Morgunblaðið - 03.11.1977, Page 13

Morgunblaðið - 03.11.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1977 13 FYRSTA GREIN RAPP. Þar voru menn á borð við Majakovski ekki vel séðir. Þegar Stalín var kominn til valda lagði hann RAPP niður, svo og öll önnur samtök rithöfunda og annarra listamanna. I stað þess stofnaði hann opinbert samband um hverja listgrein og lét út ganga þá tilskipun, að hér eftir héti ekkert list nema „realismi" og annað yrði ekki liðið. Listin var lögð niður en auglýsingar teknar upp í staðinn. Þetta var árið 1934 (það voru Maxim Gorky og fleiri, sem lögðu drögin að „raunsæisstefnunni), og eftir það var sýnt, að þeir listamenn, sem ekki vildu lúta tilskipuninni yrðu annað hvort að hætta ellegar fara í felur. Um annað var ekki að ræða. Var nú komin upp sú kreppa, sem staðið hefur allar götur síðan. Hún var listamönnum og mennta- mönnum sjálfum að kenna að nokkru leyti. Sumir úr þeirra hópi, og einkum fútúristar, höfðu gerzt svo djarfir að seilast til valda. Og allir reyndust þeir glámskyggnir. Það var gömul sektarkennd, sem villti þeim sýn. Þeir vildu þjóna þjóð sinni heils hugar, en skildu hana því miður ekki vel. Þeir voru þess albúnir og óðfúsir að láta gömul verð- mæti, ganga af trú sinni og list- rænni sannfæringu ef b.vltingin krefðist þess. En fórnirnar, sem þeir færðu byltingunni komu þeim i koll. I sjálfs sin augum voru þeir sekir, höfðu gerzt brot- legir við þjóð sina og vildu nú bæta fyrir það. Mistök þeirra voru þau, að þeir voru fullfúsir að gleypa við hinni nýju skipan, sem átti samkvæmt auglýsingum að tryggja völd þjóðarinnar. Þeir blygðuðust sin fyrir fortíðina, ein- veldið og þá spillingu sem því fylgdi, og voru svo óðfúsir að bæta fyrir samsekt sína, að þeim sást yfir það, að það, sem við tók yrði ekki betra — heldur verra, einveldið enn grimmilegra og spillingin enn stórfelldari. Og nú, tæpum aldarfjórðungi eftir að Stalin leió, er enn kyrk- ingur í sovézkri menningu. Það er einungis líf í litlum kimum. Menningin i heild er menning tæknikrata. Kjarnann vantar. Sumar listir hafa að vísu þrifizt betur en aðrar, tónlist og danslist t.d. Sumar greinar visinda, bæði hreinna og hagnýtra, hafa sloppið við áföll af völdum hugmynda- fræða. Sígildar bókmenntir eru endurprentaðar af miklum dugn- aði, og jafnvel nútimabókmenntir — en í þær vantar þó æði margt. Barnabókmenntir eru ágætar. En annars er ekki um auðugan garð aðgresja. í stjórnartíð Krústjoffs gafst rithöfundum smá frelsi um sinn (það kom þó ekki til af góðu); þá varð ,,þíða“ og hélzt i nokkur ár. 1 þeirri þíðu skaut upp ýmsum frjó- öngum. En svo tók hún enda og vetur fór aftur að. Á undan förn- um árum hafa yfirvöld æ oftar gripið til þess ráðs að vísa andófs- mönnum úr landi. þegar ekki dugði annað. Þetta hefur í senn vaidið mönnum ugg og nýjum vonum. Allt frá þvi á 17 öld, að rétt- trúnaðarkirkjan rússneska klofn- aði, hefur verið hjámenning í Rússlandi, minnihlutamenning í trássi við ríkið. Lengst af voru þetta þröngsýnir sértrúarsöfnuð- ir. En það er nú liðin tið. Sovézkir andófsmenn nú á dögum eru víð- sýnir, menntaðir og frjálshuga menn, sem eiga sér ýmsa mikils metna málsvara erlendis (Solzhenitsyn, Sinyavski og Brodsky, svo aó fáeinir séu nefnd- ir) og hópur þeirra fer æ stækk- andi. Þessarar hreyfingar verður að- eins vart endrum og eins og örð- ugt er að meta styrk hennar. Ef- laust er hægur vandi að koma i veg fyrir það, aó hún láti til sín taka i stjórnmálum; til þess hefur hún varla neina aóstöðu. En stjórnmál valda ekki öllu um framvindu og örlög siðmenning- ar. Siðmenning nærist á hug- myndum. Þrjóti þær hnignar henni og hún dregst upp. Sovét- menn eru nú loks farnir að endur- meta arfleifð sina og fortíð, lesa bækur, sem bannaðar hafa verið áratugum saman og hlýða á menn, sem yfirvöldin vilja meina mál- frelsi. Yfirvöldin geta ekki lengur skammtað mönnum umhugsunar- efni. Og æ fleiri „hugsa öðruvísi" eins og heitir á opinberu máli. Þetta hefur vakið mörgum nýj- ar