Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 32
ALURA'
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977
3»
Al (iI.VSINf, \-
SIMINN ER:
22480
Fjórtánda skipið
bætist í flotann
á Ytri höfninni
Frá upphafi fundar samninganefndar BSRB f hátfðasalnum f gær. Ljósm. Mbi.: Ól. K. M.
A fundi samninganefndar BSRB í gær:
Tillaga um endurskoð-
un án verkfallsréttar
Útilokað að þrefa áfram um mismunandi
launastiga, sagði varaformaður BSRB
FJÓRTÁNDA skipið bætist
væntanlega við flota þann, sem
nú liggur á ytri höfninni í
Reykjavík, en um helgina voru
Fjallfoss og Ljósafoss væntanleg
til landsins. Auk skipanna, sem
liggja í Reykjavík, eru skip stopp
vegna verkfallsins annars staðar
á landinu. Súrálsskipið er fyrir
utan Straumsvík, Hvítá er fyrir
utan Akranes, eitt skip liggur á
Eskifirði og annað er bundið á
Höfn f Hornafirði.
Skipin sem í gær voru á ytri
höfninni í Reykjavík eru Mána-
foss, Skógafoss, Múlafoss, Kljá-
Ininnur þrett-
ándi í vínveit-
ingahúsunum
VEGNA lokunar Afengis- og
tóbaksverzlunarinnar i verk-
fallinu hefur mjög gengið á
birgðir vínveitingahúsa. Er nú
svo komið að víða eru ekki
aðrar veigar á boðstólum en
létt vín og þær tegundir, sem
alla jafnan seljast illa. Hefur
eitt vínveitingahúsanna í
Reykjavík þegar lokað vegna
vínþurrðar, en það er Klúbbur-
inn, sem hafði síðast opið á
fimmtudagskvöld. Ef verkfall-
ið leysist ekki fljótlega má bú-
ast við að fleiri hús fylgi for-
dæmi Klúbbmanna og loki.
Þá hefir einnig verulega
gengió á birgðir i verzlunum af
tóbaki. Eru algengustu tegund-
irnar víða uppseldar.
Loðnuaflinn:
200 þúsund
lesta markið
í sjónmáli
VEÐUR gekk niður á loðnumið-
unum á Koibeinseyjarsvæðinu í
fyrrakvöld og þegar skipin byrj-
uðu að kasta kom í Ijós að þarna
var mikil loðna, þannig að reikna
mátti með kafveiði, að sögn
Andrésar Finnbogasonar hjá
loðnunefnd. Sú varð þó ekki raun-
Framhald á bls 18.
foss, Háifoss, Dettifoss og Múla-
foss, Dísarfell, Hvassafell, Laxá,
Goðinn og Vesturland, sem koih
til landsins í fyrrakvöld.
Einar Thoroddsen, yfirhafn-
sögumaður í Reykjavík, sagði í
gær, að hann teldi ekki að skipun-
um væri bein hætta búin á ytri
höfninni i Reykjavík. Til að svo
yrði, þyrfti að gera virkilega vont
veður, en síðan verkfallið byrjaði
hefði verið mjög góð tíð og varla
tekið í keðju, eins og Einar orðaði
það. Hins vegar sagði Einar. að
það væri varla forsvaranlegt að
fólk færi á milli lands og skip-
anna á litlum, opnum bátum. Það
byði slysahættunrii heim og ekki
sízt ef konur og börn, sem ekki
væru vön slíku, væru með í ferð-
um.
SAMNINGANEFND BSRB kom
saman til fundar í Hátiðasal Há-
skóla Islands um tvöleytið í gær
tii undirbúnings fyrir sáttafund-
inn, sem hoðaður var klukkan 16.
„Við verðum með tillögu fyrir
okkar fundi,“ sagði Haraldur
Steinþórsson, varaformaður og
framkvæmdastjóri BSRB, er Mbl.
ræddi við hann fyrir fundinn í
hátíðasalnum. 1 þeirri tillögu var
m.a. fallizt á tillögu ríkisins um
endurskoðunarrétt með þeirri
orðalagsbreytingu, að í stað „ósk-
ar“ um um endurskoðun var
,Jirafa“ og síðan ný málsgrein,
sem segir, að takist ekki samning-
ar þá skal við gerð næsta aðal-
kjarasamnings samið sérstaklega
um kaupliði fyrir tímabilið „frá
upphafi sáttastigs til loka samn-
ingstímans".
Haraldur Steipþórsson sagði að
menn teldu útilokað að halda
áfram þrefi um mismunandi
launastiga og þvi yrði nú lögð
fram hugmynd að launastiga, sem
byggði á síðasta tilboði ríkisins
með ákveðnum breytingum, sem
Haraldur kvaðst ekki vilja skýra
frá að svo stöddu. Einnig sagði
Haraldur að í tillögunni væri
ákveðin útfærsla á visitölumál-
inu, sem m.a. gerði ráó fyrir að
lífeyrisþegar fengju notið hlut-
fallslegra bóta og fjallað væri um
orlofsdaga þar sem lögð væri
áherzla á að laugadagarnir yrði
ekki taldir með í tölu orlofsdaga.
1 gær og fyrrakvöld voru haldn-
ir fundir i ýmsum stjórnum og
trúnaðarmannaráðum aðildarfé-
laga BSRB, þar sem staðan í
samningamálunum var til um-
ræðu. Valgeir Gestsson, formaður
Sambands íslenzkra barnakenn-
ara, sagði í samtali við Mbl. í gær,
að það héfði verið samhljóða álit
þeirra fundar að síðasta tilboð
ríkisins væri ekki til að ganga að.
