Morgunblaðið - 28.10.1977, Side 1

Morgunblaðið - 28.10.1977, Side 1
32 SIÐUR 239. tbl. 64. ár«. FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. K ictnr hrotnnnninoonn'j flnHnr til crrufar í cr®r (Sfmnniynd AP) 1000 lögreglumenn við útför Baaders og f élaga í gærdag StuttKart 27. október Reuter. ÚTFÖR v-þýzku hryðjuverkamannanna þriggja. sem frönidu sjálfs- nioró í Stammheinifangelsi í stðustu viku, fór frani í Stuttgart í dag án þess aó til tíðinda drægi. l'm 1000 vopnaðir lögreglumenn voru f viðbúnaðarstöðu er kistur þeirra Andreas Baaders. (áuðrúnar Ensslin og Jan-Carl Kaspe voru látnar síga í gröfina. en um 2000 manns voru viðstaddir. Margir vinstriöfgamenn hrópuðu vigorð. eins og „niorð". „Þeirra verður lengur minnzt en morðingjanna", og ýnisir háru spjöld með nöfnum þremenninganna og vígorðum: „Þau voru pyntuð og myrt í Stammheim." Þremenningarnir voru jarðsett- ir hlið við hlið i Stuttgartkirkju- garðinum þrátt fyrir mótmæli ibúa í nágrenninu. sem óttast að gröf þeirra verði helgistaður vinstriöfgamanna. Presturinn séra Bruno Streibel sagðí. er kist- urnar sigu i gröfina: „Faðir fyrir- gef þeim, því þau vita eigi hvað þau gjöra.“ Margir af þeim. sem viðstaddir voru útförina. báru rauðar grirn- ur ti! að þekkjast ekki en þrátt fyrir að mikillar reiði gætti drö ekki til tíðinda að öðru leyti en því að einhverjar skemmdir voru unnar á lögreglubilum. er lög- Framhald á bls. 19. S-Afríka: Jimmy Carter styður algert vopnasölubann Callaghan nær frú Thatcher London, 27. október. AP VERKAMANNAFLOKKUR James Callaghans forsætisráð- herra í Bretlandi nýtur jafn- mikilla vinsælda og Ihalds- flokkur frú Margaret Thatchers samkvæmt skoðana- könnun er var birt í Daily Telegraph í dag. Hvor flokkur um sig hefur 45% kjósenda á bak við sig en i sumar var munurinn á fylgi flokkanna 14.5%. Átta af hundraði síyðja frjájslynda flokkinn en 2% aðra. Könnunin var gerð áður en Denis HeaL; skýrði frá hinum nýju aukafjáriögum sem ýmsir Framhald á bls. 19. CARTER Washington 27. október Reuter. CARTER Bandaríkjaforseti tilkvnnti í da« á blaöamannafundi í Washington, að hann mvndi stvðja álvktun örysgisráðs S.Þ. um algert vopnasölubann til A-Afríku, en að hann ákvæði síðar hugsanlegar aðrar aðgerðir eins og viðskiptaþvinganir. Forsetinn fordæmdi aðgerðir S-Afríkustjórnar í síðustu viku, er starfsemi 18 samtaka blökkumanna í landinu var bönnuð, útgáfa tveggja blaða bönnuð og milli 60—70 forvstumenn andófssamtaka gegn kvnþáttamisrétti handteknir. VORSTER Carter sagði að S-Afríkustjórn hefði með aðgerðum sínum aukið mjög á hættuástandið í suður- hluta Afríku og að Bandaríkja- stjórn hefði þegar lýst miklum áhyggjum yfir þessari þróun mála. Ummæli forsetans koma daginn eftir að John Vorster forsætisráð- herra S-Afríku sagði á fundi í Jóhannesarborg að hann væri ekki tilbúinn til ' að koma á kosningalýðræði í landinu þannig að allir hefðu jafnan atkyæðisrétt og hver sá maður, sem héldi að Bandaríkjamenn eða Rússar sættu sig við eitthvað minna en slíkan jöfnuð væri fifl. Hann sagði að það væri öllum ljóst að Hirti Alsír- stjórn lausn- argjaldið? T«kíó27. október. Reuter. HÁTTSETTUR japanskur em- bættismaður sagði f Tókíó í dag, að japanska stjórnin hefði fengið óstaðfestar fregnir um að Alsír- stjórn hefði gert upptækar 4 milljónir dollara af 6 milljóna doilara lausnargjaldi, sem Japan- ir greiddu flugræningjunum úr Rauða hernum japanska á dögun- Franihald á bls. 19. þaó væru þessi tvö stórveldi, sem stæðu að baki baráttunni gegn S-Afríku, því þau vildi komast til áhrifa í þriðja heiminum. Pieter Botah varnarmálaráð- herra S-Afríku sagði í viótali við New York Times i gær, að S- Afríka hefði nægilega sterkan vopnaframleiðsluiðnað í landinu til að sjá sér fyrir vopnum. Gæti stjórnin barizt svo hart gegn þeim, sem reyndi að binda enda á stjórn hvítra manna, að þeir yrðu furðu lostnir. Tító þreyttur Bclgraó 27. oklober Reuler. TALSMAÐUR Títós Júgóslaviu- forseta skýrði frá því i dag að læknar forsetans hefðu skipað honum að taka sér þriggja vikna hvíld frá störfum og hefði fyrii- hugaðri heimsókn Sadats Egypta- landsforseta í byrjun næsta mánaðar verið frestað um óákveð- inn tíma. Talsmaóurinn tók fram að Titó væri ekki veikur. aðeins þreyttur. Framhald á bls. 21. Tillaga bandaríska flugráðsins: Northwest Airlines fái leyfi til Islandsflugs Talsmaður félagsins staðfestir umsóknina í samtali við Morgunblaðið Washington 27. oklóber AP. BANDARÍSKA flugráðið (CAB) hefur lagt til við Jimmy Carter forseta að hann veiti flugfélaginu Northwest Airlines heimild til að fljúga reglubund- ið áætlunarflug milli Bandaríkjanna, tslands og Norðurlanda. Er þetta hluti af umfangsmikilli end- urskipulagningu Atlantshafsflugs bandarískra flug- félaga, en Carter fór fram á að fá tillögur flugráðs í þessum efnum til að hann gæti tekið ákvörðun fyrir 1. nóvember n.k. í tillögum ráðsins er einnig gert ráð fyrir að svipta Pan Am flugleyfi til tslands og hinna Norðurlandanna. Morgunblaðið náði i gær- kvöldi sambandivið Roy Erick- son, talsmann Northwest Air- lines í höfuóstöðvum fyrirtæk- isins í Minneapolis, Minnesota, og spurði hann um fyrirætlanir félagsins í sambandi við Is- landsflug. Erickson sagði það rétt, að Northwest hefði sótt um leyfi til að fljúga til Islandá, en þar sem Bandaríkjaforseti ætti eftir að taka ákvörðun í málinu hefðu forráðamenn fé- lagsins tekið þá afstöðu að skýra ekki frá fyrirætlunum sínum fyrr en Carter hefði af- greitt málið. Hann sagði það ekkert leyndarmál að North- west Airlines hefði sött um leyfi til íslandsflugs og til hinna Norðurlandanna, þar sem PanAm hefði um árabil dregið mjög úr eða lagt alveg niður flug til þessara landa. Er Mbl. ítrekaði spurningu sírja um hvort fvrirtækið hygðist hefja samkeppni við Loftleiðir Framhald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.