vonir. Rússnésk tunga er enn þróttmikil þótt ófrelsið hafi sett á hana ýmis mörk, og sú þjóð. sem ól Puskin, Tolstoj, og Dostojevski, Blok, Pasternak, Mandelstam og Akmatovu hefur af miklum sjóð- um að taka. Hitt er aftur á móti úggvænlegt, að menn skuli þurfa að lifa andanslifi sinu i leynum og rússnesk menning skuli þrífast bezt í útlöndum! Fram að þessu hafa þau orðið örlög flestra út- laga, að tengsl þeirra við lifið heima fyrir rofnuðu, og þarf ekki að fjölyrða um afleiðingar þess. Er nokkur von til þess^. að rétti við, ef flestir helztu listaménnirn- ir eru reknír úr landi? Þau rússnesk nútímaljöð, sem hæst ber voru nærri öll ort á rússneskri grund. Sá jarðvegur er ennþá frjósamur. Og það verður að vona, að sá dagur renni, þegar ekki verður lengur hægt að upp- ræta listamennina. Það er min skoðun, að úrslit viðureignar sovézkra lista- og menntamanna við yfirvöldin geti valdið miklu um framtíð heims- listarinnar. Andófsmennirnir mega ekki við því að tapa — og við hinir megum ekki við þvi, að þeir tapi. —HENRY GIFFORD. AÐ DREPA MANN misræmi er gild ástæða til þess að endurmeta sögu Sovétríkj- anna og draga af henni nýja lær- dóma. Það er Ijóst af reynslunni annars staðar, að Sovétmenn hefðu getað eflt efnahag sinn án þess að fórna öllum þeim manns- lífum, sem sannanlega hefur ver ið fórnað til þess. Það má segja, að ýmsar framfarir hafi orðið. En aðferðirnar, sem notaðar voru kunna að leiða til stöðnunar síð- ar. Miðsöfnun valdsins í hendur einum, allsráðandi flokki veldur ekki minni vanda en hún leysir. Skrifræði í sæluríki er þversögn. Sovétmenn gerðu sér fyrst vonir, síðan bjuggu þeir lengi við ótta — en nú orðið eru leiðindin að drepa þá. Skrifræðisstjórnin lifir kannski lengi enn. En hún er orðin svo þrautleiðinleg, að þegar hún líður undir lok verður það ekki með hugmyndafræðilegum krampateygjum, né mun hún hrökkva upp af með kjarnorku- hvelli — heldur mun hún bók- staflega geispa golunni! Ný plata með Megasi og Spilverki þjóðanna A BLEIKUM NATTKJÓLUM nefnist nv hljóniplata sem Iðnnn liefui' sent frá sér. Hún hefur að geyina ljóð og lög Megasar, fjöl- breytt að efni og búiiingi. ( í fréltatilkynningu frá útgáf- unni segir m.a.: „Það er Mega.s og Spilverk Þjóðanna sem standa að gerð pliit- unnar og annast útsetningar, söng og hljóðfæraleik. Auk þeirra fé- laga kemur Karl Sighvatsson all- ínikió við sögu á plötunni og leik- ur á hljómborð, Helgi Guömunds- son á munnhörpu. Eggert Þor- leifsson flautuleikari og Viðar Al- freðsson á trompet. Þess má geta að nú gefst í f.vrsta skipti tæki- færi til að hlýða á Megas sjálfan leika á hljöðfæri á hljómplötu. Þessi nýja plata Megasar og Spilverksins er ólik f.vrri plötum Megasar aö þvi leyti að hann sýn- ir á köflum nieiri bliðu og hlýju en áður. En á þessari plötu er einnig að finna efni og flutning sem vafalaust muii hiieyksla ■itu Jt irilTHI KlélUll 1 lUIKla IlTTKJéLII marga. svo sem tvö lög sem flpkk- ast gætu undir svonefnl „ræfla- rokk'. Platan var hljóðrituð í júlí og ágúst í Hljóðrita og húsak.vnnum Fíladelfíusafnaðarins. Upptiiku- maður var Jónas R. Jónsson. Skurður og pressun fór fram hjá CBS i Hollandi. Hönnun plötuumslags og vand- aðs textabæklings var í hönduni Kristjáns Kristjánssonar.'' Sambyggt Stereo Magnari Plötuspilari Kassettutæki Útvarp TVeir hátalarar fylgja 1. Otvarp fyrir LW, MW, SW og FM (stereo) 2. Innbyggt loftnet. 3. Magnari 2x17 wött (music). 4. Stenst kröfur DIN 45 500 um Hi Fi. 5. Kassettutækið tekur Chromium kassettur. 6. Sjálfvirk upptökustilling. 7. 3ja tölu teljari á kassettutæki. 8. 2ja hraða Hi Fi plötuspilari. 9. Plötuspilaraarmur á lyftu. 10. Auðveld stilling á arm- þyngd og hliðarrásun. 11. Heyrnartól og hljóðnema- innstungur að. framan. 12. O.fl. o.fl. o.fl. o.fl. Philips kann tökin á tækninni heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 ■l*j ri i \ PHILIPS Árgerð 1977 Fjölmargir kostir í vönduðu tæki á hagstæðu verði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.