-
um heimsvaldasinna, endurskoð-
unarsinna og síonista.
Þar sagði að flugránið væri
Níu fegurðardrottn-
ingar voru í vélinni
FYRSTI DANINN sem tekinn
hefur verið sem gísl f flugvélar-
ráni er ung stúlka, Nomi Wilk-
ens Jensen, tvítug fegurðar-
drottning og auglýsingateikn-
ari að atvinnu. Hún hafði ásamt
átta fegurðardrottningum, sem
kjörnar höfðu verið fegurðar-
drottningar við ýmis tækifæri á
Spáni I sumar, verið á Majorka
f viku, en slíka dvöl fengu
stúlkurnar í verðlaun. Þær
komu seint á flugvöllinn og
hafði dyrum vélarinnar verið
lokað þegar þær þustu út. Grát-
báðu þær um að fá að komast
með og stóð í nokkru þrefi en á
endanum var látið undan þeim.
Tuttugu mínútum síðar,
skömmu eftir að flugfreyjurnar
voru að byrja að bera fram
hressingu handa ferþegunum
var grininu lokið, flugræningj-
arnir réðust fram og fimm daga
skelfing og martröð farþeganna
var hafin.
Faðir Nomi Jensen, Georg,
sagði í viðtali við dönsk blöð
áður en úrvalssveitirnar réðust
til atlögu: „Það væri fráleitt að
láta undan kröfum ræningj-
anna. Slíkt yrði aðeins til að
kynda undir slík óhæfuverk.
Þetta er skoðun mín og fjöl-
skyldu minnar, þrátt fyrir það
að dóttir okkar er í lífshættu.
Sjálfsagt eru þeir að ógna
henni og öðrum farþegum með
vélbyssum þegar ég mæli þessi
orð. Mér fyndist ég svíkja sál
mína ef ég mæltí með því að
látið yrði undan ræningjunum.
Það myndi verða til þess eins að
fleiri ættu eftir að verða fyrir
hinu sama og kannski enn
alvarlegar," sagði Jensen að
lokum, sem væntanlega fagnar
því nú að dóttir hans er heil á
húfi.
Nomi Wilkens Jensen
Viðbrögð erlendis:
framhaldsaðgerð á ráninu á Hans
Martin Schleyer, sem Rauði her-
inn rændi hinn 5. september.
Leiðtogi flugræningjanna gekk í
upphafi málsins undir nafninu
Walter Mohammed, en þegar leið
á tók hann upp á þvi að nefna sig
„Mohammed pislarvott".
Hann talaði jafnan arabisku við
stjórnvöld i Dubai, þegar vélin
lenti þar, en hann heyrðist einnig
tala ensku ágæta vel.
Eins og frá hefur verið greint
settu flugræningjarnir fram
kröfu um að sleppt yrði úr haldi
sömu hryðjuverkamönnum og
mannræningjar Schleyers heimt-
uðu, en auk þess vildu þeir að
tyrkneska stjórnin leysti úr haldi
tvo palestínska skæruliða, Mehid
Mohammed Zilh og Hussein
Mohammed A1 Rashid en þeir
sitja f lífstíðarfangelsi í Tyrk-
landi fyrir morð á fjórum ísra-
elskum farþegum sem voru að
stíga um borð I EL AL flugvél á
flugvellinum í Istanbul í ágúst
1975.
Lufthansa-þotan á Rómarflugvelli fyrir helgi. Myndin er
tekin um það leyti sem þotan var að taka eldsneyti, en
lögreglan á fullt í fangi með að halda aðgangshörðum
áhorfendum fyrir utan girðinguna umhverfis flugbraut-
ina.
Björgun gíslanna var eld-
skírn úrvalssveitarinnar
Bonn. 18. okt. — Reuter
VESTUR-þýzku sveitirnar sem
réðust að Boeing 737 vélinni
fengu þar sína eldskírn. Aftur á
móti hefur þjálfun sveitarinnar
staðið alllengi yfir og vissu ýmsir
um tilvist hennar. Talið er að
tsraelar og Bandaríkjamenn ein-
ir ráði aðrir yfir slíkum úrvals-
sveitum. Þýzku sveitunum var
komið á fót eftir hryðjuverkin á
Ólympíuleikunum í Miinchen
1972 og gengur sveitin undir
nafninu GSG-9 sem er stytting úr
þýzku orðunum Landamæra-
verndarhópurinn.
