Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 19

Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÖBER 1977 — Reykjavlkur- bréf Framhald af bls. 17 verkfallsnefnd BSRB dags. 14. október s.l.. sbr. fylgiskjal nr. 8, þar sem nefndin er beðin að end- urskoða þessa ákvörðun sína. 1 bréfi verkfallsnefndarinnar kem- ur ennfremur fram að hún hyggst taka lögskipað vald Kjaradeilu- nefndar í sínar hendur, sbr. nið- urlag bréfsins: „Hins vegar vill Verkfallsnefnd BSRB taka fram, að hún mun taka rökstuddar óskir um nauðsynlegar viðgerðir á tel- exbúnaði stjórnvalda, ríkisstofn- ana og erlendra sendiráða hér á landi til vinsamlegrar athugunar eftir því sem efni standa til hverju sinni“. 4. Hinn 11. október s.l. var tekin fyrir hjá nefndinni orðsending frá lögreglustjóranum á Keflavík- urflugvelli um hliðvörslu lög- reglumanna á flugvellinum. Akvörðun nefndarinnar var til- kynnt með bréfi 11. október sbr. fylgiskjal nr. 9. Þrátt fyrir þessi fyrirmæli hef- ur hliðgæslu verið hagað þannig að það fær ekki samrýmst ákvörð- un þessari. 5. Kl. 12.30 föstudaginn 14. októ- ber komu hjúkrunarforstjóri Landspitalans á fund nefndarinn- ar til að gefa henni upplýsingar um ástand starfsmannamála á spitalanum. Greindi hún frá því að um morguninn hefðu verk- fallsverðir „sent heim“ aðstoðar- fólk sjúkraþjálfara á Landspítal- anum. Síðar staðfesti yfirsjúkra- þjálfari spitalans að 12 starfs- menn hefðu verið sendir heim af verkfallsvörðum. Þetta var gert þótt legið hafi fyrir ákvörðun Kjaradeilunefndar um að starfs- mennirnir skyldu starfa. 6. í ákvörðun Kjaradeilunefndar er gert ráð fyrir því að löggæzlu sé hagað á sama hátt og almennt hefur tiðkast með tilteknum af- mörkuðum undantekningum, sbr. bókun nefndarinnar 1. október á fylgiskjali 10. í tilkynningu Lög- reglufélags Reykjavíkur, dags. 14. október, fylgiskjal 11 kemur fram að lögreglufélagið og verkfalls- nefnd BSRB hafa einhliða ákveð- ið frekari takmarkanir á störfum lögreglumanna og fara takmark- anir þessar í bága við ákvarðanir nefndarinnar. Kjaradeilunefnd telur rétt og skylt að gera ríkisstjórn Islands og stjórn BSRB grein fyrir þess- um atriðum nú þegar. Kjaradeilunefnd. Helgi V. Jónsson. Fridjón Þórðarson. Pétur Einarsson. Þorsteinn Geirvson. ólafur Ólafsson. Nanna Jónasdóttir. Guðmundur Gígja Agúst (áeirsson. Magnús Oskarsson.** — Slagbrandur Framhald af bls. 21 en svo er alls ekki séu málin könnuð til hlítar. Þannig er nefnilega að öll leikfélög borga mun hærri fjárhæð í ríkissjóð, ep nemur styrk þeim er ríkið veitir þeim. Þjóðleikhúsið er þannig eina leikhúsið sem nýtur stuðnings ríkisins. Að öðru leyti kemur rikið út með hagnað af viðskiptum sinum við leiklistaráhugafólk og Ieikhús hér á landi. — A fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að Þjóðleikhúsið fái um 360 milljónir í sinn hlut, en Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar og öll áhugamannaleikfélögin á landinu eiga að skipta með sér 26 miiljónum króna. Tilraunaleikhópar fá svo náttúru- lega ekki krónu. Margir halda að slíkir hópar séu ekkert annað en kommasellur, en i þvi sambandi má geta þess að í Sviþjóð hækkaði framlag ríkisins til slíkrar starfsemi um 80% eftir að núverandi stjórn tók við völdum þar í landi. — Það er einn leiður galli á leiklistarstarfsemi hér. Hann er sá að það er yfirleitt alltaf sama fólkið sem vinnur öll verkefni á þessu sviði. Það kemur iðulega fyrir að leikari sem er fastráðinn við atvinnuleikhús, er um leið að leika i útvarp og sjónvarp og jafnvel að setja upp sýningu í einhverjum skólanum. Svo er fjöldi útskrifaðra leikara sem ekkert eða lítið hefur að gera. Þetta er náttúrulega mjög óréttlátt bæði gagnvart þeim sem leggja það á sig að sinna þessu öllu og einnig gagnvart þeim sem ekkert hafa að gera, þrátt fyrir menntun og hæfileika. Það er til næg atvinna fyrir alla menntaða leikara hérlendis. Það skortir bara atvinnudreifinguna. — Eg hef til dæmis starfað sjálfstætt að leiklist sl. ár og það hefur gengið ágætlega. Ég hef haft nóg að gera, en það er vissulega slæmt að geta ekki staðnæmst við ákveðinn hlut í nokkurn tíma. Ég hef verið með Stundina okkar í sjónvarpinu, leikið í útvarpsleikritum, stjórnað og tekið saman dagskrár fyrir útvarp, leikstýrt í Verzlunar- skólanum, kennt leiklist, leikið í sjónvarpskvikmynd og er nú að vinna með Leikfélagi Kópavogs. — Það virðist vera þannig að það skorti lífsháskann i íslenska leiklist, svo maður vitni í Stein. Það vantar ástríðuna. Ég held að mín kynslóð vilji reyna nýjar vinnuaðferðir og nálgast verkefnin á annan hátt en verið hefur. Með þetta vegarnesti hélt ég á braut og þakkaði Viðari spjallið og kaffið. — SIB ÞESSI RÝMINGARSALA VERAIIR E1/1/1 w ClmHr w 11 EIVIVI ENDURTEKIN Herrábúöin er að hœtta, allt á að seljast. Því er eins gott að standa klár á endasprettinum. Einn, tveir og.... Lee - Cooper flauelsbuxur Vetrarfrakkar úr tweed Hattar Gallabuxur úr denim Kórónaföt Skyrtur, óvenju fjölbreytt úrval Peysur Sokkar, mikið úrval Vetrar - mittisblússur Sólfatnaður m.a. Safarijakkar Stakar buxur í miklu úrvali o.fl. Sumar - mittisblússur V I Ð LÆKJARTORG '/W\

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.