Morgunblaðið - 23.10.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 23. OKTÖBER 1977
23
Aðalfundur Vorboðans:
Skipulagt þróttmikið
starf á þessu ári
AÐALFUNDUR Vorboðans var
haldinn i Sjálfstæðishúsinu, 17.
október sl. A dagskrá voru venju-
leg aðalfundarstörf, en sfðan
ræddi Guðmundur Guðmundsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, um bæjarmáiin í Hafnarfirði
og svaraði fyrirspurnum fundar-
kvenna. Fundurinn var bæði f jöl-
mennur og fróðlegur. Formaður
gaf í byrjun fundarins skýrslu
um störf félagsins á liðnu ári og
koma þar fram að starfið hefur
verið þróttmikið og fjölbreytt,
stjórnarfundir og fundir haldnir
reglulega og f jöldi kvenna gekk í
félagið á árinu.
Skólamálin í Hafnarfirói og
jafnréttismálin voru meðal ann-
ars til umræðu á fundunum.
Hinn árlegi jólafundur var með
fjölbreyttri dagskrá og mjög fjöl-
mennur. Vorboðakonur sáu um
dagskrá og kaffiveitingar á fundi
fyrir Styrktafél. aldraðra i
Hafnarfirði. Kökubasar og flóa-
Kort með
myndum Jóns
Helgasonar
biskups
GEFIN hefa verið út kort með
þremur myndum eftir Jón Helga-
son biskup (1866—1944). Eru all-
ar myndirnar frá gömlu Reykja-
vík eða skömmu fyrir og um alda-
mótin síðustu. Sú elsta sýnir bæ-
inn um 1870, og það eru Dóm-
kirkjan, Menntaskólinn við Lækj-
argötu og Tjörnin, sem mest ber
á. Þá er mynd, sem sýnir Lækjar-
götu og lækinn um 1894 og þar
blakta daiískir fánar við hún. Sú
þriðja sýnir BanKastræti eins og
það var um 1903.
Allar þessar myndir eru í eign
Árbæjarsafns, sem léði þær til
þess að af þessari útgáfu gæti
orðið. Myndirnar eru litgreindar
og prentaðar í Grafík h.f., en Sól-
arfilma sf. gefur þær út. Kortin
eru í tveim stærðum, bæði venju-
legri póstkorta-stærð og einnig
helmingi stærri eða 15x21 cm., en
báðar gerðir eru tvöfaldar og
bæði án innaní-prentunar og
einnig með hefðbundnum jóla-
kveðjum.
markaður var haldinn til fjáröfl-
unar. Skermanámskeið var haldið
á vegum Vorboðans sl. vetur og
var vel sótt. Sjálfstæðiskv.fél.
Edda í Kópavogi bauð Vorboða-
konum í heimsókn, sem var mjög
ánægjuleg.
Starfsárinu lauk með því að
haldið var hátíðlegt 40 ára afmæli
Vorboðans 29. apríl sl., að við-
stöddum fjölda gesta, sem stjórn
Vorboðans bauð öllum gestum til
kaffisamsætis í tilefni afmælisins
og voru veitingar framreiddar af
hálfu stjórnarkvenna Vorboðans.
Formaður lauk skýrslu sinni
með því að þakka félagskonum
mikið og gott starf á árinu.
Formaður Erna Ingibjörg
Mathiesen var endurkjörin ein-
róma og með henni i stjórn:
„Sesselja Erlendsdóttir, Ást-
hildur Magnúsdóttir, Þóra
Magnúsdóttir, Helga Guðmunds-
dóttir, Sólveig Eyjólfsdóttir, Elín
Jósefsdóttir, Halldóra Sæmunds-
dóttir, Björg ívarsdóttir, Sigríður
Ölafsdóttir, Svanhildur Ingvars-
dóttir og Sólveig Agústsdóttir.
Guðriður Petersen, sem setið
hefur í stjórn Vorboðans í 10 ár
gaf ekki kost á sér.
Hin nýkjörna stjórn hefur
þegar hafið undirbúning vetrar-
starfsins og í byrjun nóvember
verður jólaföndurnámskeið, leið-
beinandi verður frú Hanna
Ebenesardóttir, en þær Ásthildur
Magnúsdóttir og Ebba Lárusdótt-
ir voru kosnar til að sjá um nám-
skeiði.ð. Einnig hefur verið ákveð-
ið að halda jólafundinn sunnu-
daginn 4. desember, en það er
orðin hefð að efna til hátiðlegra
jólafunda með fjölbreyttri dag-
skrá og hinu vinsæla happdrætti,
en margir munir eru unnir af
félagskonum sjálfum. Undirbún-
ing fundarins annast sérstök
nefnd sem skipuð er í ár: Elin
Jósefsdóttir, Sigríður Ölafsdóttir,
Sigriður Jakobsdóttir, Ingibjörg
G. Karlsdóttir og Guðrún Eiríks-
dóttir.
