Morgunblaðið - 27.10.1977, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
238. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sameinuðu þjóðirnar:
46 ríki krefjast
fordæmingar
á flugránum
og ráðstafana til að tryggja öryggi
Sameinuðu þjóðunum,
26. október. Reuter — AP.
FJÖRTÍU og sex ríki lögðu í dag
fram tillögu hjá Sameinuðu þjóð-
unum um að flugrán skyldu for-
dæmd, um leið og skorað er á öll
ríki heims að gera ráðstafanir til
að koma í veg f.vrir slfkar ógnar-
aðgerðir.
A sama vettvangi kröfðust al-
þjóðasamtök flugmanna þess að
öll aðildarrfki Sameinuðu þjóð-
anna virtu sáttmála um varúðar-
ráðstafanir vegna flugrána. Þrfr
slíkir alþjóðasáttmálar hafa verið
gerðir, en flugmannasamtökin
telja að aðeins um helmingur
þeirra 149 rfkja, sem aðild eiga að
SÞ, virði þá f raun.
Meðal þeirra rikja sem lögðu
fram tillöguna um fordæmingu
flugrána er Island. Hin Norður-
löndin standa einnig að tillög-
unni, svo og öll riki Atlantshafs-
bandalagsins. Athygli vekur að
ekkert kommúnistarikjanna i
Austur-Evrópu á aðild að tillög-
unní.
Derry Pearee formaður alþjóða-
samtaka flugmanna hafði fram-
sögu um málið hjá Sameinuðu
þjóðunum í dag, en krafa samtak-
anna og hótun þeirra um tveggja
sólarhringa vinnustöðvun varð til
þess að flugrán og varnir gegn
þeim hafa nú verið tekin til um-
ræðu á Allsherjarþinginu. Þá
kom í dag fram á þinginu greinar-
gerð Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar, sem starfar i tengslum við
Sameinuðu þjóðirnar, um ráðstaf-
anir sem þegar hafa verið gerðar
til að tryggja öryggi i farþegaflugi
með tilliti til flugrána.
I tillögu ríkjanna 46 er ráð fyrir
Framhald á bls. 22
Fylgi
Schmidts
eykst
Bonn. 26. okt. Kcutor.
NIÐURSTAÐA skoðanakönn-
unar sem fram fór i V-
Þýzkalandi nýverið, bendir
ótvirætt til þess að Helmut
Schmidt og stjórn hans njóti
stuðnings almennings i land-
inu vegna viðbragða við
hryðjuverkastarfsemi. 51%
kjósenda mundi kjósa
jafnaðarmannaflokk Schmidts
Framhald á bls. 25
Helmut Schmidt kanslari
Denis Healey fjármálaráðherra leggur af stað í Neðri málstofuna með hina lúðu skjalatösku, sem um
árabil hefur geymt fjárlagafrumvarpið og aðeins er notuð þegar frumvarpið er lagt fram á þingi.
Brezka fjárlagafrumvarpið:
(AP-símamynd)
Skattalækkanir og 3 milljarð-
ar til styrktar efnahagslífinu
Lundúm, 26. október. Reuter—AF.
DENIS Ilealey, fjármálaráðherra
Breta, lagði frumvarp að nýjum
fjárlögum fram á þingi í dag. 1
frumvarpinu er ráð fyrir því gert
að á næstu þremur misserum
verði þremur milljörðum sterl-
ingspunda varið til að styrkja at-
vinnu- og efnahagslíf í landinu.
Ráðstafanir stjórnarinnar miða
að því að draga úr atvinnule.vsi og
auka eftirspurn eftir vöru og
þjónustu. Healey skýrði frá því í
fjárlagaræðu sinni að Bretar
þyrftu ekki að notfæra sér 310
milljón punda lánsheimild hjá
Alþjóðabankanum í nóvember
n.k. en sú fyrirgreiðsla var í
tengslum við viðamiklar aðgerðir
Belgrad:
Bandaríkin saka A-Evrópu-
ríki um undanbrögð í umræð-
um um mannréttindamál
Belgrad. 26. október. Reuter.
