Morgunblaðið - 30.10.1977, Side 1
64 SIÐUR
241. tbl. 64. árg. SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Folkers skipt
fyrir Caransa?
Amsterdam, 29. október. Reuter.
ER Mbl. fór í prentun siðdegis í gær hafdi lögreglan í Amsterdam
ekkert heyrt frá ræningjum holienzka auðkýfingsins Maurits Caransa,
sem námu hann á brott í fyrrakvöld fyrir framan næturklúbb í
Amsterdam. Um kvöldið hringdu nokkrir aðilar til fjölmiðla í Hol-
landi og lýstu ábyrgð, ránsins á hendur Rauðu herdeildar Baader-
Meinhofsamtakanna, sem rændi og myrti Hanns Martin Sehleyer á
dögunum.
Talsmaður fjölskyldu Caransas,
blaðamaðurinn Hans Knoop,
sagði í dag að fjölskyldan hefði
ekkert heyrt frá ræningjunum og
biði eftir að fá kröfur þeirra.
Hann sagði að fjölskyldan hefði
neitað lögreglunni um að setja
Ford setur
út á Carter
Chicago, 29. októher. Reuter.
GERALD Ford fyrrverandi
forseti sagði í gær að sam-
skipti Carters forseta við
þingið væru að versna og að
það stofnaði störfum stjórn-
arinnar í hættu.
hlustunartæki á simann á heimili
Caransas.
Lögreglan i Amsterdam sagði
að ekki hefði verið vitað til að
Caransa hefði átt óvini, hann
hefði ekki gengið með byssu á sér
og ekki haft lifvörð. Cansara hef-
ur lítil afskipti haft af stjórnmál-
um og fremur verið þekktur fyrir
mikinn áhuga sinn á knattspyrnu.
Er hann ákafur stuðningsmaður
Ajaxliðsins. Fréttamenn i
Amsterdam segja að ef ræningjar
Cansaras geri kröfur um að v-
þýzki hryðjuverkamaðurinn Knut
Folkerts verði sleppt, muni
hollenzka stjórnín liklega taka
harða afstöðu. Folkert var hand-
tekinn 22. september í Utrecht i
Hollandi, eftir að hafa skotið lög-
reglumenn til bana.
Helmut Schmidt kanslari V-Þýzkalands sést hér í skrifstofu sinni med ekkjum og
börnum tveggja fórnarlamba hrvðjuverkamanna, bílstjóra og lífvarðar Bubaeks
ríkissaksóknara. stniamvna \p
Hann kvaðst harma þetta
þar sem forsetinn yrði að
hafa gott samstarf við þing-
ið. Hann taldi að skýringin
gæti verið sú að Carter væri
ókunnugur í Washington og
þekkti ekki skrifstofukerfið.
Ford sagði að verið gæti
rétt hjá stjórn Carters að
harma stefnu Suður-
Afríkustjórnar en hann
minnti á að Bandaríkjamenn
þyrftu á hjálp Suður-
Afríkustjórnar að halda yið
lausn annarra vandamála í
Afríku, meðal annars i Rhó-
desíu.
Bandaríkin:
Fiskstofnar ört vax-
andi eftír útfærsLuna
Coronado. Kaliforníu. 29. október. AP.
ÚTFÆRSLA bandaríska fiskveiðilögsögunnar í 200 milur hefur stór-
eflt bandafiskan sjávarútveg að þvi er forseti bandarisku sjávarút-
vegsstofnunarinnar, Gus Mijalis, sagði í viðtali í gær.
Hann sagði að verð sjávaraf-
urða gæti orðið stöðugra vegna
bættrar afkomu sjávarútvegsins
sem útfæslan hefði haft i för með
sér. Hann sagði að eins og við
hefði verið búizt hefði útfærslan
stuðlað að verndun fiskstofna þar
sem erlendum fiskimönnum hefði
verið bægt í burtu, en þar að auki
hefði fiskigegndin við strendurn-
ar aukizt örar en við hefði verið
búizt.
Mijalis sagði að bandaríski
fiskiskipaflotinn væri á uppleið
eftir útfærsluna. Hann hefði
hrapað niður í níunda eða tíunda
Fulltrúa hótað á
fundi í Grúsíu
Moskvu. 29. októbcr. AP.
BANDARÍSKA sendiráðið f Moskvu tilkynnti í dag að það hefði mótmælt við sovétstjórnina grófri og
klaufalegri tilraun sem hefði verið gerð til að fá bandarískan stjórnarerindreka til að útvega sovézku
leyniþjónustunni upplýsingar.
Talsmaður sendiráðsins sagði
að tilraunin hefði beinzt gegn
Konstantin Warwariv, varafor-
manni bandarisku sendinefnd-
arinnar á umhverfismálaráð-
stefnu sendinefndarinnar á
umhverfismálaráðstefnu Sam-
einuóu þjóðanna i Tbilisi i
Grúsiu.
