Morgunblaðið - 19.10.1977, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.10.1977, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1977 MORö'Jh/ KA Fr/NO ■* GRANI göslari Eg sagði við hann f gær: Þú hætt- ir að drekka — eða ég fer aftur heim til mömmu? Kosturinn við þennan ost, þegar hann er borðaður sem nokkurs konar megrunarmeðal, er að f honum eru 34 prósent fleiri göt en í venjulegum osti! Þetta er mín eign uppskrift og um leið og hann kemur inn í forstofuna segir hann: Borðum úti í dag! Spumingar um edlilegan dauða BRIDGE Umsjón: P6H Bergsson Halda mætti, að varnar- spilararnir í spilinu hér að neðan hafi verið að hlusta á ungverskar rapsódíur en það kom einmitt fyrir í Budapest þegar heims- meistarakeppnin var haldin þar árið 1937. Suður gaf, allir á hættu. Norður S. D72 II. AK643 T. D7 L. D54 Vestur S. KIO H. DIO T. ÁG103 L. G9872 Austur S. Á H. 875 T. 86542 L. Á1063 Suður S. G986543 H. G92 T. K9 L. K Eftir tvö pöss opnaði norður á einu hjarta. Suður sagði einn spaða og í ljósi þess, að suður hafði sagt pass í upphafi ákvað norður að segja pass. Þetta var alls ekki óeðlilegur samningur. Vörnin átti tvö hæðstu trompin ásamt tveim ásum. En hvað skyldi suður hafa fengið marga slagi. Lesendur geta sjálfsagt ekki gisk- að á það. Vestur átti ekkert gott útspil. En um síðir valdi hann laufníuna. Lágt frá blindum og austri. Hann vildi fá hærra spil á ásinn. Suður fékk því á kónginn og spilaði lág- um tigli. Vestur lét tíuna og dorttningin fékk slaginn. Og þá spilaði suður laufafimmi frá blindum. Austur var hræddur um að félagi hans hefði spilað út frá 9872 í laufi og suður ætti gosann blankann eftir. Hann stakk því upp laufásnum en suðúr tromp- aði. Eftir þetta fór sagnhafi inn í blindan á hjarta og lét tígulkóng- inn í laufadrottninguna. En þetta var ekki allt. Suður trompaði nú tíguldrottninguna og spilaði lág- um spaöa. Vestur var ekki ánægð- ur með framvindu spilsins og ætl- aði ekki að láta sagnhafa stela fleiri slögum. Hann stakk því upp kónginum og átti slaginn — þang- að til austur kom með ásinn blanka. Suður fékk þannig tólf slagi. Fékk fimm yfirslagi í einum spaða — spili sem spilast hafði eins og draumur. „Hr. Sálfræðingur Þórir S, Guðbergsson. Ég get ekki stillt mig um að skrifa þér nokkur orð um greinar þínar í Mbl., Er dauðinn eðlileg- ur? Margar misfellur eru i þess- um greinum, en lokaorðin taka þó út yfir allt: „Og einn góðan veður- dag heimsækir dauðinn okkur, þreyttan og sljóleikinn er e.t.v. meiri en áður. Húsið sígur yfir og skuggi fellur á Iffdaga okkar, sem brátt eru á enda. Lífinu hér á jörð er lokið . . . og kemur aldrei aft- ur.“ • Mér þykir líklegt að misprent- un hafi átt sér stað þarna. Húsið hlýtur að eiga að vera húmið. Ö, hr. félagsfræðingur eða sálfræð- ingur, ætlar þú að deyja til myrkursins og eiiifrar nætur? Ég veit að þú ert ekki sálarlaus og andlaus mannvera. Þegar þú ert laus við likama og hold þá er þitt eg til eftir sem áður. Þín fram- liðna vera verður um óákveðinn tíma í eterlikamanum með bjarma árunnar yfir sér. Þannig er það sem skyggnir menn sjá framliðið fólk. Ef þú I jarðneska lífinu ert góður og dyggðugur maður, sem gengur á Guðs veg- um, þá nærð þú fljótlega þriðja stiginu, sem er Guðs góði andi, þ.e. engill Guðs, þá kemur þú aldrei aftur í holdið, heldur getur þú þá komið sem sendiboði al- mættisins, tjáð þig sem rödd eða vitranaengill. Þetta er almættið i allri sinni dýrð. Lestu um boðun heilagrar guðsmóður, Mariu (Lúk, 1,26—35). Og lestu Samúelsbók 3. kaflann allan og margt fleira mætti benda á úr heiiagri ritningu, Bibliunni. Nú skulum við aftur athuga sál- ræna sviðið þ.e. veruna i eter- likamanum. Mörg konan og fjöldi karlmanna hafa bókstaflega dýrk- að holdið í jarðvistarlifi sinu, þessar framliðnu verur vilja hverfa aftur í hoidið, þær hafa í sinu jarðvistarlífi átt sterkt kyn- hvatarlif, auðsöfnunarlif, trú- lausa valdafikn o.m.fl. af holdsins lystisemdum. Guðs góða almætti sendir nú til þessara framliðnu vera verndarengla og sendiboða til að leiða þær i náðarriki Guðs. En þeir sem ekki nást, þeir endur- holdgast aftur i holdið og holdsins lystisemdir. Þetta er allt vort lif. Guðs góða almætti heyr baráttu um hverja mannssál að hún falli ekki i eilifa nótt. Hvað eigum við að segja um þessi orð E. Cace, að meistarinn hafi endurfæðzt á jörðinni um það bil 30 sinnum áður en hann fæddist í jötunni í Betlehem, sem