BANDARIKIN ásökuðu í dag ríki
Austur-Evrópu um að forðast
hreinskilnisleg og nauðsynleg
skoðanaskipti um mannréttinda-
mál á Belgradráðstefnunni. I yfir-
lýsingu Bandarfkjanna um þetta
segir m.a. að Austur-Evrópuríki,
sem ekki eru nánar tilgreind,
hafi farið undan í flæmingi og
komið sér hjá því að svara spurn-
ingum, sem fram hafi verið born-
ar um mannréttindamál, og hafi
þessar spurningar ekki einungis
komið frá aðildarríkjum Atlants-
hafsbandalagsins, heldur einnig
fjölda hlutlausra ríkja.
I yfirlýsingunni er tekið fram
að milli NATO-ríkjanna 15 riki
ekki ágreiningur um afstöðu til
mála sem ræða eigi á ráðstefn-
unni, né heldur hvernig ráð-
stefnust'örfunum skuli hagað.
„Við erum sammála um að stefnt
skuli að þvi að ná samkomulagi
um skjalfesta yfirlýsingu um
efndir Helsinki-sáttmálans og
raunhæfar tillögur um sum atr-
iði,“ sagði í yfirlýsingunni, sem
Arthur Goldberg aðalfulltrúi
Bandaríkjanna birti í dag.
Áður höfðu nokkur riki — þar á
Framhald á bls. 22
V-Berlín:
Tæki fundid
í einangr-
unarklefa
Vestur-Berlfn. 2B. oki. AP. -
SKÝRT var frá því af opin-
berri hálfu í dag, að móttöku-
tæki á stærð við eldspýtustokk
hefði fundizt í klefa VVolfangs
Wesslaus í fangelsi í Vestur-
Berlín, en Wesslau er einn
þeirra 19 fanga í borginni sem
grunaðir eru um hryðjuverka-
starfsemi og eiga að hafa verið
algjörlega einangraðir frá um-
heiminum síðan neyðarlöggjöf
var sett um gæzlu slíkra fanga
skömmu eftir að Hanns-IVlartin
Schleyer var rænt.
Allir fangar í V-Berlin, sem
grunaðir eru um hryðjuverk,
Framhald á bls. 22
Aðalfulltrúar Bandaríkjanna og Sovétrfkjanna á Belgradráðstefnunni. Arthur Goldberg til vinstri á
stærri myndinni og Yuli Vorontsov til hægri.
af hálfu bankans til aðstoðar
Bretum þegar efnahagsástandið í
landinu var sem alvarlegast og
pundið seig stöðugt.
Fjárlagafrumvarpið felur í sér
12% tekjuskattslækkun, en við
þessa ráðstöfun mun brezkum
skattgreiðendum fækka um 200
þúsund. Þá er gert ráð fyrir mun
vægari skattlagningu smáfyrir-
tækja en verið hefur, hærri fjár-
veitingu til löggæzlu en veruleg-
um framlögum til styrktar bygg-
ingariðnaði.
Denis Healey sagði, að við
undirbúning fjárlagafrumvarps-
ins hefði verið tekið tillit til mjög
eindreginna tilmæla annarra iðn-
ríkja um aðgerðir, sem miðuðu að
því að flýta fyrir efnahagsbatan-
um í heiminum, enda hefði hagur
Framhald á bls. 22
Baader Ensslin
— Raspe:
Rannsóknar-
skýrslan stað-
festi að sjálfs-
morð væri
dánarorsökin
Stuttgart, 26. október. Reuter.
SKÝRSLA um opinbera rannsókn
á dauðdaga hryðjuverkamann-
anna Baader, Ensslin og Raspe í
Stammheim-fangelsinu í Stutt-
gart á dögunum, sem birt var í
dag, staðfestir að fangarnir hafi
framið sjálfsmorð. Ekki hefur
tekizt að varpa ljósi á þá ráðgátu
hvernig Jan-Carl Raspe og
Andreas Baader tókst að komast
yfir skotvopnin, seni þeir réðu sér
bana með 18. október s.l., stundu
eftir frelsun gíslanna 86 um borð
Framhald á bls. 22