Morgunblaðið - 19.10.1977, Síða 31

Morgunblaðið - 19.10.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÖBER 1977 31 FH vann yfirburða- sigur yfir Ármanni BIKARMEISTARAR FH þurftu ekki að hafa mikið fyrir stórsigri yfir Ár- menningum í leik liðanna í 1. deildar keppni Islands- mótsins í handknattleik sem fram fór í Laugardals- höliinni í gærkvöldi. Úrslit leiksins urðu 23:16 fvrir FH, eftir að staðan hafði verið 10:6 í hálfleik. Höfðu FH-ingar töglin og hagld- irnar í leik þessum frá upphafi til enda og munaði mest níu mörkum tvívegis í seinni hálfleiknum. Þeg- ar stórsigur var tryggður fengu ungu mennirnir í FH-liðinu að spreyta sig og tókst þá Ármenningum nokkuð að rétta hlut sinn. Leikurinn var heldur lélegur, einkum af hálfu Armannsliðsins, en fremur lítil ógnun var í spili þess, og þvi auðvelt fyrir FH-inga að verjast. Við bættist svo að Birg- ir Finnbogason, markvörður FH, varði ágætlega í þessum leik. Mörk Armanns í leiknum skor- uðu: Þráinn Ásmundsson 7, Friðrik Jóhannsson 3, Pétur Ingólfsson 2, Björn Jóhannesson 2, Óskar Asmundsson 1, Jón Ást- valdsson 1. Mörk FH: Þórarinn Ragnarsson 7, Janus Guðlaugsson 4, Geir Hall- steinsson 3, Tómas Hansson 2, Sæmundur Stefánsson 2, Guð- mundur Árni Stefánsson 2, Árni Guðjónsson 1, Guðmundur Magnússon 1. Valgarður Val- garðsson 1. Fram vann Hauka Þá fór frani fyrsti leikurinn i 1. deildar keppni Islandsmóts kvenna i gærkvöldi og áttust þar við Islandsmeistarar Fram og nýliðarnir í deildinni, Haukar. Var þar um einstefnu að ræða þar sem Framstúlkurnar, sem sýndu á köflum ágætan leik, unnu stór- sigur 19:10, eftir að staðan hafði verið 8:4 fyrir Fram í hálfleik. Er greinilegt að Framstúlkurnar stefna að þvi að verja titil sinn í ár, og tefla fram sterku og jöfnu liði. Markhæst í liði Fram i leik þessum var Arnþrúður Karlsdótt- ir með 4 mörk, en markhæst Haukastúlkna var Margrét Theó- dórsdóttir með 6 mörk. Tveir með 12 rétta fengu 239 þús. kr. vinning ÞÁTTTAKENDUR i íslenzkum getraunum voru óvenjulega get- spakir í síðustu viku, en þá komu fram tveir seðlar með 12 réttum og 37 seðlar með 11 réttum. Vinn- ingar voru einnig óvenju góðir að þessu sinni, þar sem handhafar seðlanna sem voru með 12 réttum fengu 239.000 krónur i hlut, og þeir sem voru með 11 rétta efngu 5.500.00 kr. vinning. Annar seðillinn með 12 réttum var nafnlaus, en seldur af Hand- knattleiksdeild Fram, en hinn seðillinn var frá Seyðisfirði. Barst sá seðill með flugvél frá Egilsstöð- um um hádegi á laugardag, en ef hann hefði verið settur i póst, hefði hann „frosið inni“ í verk- fallinu. Annars hefur verkfallið lítil áhrif á sendingar utan af landi til getrauna, nema helzt frá Austfjörðum. Þetta er í fyrsta sinn i tólf mán- uði, sem fram koma seðlar með öllum leikjum réttum. Úrsl'itakeppnin í VEGNA blaðaskrifa varðandi úrslit í 3. deild og fyrirspurna til stjórnar KSI þar að lútandi, vil ég upplýsa eftirfarandi: Skv. 21. gr. reglugerðar KSl um knattspyrnumót skal skipa liðum í tvo riðla i úrslitakeppn- inni og skulu sigurvegarar í riðlum úrslitakeppninnar færast upp i 2. deild næsta leikár. Siðan segir: „Það liðanna, er færist upp í 2. deild, sem hefur betra markahlutfall í úrslita- keppninni, skal teljast sigur- vegari í 3. deild. Þegar úrslitakeppnin í riðlunum nú í haust hafði farið fram voru tvö lið jöfn að stigum I öðrum riðlinum en þrjú i hinum. Til þess að útkljá hver teldist sigurvegari í riðlunum þurfti að leika nokkra aukaleiki og fór