I sveitinni eru 170 menn. Þeir
hafa fengið frábæra þjálfun og er
hver þeirra úrvals skytta og bú-
inn öllum nýtízku vopnum. Þeir
eru líka snjallir i karate, fjall-
göngum og fleiri listum.
Vestur-þýzka stjórnin mun hafa
varið meira en 10 milljónum
marka til þjálfunar sveitarinnar
og ýmsu þar að lútandi. Sveitin
hafði hins vegar aldrei verið köll-
uð á vettvang fyrr vegna þess að
hin einstöku fylki innan Vestur-
Þýzkalands höfðu og staðið að
myndun og þjálfun sérstakra lög-
reglusveita.
Sjálfboðaliðum gefst kostur á
að ganga í GSG-9 eftir að hafa
starfað í eitt ár í landamæralög-
reglunni. Ef þeir standast hæfnis-
próf sem er talið mjög strangt,
fara þeir siðan í 22ja vikna þjálf-
un.
Hópnum er bæði kennt að
vinna saman og sömuleiðis sjálf-
stætt. Aðalaðsetur GSG-9 er i St
Augustine, skammt frá Bonn og
hefur sveitin þar yfir að ráða öll-
um þeim búnaði sem nauðsynleg-
ur er til að æfingarstarfið geti
oróið eins nákvæmt og itarlegt og
krafist er.
Flugmenn ætla
í verkf all gegn
flugvélaránum
London, 18. október. Reuter.
ALÞJÓÐASAMTÖK flugmanna
(Ifalpa) skoruðu ■ dag á félags-
menn sfna að Ieggja niður vinnu
á þriðjudag og miðvikudag f
næstu viku til þess að leggja
áherzlu á kröfur um sérstakar
umræður á Allsherjarþinginu um
flugrán.
Ifalpa veitti félagsmönnum
sínum frest til sunnudags til að
svara áskoruninni, en brezkir,
sænskir og ástralskir flugmenn
lýstu þegar f stað yfir stuðningi
við áskorunina. Tekið var fram að
verkfallinu yrði aflýst ef gengið
yrði að kröfunni.
Formaóur brezka flugmanna-
félagsins, Roy Hutchins, sagði, að
gera yrði alþjóðlegt samkomulag
sem tryggði það, að flugræningjar
fengju hvergi athvarf í heimin-
um. Hann sagði að allar þjóðir
heims yrðu að koma sér saman
um alþjóðlegt samkomulag
þannig að í gildi kæmist einn
alþjóðlegur samningur um út-
rýmingu flugrána.
I Melbourne sagði félag
ástralskra flugmanna að flug-
menn skoruðu á allar ríkisstjórnir
að taka ákveðnari afstöðu gegn
flugræningjum. Stuðningsyfir-
lýsingar bárust einnig frá
indverskum, portúgölskum,
norskum, grískum, spænskum,
hollenzkum og austurrískum flug-
mönnum.
í yfirlýsingu Ifalpa sagði að nú
væri siðasta tækifærið til að
binda enda á flugrán.
Framganga V-Þjóðverja hvarvetna lofuð
Bonn, 18 okt Reuter
FRAMGANGA vestur-þýzku sveitar
innar, sem braut á bak aftur flug
ræningjana á Mogadishu flugvelli
hefur vakið aSdáun viða um lönd og
stjórn Vestur-Þýzkalands þykir hafa
sýnt frækni i meira lagi. MeSal
þeirra sem lofaS hafa mjög Vestur-
ÞjóSverja eru ísraelar, sem riSu á
vaSiS meS slika skyndibjörgun i
Úganda i fyrra eins og frægt varS.
