Morgunblaðið - 22.10.1977, Síða 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK
234. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Enn eitt reiðarslag fyrir V-Þjóðverja:
Sprengiefni og fjarskiptabúnað-
ur í klefum Baaders og Raspe
í gærkvöldi hafði leitin að mannræningjunum engan árangur borið
Bonn 21. okt. Reuter
MIKIL ólga er manna á nieóal í
Vestur-Þyzkalandi eftir að upp-
lýst hefur verið, að sprengiefni,
fjarskiptabúnaður og felustaðir
þar sent koma hefði mátt fyrir
vopnum, hafi fundizt í
Stammheimfangelsinu, ýmist í
klefum Andreas Baader og Jan-
Carl Raspe, svo og i herbergi sem
fangarnir fengu að hittast í, þar
til fyrir skömmu að sérstök lög-
gjöf var sett sem kvað á um
einangrun þeirra eftir ránið á
Hanns Martin Sehleyer.
Þá hafa Vestur-Þjóðverjar hert
gífurlega eftirlit á flugvöllum um
alit land og leitað er mjög vand-
lega í öllu sem farþegar hafa með
sér. Verða ferðamenn að fylgja
farangri sínuni út í hleðsluvagn
og taka áhyrgð á eignum sinum,
en sá farangur, sem enginn vill
við kannast, verður skilinn éftir.
Þá verður krafizt mun
nákvæmari skilríkja en áður.
I fréttum frá Bonn segir að
þessi borg- sem áóur hafi verið
fjarska friósæl og kyrrlát hafi
gersamlega breytt um svip.
Hermenn gráir fyrir járnum eru á
hverju götuhorni og leita i bílum
og á vegfarendum. Víggiróingum
hefur verið komið upp og loft er
hlaðið skelfingu og ógn.
Klaus Bölling, talsmaður ríkis-
stjórnar Schmidts kanslara. sagði
á blaðamannafundi ,í dag aó í
Sonur
Sáms”
sakhæfur
New York 21. okt. Reuter
FJÖLDAMORÐINGINN banda
ríski sem kallaður hefur verið
„sonur Sáms" hefur verið úr-
skurðaður hæfur til að koma
fyrir rétt, en hann hefur geng-
izt undir mjög rækilega geð-
rannsókn. Það var John Starkey
dómari við Hæstarétt New York
sem kvað upp þennan úrskurð.
Kom það nokkuð á óvart, þar sem
fram til þessa hafði verið álitið að
maðurinn Davíd Berkowitz myndi
talinn geðsjúkur og ekki sakhæf-
ur. Berkowitz er ákærður fyrir
morð á sex manns. Sjö aðra særði
hann, suma alvarlega.
Fyrir réttinum í dag tjáðu tveir
geðlækningar þá skoðun sina að
Berkowitz væri ekki hæfur til að
koma fyrir dóm. Munu réttarhöld-
in yfir Berkowitz að öllu óbreyttu
hefjast 2. nóvember.
bréfi því sem ræningjar
Schleyers ‘hefðu sent franska
blaðinu Liberation eftir að atiag-
an var gerð að Lufthansa-vélinni
og gíslunum bjargað, hefði verið
sagt orðrétt: ,,Við munum aldrei
glevma ábyrgð Schmidts á málinu
og heimsvaldasinna, sem hafa
stutt hann i blóðsúthellingun-
um." Bölling sagði að þetta
væri augljós hótun og væri
nauðsvnlegt að taka hana i fyllstu
alvöru.
Leitinni að mannræningjunum
var haldið áfram af auknum
þunga unt gervallt V-Þýzkaland í
dag og myndir af mann-
ræningjunum birtast i sjónvarpi á
nokkurra klukkutíma fresti og
komiö hefur verið upp vegg-
spjöldum með myndum af þeim
nánast á öðru hvei ju húsi í öliu
landinu. segir Reuterfréttastofan.
I kvöld hafði ekkert gerzt sem
benti til að lögregla og hermenn
væru komnir á slóð mann-
ræningjanna. Heitið hefur verið
800 þús. mörkum þeim, sem gefur
upplýsingar er kynni að leiða til
handtöku rænfngjanna.
Fjarskiptabúnaður
og sprengiefni ífangelsinu.
Eins og fyrr segir hefur það
kotnið miklu róti ó hugi manna að
hið rammgerða Stammheimfang-
elsi skuli ekki öruggara en svo, að
Framhald á bls. 24.
Marion Sehumann. ekkja Júrgens
Sehumanns flugstjóra, sést hér
við stutta minningarathöfn sem
haldin var á flugvellinum í
Frankfurt, þegar lík manns henn-
ar og gislarnir heilir á húfi komu
til Frankfurtflugvallar.
S-Afríka:
Bandaríkjamenn og Hollend-
ingar kalla sendiherra
sína heim „til viðræðna”
Washington 21. okt. Reutcr.