svo að Fylkir frá Reykjavík og Austri frá Eskifirði báru sigur úr býtum. Eins og að framan getur skyldi það lið teljast sigur- vegari í 3. deild sem hefði betra markahlutfall í úrslitakeppn- inni. Við athugun kom í ljós að Fylkir hafði betra markahlut- fall eftir upphaflegu úrslita- keppnina, en Austri hins vegar ef aukaleikir væru taldir með. Hér þurfti því að skera úr um hvað teldist „úrslitakeppni" samkvæmt reglugerðinni, þ.e. leikirnir sem upphaflega voru settir á, samkvæmt reglugerð, eða aukaleikirnir einnig. Þar sem margir stjórnarmenn KSI voru fjarverandi á þessum tíma, var ákveðið að biða með ákvörðun í málinu, þar til allir stjórnarmenn væru mættir. A fundi stjórnar KSl, mánu- daginn 3. október s.l. var málið rætt og sýndist sitt hverjum. Hölluðust menn þó að þvi, að telja bæri alla leikina, auka- leikina einnig, til úrslitakeppn- innar og var Austramönnum sagt frá því símleiðis, en jafn- framt tekið fram, að ágreiningur væri um þá niður- stöðu og málið hugsanlega tekið fyrir að nýju. Það var gert á stjórnarfundi, föstudaginn 7. okt. I milli- tíðinni var leitað álits glöggra manna utan stjórnar, gerður samanburður á þessu ákvæði og túlkun ánnarra hliðstæðra o.s.frv. Niðurstaða stjórnarfundar 7. okt, var einróma sú, að rétt væri, að athuguðu máli, að telja þá leiki eina til úrslitakeppni, sem reglugerðin gerir ráð fyrir en ekki aukaleikina, sem seinna komu til. Þessi túlkun er í samræmi við þær reglur, sem Ilaukur Ottesen kominn f skotstellingar eftir hraðaupphlaup i leiknum við IR. Hörður Hákonarson hefur ekki við honum á sprettinum. Eftir slæma byrjun náði KR sér á strik og vann ÍR 24 - 20 NVLIDAR KR f 1. deild Islands- mótsins í handknattleik hlutu sfn fyrstu stig, en örugglega ekki hin sfðustu, er þeir sigruðu tR-inga með 24 mörkum gegn 20 í leik liðanna í Laugardalshöllinni i fyrrakvöld. Var sigur KR-inga í leik þessum fyililega sanngjarn og hefði jafnvel átt að verða enn meiri, þar sem tR-liðið var af- skaplega slakt í þessum leik og flestir leikmanna þess áhugalitl- ir. Var það aðeins taugaveiklun KR-inga í upphafi leiks sem kom í veg fyrir að sigur liðsins yrði stærri, en tR-ingar höfðu skorað fjögur mörk þegar Björn Péturs- son kom KR á hlað með merki úr vftakasti. Það var ekki fyrr en um miðjan fyrri hálfleikinn að KR tókst að vinna upp forskotið semTR fékk á upphafsmínútUm ieiksins, og lengst af var leikurinn í jafnvægi í fyrri hálfleik. Þrjú síðustu mörkin í hálfleiknum voru þó skoruð af KR-ingum og var staðan i leikhléi 13—10 þeim í vil. Strax i byrjun seinni hálfleiks juku KR- ingar markamuninn i sex mörk og var þar með séð að sigurinn myndi verða þeirra. KR-ingar léku allskemmtilegan handknattleik á köflum í leiknum i fyrrakvöld, einkum eftir að þeir höfðu komizt yfir skrekkinn i byrjun. Keyrðu þeir oft upp ágæt- an hraða og voru með leikkerfi sem gengu bærilega upp. Í spili liðsins voru frændurnir Haukur Ottesen og Björn Pétursson pott- urinn og pannan, sérstaklega þó Haukur, sem gerði margt mjög laglega í þessum leik, og hefur varla verið betri í annan tíma. Gekk ÍR-ingum ákaflega erfiðlega að ráða við hann, jafnvel þótt þeir gripu til þess ráðs um tíma að taka hann úr umferð. 