Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977 5 losaö um festingar á húsinu vió bilpallinn, en þaö haföi verið log- soðið við pallinn og svo vel frá öllu gengið, að ekkert hafði rask- ast á leið yfir vegleysurnar. Stöpl- arnir voru síðan grafnir niður og festir vel, svo þurfti að aka bíln- um með húsinu á pallinum þann- ig, að hann sneri rétt við grunnin- um svo unnt væri að renna hús- inu aftur af pallinum niður á undirstöðurnar og allt varð að stemma þarinig af, að engu skeik- aði svo húsið stæði rétt, og hægt væri að festa það niður. Allt gekk þetta hávaðalaust og örugglega en öllum létti þegar húsið hafði runnið niður á undirstöðurnar og í ljós kom, að ékki skeikaði nema örlitlu, sem auðvelt var að laga með því að lyfta húsinu á báðum endum með bílkrananum og ýta því síðan til með mannafli. Var þá hægt að logsjóða festingarnar á húsinu við undirstöðurnar og að því búnu að moka að þvi. Mátti þá segja, að húsið væri endanlega komið á sinn stað, þar sem það fær að standa næstu áratugina. Allt hafði þetta ekki tekið nema tæpar fjórar klst. og timaáætlun staöist, því ákveðiö var um eftir- miðdaginn að halda tilbaka um kvöldið og nauðsynlegt væri að komast yfir verstu torfærurnar á meðan enn væri ratljóst. Var talió varlegra að hætta ekki á gistingu þegar þessi tími væri kominn og veðurútlit ótryggt því ef tæki að snjóa og hvessa, eins og þarna getur gert, væri hætta á, að allt yrði ófært en á slíkt mátti ekki hætta með öll þau tæki, sem þarna væru. Á meðan unnið var að niður- setningu hússins notaði ég nokk- urn tíma til að skoða mig um en veðrið setti því þó þröngar skorð- ur. Gekk ég m.a. tilbaka yfir fjall- ið að bílunum við stóra skaflinn og tók sú ganga rúmlega eina klst. Því miður var skyggnið afar tak- markað vegna þoku og hvasst var af suðaustri. Annað slagið mátti þó sjá Reykjafjöll, sem eru skammt í suðaustur frá húsinu og af og til gljáði á hrafntinnuna, sem liggur þarna allstaðar til ynd- is fyrir augað en til mikils hrell- ings fyrir þá, sem reyna að aka á bílum þessa leið því hrafntinnu- eggin er skörp eins og beittur hnífur og sker auðveldlega sund- ur hvaða hjólbarða sem er. Mundi ég ekki ráðleggja neinum að aka þessa leið nema brýna nauðsyn bæri til. Að loknu þessu dagsverki var svo haldið með vörubílana og gröfuna sömu leið til baka yfir fjallið og voru menn léttir í skapi þó mikið hafi verið erfiðað og margar áhyggjurnar sótt á menn á uppeftirleiðinni. Nú var þetta allt liðið, húsið komið á sinn staö, bílarnir léttir og ekkert annað eftir en aka heim. Til Reykjavíkur var komið und- ir morgun og voru þá liðnar 35 klst. frá því lagt hafði verið upp og svefn höfðu menn ekki fengið nema í rúmlega 4 klst. Með þessari framkvæmd er lok- ið merkum áfanga i sæluhúsa- byggingum Ferðafélagsins. A fyrra ári var reist samskonar hús á Emstrum, norðan Mýrdalsjök- uls og er þessum tveimur húsum ætlað samskonar hlutverk, að vera áriingarstaðir á gönguferð- um milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Eitt er þó enn ógert til þess að slíkar gönguferðir verði mögulegar en það er að byggja göngubrú á Fremri- Emstruána, sem ekki er fær gang- andi mönnum. Áður en ráðist var í þessar skálabyggingar hafði ver- ið athugað um brúarbypgingu yfir ána en við nánari athugun í haust kom í ljós, að það er meira mann- virki en haldið var. Ekki varð því af framkvæmdum nú en fastlega er ráð fyrir því gert, að snemma á næsta sumri verði hægt að byggja brúna, sem er raunar forsenda fyrir því, að þetta verði sú göngu- leið, sem að hefur verið stefnt. Einnig mun þá verða merkt leiðin milli sæluhúsanna svo auðvelt verði að rata þó skyggni sé slæmt. Segja má, aö með byggingu þessara tveggja sæluhúsa sé einn- ig mörkuð stefna fyrir framtiðina. Hingað til hafa flest sæluhúsin verið byggð á stöðum, þar sem þau væru notuð sem bækistöövar til þess að auðvelda mönnum að fara i gönguferðir um svæði, sem rómuð væru fyrir náttúrufegurð. Framhald á bls. 31 Magnús Sigurjónsson: Vilmundur og hinir Eftir að hafa lesið ritsmið Björgvins Guðmundssonar, borgarfulltrúa, i Dagblaðinu í dag, 20. okt.. þar sem hann ræðst á Vilmund Gylfason af fádæma heift, vaknar sú spurn- ing, hvað sé svona helsjúkt í Alþýðuflokksdeildinni í Reykjavík. A sama tíma og sýnt er að fylgisaukning og bjartir dagar geta verið framundan hjá flokknum annars staðar á landinu. kastar þessi