Morgunblaðið - 25.10.1977, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977
17
verið fjallað um byggingarkostn-
að og við höfum séð I fjölmiðlum
skýrt frá dæmum um það hve
byggingarkostnaður á Akureyri
er lægri en i Reykjavik. Mikið
hefur verið rætt um ástæður til
þessa, i þeim umræðum kom fljótt
fram mismunandi afstaða bæjar-
yfirvalda á Akureyri og í Reykja-
vik.
Á Akureyri hafa bæjaryfirvöld
lagt kapp á að hafa nægjanlegt
lóðaframboð og séð til þess að
byggingameistarar á Akureyri
hafa ekki þurft að hafa áhyggjur
af lóðaskorti. Arangurinn hefur
ekki látið á sér standa. B.vggingar-
aðilar á Akureyri hafa innleitt
nýja tækni m.a. í mótasmiði. svo
og með notkun byggingakrana.
auk ýmissa annarra fjárfestinga.
Afleiðingin er sú að á Akureyri er
hægt að tala um eiginlega fjölda-
framleiðslu húsnæðis. með öllum
þeim kostum og hagræði sem
fjöldaframleiðslu fylgir og verð
íbúðarhúsnæðis eftir þvi.
í Reykjavík er ástand þessara
mála hins vegar afar slæmt. Bygg-
ingaraðilar í Reykjavík hafa eng-
ar tryggingar fyrir lóðaúthlutun-
um, en þurfa hinsvegar sifellt að
standa i eltingaleik við borgar-
yfirvöld til þess að reyna að
tryggja sér lóð. sem þannig tekst
af og til. En þetta óöryggi og
óvissa um lóðaúthlutanir veldur
þvi að byggingafyriræki í Reykja-
vik hafa átt ákaflega örðugt með
að fjárfesta i þeirri tækni sem
nauðsynleg er til þess að unnt sé
að taka upp eiginlega fjöldafram-
leiðslu.
Þá vil ég vekja athygli á þeirri
tilhneigingu sem sveitarfélögin
hafa til að setja upp eigin fyrir-
tæki til þess að annast verklegar
framkvæmdir, sbr. malbikunar-
stöðvar, grjótnám. efnisflutninga.
og margvisleg önnur verkefni.
Þessar tilhneigingar gætir einnig
mikið hjá ríkisvaldinu og má i þvi
sambandi benda á vegagerð og
hafnarframkvæmdir.
Frjálst
markaðskerfi
1 hugtakinu frjálst markaðs-
kerfi feist einfaldlega það að
framboð og eftirspurn eftir lifs-
gæðum skuli ákveða verð þeirra
og þar sem fram boð og eftirspurn
hefðu ávallt tilhneigingu til þess
að leita jafnvægis tryggði þetta
neytendum hagkvæmast verð lifs-
gæðanna. I öllum grundvallar-
atriðum hefir þessi kenning stað-
ist þar sem hún hefir fengið að
njóta sin.
Hér á landi hefur fjálst mark-
aðskerfi hins vegar ekki verið við
lýði í meir en 40 ár. Bókstaflega
öll verðlagning í þjóðfélaginu hef-
ur verið háð opinberum ákvörð-
unum á þessum tíma. gildir þar
einu hvort um er að ræða sjávar-
afurðir. landbúnaðarafurðir. iðn-
aðarvörur. innfluttar vörur. verð-
iagningu hverskonar þjónustu og
siðast en ekki sist verðlagningu
fjármagnsins sjálfs. Að vísu er
skylt að geta þess að urn skamman
tima hefur rikt frjálsræði i verð-
lagningu innflutnings og margra
iðnaðarvara svo og innlendrar
þjónustu en það frelsi var einkum
til staðar i takmarkaðan tíma á
viðreisnartimabilinu og stóð stutt
svo aimenningur naut þess ekki
nema í litlum mæli.
Ég vil láta i Ijós þá skoðun að
flest okkar efnahagsvandamál
megi rekja til þess að megin regl-
ur frjáls markaðskerfis hafa verið
sniðgengnar á margvislegan hátt
og liklega mætti sanna tölfræði-
lega að þorri verðbólgunnar sem
hér hefur geysað og er af innlend-
um toga spunnin sé tilkomin
vegna þess hvernig þessar megin-
reglur hafa verið sniðgengnar.