Á fundinum kom fram mikill
hugur Vorboðakvenna fyrir þrótt-
miklu starfi á komandi ári, ekki
sízt með það í huga að bæði bæjar-
stjórna- og alþingiskosningar
verða á árinu.
Snjóhjólbaröar
• ALFA ROMEO • ALLEGRO • AUDI • B.MW. • DATSUN •
• FIAT • FORD ESCORT • FORD CORTINA • GALANT •
• HONDA • LADA • LANCER • MAZDA • OPEL • PEUGEOT •
• RENAULT • SAAB • SKODA • SUBARU • SUNBEAM •
• TOYOTA • TRABANT • VAUXHALL • VOLKSWAGEN • VOLVO •
tegundir fólksbifreiöa UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
JÖFUR
HK
• GARÐABÆR: NÝBARÐI . KÓRAVOGUR: JÖFUR HF AUÐBREKKU 44 - 46,
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI KÓPAVDGS NÝBÝLAVEGI 2 • REYKJAVIK: BÍLDEKK HF
BORGARTÚNI 24 . AKRANES: BÍLTÆKNI VALLHOLTI 1 • BORGARNES:
BIFREIÐAÞJÓNUSTAN BORGARNESI . STYKKISHÓL MUR. BÍLAVER HF .
HÓLMAVÍK: VÉLSMIÐJA JÓHANNS OG UNNARS . SKAGAFJÖRÐUR:
BÍLAVERKSTÆÐIÐ VARMI VARMAHLÍD • ÖLAFSFJÖRÍXJR: BÍLAVERKSTÆEH
ÖLAFSFJARÐAR • DALVÍK. STEYPUSTÖÐ DALVÍKUR • AKUREYRI: SNOLL HF.
ÖSEYRI8 . HÚSAVÍK: HELGI JÖKULSSON VÉLSM. MÚL' •
EGILSSTAÐIR: VERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR . ESKIFJÖRÐUR:
VERSLUN ELÍSAR GUÐNASONAR . HORNAFJÖRÐUR: VERSLUN SIGURÐAR
SIGFÚSSONAR . HELLA: HJÖLBARÐAVERKSTÆÐI SIGVARÐAR HARALDSSONAR
• SELFOSS: SÖLUSKÁLINN ARNBERGI • VESTMANNAEYJAR: BÍLAVERKSTÆÐI
TÓMASAR SIGURÐSSONAR •
AUOBREKXU 44.46 - KOPAWDGt - SiMi 42600
DAIHATSU — T0Y0TA
Mikill
áhugi fyrir
göngu
GÖNGUDEILD verður formlega
stofnuð innan Knattspyrnufélags-
ins Víkings í dag og verður þá
farið í gönguferð á Skeggja, sem
er hæsti tindur Henglafjalla.
Héldu Víkingar kynningarfund
um þessa nýju deild á fimmtu-
dagskvöld og mættu 116 manns á
fundinn. í dag verður deildin
formlega stofnuð og ætla göngu-
menn að hittast í skála Vikings i
Sleggjubeinsskarði fyrir ofan
Kolviðarhól um kl. 12. Síðan verð-
ur lagt af stað á Skeggja klukkan
13, en einnig í aðrar styttri göngu-
ferðir um svæðið í kring. Kom
greinilega fram á fundinum mik-
ill áhugi fyrir gönguferðum og
var þarna fólk á öllum aldri.
Fjársöfnun til
stuðnings BSRB
LAUNAMÁLARÁÐ rikisstarfs-
manna innan BHM hefur sam-
þykkt að gangast fyrir fjársöfnun
til stuðnings við þá félagsmenn
BSRB sem nú eiga í verkfalli.
Launantálaráð hefur opnaó gíró-
reikning nr. 93000-8 og hvetur
rikisstarfsmerin innan BHM til að
taka þátt í söfnuninni.
0LIUR,
VÖRUR
1. Rafgeymir mœidur
2. Geymasambönd yfirfarin
3. Slit 6 viftureim ath.
4. Frostlögur mœldur
5. Hreinsuð loftsia
6. Olio 6 stýrisvél atfi.
7. Oliur á drifi og girkossa ath.
8. Olia á vél endurnýjuð
9. Skipt um olíu-síu
10. Stiilt kúpling
ventill
ÁRMÚLA 23 - SÍMI 30690 -
rit.
REYKJAVÍK
*
VÖv 4