Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977
Marteinn M. Skaftfells:
Dýraspítalinn
Lítillega hefur verið minnst á
dýraspítalann í blöóum undanfar-
ið. En furóu gegnir þó, hve hljótt
hefur verið um hann, það þætti
ekki smáfrétt í nágrannalöndum
okkar, og vekti almenna athygli,
ef dýraspítali stæói um langan
tíma lokaður vegna þess. að ekki
fengjust dýralæknar þar til
starfa. En sú er reyndin hér, þótt
erfitt sé að trúa. í rauninni er
varla hægt að trúa því. Spitalinn
bíður með tækjum. En það fæst
enginn læknir að honum. Og það
er bannað að fá erlendan lækni.
— Hver skyldi trúa?
í Velvakanda var greinin:
„Hræðilegt, ef dýrin skildu
ekki...“ Skildu ekki ensku var
átt við, þar sem enskur dýralækn-
ir bauðst, en var bannað að starfa
hér.
„Dýraspitalinn læknislaus" er
grein í Tímanum. Þar er skýrt frá
viðtali við yfirdýralækni. Að sjálf-
sögðu gilda ákveðnar reglur um
starfsleyfi. En væntanlega er það
fyrst og fremst háð kunnáttu um-
sækjanda. íslensk lög getur er-
lendur læknir auðveldlega kynnt
sér, og aðrar gildandi reglur.
Þetta eru of léttvæg rök til þess,
að ég trúi, að Páll A. Pálsson hafi
látið þau ráða afstöðu sinni gegn
þvi, að enskur læknir yrði ráðinn
að spítalanum. Séu rökin ekki
önnur, er hér eitt dæmi þess, er
ágætismönnum skjöplast. Og
þessu sinni herfilega, þvi að það
er óverjandi að erlendum lækni
sé bannað starf við spítalann, þar
sem íslenskur læknir fæst ekki.
En þótt það skipti smáu, hvort
læknirinn talar við dýrin ís-
lensku, ensku eða kínversku, hef-
ur það verið ósk okkar, er að
þessu máli höfum staðið og stönd-
um, að æskilegast og eðlilegast sé
að fá íslenskan lækni að spítalan-
um. Og þaó hefur verið reynt, en
EKKI tekist. — Það er því algjör-
lega ÖSTÆTT á því að banna
erlendum lækni að starfa við
hann. Og banna þar með starf-
semi spítalans. En Tíminn hefur
það eftir dýralækni, að engin ísl.
dýralæknir hafi sótt um spítal-
ann, „vegna þess, að kjör voru
með öllu óviss“. — Þetta er sann-
arlega furðulegt, ef satt er.
Hafi nokkur íslenskur læknir
haft áhuga á spítalanum, gat hann
leitað upplýsinga um kjör.
I Dagbl. segir, að læknarnir
hafi ekki efni á að starfa við spít-
alann. Með öðrum orðum að lækn-
ar hafi „ekki efni á að starfa“
gegn fullri þóknun fyrir þjónustu
sína. Heggur þetta ekki fullnærri
almennri skynsemi?
Aður en spítalinn var afhentur
okkur i stjórn hans, ræddi ég
nokkrum sinnum við yfirlækni
um málið. Og hann hafði fullan
áhuga á, að spitalinn gæti tekið til
starfa. Og hann var fyllilega sam-
þykkur þeirri hugmynd, að fá
lækni til að byrja með 1—2 daga i
viku, t.d. 2 klukkustundir. Og láta
eftirspurnina svo ráða framhald-
inu. Og lærð hjúkrunarkona er
þegar tryggð. Þetta var eðlileg
byrjun, þar sem telja mátti lík-
legt, að aðsókn yrði lítil að byrja
með. — En auðvitað átti að greiða
lækninum full laun fyrir þann
tíma, sem hann ynni. Engum hef-
ur komið annað til hugar. Og þar
sem dýralæknum hraðfjölgar, er
ljóst, að þeir vinna eftir taxta,
sem þeir hafa efni á að vinna við.
Ef ekki, væri starfið hugsjónar-
starf. Og þá hefði læknir fengist
að spítalanum. Og sé það rétt, að
læknar á Reykjavíkursvæðinu
séu „mjög störfum hlaðnir", þá
ætti lækni að vera óhætt að ráða
sig að spítalanum og starfa jafn-
framt sem praktiserandi læknir
utan hans. Og það er meira en
lítið furðulegt, ef dýralæknar
hafa ekki áhuga á spítalaaðstöðu.