3. deild gilt hafa um aukaleiki 1. og 2. deildar. Ungmennafélaginu Austra var tilkynnt formlega þessi ákvörðun að kvöldi dags, þann 7. okt„ en þar að auki hef ég greint frá og útskýrt þessa niðurstöðu fyrir form. knatt- spyrnuráðs Austra, Hjörvari Jenssyni og fleiri Austra- mönnum. Afgreiðsla þessa máls hefur dregist á langinn. Það hefur þó ekki komið að sök. Umrætt ákvæði i reglugerð KSI er óljóst orðað og er stjórn KSl vorkunn aó þurfa að túlka það, og raunar ekki skritið að upp komi ágreiningur varðandi þá túlkun. Akvæðinu þarf augljós- lega að breyta á næsta þingi KSl. Ég er ekki hissa á þvi að Austramönnum hafi þótt súrt í broti, að missa af titlinum, eftir að hafa fengið fregnir af þvi að stjórn KSl hallaðist að nióur- stöðu, sem var Austra hagstæð. Eg er þess þó fullviss, að Esk- firðingar, eins og við i stjórn KSl, vilja að málalok séu ætið rétt og lögum samkvæmt. Ég tel að svo hafi orðið i þessu máli. Reykjavik 17. október 1977 Ellert B. Sehrain; form. KSl. V Auk Björns og Haúks átti Pétur Hjálmarsson allgóðan leik í marki KR-inga, og vert er einnig að geta sérstaklega um stórglæsileg mörk sem Símon Unndórsson skoraði í leiknum, — mörk sem skoruð voru með hörkuskotum af löngu færi. Hefur maður á tilfinning- unni að Simon gæti gert miklu meira af sliku, en hann var stund- TVEIR leikir verða háðir í Reykjavikurmótinu i körfuknatt- leik i kvöld. Klukkan 19:30 leika Fram og KR og um klukkan 21:00 leika IS og Ármann. Fara leikirn- ir fram i íþróttahúsi Hagaskóla. Jón Sigurðsson mun nú að líkindum leika með KR i f.vrsta skipti, en hins vegar missa KR- ingar þá Kristin Stefánsson og Birgi Guðbjörnsson úr liði sínu sökum meiðsla. Framarar mæta meó sitt sterkasta lið og ef til vill Dunbar Bandariski körfuknattleiks- maðurinn i liði tS, Dirk Dunbar, leikur ekki meira með liðinu á þessu keppnistimabili. Þessi frá- ba*ri leikmaður, sem setti met í stigaskorun, er hann skoraði 58 stig í leik gegn Fram í Revkjavík- urmótinu, sneri sig illa á a'fingu fyrir helgi með þeim afleiðing- um, að liðbönd í ökkla slitnuðu. um of seinn að átta sig á mögu- leikum sem gáfust. I heild vann KR-liðið ágætlega saman, og verð- ur örugglega illviðráðanlegt ef það kemst yfir þá taugaveiklun sem var einkennandi í leik þess til að byrja með. Undirritaður er þeirrar skoðun- ar eftir leikinn í fyrrakvöld, að þetta muni verða erfiður vetur fyrir ÍR. Liðið virkar heldur sundurlaust og óákveðið og hefði ekki komið til ágæt frammistaða Brynjólfs Markússonar i leiknum, er hætt við að úrslitin hefðu orðið iR-ingunum mjög svo óhagstæð. Mikið bar á klaufalegum mistök- um ÍR-inga, sérstaklega í sóknar- leiknum, en þá glopruðu þeir knettinum oftsinnis i hendur KR- inga, eða áttu skot sem vörnin réð auðveldlega við. Sakna ÍR-ingar greinilega Agústs Svavarssonar, þar sem hann var liðinu mjög mikilsverður bæði sem skytta og eins opnaði hann oft vel með ógn- unum sinuín. — stjl. rrmmi HEE—^—^ llþróllirl leggja þeir Vesturbæjarliðið að velli í fyrsta skipti í kvöld. Stúdentastjarnan Dunbar leikur ekki með félögum sínum i kvöld sökum meiðsla og þeir Jón Héðinsson og Kolbeinn Kristins- son ganga ekki heilir til skógar. en leika báðir í kvöld þrátt fyrir meiósli sín. Ármenningar, með Mike Wood í fararbroddi, eygja þvi möguleiká á sigri í kvöld, en IS-menn ætla sér eflaust bæði stigin. Er þetla að sjálfsögðu inikið áfall fyrir tS-liðið. þar sem Dunhar virtist einmitt vera maðurinn, sem stúdenta vantaði til þess að geta gert störa liluti. Fn stúdent- ar eru ekki einir um að sakna hans, því að Dunbar er mjög skemmtilegur og snjall leikmað- ur, sem gaman hefði verið að fylgjast með i vetur. KðRFUKNATTLEIKUR (KVÖLD V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.