Maður nokkur sem kallaði sig
„Ivan Ivanovich" ruddist kl. I
eftir miðnætti 16. október inn i
hótelherbergi Warwarivs, sagð-
ist vera úr sovézku leynilög-
reglunni KGB og krafðist þess
að hann útvegaði upplýsingar
um bandariska stjórnarerind-
reka sem störfuðu í ýmsum
sendiráðum, sagði i mótmæla-
orðsendingu sem bandariska
sendiráðið sendi sovézka utan-
nikisráðuneytinu.
Sendiráðið sagði að „Ivan
Ivanovich" hefði hótað War-
wariv því að birta bréf sem
hann sagði aó látinn faðir hans
hefði skrifað ef hann neitaði að
afla upplýsinganna. Sendiráðið
sagði að í bréfinu hefði War-
wariv veri sakaður um sam-
vinnu við nasista á stríðsárun-
um, en Warwariv sagði að bréf-
ið væri falsað.
Sovézka fréttastofan Novosti
dreifói í dag grein til vest-
rænna fréttastofnanna þar sem
Warwariv er borinn þessum
sökum. Þvt er haldið fram i
greininni að sovézki yfirsak-
sóknarinn, Roman Rudenko,
hafi gefið út tilskipun um að
mál skuli höfðað gegn War-
wariv.
Grein Novosti virðist hafa
verið birt til á koma fram
hefndum vegna þess að War-
wariv neitaði að ganga i lið með
sovézku öryggislögreglunni.
Sovézkir fjölmiðlar hafa sagt
itarlega frá umhverfisráðstefn-
unni sem Warwariv sat og talið
hana gott dæmi um alþjóðlega
samvinnu og slökun spennu.
sæti hvað afla snerti en á því yrði
breyting áður en lagt um liði.
Hann gat þess að fisktegundir
sem hefðu ekki sézt árum saman á
bandariskum miðum væru nú að
hrygna við strendurnar. Hann
sagði að á fyrsta ári útfærslunnar
veiddu bandariskir fiskimenn
nokkrar tegundir sem erlendir
fiskiskipaflotar hefðu nánast út-
rýmt.
Útfærsla fiskveiðilögsögunnar
hefur komið sér bezt fyrir fiskí-
menn á austurströndinni, i Norð-
ur-Kaliforniu og á norðvestan-
veðri Kyrrahafsströndinni sagði
Mijalis sem hefur setið árlegt
þing sjávarafurðastofnunarinnarí
Kaliforníu. En hann sagði að þeir
sem mest kynnu að hagnast á út-
færslunni þegar fram i sækti
væru bandariskir neytendur.
„Þeim mun meira sem bandaríski
flotinn veiðir þeim mun meiri lík-
ur eru á því að markaðurinn verði
stöðugur," bætti hann við.
Hann sagði að verð á fiski hefði
hækkaó um 16% miðað við verð á
svinakjöti og kjúklingum síðan
1973. Hins vegar sagði hann að
fiskneyzla Bandarikjamanna
hefði aukizt um 40% og að það
sannaði að markaðurinn væri
öruggur.
Evrópukommún-
isminn grímu-
klæddur Stalín-
ismi segir Ford
Washington, 29 október Reuter
GERALD Ford fyrrum bandaríkjafor
seti varaði i dag i ræðu sem hann
flutti í háskóla í Mossouri, við
Evrópukommúnisma, sem hann
sagði vera grímuklæddan Stalínisma
og harðstjórn i dulargervi. Ford sagði
i ræðunni að auðveldara yrði fyrir
kommúnista að ná völdum i V-
Evrópu, þar sem Bandarikin hefðu
brugðist þeirri skyldu sinni að taka
afstöðu gegn Evrópukommúnisman-
um.
Ford varaði fólk við að láta ánetjast
fagurgala áróðursmanna kommúmsta
um að Evrópukommúmsminn væri
mannlegur kommúmsmi. hann væri
ekkert annað en grímuklæddur Stalin-
ismi og mikil ógnum við lýðræði á
Vesturlöndum
Haig varar við
ásælni í Afríku
Los Angclcs. 29. októbcr. AP.
ÖRYGGI Bandarfkjanna stafar
stórfelld hætta af vaxandi liern-
aðarmætti Sovétrfkjanna í þriðja
heiminum sagði Alexander M.
Haig hershöfðingi, a'ðsti yfirmað-
ur herafla NATO, í Los Angeles
gær.
Hann varaði við stöðugt aukn
um hernaðarmætfi Rússa og benl
á að vopnabirgðir þeirra liefði
fjórfaldazt á einuni áratug.
Framhald á bls. 31