Morgunblaðið - 26.10.1977, Side 1
32 SIÐUR
237. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Flugránin á
dagskrá SÞ
New York, 25. oklóber. Reuter.
ALLSHERJARÞINGIÐ
samþ.vkkti í dag að taka
flugrán á dagskrá. Málið
verður tekið fyrir í stjórn-
málanefndinni, líklega
seinna í þessari viku.
Samþykkt var án at-
kvæðagreiðslu að tillögu
rúmlega 40 ríkja að taka
til meðferðar „öryggi í al-
þjóðaflugmáíum“.
Tillagan var gerð í kjöl-
far ránsins á Lufthansa-
flugvélinni er lauk í Moga-
dishu í Sómalíu og með
dauða flugstjórans. Al-
þjóðasamtök flugmanna
höfðu hótað að hefja verk-
fall í dag en hættu við það
þegar því var lýst yfir að
Allsherjarþingið mundi
taka flugrán til meðferðar.
Samkvæmt áreiöanlegum heim-
ildum er líklegt aö í stjórnmála-
Scheel vid útför Schleyers:
nefndinni veröi borin fram álykt-
unartillaga þar sem skorað verði á
allar ríkisstjórnir að herða öryggi
i flugvélum og á flugvöllum og
auka samvinnu, einkum með
skiptum á upplýsingum til að
koma í veg fyrir flugrán.
Einnig er búizt við að í tillög-
unni verði skorað á ríki að undir-
rita, staðfesta og framkvæma áð-
ur gerðar alþjóðasamninga sem
miða að öryggi i alþjóðaflugmál-
um.
Þetta eru samningar sem voru
gerðir 1963 í Tokyo, 1970 í Haag
og 1971 i Montreal.
Waltrude Schleyer, tengdadóttir hennar og Hanns Eberhard Schlever, sonur hennar, fylgja Hanns
Martin Schleyer til grafar (Sillenbuch krikjugarði {Stuttgart.
„Logar sem geta breiðzt
út eins og skógareldur”
Stuttgart, 25. október. Reuter.
HUNDRUÐ lögreglumanna voru á verði í dag við útför
vestur-þýzka iðnrekandans Hanns-Martin Schleyers sem
hryðjuverkamenn myrtu í síðustu viku sex vikum eftir
að þeir rændu honum.
Strangar öryggisráðstafanir voru gerðar við útförina
vegna viðvarana um að hryðjuverkamenn kynnu að láta
aftur til skarar skríða.
Skotárás
á ítalskan
hægrimann
Torino, 25. október. AP.
BORGARFULLTRÚI úr
flokki kristilegra demókrata í
Torino, Antonio Cocozzello,
særðist í dag þegar hann varð
fyrir skotárás þriggja hryðju-
verkamanna sem segjast vera
úr „Rauöu herdeildinni".
Borgarfulltrúi úr flokki
kristilegra demókrata í
Milano, Carlo Arienti, særðist
einnig í skotárás þriggja
hryðjuverkamanna á sunnu-
daginn. Bæði Cocozzello og
Arienti voru skotnir í fæturna.
Þýzka skólanum í Róm var
lokað í dag, þremur dögum áð-
ur en haustleyfi hefjast vegna
ofbeldis verka sem hafa fylgt í
kjölfar dauða þriggja leiðtoga
Baader-Meinhofs-hópsins í
þýzku fangelsi. Þau hafa að
miklu leyti beinzt gegn Þjóð-
verjum og þýzkum fyrirtækj-
um. 20 lögreglumenn hafa
særzt, tveir þeirra alvarlega.
Borgarskæruliðar úr „Rauðu
herdeildinni" hafa hótað að
myrða vestur-þýzka sendiherr-
ann í Róm, Hans Arnold, í
hefndarskyni.
úm 500 vopnaðir lögreglumenn
tóku sér stöðu í nágrenni St.
Eberhard-kirkjunnar sem útförin
var gerð frá og leyniskyttur komu
sér fyrir á húsaþökum. Lögreglan
sló hring um kirkjuna og hátölur-
um var komið fyrir framan við
kirkjuna til að þúsundir sem
fengu ekki sæti gætu fylgzt með
því sem fram fór.
Allir ráðherrar vestur-þýzku
stjórnarinnar mættu við útförina
sem var útvarpað og sjónvarpað.
Sjúkrabílar voru hafðir til taks ef
svo færi að til tíðinda drægi.
Vestur-þýzka vinnuveitenda-
Frá minningarguðsþjónustunni um Hanns Martin Schleyer í St.Eber-
hard-krikju f Stuttgart (talið frá hægri til vinstri): Walter Scheel
forseti, Waltrude Schleyer, Helmut Schmidt kanzlari, Arndt Schleyer
og kona hans og Hanns Eberhard Schleyer.
Arabískur rádherra
myrtur — annar slapp
Abu Dhahi, 25. október. AP. Reuter.