forystu- maður banvænni heiftar- sprengju að Vilmundi, sem um ieið auðvitað molar flokkinn innanfrá. Ekki verður annað séð eftir lestur greinarinnar en pennanum stýri maður örvita af reiði. sem ekki hirðir um afleiðingarnar fyrir félaga sína og flokk. Vilmundur Nú vita það allir, sem eitt- hvað fylgjast með hreyfingu á pólitíska sviðinu hér í Reykja- vík, að Vilmundur er einn efni- legasti vaxtarbroddur krat- anna. Vegna skrifa sinna og harðfylgis i baráttunni við hála pólitíkusa og skuggalega fjár- plógsmenn hefir hann samt öðl- azt samúð góðra manna. Björgvin segir, að Vilmundur með skrifum sinum sé ein- göngu að auglýsa og upphefja sjálfan sig. Ég held, að það sé alrangt, þarna er á ferðinni ungur maður, sem blöskrar spillingin og ræðst gegn henni, auðvitað verður hann fyrir hnjaski af þeim sökum og um leið mikið umtalaður. Þaö svídur undan Upplýsingaskrif Vilmundar beindust mikið að samtrygging- arkerfi flokkanna og misferli í fjármálum. Ég las greinar hans nær alltaf og fannst mér það nokkur nýlunda, aö hann sagði sinum flokksmönnum jafnt til syndanna og öðrum. Það er mitt mat, aó þarna sé um heiðarleg- an penna að ræða, sem lætur eitt yfir alla ganga, en það eru vissulega nokkur tíðindi, að slik rödd skuli heyrast úr þeini flokki, og þótti víst sumum hart undir að búa. Ekki svo að skilja, að allir forystumenn krata séu með hvíta vængi, um það bera vitni örlög stóreigna eins og Alþýðuhúss, Alþýðu- brauðgerðar, Iðnóo.fl. Ég rifja þetta upp hér til að minna á, að það voru engir engjar, sem Vilmundur var að tala við og er það raunar um- hugsunarefni að Björgvin skuli bregðast við á þennan hátt, en reyna ekki að hemja sig, því aö með slíkum heiftarskrifum ger- ir hann allt annað en lýsa Vil- mundi. Af hverju er ég að festa þess- ar hugleiðingar á blað? Mó mig ekki einu gilda, hvað um Vil- mund og Alþýðuflokkinn verð- ur, ekki er ég þar í sveit. Viðbrögð hinna Mikill fjöldi manna, sem lengi höfðu séð hvert stefndi fylltist ánægju þegar Vilmund- ur og Halldór Halldórsson sögðu undirheimalýönum strið á hendur og vörpuöu ljósi á ýmis skuggaleg mál, sem aldrei annars hefðu komið fyrir al- menningssjónir. Ekki var þarna verið að elta neinn sér- stakan, skorið var í meinið hvaöa menn eða stofnanir sem i hlut áttu. Fyrst i stað greip um sig ofsa- hræðsla í skúmaskotum og vissu menn þar vart sitt rjúk- andi ráð, en hræðslan dvínaðí, þegar í ljós kom, að þyngra var á metunum föst ínnbyrðis tengsl skúrkanna við valda- mikla áhrifamenn en vilji blaöamannanna til að upplýsa málin, enda kom fljótlega í ljós, að þeir Vilmundur og Halldór ráku sig á vegg, komu að læst- uin dyrum, ef eftir upplýsing- um var leitaö. Ekki verður þetta rifjað frek- ar upp hér, en oft fengu þeir félagar og þó sérstaklega Vil- mundur að fínna fyrir róginum, en nú er talið óhætt að gera lokaatlögu að Vilmundi á opnu borði og láta hið pólitiska bana- högg riða. Vel má vera, að þetta takist, en heldur heföi ég kosið það Alþýöuflokknum til handa að eiga á Alþingi fulltrúa slíkan sem Vilmund, en ganga frá borði hér í Reykjavík með brot- ið fley og liðið sundrað á ströndinni. KANARIEYÍAR SÓLSKINSPARADÍS í VETRARSKAWmDEGINU NÚ ER TÆKIDERIÐ... Þúsundir íslendinga hafa notið hvíldar og skemmtunar í sumarsól á Kanaríeyjum, meðan skammdegi og vetrarkuldi ríkir heima. Sunna býður bestu hótelin og íbúðirnar sem völ er á, svo sem KOKA, CORONA BLANCA, CORONA ROJA, RONDO, SUN CLUB, LOS SALMONES, EGUENIA VICTORIA o.fl. Skrifstofa Sunnu á Kanaríeyjum með þjálfuðu íslensku starfsfólki veitir öryggi og þjónustu, sem margir kunna að meta. Vegna fyrirsjáanlegrar mikillar aðsóknar, biðjum við þá, hina fjölmörgu, sem árlega fara með okkur til Kanarieyja, og líka þá sem vilja bætast í hópinn, að panta nú snemma, meðan enn er hægt að velja um brottfarardagaog gististaði. Plássið er því miður takmarkað, og ekki hægt að fá aukarími á hinum eftirsóttu gististöðum. BROTTFARARDAGAR: 5., 26. nóvem- ber, 10., 17., 29. desember, 7., 14., 28. janúar, 4., 11., 18., 25. febrúar, 4., 11., 18., 25. marz, 1., 8., 15., 29. apríl. HÆGT AÐ VELJA UM FERÐER í 1, 2, 3 eða 4 VIKUR. LOS SALMONES SUN CLUB CORONA BLANCA CORONA ROJA KOKA EGUENIA VICTÖRIA Látið draummn rœtast... TU suðursmeð SUNNU Reykjavík: Lækjargötu 2, símar 16400 - 12070. Akureyri: Hafnarstræti 94, sími 21835. 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.