Hafi þeir hana ekki, verður að
ætla, aó spítala sé ekki þörf. Og þá
ber mér að biðja afsökunar á að
hafa borið hugmyndina fram á
fyrsta stjórnarfundi Dýravernd-
arfélags Reykjavíkur, er það var
stofnað 1959. Og síóan að henni
unnið, ásamt mörgum öðrum og
utan samtakanna hafa margir
leiðandi menn verið sama sinnis
ella væri spítalinn ef til vill ekki
risinn af grunni. Ráðamenn borg-
arinnar brugðust drengilega viö.
Og að sjálfsögðu vegna þess, að
þeir töldu málið þess vert að
leggja þvi lið. — En dýralæknar
virðast sannarlega vera annars
sinnis. Hvað sem veldur.?
Einhver sagði, að læknir fengíst
ekki að spítalanum vegna þess, að
hann væri einungis ætlaóur
smærri dýrum. Þessu neita ég að
trúa. Sjúkt dýr þarfnast læknis,
hvort sem það er stórt eða lítið.
Og læknir ætti ENGINN að vera,
hvort sem hann á að þjóna dýri
eða manni, sem ekki hefur fyrst
og fremst áhuga á að HJÁLPA.
Inn í læknastétt eiga engir aðrir
að veljast.
Er spítalinn þörf eða óþörf
stofnun? Reynslan sker úr því. A
Reykjavikursvæðinu eru þúsund-
ir smærri heimilisdýra. Og víst er
þess óskandí, að þau séu og verði
svo heilbrigð, að spítalans sé ekki
þörf. En eru nokkrar líkur til
Nú bjóða öll umboðsverkstæði VOLVO umhverfis landið sérstaka
~ Cv o
VOLVO tilboð fram til 30.11.
1. Vélarþvottur
2. Hreinsun og
feiti á geymissambönd
3. Mæling á rafgeymi
4. Mæling á rafhleöslu
7 Skipt um kerti
8. Skipt um platínur
9. Stilling á viftureim
10 Skipt um olíu og olíusíu
11. Mæling á frostlegi
12. Vélastilling
5. Hreinsun á blöndung
6. Hreinsun á bensíndælu 13. Ljósastilling
Verð meó söluskatti:
4 cyl. B18-B20-B21 Kr. 17.299.00
6 cyl. B30-B27 Kr. 18.299.00
Innifalið í verði: Platínur, olíusía, þurrkublöð,
ventlalokspakkning,kerti, vinna, vélarolía.
I Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
Auglýst
eftir framboðum
til prófkjörs
Prófkjör um val frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins við
næstu alþingiskosningar í Reykjavík, fer fram dagana 19. 20.
og 21 nóvember, en utankjörstaðakosning dagana 11. nóvem-
ber — 18. nóvember. Val frambjóðenda fer fram með tvenn-
um hætti:
1. Framboð, sem minnst 25 flokksbundnir einstaklingar (þ.e.
meðlimir Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík) standa að.
2. Kjörnefnd getur að auki bætt við frambjóðendum, eftir því
sem þurfa þykir, enda skal þess gætt, að frambjóðendur í
prófkjörinu verði ekki færri en 32.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs sbr. 1. lið að
ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling
sem kjörgengur verður í Reykjavík og skulu minnst 25
flokksbundnir Sjálfstæðismenn og mest 40 standa að hverju
framboði. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri en 3
framboðum.
Framboðum þessum ber að skila til yfirkjörstjórnar á skrifstofu
Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, EIGI SEINIMA EN KL. 19.00, MIÐVIKUDAGINN
26. OKTÓBER.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins
i Reykjavík.
þess? Eða er það einungis sauðfé,
kýr og hestar, sem eru svo kvilla-
söm, að læknar eru „mjög störf-
um hlaðnir“? Sé svo, hljóta lækn-
ar að hafa áhuga á byggingu við
spítalann, fyrir stærri dýr. Og að
þvi verður unnið, að sú hugmynd
komist sem fyrst í framkvæmd.