ALÞJÓÐASAMBAND flug-
manna, IFALPA, hafði boðað til
tveggja sólarhringa verkfalls frá
og með hádegi á þriðjudag og
ákvað stjórn og trúnaðarmanna-
ráð Félags íslenzkra atvinnuflug-
manna að taka þátt í þessu verk-
falli á fundi sinum í fyrrakvöld. 1
gær ákvað IFALPA síðan að
fresta verkfalli þessu, þar sem
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
ákvað að taka mál flugmanna
fyrir á fundi sínum í vikunni.
Boðuðu flugmennirnir verkfall-
ið til að leggja áherzlu á aukið
öryggi og er tilefnið hin tíðu flug-
rán og hryðjuverk í flugvélum að
undanförnu. Sagði Kristján Egils-
Sagði Valgeir að mönnum hefði
ekki þótt launastiginn „nógu góð-
ur“ og heldur ekki persónuupp-
bæturnar. Og þó kennaar hefðu
fengið lausn á sumum mála sinna,
Framhald af bls. 32.
son, varaformaður FÍA, í samtali
við Morgunblaóið í gær, að flug-
vélar væru nú orðnar helzti vett-
vangur þeirra illmenna, sem
stunda hryðjuverk. Yrði að
sporna fótum til að stemma stigu
við þessu og myndi Öryggisráðið
fjalla um málið í vikunni. Verður
Jerry Pearce, formaður IFALPA,
á fundi Öryggisráðsins þegar
fjallaó verður um þessi mál.
Sagði Kristján að atvinnuflug-
menn í 50 löndum væru aðilar að
IFALPA og hefðu nær öll
Evrópuríkin ákveðið að taka þátt
í verkfalli þessu ef til þess kæmi.
Mörg önnur ríki hefðu einnig
Framhald á bls 18.
Flugleiðir fara fram
á þrjár undanþágur
Flugmenn hætta við
verkfall, sem átti
að byrja á þriðjudag
Farþegar í New York áskilja sér rétt til
málshöfðunar vegna vinnutaps og kostnaðar
Símakerfí stórfyrir-
tækja farin að gefa sig
Kjaradeilunefnd heimilar ekki viðgerð
FLUGLEIÐIR lögðu í gær inn
beiðni hjá Verkfallsnefnd BSRB
um leyfi fyrir þrjú millilanda-
flug. Vonuðust forystumenn við
jákvæðu svari við þessari beiðni í
dag. Islenzkir farþegar, sem biðu
flugs heim frá New York, hafa
sent utanríkisráðuneytinu skeyti
í gegnum sendiráðið í Wash-
ington, þar sem þeir meðal
annars áskilja sér rétt til máls-
höfðunar fáist ekki undanþága
fyrir flug.
Innanlandsflug var Iítið i gær,
aðeins flognar tvær ferðir á Akur-
eyri og ein til ísafjarðar. Eina
millilandaflugið var að vél frá
Arnarflugi fór til Gautaborgar
vegna leiguflugs.
Þær flugferðir sem Flugleiðir
óskuðu eftir undanþágum fyrir í
gær voru fyrir vél til að fljúga
ieiðina Nwe York — Keflavík —
Luxemborg — Keflavík — New
York, fyrir eina Boeingvél til
Norðurlanda og aðra til Bret-
iands.
'Sagði Sveinn Sæmundsson,-
blaðafulltrúi Flugleiða, í gær, aö
mikill þrýstingur væri á Flugleið-
ir vegna Islendinga, sem væru
tepptir erlendis. Sagði Sveinn að
fyrirtækið vonaðist eftir jákvæðu
svari þannig að unnt yrði að
hjálpa þessum farþegum strax i
dag.
Þeir 196 af þeim 262 farþegum,
sem bíða fars í New York til Is-
lands, komu eftirfarandi á fram-
færi við sendiráðið í Washington í
fyrradag, en sendiráðið sendi er-
indi þeirra siðan áfram til utan-
ríkisráðuneytisins:
„196 Islendingar, sem bíða
heimferðar í New York og hafa
frétt að undanþágur hafi verið
veittar til flugs til Islands frá
Evrópu, hafa óskað að sendiráðið
í Washington komi á framfæri
kröfum þeirra um heimferðar-
leyfi og jafnframt aó fáist það
ekki strax, áskilji þeir sér rétt til
að krefjast skaðabóta vegna
kostnaðar og atvinnutaps i ljósi
þess að heimferðarleyfi hafa ver-
ið veitt vegna flugs frá Evrópu.“
NOKKUÐ er nú tekið að bera á
því að sfmakerfið sé tekið að gefa
sig og bila, t.d. hjá ýmsum fyrir-
tækjum og hafa beiðnir um við-
gerðir á síma hjá fyrirtækjum
komið til úrskurðar hjá kjara-
deilunefnd.
Að sögn Helga V. Jónssonar,
formanns nefndarinnar, hafa orð-
ið bilanir á simakerfi bæði Slátur-
félags Suðurlands og KEA á Ak-
ureyri og komið til kasta nefndar-
innar að ákveða hvort heimila
skyldi viðgerð hjá þessum stórfyr-
irtækjum. Helgi sagði, að þessi
mál hefðu töluvert verið rædd
innan nefndarinnar en niðurstað-
an orðið sú að erfitt væri fyrír
kjaradeilunefnd að úrskurða að
viðgerð hjá fyrirtækjum af þessu
tagi skuli fara fram, því að naum-
ast sé hægt að flokka þá viðgerð
undir öryggissjónarmið.
Framhald á bls 18.