Morgunblaðið - 25.10.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977
5
Stefán Jónsson á Lýsuhóli:
Hafði ekki aflað mér
leyfa, en vatnið er
með öllu skaðlaust
ÉG ER að vissu leyti ánægður með
þessa stöðvun á framleiðslu og
sölu á ölkelduvatninu, þótt fram-
kvæmdin hafi verið að minu mati
heldur harkaleg og komi illa niður
á mér fjárhagslega
Þetta er þó skiljanlegt, þvi að
þarna er ekkert venjulegt vatn á
ferðinni. Heitt ölkelduvatn úr bor-
holu með þeim efnum, sem þetta
vatn inniheldur, er mjög óvenju-
legt og nánast stórmerkilegt.
Þessi tilraun min hefur orðið til
þess að vekja athygli manna á
ölkelduvatni og vonandi verður
það einnig til þess að vatnið verði
rannsakað með tilliti til notkunar
til heilsubótar.
Min hugmydn er að gera tilraun
til framleiðslu bæði til þess að
fleiri gætu notið þessa ágæta og
heilsusamlega ölkelduvatns og til
þess að vekja athygli visinda
manna á þessu merkilega vatni.
Nú er Heilbrigðiseftirlit rikisins
ásamt fleiri nefndum og vísinda
mönnum að fjalla um málið. Vona
ég að þeir leggi blessun sina yfir
vatnið og þess verði ekki langt að
biða að banninu verði aflétt og
sala hef jist á nýjan leik.
Stöðvunin kom til vegna þess
að ég hafði ekki aflað mér þeirra
leyfa, sem tilskilin eru til fram-
leiðslu og sölu á þessu vatni með
þeirri efnasamsetningu, sem það
hefur. Mér var þetta Ijóst, en hafði
dregið það vegna þess að ég taldi
mig aðeins vera að gera tilraun til
framleiðslu og sölu. Önnur ástæð-
an var talin vera flúorinnihald
vatnsins, en það er um 4 milli-
grömm i litra. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin telur æskilegt að i
neyzluvatni sé 1,0 milligramm i
litra, sem vörn gegn tannskemmd-
um, en staðall Evrópurikja er
0,9—1,7 milligrömm i litra miðað
við land með 10—12 gráða loft-
hita á celsius.
Ég vil geta þess til samanburðar
við þessar tölur, að ein flaska
ölkelduvatns inniheldur 940
grömm. Ég hef sagt fólki að ég og
aðrir drekki um hálfa flösku á dag,
það er 470 grömm. Hún inniheld-
ur þvi 1.88 milligrömm i litra af
flúor. Það er sama flúormagn og
staðall Evrópurikja telur hæfilegt
mönnum daglega i neyzluvatni.
Það hefur engum dottið i hug að
nota þetta ölkelduvatn i stað
venjulegs drykkjarvatns. Neyzlu-
vatn er notað bæði i mat, kaffi og
aðra drykki eins og allir vita og er
álitið að menn drekki um 1Vz litra
á dag, bæði i mat og drykk. Hafa
skal það lika i huga að flúor fer
ekki úr vatni við suðu, nema þá i
mjög litlum mæli og þá við suðu i
vissum málmilátum. Miðað við
þennan IV2 litra sem menn neyta
á dag af neyzluvatni, er talið æski-
legt samkvæmt reglugerð Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar að
menn fái 1.5 milligrömm flúors
daglega, sem vörn gegn tann-
skemmdum og þá samkvæmt
sama staðli 1.35 milligrömm i
litra minnst og 2,55 mest. Þessi
staðall Evrópurikja er miðaður við
lönd með 10—12 gráða lofthita.
Þegar þessi samanburður er at-
hugaður kemur i Ijós, að sem bet-
ur fer, er engin hætta af völdum
flúorinnihalds ölkelduvatnsins, ef
menn drekka ekki meira en hálfa
flösku á dag. Þær tölur, sem hér
eru gefnar. eru miðaðar við full-
orðið fólk
Lýsuhóli, 13. október 1977
Stefán Jónsson.
LEIKRITASAMKEPPNI
Listahátíð 1978
Athygli höfunda er vakin á, að skilafrestur leikritasamkeppni
Listahátiðar er 1. desember 1 977.
Ljósmyndin sem er yrkisefni keppninnar, hefur birzt í fjölmiðlum.
Samkeppnin er leynileg og skal senda leikritin í pósthólf 88. Skulu þau merkt
dulnefni, en nafn höfundar fylgja í lokuSu umslagi. Umslögin merkt dulnefnun-
um verSa ekki opnuð fyrr en dómnefnd hefur kveðiS upp úrskurð sinn og nöfn
höfunda verðlaunaverkanna verða svo birt á Listahátíð 1978.
Skilafrestur er 1. desember 1977
Dómnefnd leikritasamkeppni Listahátiðar í Reykjavik.
Davíð Oddsson,
Briet Héðinsdóttir, Erik Sönderholm,
Hjörtur Pálsson, Sigríður Hagalin.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
ÞÚ Al'GLÝSIR l'M ALLT
LAN'D ÞEGAR ÞÚ AIG-
LYSIR I MORGl'NBLAÐIM
★★ M. 26 okt. Félagsheimilið - Þórshöfn - Langanesi - kl. 21.00
★★ F. 27 - Hótel Reykjahlíð - - 21.00
★★★ F. 28 - Hótel Húsavik - - 19.30
★★★ L. 29 - Valaskjálf - Egilsstöóum - - 19.30
★★ S. 30 - Egilsbúó - Neskaupsstaó - - 21.00
★★ M. 31 - Skrúður - Fáskrúósfirði - - 21.00
1.
2.
3.
Feröakynning: Sagt verður frá hinum
fjölbreyttu ferðamöguleikum feröaskrifstofunnar.
Litkvikmyndasýning.- Sýnd verdur
mynd frá Canaryeyjum og helstu gististööum
SUNNU i sólarlöndum.
Klúbbur 32-. Magnús Kjartansson kynnir
starfsemi Klúbbs 32 - ferða- og skemmtiklúbbs
unga fólksins.
★★ DAGSKÁRATRIOI 1
★★★ ------------- 1
■2-3-4-5-6
■2-3-4-5-6-7
Tískusýning: Karon • samtök sýningafólks-
sýna þaó nýjasta i kvennfatatiskunni.
Skemmtikraftar: Hinir heimsfrœgu
skemmtikraftar L0S PARAQVIOS TR0PICALES
syngja vinsæla suður-ameriska og spánska songva
og koma fram i þjóöbúningum.
6.
7.
RISA-bingó: Spilað verður um þrjár
glæsilegar sólarlandaferðir, se.i, nota má eflir
frjálsu vali og ennfremur verður spilað um réttinn
til þess að vera með. þegar aukavinningurinn,
sem er ALFA R0ME0, verður dreginn út i vor.
Grísaveisla og dans: Grisaveisla
• hinn vinsæli spánski veislumatur verðurá borðum-
og endahnúturinn verður sleginn með dunandi
dansi.
GLÆSILEGUR AUKAVINNINGUR
£Z$Ct> ^CTTtC&'
ALFASUD ti - BIFREIO í SÉRFLOKKI
ALLIR í SÓLSKINSSKAPI MEÐ SUNNU
- ..........................................................................................................................................-
ÍMMI .II. I
SUNHA
LÆKJAGÖTU 2 - SÍMAR 25060 - 26555 - 12070