Og því fyrr verður hún að veru-
leika, sem læknar sýna meiri
áhuga. Og vonandi verður hann
annar og meiri en fyrir áfangan-
um, sem kominn er. — Allir þeir
aðilar, sem að spítalanum standa,
hljóta nú að taka af skarið og
krefjast starfsleyfis fyrir erlend-
an lækni, þar sem íslenskur fæst
ekki. Æskilegast er að fá lækni
frá hliðstæðum spítala i ein-
hverju nágrannalandi okkar. Og
þann möguleika ber að kanna.
Hneisan er orðin ærin, þótt ekki
sé lengur beðið og undarleg eru
íslensk stjórnvöld ef standa þarf í
stappi um að opna fyrsta dýraspit-
alann, sem bíður búinn tækjum,
til þjónustu.
Er ekki timabært, að við spyrj-
um sjálf okkur, hvort íslensk þjóð
hefði orðið til án húsdýranna.
Héldu þau ekki um aldur lífi í
þjóóinni? Fæddu þau hana ekki
og klæddu? Hefði þjóðin án
þeirra ekki dáió út hungri og
kulda? Og hefðu bókmenntirnar,
sem við státum svo mjög af, og
megum gera, orðið til, ef engin
hefði verið sauðkind og kýr? Og
hefði Alþingi verið stofnað fyrir
meir en 1000 árum, hefði enginn
verið hesturinn? Og hefur hund-
urinn ekki, meginhluta Islands-
byggðar, verið þarfur þjónn flest-
um heimilum? Og getur nokkur
gert grein fyrir, hve þungar
búsifjar mús og rotta hefði veitt,
ef köttur hefði ekki verið á
hverju heimili?
Öll hafa þessi dýr verið þjóð-
inni svo hagnýt, hvert á sinn hátt,
að ómetanlegt er. — Þjóðin hefur
notið þeirra. En hafa þau notið
þjóðarinnar í likum mæli? Hefur
þjónusta þeirra verið þökkuð að
veróleikum? Eru þeir ekki fullfá-
ir, sem það hafa gert? Meðferðin
svívirðu nærri hjá furðu mörgum.
Ömetanleg er gagnsemi þeirra.
Og vandmetin eru uppeldisáhrif-
in. — Er ekki tímabært að við
minnumst hvors tveggja? Og er
úr vegi, að vió þökkum honum
göfuga gefanda spítalans annan
veg en við höfum gert. Er skömm
okkar ekki orðin nóg, þótt spítal-
inn verði ekki lengur látinn bíða
læknis?
Marteinn M. Skaftfells.
Kaffisamsæti
Rangæinga-
félagsins
Rangæingafélagið í Reykjavík
hefur á undanförnum árum hafió
vetrarstarf sitt með þeim hætti að
efna til mannfagnaðar fyrir eldra
fólk úr Rangárvallasýslu. í ár
verður samkoma þessi í Bústaða-
kirkju og hefst kl. 14 í dag
með messu þar sem sr. Ólafur
Skúlason . prédikar. Að lokinni
messu verður kaffisamsæti í safn-
aðarheimilinu þar sem eldri og
yngri Rangæingum gefst tækifæri
til að hittast og rabba saman yfir
kaffibolla. I frétt frá Rangæinga-
félaginu segir að eldra fólkið sé
að venju gestir félagsmanna, og
yngra fólkið sé ekki síður velkom-
ið og það hvatt til að koma og
styrkja þessa starfsemi.
Flóamarkaður
kvenstúdenta
Kvenstúdentafélag Islands held-
ur árlegan flóamarkað sinn að
Hallveigarstöðum í dag 23. okt.
kl. 2 e.h.
Aó venju verða á boðstólum alls
konar munir, nýir og notaðir, svo
sem garðhúsgögn, barnakojur,
rafmagnsáhöld, eldhúsáhöld,
lampaskermar, blómagrindur,
barnaleikföng og bækur. Enn-
fremur mikið úrval af álnavöru,
t.d. tvíbreið ullartweedefni, ekta
hör i þurrkur, gardínuefni að
ógleymdum fatnaði alls konar,
nýjum ísgarnssokkum, og nýjum
nærfatnaði. Allur ágóði rennur til
húsnæðiskaupa fyrir félagið.