SKÝRT var frá því í Washington i
kvöld að sendihera Bandaríkj-
anna í Suður-Afríku, VVilliam
Bowdler, hefði verið kallaður
heim „til skrafs og ráðagerða"
eins og það er orðað. Svartir þing-
menn í VVashington hafa krafizt
þess að hann verði kallaður heim
fyrir fullt og allt, en búizt er við
að Bowdler haldi til Pretoriu á ný
eftir fáeina daga. Bandaríska
utanríkisráðuneytið fordæmdi í
dag síðustu aðgerðir S-
Afríkustjórnar, sem sagt hefur
verið frá.
Þá var greint frá þvi í kvöld aó
Hollendingar hefðu kallað sendi-
Franskir og v-þýzkir óeinkennisklæddir lögreglumenn skoða hér þýzkan bíl en í farangursrými hans
fannst líkið af Hans Martin Schleyer á miðvikudagskvöld. Myndin var tekin skammt frá aðalstöðvum
lögreglunnar í Mulhouse í Frakklandi. Lík Schleyers hafði verið tekið úr bílnum.
Mannréttindamál:
Ný yfirlýsing
birt í PóUandi
Varsjá, 21. októbcr. Reuter.
YFIRLVSING með undirskrift-
um 110 manna og áskorunum uni
bre.vtingar í frjálsræðishorf i
Póllandi hefur birst í fyrsta tölu-
blaði nýs neðanjarðarrits sem er í
tengslum við helz.ta hóp andófs-
manna landsins.
„Yfirlýsing lýðræðishreyfingar-
innar“ eins og hún er kölluð birt-
ist i ritinu Glos (Röddin). Meðal
ritstjóranna eru fimm• fulltrúar
úr svokallaðri sjálfsvarnarnefnd
sem áður hét Varnarnefnd verka-
manna og var sett á laggirnar til
aö hjálpa verkamönnum sem
Framhald á bls. 24.
Desai
kom til
Moskvu
Fékk virðulegar
móttökur en ekki
yfirmáta hlýjar
Moskva21. okt. Reuter.
MORARJI Desai, forsætisráð-
herra Indlands, fékk nijög
virðulegar móttökur er hann
kom til Moskvu í dag og voru
allir helztu ráðamenn landsins
með Brezhnev í broddi fylk-
ingar komnir til flugvallarins
að fagna honuni. Þúsundir
manna höfðu verið sóttar á
vinnustaði til að vera meðfram
leiðinni sem ekin var frá flug-
veliinum til að hylla Desai.
Aftur á móti segir Reuter aó
þó svo að móttökur sovézku
leiótoganna hafi' verió mjög
kurteislegar hafi öllum faóm-
löguni og kossurn verió sleppt,
sem Brezhnev er sérstaklega
þekktur fyrir við slík ta-ki-
færi. Framhald á bls. 24.
herra sinn hjá Suöur-Afríku heim
í kjölfar þess sem þar hefur verið
að gerast. Hann er einnig sagður
fara (il viðræðna við stjórn sina
og ekki er þess getiö hversu lengi
hann verður um kyrrt í Hollandi.
Eins' og fram kemiír í frétt
á bls. 21 verður Öryggisráð-
ið kallað saman tii að ra'ða aó-
gerðir Suður-Afríkustjórnar gegn
andstæðingum kynþáttaaóskiln-
aðarstefnu hennar á mánudag.
Fundurinn i Öryggisráðinu
verður haldinn að beiðni fulltrúa
Túnis sem er í forsvari fyrir full-
trúa Afrikuríkja á Allsherjar-
þinginu. Ráðiö ræddi Suður-
Afriku síðast í marz og þá lögðu
Afríkuríki til aö hergagnasala til
Suður-Afríku yrði bönnuð, en
vestræn riki beittu neitunarvaldi
sinu gegn samþykkt þess. Þá
samdi Andrew Young, aðalfull-
trúi Bandaríkjanna, grundvallár-
yfirlýsingu, en ríki þriðja heims-
ins gátu ekki sætt sig við hana.
Nú er búizt við að tillögur um
vopnabann verði endurvaktar og
að þeim fylgi kröfur um efnahags-
legar refsiaðgerðir gegn Suður-
Framhald á bls. 24.
Sovézkir
byssubátar
ráku brezka
togara af
„gráa beltinu”
London 21. okt. Heiiter.
SOVF/KIR b.vssubátar skipuðu í
dag brezkum togurum að hafa sig
á brott af hinu svokallaöa „gráa
belti", umdeildu svæAi í Barents-
hafi milli Noregs og Sovétríkj-
anna. Svæóið liggur utan 200
mílna iögsögu Norðtnanna og
Sovétríkjanna, en Ineði löndin
gera tilkail til þess, enda oru þar
einhver beztu fiskimió í Fvrópu.
Talsmaður brezkra togaraeig-
Framhald á bls. 24.