Offjárfestingu i sjávarútvegi og
landbúnaði má t.d. rekja til vaxta-
niðurgreiðslustefnu sem rikt hef-
ur urn lánveitingar til þessara
greina ásamt forgangsrétti þeirra
til lána.
Offramleiðslu landbúnaðar-
afurða má beint rekja til verð-
lagningar- og sölutryggingarkerf-
is iandbúnaðrins. Vanþróun is-
lenzks iðnaðar á rót sina að rekja
til ýmiss ójafnaðar sem hann hef-
ur búið við i lána-. tolla-, skatta-
og verðlagsmálum. Vandamál is-
lenzkrar verziunar má rekja til
verðlags- og lánsfjárhafta. Fjár-
magnsskortinn og vandamál
bankakerfisins má beint rekja til
þeirrar lágvaxtastefnu sem hér
hefur ríkt. Öll þau atriði sem hér
hafa verið nefnd hafa svo getið af
sér þá óðaverðbólgu sem hefur
geysað hér síðastliðin 40 ár.
Fjármagns-
skömmtunarkerfið
Svo sem ég drap á f.vrr er komin
upp hér á landi alvarlegur fjár-
magnsskortur, sem er bein afleið-
ing þess að ísl. stjórnmálamenn
hafa þverskallast við að viður-
kenna nauðs.vn frjáls markaðs-
kerfis á fjármagnsmarkaðnum og
haldið hér uppi lágvaxtastefnu á
óðaverðbólgutimum. með þeim
ógnvænlegu afleiðingum að is-
lenzkt bankakerfi hefur minnkað
um þriðjung hvað varðar raun-
verulegt ráðstöfunarfé á nokkr-
um árum. önnur afleiðing fjár-
magnskreppu er fjármagns-
skömmtun. Við þekkjum öll fs-
lenzka fjármagnsskömmtunar-
kerfið sem birtist í margvislegum
myndum. svo sem innlánsbind-
ingin i Seðlabanka til þess að fjár-
magna endurkaupalán þess banka
á afurðavixlum forgangsréttar at-
vinnuvega. Önnur afleiðing fjar-
magnskreppunnar er sjóðakerfið
og sú fjármagnsskömmtun sem
það annast. Þetta skömmtunar-
kerfi er gjörsamlega ósamrýman-
legt þvi frjálsa markaðskerfi sem
Sjálfstæðisflokkurinn vill stefna
að. Það hlýtur að vera miklu æski-
legra að efla núverandi banka-
kerfi með markvissum aðgerðum
í peningamálum sem miðuðu að
því að skapa jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar eftir fjár-
magninu. Jafnframt verður rikis-
valdið að hætta yfirboðum á láns-
fjármarkaðnum og lúta því að
í bjóða sömu kjör og atvinnuveg-
irnir geta boðið. Ef ekki verður
horfið af braut haftastefnunnar á
fjármagnsmarkaðnum blasir sú
hætta við miðað við núverandi
aðstæður að einkaframtakinu
verði jafnt og þétt þokað til hliðar
og að fjármunamyndunin færist
æ meir í hendur ópinberra aðila
og finnst mörgum nóg um i dag
hve mikil opinbera fjármuna-
myndunin er. I þessu sambandi er
fróðlegt að lita á töflu I um skipt-
ingu fjármunamyndunar á ís-
landi 1950—1976.
Sjá töflu I
Taflan þarfnast ekki neinna
skýringa. en þó vil ég vekja at-
hygli manna sérstakiega á tíma-
bilinu 1960—1964 (upphaf við-
reisnar) en þá er fjármunamynd-
un atvinnuveganna í hámarki en
fjáifesting opinberra aðila með
því lægsta sem verið hefur á þess-
umm 26 árum. Einnig get ég ekki
komist hjá því að benda á þá
háskalegu hnignun sem er að eiga
sér stað þessi árin og kemur
glöggt fram í tölum um fjármuna-
myndun ríkisins og atvinnuveg-
anna fyrir árin 1975 og 1976. Þau
árin er fjái munamyndun atvinnu-
veganna sú lægsta sem hér hefur
verið í 26 ár jafnframt þvi sem
fjárfesting opinberra aðila ei’ sú
langmesta sem hér hefur verið á
sama tima.
