Morgunblaðið - 25.10.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977
13
Bókmenntir — Listir Bókmenntir —
Sigríður Ella er arf-
taki Péturs, Stefáns
og Maríu sem ís-
lenzkur stórsöngvari
Sigríður Ella Magnúsdóttir
Starf listamannsins er þrotlaus
leit og vald hans á viðfangsefni er
að miklu leyti í samræmi við alla
undirbúningsvinnu og sé henni
áfátt, nægja hæfileikar ekki til að
draga fjöður yfir vankantana. Um
Ieið og listamaður hættir að sækja
á brattann og þjálfa sig, missir
hann mjög fljótlega tökin á við-
fangsefninu og hættir að vera sá
sem hann var. Einn þeirra is-
lenzku listamanna, sem sannar-
lega hefur undirbúið sig vel og
stækkar af hverjum nýjum verk-
um sínum. er Sigríður Ella
Magnúsdóttir. Á Háskólatón-
ieikunum s.l. laugardag söng hún
betur en nokkru sinni fyrr og sum
lögin eins og t.d. Flickan kom
ifran sin álsklings möte, eftir
Sibelíus, með sérlegum glæsi-
brag. Þá er vert að minnast á að
undirleikur Ölafs Vignis Alberts-
sonar var mjög góður og sam-
vinna hans og Sigriðar sannfær-
andi og sterk. Tónleikarnir hófust
á tveimur lögum eftir Haydn, það
fyrra við texta eftir Shakespeare,
She never told her love. Lagið er
sérkennilegt og ólíkt því sem ger-
ist hjá Haydn. Seinna lagið, Eine
sehr gewöhnliche Geschichte,
ekta Haydn, var skemmtilega
flutt. Næstu fjögur lögin voru eft-
ir Schubert við texta eftir Goethe,
Ganymed, Rastlose Liebe, Erster
Verlust og Liebhaber in allen
Gestalten og voru þau öll mjög vel
flutt. Það er eins og lög eftir
Strauss falli Sigríði betur en lög
eftir Schubert eða að hún eigi þar
meira að gefa, því í lögunum
Ruhe, meine seele og Zueignung,
eftir Strauss, var söngur hennar
stórkostlegur. Vögguvísurnar op.
41, eftir Britten, eru vandsungnar
svo að þær séu ekta breskar.
1 annarri vögguvisunni, The
Highland Balou, við texta eftir
Robert Burns, og sérstaklega
þeirri síðustu, Lullaby baby, naut
Sigríður sín best. Síðustu lögin á
efnisskránni voru eftir Sibelius
og var flutningur síðasta lagsins,
Flickan, sem fyrr var getið, há-
punktur tónleikanna.
Sigríður Ella Magnúsdóttir er
arftaki Péturs Jónssonar, Stefáns
islandi og Mariu Markan sem is-
lenzkur stórsöngvari.
Með markvissri þjálfun hefur
hún náð að verða góð söngkona og
nú er það listamaðurinn, mann-
eskjan, sem gæðir sönginn lífi
með skapandi krafti, sterkri og
sannri tilfinningalegri innlifun.
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Sinf óníuhl j ómsveitin
Sinfóníuhljómsveit Islands
hefur nú í haust gerð víðreist
og flutt landslýð boðskap sinn
og að því er best er vitað var
þessi tónleikaferð vel heppnuð.
Sinfóníuhljómsveitin hefur
þrátt fyrir verkfall starfað og
nú siðast hélt hún tónleika und-
ir stjórn Páls P. Pálssonar í
íþróttahúsinu í Garðabæ. Flutt
var létt en góð tónlist. Það má
deila endalaust um það hvað sé
létt tónlist og er óperutónlist
yfirleitt flokkuð með skemmti-
tónlist, þó það sé auðvitað ekki
alls kostar rétt. Undirritaður
felst ekki á þá skoðun að sin-
fóníur séu leiðinlegar, frekar
en góðar bókmenntir, en það er
rétt, að tónlist sem ætluð er
nær eingöngu til skemmtunar
er auðveldari til hlustunar, á
sama hátt og skemmtibók-
menntir eru auðskildari en fag-
urbókmenntir.
Hljómburður i íþróttahúsi
Garðbæinga er góður og eftir
aðsökninni, er full ástæða til að
ibúar Garðabæjar myndi með
sér samtök og gerist áskrifend-
ur að nokkrum sinfóníutónleik-
um. Mætti í þvi sambandi
minna á ,,Promenade“ tónleik-
ana, sem haldnir eru í London
við miklar vinsældir. Á tónleik-
um Garðbæinga mætti leggja að
nokkru áherslu á létta tónlist
og er af miklu að taka, en einn-
ig hafa með meiri háttar tón-
verk eða þætti úr þeim.
Skemmtitónleikar sinfóníu-
hljómsveitarinnar ættu ekki að
vera aðeins fyrir utanbæjar-
fólk, heldur væri skemmtilegt
að halda þá annars staðar en í
Háskólabíói og er íþróttahús
Garðbæinga vel til þess fallið.
Á gólfinu sjálfu mætti einnig
konfa íyrir áheyrendum og með
þvi að „halla“ hljómsveitinni
ög með pöllum, og raða upp á
annan hátt, vegna sterkrar
hljómgunar hússins er þarna
ágætis aðstaða til hljómleika-
halds, þó bekkír hússins séu
ekki sem notalegastir.
A verkefnaskrá hljómsveitar-
innar voru forleikir og hljóm-
sveitaratriði úr leikhúsverkum
eftir Cimarósa, Gounod, Bizet,
Mascagni, Katsjatúrian og
Smetana. Hljómsveitin skilaði
sínu vel og lék af miklu fjöri,
enda eru verk þessara manna
góð tónlist, þó létt sé og leik-
andi. Guðný Guðmundsdóttir
lék einleik í Zigeunerweisen
eftir Sarasate. Hún lék á köfl-
um vel, en hraðinn í seinni
hlutanum var helst til mikill,
ekki þó svo að Guðný kæmist
ekki í „gegnum" verkið, heldur
verður það blátt áfram tæting-
ur og tafs í svona ofsalegum
hraða.
Sieglinde Kahmann og Krist-
inn Hallsson sungu með
hljoðmsveitinni, fyrst Kah-
mann, aríu úr Brúðkaupi Fígar-
Framhald á bls. 45
Fræðslufundir
um kjarasamninga
V.R.
Nýir þættir kjarasamninga V.R.
Fræðslufundur verður haldinn miðvikudaginn
26. október 1977, kl. 20.30 að Hagamel 4
Framsögumaður Magnús L. Sveinsson
* Magnús L
f Sveinsson
car rental
Sem einn hlekkur í stœrstu bílaluigukeóju Evropu
er okkur unnt aó veita mun betri þjónustu en
aóur
Þegar þu feróast til útlanda, þa er aóeins aó
hafasamband vióokkur, aóuren þú feró og
vió munum sjá um aó bill fra InterRent bíói
eftir þér a hvaóa flugvelli sem er, eóa annars
staóar, ef þu oskar þess
OKKAR BÍLL ER ÞINN BILL HVAR SEM ER OG HVENÆR SEM ER
þetta er þjónustutakmark okkar
GEYSIR
Aó sjalfsögóu veitum vió allar upplýsingar
þu þarft aóeins aó hringja eóa koma
BORGARTÚNI 24 - SIMAR 24460 & 28810