UTANRlKISRAÐHERRA
Arabíska furstasambandsins,
Said Bin Ghobash, lézt í dag i
sjúkrahúsi eftir tilraun sem var
gerð til að ráða sýrlenzka utan-
ríkisráðherranum Abdel-Halim
Khaddam bana á flugvellinum í
Abu Dhabi.
Said. Ghobash var skotinn til
bana þegar hann var að kveðja
Khaddam utanríkisráðherra á
flugvellinum. Emba'ttismenn
segja að tilræðismaðurinn hafi
verið handtekinn, en heimildir í
lögreglunni herma að tilræðis-
mennirnir hafi verið fjórir og
þrir hafi komizt undan.
Maðurinn sem var handtekinn
var Palestinumaður samkvæmt
þessum heimildum. Khaddam
staðfesti að átt hefði að ráða hann
af dögum þegar hann kom aftur
til Damaskus. Hann sagði blaða-
mönnum að nokkrir tilræðismenn
hefðu verið sendir til Abu Dhabi
frá öðru Arabalandi og virtist
eiga við írak.
Handtekni maðurinn hélt
nokkrum flugvallarstarfsmönn-
um í gíslingu um tima í tékkósló-
vakískri flugvél á flugvellinum.
Lögreglan handtók mannin og
sleppti gíslunum, en skýrði ekki
frá kringumstæðum.
Sjónarvottar segja að maður
hafi skotið ofan af svölum á ráð-
herrana þegar ráðherrarnir komu
til flugstöðvarbyggingarinnar.
Khaddam hljóp í skjól bak við
Framhald á bls 18.
sambandið, sem dr. Schleyer var
formaður fyrir, og verkalýðssam-
bandið skoruðu á félagsmenn sína
að heiðra hinn látna með einnar
mínútu þögn.
Sérstök minningarþjónusta var
haldin um Schleyer í safni
Daimler-Benz bifreiðafyrirtæk-
isins þar sem hann Var fram-
kvæmdastjóri i Unterkurkheim,
útborg Stuttgart.
Walter Scheel forseti flutti lík-
ræðuna og skoraði á rikisstjórnir
að sameinast í baráttu fyrir út-
rýmingu hryðjuverkastarfsemi.
Hann kallaði morðingja Schleyers
„barbara og óvini siómenningar".
Framhald á bls. 20.
Skilnaði Titos
og frúar spáð
Belgrad, 25. október. AP.
FúLLTRÚAR erlendra ríkja
sögðu í Belgrad í dag að ágrein-
ingur sem væri kominn upp milli
Titos forseta og Jovanka konu
hans og virtist vera af pólitískuin
toga gæti leitt til skilnaðar.
Þessi ágreiningur er sagður
eiga sér nokkrun aðdraganda og
er bersýnilega skýringin á því að
frú Tito hefur ekki sézt opinber-
lega í rúma tvo mánuði sam-
kvæmt þessum heimildum. Frétt-
ir herma að frú Tito sé í stofu-
fangelsi.
Samkvæmt fréttum í Belgrad
virðist frú Tito hafa tekið þátt í
einhverri stjórnmálastarfsemi og
að opinber rannsókn á starfsemi
hennar sé hafin í kyrrþey.
Opinberlega eru þessar fréttir
kallaðar „rætinn, ósmekklegur
tilbúningur'' en engin skýring er
gefin á fjarveru hennar.
Frú Tito er 54 ára gömul og
Framhald á bls 18.
Sovézkir sendiráðsmenn í Ástralíu:
Yfir helmingur-
inn njósnarar
C'anberra — 25. október — AP.
ALLT bendir til þess ad
yfir helmingur 18
sovézkra sendiráös-
manna, sem njóta úr-
lendisréttar gagnvart
lögum, sé viðriðnir
njósnir, að því er fram
kemur í opinberri
skýrslu sem lögð var
fram í fulltrúadeild
ástralska þingsins í dag.
Formaður nefndarinnar sem
skipuð var til að gera úttekt á
njósnum Sovétmanna í
Ástralíu, Robert Hope dómari,
hefur meðal annars látið þau
orð falla, aó njósnurum í land-
inu hafi fjölgað til mikilla
muna á sióustu árum, og séu
þeir nú miklu fleiri en á
fimnita og sjötta áratugnum.
Malcolm Fraser forsætisráð-
herra sagði á þingi í dag. að
farið yrði að tillögum rann-
sóknarnefndarinnar um aukn-
ar fjárveitingar til gagnnjósna-
stofnunar hins opinbera, auk
þess sem hún fengi meira svig-
rúm en hingað til hefði verið.
Um leiö yrðu strangar gætur
hafðar á þvi að stofnunin færi
ekki út fyrir verksvið sitt, m.a.
yrði settur á fót sérstakur
áfrýjunardómstóll til að fjalla
um hugsanleg ágreiningsmál
vegna starfsemi gagnnjósna-
stofnunarinnar.