frelsari heimsins, Jesú Kristur? „Og orðið varð hold og hann bjó með oss fullur náðar og sannleika," (Jóh. 1,14). Það var nótt að færast yfir heiminn og þá sendi Guð son sinn eingetinn til að frelsa heiminn, frelsari heimsins fæddur er. Þú minnist á sorg og sorgarvið- brögð. Ég vil svara þessu með að benda þér á tvo mestu pislarvotta okkar Islendinga, þá Hallgrim Pétursson og Jón Arason, biskup. Hallgrimur kvartar aldrei undan sínum eigin krossi, holdsveikinni, en hann sér og lýsir pinu Jesú Krists: Allar Jesú æðar stóðu opnaðar i kvölinni, dreyra lækir dundu og flóðu um Drottins lif og krossins tré. Sorg sinni lýsir Hallgrimur i okkar alþekkta sálmi, Allt eins og blómstrið eina. Þú veizt af hvaða 0£ ivf l , fJldur slöðugi rie'l1 ™ JLm ‘ .* w £!Z‘ Örs”'oferá,Þeim he'",rigðu. e , v hinir h„ S' r1'"0 Þnss «« sinm og "reyl* *■'*««> sjúku. Við þorum"*!),!3"1 heim •‘"'nningar oíía ad 'a'» hm M«? ÍkÍT£ 'n„ðnsr sem hinlr sjúku fj£|^m^«huíJ^L2<■s, eöiileííra en í? er *kkerl okkur á I»essi,m ,f úð vel Þó að Sv rj Undum' jafn- .n, mnir' hiu„ llts okkarlaE°kkur m,,, á Slfk„m . E” e,ni nauðsynlJ, að f S UndUm er mmri RETTU MER HOND ÞINA 72 nauðga iitlu sjö ára gömlu teipunni okkar. — Hvað, ertu að segja satt? Attu við Klöru? — Já. Og þetta fékk enn þá meira á konu mfna. Þess gætir enn í fari hennar. — Já lítils háttar. En ég hélt að það stafaði af einmana- leikanum og þvf sem honum fylgir. En skaddaðist ekki telpan? — Ekki á líkamanum, sem betur fór. En við óttuðumst það framan af. Alit að nfutfu prósent svertíngjanna eru með syfilís. Við fórum strax með hana til læknis. — örn talaði eins og hann var vanur, öruggur og f fyrirlestrarstfl. — En geturðu litiö svertingja réttu auga eftir stfkan atburð? — Hm, tja tii að byrja með var ég svo heimskur að leyfa mér að fyrirlfta þá. En það er ósanngjarnt. Þetta hefði alveg eins getað verið hvftur maður. Og það gildir einu, þó að svertingjarnir hafi syfilis. SyfiJis er gjöf hvíta mannsins handa Afríku. Erik hafði hendur í vösum og horfði á Örn tína banana. Hann var orðinn mjög æstur. — En þú hefur að minnsta kosti kært hann fyrir lögreglunni? Örn hristí höfuðfð. — Nei, ég gerði ekki einu sinni það. Refsingin er svo ómannúðieg. Þeir hefðu hýtt hann, og ég vildi helzt ekki vera valdur að því. Það var sem Erik rynni kalt vatn milli skinns og hörunds. — Heyrðu, þetta er skelfingarland sem við búum f. Hér verður allt að vanda- málum. Örn setti upp fjarlægan og óræðan svip. — Nú, en það er lítið gagn að því að einblfna svo á eymdina að maður verði blindur. Hér er Ifka margt gott. Líttu bara á þessa banana og appelsfnurnar. Komdu, nú förum við inn. Kon- an bíður sjálfsagt með matinn. XXX Hinn svarti starfsbróðir Arnar, Mnqumeli Hlatshwayo átti heima i húsi úr múrstein- um nokkur hundruð metra í burtu. Húsið var svo lítið, að það var næstum þvf eins og brúðuhús. Svertinginn var lærður guðfræðingur og heim- spekingur. Hann var í svefn- herberginu og reyndi að greiða hár sitt fyrir framan sprunginn spegil, sem endurvarpaði mynd hans álíka vel og botninn i níðursuðudós. Þessi hár- greiðsla var ónauðsynleg áreynsla til þess að reyna að vera vestrænn og menningar- legur. Engin greiða komst f gegnum hrokkið hár hans. En uppi á hveriflinum hafði hann rakað mjóa rönd, sem átti að merkja hárskiptinu. Honum var boðið f sfðdegiste hjá Erni og gerði sitt bezta til þess að lita vei út. Hann hnýtti F ramhaldssaqa eftir GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi bindið hvað eftir annað, áður en hann varð ánægður. Sól- skinið barst inn um gluggann fyrir aftan hann og speglaðist f gljáslitnum, svörtum fötum hans, en þau voru sfðustu angurværu leifar þess, þegar hann var glæsilegur og vel haldinn kennari f þjónustu rfkisins. Þá var honum goldið kaup, sem var fimm sinnum hærra en það, sem hann fékk nú hjá kristniboðinu. Konan hans hafði aldrei fyrirgefið honum, að hann yfirgaf góða stöðu og hóf störf hjá Erni. Það kom Ifka stöku sinnum fyrir, að hann iðraðist þess. En yfirleitt var hann ánægður með hlut- skipti sitt. Hann predikaði, ferðaðist á hestbaki, byggðí hús, leit eftir skólum og ræddi við og við um grfska Ijóðlist og latneska rithöfunda við örn. Hann kannaði útlit sitt f síðasta sinn f speglinum, var ánægður með árangurinn, þótt furðulegt mætti heita, og gekk sfðan mjög virðuiega upp að húsi kristniboðans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.