Menachem Begin. forsætisráðherra
ísraels, sagði i skeyti til Helmut
Schmidts. kanslara Vestur-Þýzkalands,
að þessi frelsun væri fagnaðarefni öll-
um mönnum sem ynnu frelsinu
Moshe Dayan, utanrikisráðherra
ísraels, kvaðst vona að þessi djarfa
björgunaraðgerð myndi verða til þess
að nauðsynlegar ráðstafanir yrðu
gerðar til að uppræta hryðjuverkastarf-
semi hvarvetna í heiminum
I yfirlýsingu frá Carter Bandarikjafor-
seta sagði að Vestur-Þjóðverjar hefðu
„greitt högg fyrir okkur öll, sem erum
viðkvæm fyrir þessari gerð hryðju-
verka'' Valery Giscard d'Estaing Frakk-
landsforseti fór fögrum orðum um
aðgerðina og sagði hana vera sigur
ekki aðeins yfir hryðjuverkum og
ómennsku heldur lika sigur fyrir lýð-
ræði og frelsi
Leo Tindemans, forsætisráðherra
Belgíu sagði í skeyti sínu til vestur-
þýzka kanslarans að hann vonaði að
siðaðar þjóðir færu senn að sameinast
i þvi að gera það átak sem þyrfti til að
slíkur harmleikur gerðist ekki á ný
Andreotti, forsætisráðherra ítaliu,
lýsti djúpstæðum létti sinum, og
Suarez, forsætisráðherra Spánar, tjáði
aðdáun sina og þökk fyrir hversu vel
og stillilega hefði verið staðið að fram-
kvæmd í svo viðkvæmu máli. I
Teheran sagði íranska utanrikisráðu-
neytið að iranska stjórnin fordæmdi
hryðjuverk og styddi aðgerðir þær,
sem vestur-þýzka stjórnin hefði gripið
til
I Tókió sagði Mitsuo Setoyma dóms-
málaráðherra að Bonnstjórnin hefði
staðið sig með afbrigðum vel og enda
þótt Japanir og V-Þjóðverjar hefðu ekki
sömu afstöðu til allra mála. hölluðust
Japanir að „þýzku aðferðinni til að
uppræta flugvélarán''
Dómsmálaráðherrann, Setoyma, tók
við af Hajime Fukuda sem sagði af sér
fyrr í þessum mánuði eftir að japanska
stjórnin lét undan flugræningjum og
leysti úr haldi sex fanga, og reiddi
einnig af hendi sex milljón dollara
lausnargjald Forsætisráðherra Japans.
Takeo Fukuda, sagði eftir þann atburð
að Japanir væru að kom sér upp
sveitum sem ætlað væri að ráðast
gegn slikum öflum
í Bretlandi sagði James Callaghan,
forsætisráðherra Breta, að tveir brezkir
sérfræðingar i baráttu við skæruliða
hefðu aðstoðað vestur-þýzku úrvals-
sveitina sem frelsaði gislana Sagði
hann að Bretarnir tveir hefðu bætzt i
hóþinn eftir umræður i Downingstræti
og annars staðar um helgina Hann
vildi að visu eigna Vestur-Þjóðverjum
mestan heiður af afrekinu og sagði
skipulagningu frábæra Sagði Callag-
han þetta á blaðamannafundi i Bonn i
kvöld
Jorge Videla, forseti Argentínu, tók
undir árnaðaróskir til Vestur—Þjóð-
verja og sendi sérstakt skeyti til
Scheel, forseta V-Þýzkalands I Sviss
sagði Kurt Furgler forseti i skeyti að
björgun gislanna sannaði að hægt væri
að vinna bug á hryðjuverkamönnum
Joseph Luns, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins. sagði i
Brussel i dag að allir menn sem ynnu
frelsi og lýðræði hlytu að fagna mála-
lokum Demirel, forsætisráðherra Tyrk-
lands, bættist i þann hóp er lýsti
aðdáun sinni og sagði aðgerðirnar hafa
einkennzt af hugrekki og einbeitni
Talsmaður brezka varnarmála-
ráðuneytisins i Lundúnum skýrði frá
þvi i dag, að sérstök sveit innan brezka
flughersins, sérþjálfuð i vörnum gegn
hryðjuverkamönnum, hefði aðstoðað
Vestur-Þjóðverja við skipulagningu
áhlaupsins á þotuna i Mogadishu
Áreiðanlegar heimildir i Lundúnum
herma að í gær hafi David Owen hitt
fulltrúa Sómaliu-stjórnar að máli og
tjáð honum að brezka stjórnin mundi
veita hverja þá tækniaðstoð, sem i
hennar valdi stæði við frelsun gisl-
anna Þá hafa embættismenn i brezka
varnarmálaráðuneytinu skýrt frá þvi að
tveir Bretar hafi verið með v-þýzka
ráðherranum Hans-Júrgen
Wischnewski, er hann fór til að freista
þess að ná samningum við flug-
ræningjana