I þessu sambandi er full ástæða
til þess að athuga vel hvort ekki
er skynsamlegt að leggja af nú-
verandi sjóðakerfi með öllu jafn-
framt þvi sem gerðar væru viðun-
andi breytingar á skattamálum til
þess að treysta og efla eigin fjár-
m.vndun fyrirtækja. Ég hef áður
minnst á nauðs.vn þess að skapa
skattalegt umhverfi til þess að
örva almenning til þátttöku í at-
vinnurekstri með þvi að heimila
viðtöku einskattaðs arðs, eðlilegt
væri að slík viðtaka væri heimil á
sama hátt og viðtaka skattfrjálsra
vaxta af sparifé. Þá er nauðs.vn-
legt að taka hiklaust afstöðu til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa í stað
þess tviskinnungs og feimni sem
ríkt hefur hingað til í þeim efn-
um. Til þess að varðveita eigið fé
fyrirtækja er bráðnauðsynlegt að
innleiða fullkomnar endurmats-
fyrningar og horfast þannig i
augu við þau vandamál sem fyrir-
tækin eiga við að etja i þeirri
óðaverðbólgu sem nú geysar.
Jafnframt væri nauðsynlegt að
heimila fyrirtækjunum að mynda
fjárfestingasjóði sem varðveittir
væru i fyrirtækjunum sjálfum og
mætti vel hugsa sér þessar að-
gerðir í beinum tengslum við þá
Framhald á bls. 33.
ERLENDUR JÓNSSON ritar í Morgunblaðið 20. þ.m. um bókina
LEIÐ12,HLEMMUR-FELL
og hér eru nokkrar glefsur úr greininni:
„LEIÐ TÓLF HLEMMUR FELL er
skemmtileg skáldsaga, kjörin til að
lesa sér til afþreyingar: viðburðarík,
spennandi, raunsæ. Spennandi —
er þetta þá eldhúsreyfari? öðru
nær. Ef til vill er öruggara að taka
fram að orðin „skemmtileg“ og
„spennandi" eru ekki sögð sög-
unni til lasts . . .
. . . Hafliði er hress og kátur ungur
höfundur, ódeigur, ófeiminn,
. . . Sagan gerist inni í húsum, á
götum úti, inni á skemmtistöðum, í
strætisvögnum, auk þess sem
vinnustaður einn kemur talsvert við
sögu .. . Aðalsöguhetjan, Þorlákur,
er ungur stúdent; nennir þó hvorki
að nema í háskóla né vinna fyrir sér
— dæmigerður ábyrgðarlaus ung-
ur gepill. Hann vill aðeins slæpast
og slugsa, drekka, stunda Klúbb-
inn, sofa hjá . . .
... HÖFUNDURINN DANSAR AF FRÁSAGNARGLEÐI ...
hreinn og beinn og að mínu viti .. . Svo er haldið í Klúbbinn, reynt
hleypidómalaus. Saga hans geymir að húkka stelpu til að sofa hjá .. .
lífssannindi...
. . . Þetta er elnmitt bók til að fara með sér hvert sem farið
er — út á sjó, upp í flugvél, eða í bólið á kvöldin . . .
Hafliði Vilhelmsson
Leió 12
Hlemmur- Fell
„Aftarlega í bólstruðu sætinu
sat Þorlákur. Leið tólf —
Hlemmur — Fell. Loksins
búinn að telja í sig kjarkinn
og á leið upp í Álfahóla
að heimsækja stúlku
drauma sinna, Maríu."
FYRSTA PRENTUN SENN UPPSELD HJÁ FORLAGINU
- ÖNNUR PRENTUN í UNDIRBUNINGI -
Bókdútgófmi ()rn&(.hiygur
Vesturgötu 42, Sími: 25722