Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 2

Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÖBER 1977 Síldarbát- ar beðn- ir um að kasta ekki á smásíld sjAvarutvegsrAðuneyt- IÐ hefur beint þeim tilmælum til hringnótabáta að þeir kasti ekki á smásild á ákveðnu svæði milli Hrollauí'seyja og Ingólfshöfða, en sögusagnir um mikið af smásíld á þessu svæði hafa gengið að undanförnu. Jakob Jakobsson fiskifræðing- ur sagði í samtali við Morgunblað- ið i gær, að hann hefði haft fregn- ir af því að síldarbátarnir væru að kasta á smásíld á áðurgreindu svæði og því hefði hann farið þess á ieit að þeim tilmælum yrði beint til bátanna að þeir köstuðu ekki á síld á þessu svæði, en í fyrra hefði verið mikiö um smásíld á þessu sama svæði. ,,Þar sem við höfum ekki getað verið við síldarrannsóknir að undanförnu, höfum við ekki neitt i höndunum um að þessar sögu- sagnir séu réttar, og meðan svo er getum við aðeins farið fram á að bátarnir kasti ekki á síld á þess- um slóðum." IHoviUmliInMt> ífDrólllrl Bœði Valur og FH örugg í aðra umferð ÚRSLITIN í fyrri leik Vals og fær- eysku meistaranna Kyndils i fyrrakvöld urðu 23:15 fyrir Val. eftir að Færeyingarnir höfðu leitt 8 7 i leikhléi. Siðari leikurinn átti að fara fram i gærkvöldi. en full- vist má telja að Valur hafi þegar tryggt sér sæti í 2. umferð Evr- ópukeppni meistaraliða i hand- knattleik. FH tekur þátt i Evrópu keppni bikarmeistara og leikur um helgina gegn finnska liðinu Kiffen Með góðum sigri i fyrri umferðinni má heita öruggt að FH sé einnig öruggt i 2. umferð Evrópukeppninnar. Leikur Vals og Kyndils var mjög spennandi i fyrri hálfleikn- um. en færeysku meistararnir náðu um tima 3ja marka forskoti og leiddu með 8 mörkum gegn 7 i leikhléi í seinni hálfleiknum var hins vegar um einstefnu Vals- liðsins að ræða, liðið vann hálf- leikinn 16:7 og leikinn 23:15. Markhæstir Valsmanna voru Jón H. Karlsson með 8 mörk, Jón Pétur gerði 5 og Stefán Gunnars- son 3 mörk. Fyrir Færeyingana var Joan Pætur Midjord iðnastur við að skora, gerði 4 mörk. Valsmenn komu til Færeyja sið- degis leikdaginn og var þvi eðli- legt að liðið væri seint i gang. Þurftu Valsmenn að fara i gegn- um Kaupmannahöfn, en frá Keflavik fóru þeir á fimmtudags- kvöld Höfðu þeir áður fengið leyfi til að fara með flugvél beint til Færeyja og voru komnír um borð i vélina á Reykjavikurflug- velli er leyfið til þeirra var aftur- kallað og þeim sagt að taka vél- ina sem fór til Kaupmannahafnar í staðinn. Félagsmálastofnun Reykjavíkur í samvinnu við Ferða- skrifstofuna Úrval efndi til Mallorkaferðar fyrir eldri- borgara Reykjavíkur 30. sept. s.l. til 27. okt. Meðfylgj- andi mynd er tekin af hópnum nokkrum dögum eftir komuna til Mallorka. Má þar greina ýmsa eldrijiorgara Reykjavíkur. Aðalfararstjóri er frú Geirþrúður Bern- höft. Margrét Margeirsdótt- ir formaður Landssam- takanna Þroskahjálpar STOFNÞING Landssamtakanna Þroskahjálpar var nýlega haldið í Reykjavík. f upphafi þingsins fluttu ávörp Gunnar Thoroddsen félagsmálaráðherra, Birgir tsl. Gunnarsson borgarstjóri og Gunnar Þormar sem verið hefur formaður undirbúningssamtak- anna, sem stofnuö voru fyrir ári síðan. Að loknum þessum ávörpum fluttu fulltrúar landshlutanna ávörp og talaði sr. Gunnar Björns- tengsl og samstarf foreldra og starfsfólks stofnana og lagði hún mikla áherzlu á að nauðsynlegt væri að byggja upp virkt og náiö samband milli foreldra og stofn- ana í því skyni að þjálfun og uppeldi þroskaheftra færi sem bezt úr hendi. Þriðja framsöguer- indið flutti Magnús Magnússon sérkennslufulltrúi i menntamála- ráðuneytinu og fjallaði hann um reglugerð um sérkennslu, sem Framhald af bls. 31 Stjórn og varastjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar, talið frá vinstri: Ragna Jónsdóttir, Sigurður Garðarsson, Jón Sævar Alfonsson, Gunnar Björnsson, Margrét Margeirsdóttir formaður, Helgi Seljan, Helga Finnsdóttir, Bjarni Krist jánsson, Anna Jóna Arnadóttir. skýrt samþingismönnum í Suðurlandskjördæmi, þeim Ingólfi Jónssyni og Steinþóri Géstssyni, frá því að hann myndi tilkynna formlega þessa ákvörðun sína á fulltrúaráðs- fundi í Eyjum eða á fundi kjör- dæmisráðsins. Guðlaugur Gíslason hefur starfað innan Sjálfstæðis- flokksins í 40 ár. Hann var fyrst kjörinn í bæjarstjórn Vest- mannaeyja 1938, og átti þar sæti í 32 ár og 4 ár sem vara- maður. Er þetta með lengstu setum sama manns i bæjar- stjórn hér á Iandi. Guðlaugur var kjörinn alþingismaður 1959 og hefur átt sæti á Alþingi síð- an og setið 20 þing. Jafnhliða þingmennsku var Guðlaugur Guðlaugur Gísla- son gefur ekki kost á sér í framboð GUÐLAUGUR Gislason, al- þingismaður í Vestmannaeyj- um, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs aftur fyrir næstu alþingiskosningar. Tilkynnti Guðlaugur ákvörðun sína á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi, en sá fundur var haldinn í Vestmannaeyjum 1 gær og fyrradag. I samtali við Morgunblaðið kvaðst Guðlaugur hafa tekið þessa ákvörðun síðla sumars, og bæjarstjóri í Vestmannaeyjum frá 1959—66 en samfleytt var hann bæjarstjóri í liðlega 12 ár eða frá 1954. Þess skal getið að fyrsti þing- maður Sunnlendinga, Ingólfur Jónsson, hefur einnig ákveðið að hætta þingmennsku eftir þing það sem nú setur og hefur Eggert Haukdal verið valinn í stað hans. Almennt prófkjör mun fara fram í Vestmanna- eyjum í vetur um eftirmann Guðlaugs. son af hálfu Styrktarfélags vangefinna á Vestfjörðum, Snorri Þorsteinsson fræðslustjóri fyrir Vesturland, Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri fyrir Suðurland, af hálfu Austfirðinga Sigurður Ö. Pálsson kennari og Bjarni Kristjánsson kennari af hálfu Norðlendinga. Síðan voru flutt þrjú framsögu- erindi og talaði Bjarni Kristjáns- son kennari á Akureyri um frum- varp til laga um vangefna, sem landssamtökin hafa haft til um- sagnar og endurskoðunar og kom fram alJmikil gagnrýni á frum- varpið og urðu umræður um það segir í frétt frá samtökunum. Margrét Margeirsdóttir talaði um Akranes- kirkja AKRANESKIRKJA Barnasam- koma verður kl. 10.30 árd. í dag. Messa klukkan 2 siðd. Sóknar- prestur. LYFJATÆKNISKÓLI fslands útskrifaði fyrir skömmu 13 lyfjatnkna. Skólan- um er ætlaS það hlutverk að tæknimennta aSstoBarfólk viS lyfjagerð og lyfjaafgreiSslu. Námið tekur 3 ár og er það bæði verklegt og bóklegt. Lyf jatæknar hafa stofnað með sér félag og bera nú merki viS störf sín, sem er gyllt letur á bláum grunni. Þær sem útskrifuðust og eru á meðfylgjandi mynd eru: Aftari röð f.v: Edda GuSmundsdóttir, Björg Dúadóttir, Halldóra G. Árnadóttir. Axel Sigurðsson skólastjóri. Sigriður Ó.Þ. Sigurðardóttir, Helga K. Jónsdóttir og Guðbjörg Hilmarsdóttir. Fremri röS: HólmfríSur H. Ingvarsdóttir, Margrét G. Karlsdótt- ir, Regína Sveinsdóttir, Fjóla Haraldsdóttir, Herdís Sæmundardóttir og Eyrún Antonsdóttir. Á myndina vantar Margréti SigurSardóttur. Sumarhiti í Siglufírði Siglufjörður22. október HÉR ER nú sérlega gott veður og hiti 13 stig, hins vegar var komið leiðinda- veður á loðnumiðunum og erfitt fyrir skipin að at- hafna sig, en veiði var mjög góð í gærkvöldi og nótt. Hér eru allar þrær kjaftfullar af loðnu og trú- lega um 10 þúsund tonn í þróm. Bræðsla gengur vel og afköst eru 13—1400 tonn á sólarhring. Undan- farna daga hefur fiskazt vel á færi og jafnvel betur en í langan tíma. — mj

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.