Morgunblaðið - 03.11.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.11.1977, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1977 ----------------!------------------------- Sigurður S. Bjarnason: r Oréttlætanleg kjördæmaskipting Breiðholt verði gert að sér kjördæmi Mál það sem ég skrifa hér um, er ekki nýtt af nálinni og hefur áður verið reifað, m.a. i fjölmiðl- inum „Breiðholt", sem út kom árið 1975, en hefur því miður ekki sést siðan. Hér á ég við hina mis- heppnuðu kjördæmaskipan sem ríkir á Islandi. Ekki er um það að ræða, að kjósendur geti kosið ein- hvern sérstakan mann á Alþingi Islendinga, til þess hafa þeir ekki vald, heldur verða þeir, ef þeir ætla að neyta kosningaréttar síns, að kjósa einhvern ákveðinn stjórnmálaflokk. Flokkur sá sem Sigurður S. B.jarnason viðkomandi kýs hverju sinni, hefur ef til vill einn mann á fram- boðslista sínum,' sem kjósandinn vill styðja, en er um leið neyddur til að veita stuðning fjölda ann- arra frambjóðenda, sem hann hvorki þekkir né hefur áhuga á að styðja. Þar að auki fær kjósand- inn aldrei séð hvort atkvæði hans hefur orðið að gagni við „hans mann“ eða hvort þaó hefur verið til þess, að koma á þing einhverj- um nianni, sem hann hefur engan áhuga fyrir að komist á þing. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að meginþorri þingmanna telur það skyldu sína, að vinna fyrst og fremst fyrir sína kjósend- ur. í sinu kjördæmi. Þetta er ekki svo óeðlilegt, ef þingmenn telja sig fara með umboð kjósenda sinna, sem þeir og gera. Og vafa- laust yrðu kjósendur viðkomandi alþingismanna ekkert ánægðir, ef þeirra þingmenn legðu sig ekki fram við að bæta alla aðstöðu í þeirra heimakjördæmi. Ótal dæmi eru þessu til sönnunar og það nýjasta, sem vakið hefur menn til umhugsunar, er brúin yfir Borgarfjörð. Þetta gerir það að verkum, að öll byggðarlög vilja eiga sinn þingmann eða heist þingmenn, í fleirtölu. Þvi fleiri sem þeir ert því fleiri málum geta þeir sinnt fyrir byggðarlag sitt og umbjóð- endur sína. Vestfjarðarkjördæmi með um það bíl 10.000 íbúum mun í hverj- um alþingiskosningum fá fimm alþingismenn kjörna á Alþingi Is- lendinga. Reykjavíkurkjördæm hefur á Alþingi 16 þingmenn, en Reykjavík munu búa um 100.00I manns i dag. Það er athyglisvert, að enginr af alþingismönnum Reykjavíkui mun vera búsettur í Breiðholti þótt þar búí nú um 1/4 hluti alh'i Reykvíkinga, eða 1/8 hluti allra landsmanna. Þetta gerir það að verkum, að enginn alþingismaður hefur áhuga fyrir málefnum Breiðholts og fæstir þingmanna hafa hugmynd um tilveru Breið- holtshverfa. Þó minnist ég eins, sem flutti útvarpserindi fyrir um það bil tveimur árum og gat þar um Breiðholt og gaf þvi nafnið „flóttamannabúðir". Það er þvi ekki að ástæðulausu, að mikið hefur verið um það rætt í Breið- holtshverfum að undanförnu, hvort ekki væri full ástæða fyrir hverfisbúa, að stofna sinn eigin flokk, sem hefði aðeins eitt mark- mið: „Allt fyrir Breiðholt". Sam- kvæmt núgildandi kosningarlög- gjöf, kjósa íbúðar Breiðholts átta af þingmönnum Islensku þjóðar- innar ef miðað er við mannfjölda. Ef samstaða yrði i Breiðholti, sem er ntjög líklegt, um stofnun og stuðning við nýjan stjónmála- flokk, sem hefði framangreint markmið á stefnuskrá sinni, mundu Breiðholtshverfin ekki þurfa að örvænta lengur, um að einhver háttvirtra þingntanna yrði til þess að ljá málum hverf- anna lið. Hitt verður þó að teljast betri kostur, að rninnka kjördæm- in og gera Breiðholtin að sérstöku kjördæmi, þar sem Breiðholts- búum gæfist kostur á að kjósa sína eigin þingmenn, rnenn sem þeir þekktu og umfram allt menn sem byggju í hverfunum og þekktu þau af eigin raun, en ekki afspurn. Það gæti jafnvel þftt það, að göngubrú yrði byggð yfir Breiðholtsbraut. Sama hátt mætti hafa á um kosningu borgarstjórn- ar, sem í raun réttri, á að sjá um framkvæmdir við brúarbygging- una. Breiðholt þyrfti ekki að segja sig úr lögum við Reykja- víkurborg og stofnsetja sitt eigið bæjarfélag, þótt landfræðilega sé væri það ekki óeðlilegra en að t.d. Kópavogur og Seltjarnarnes eru sjálfstæð bæjarfélög. Heldur væri eðlilegra, að Breiðholtsbúar fengju að kjósa sérstaka fulltrúa úr sínum röðum, til að stjórna borginni og sinna málefnum Breiðholts af þekkingu og áhuga. „KRISTUR og þú“ er yfirskrift æskulýðsviku KFUM og K seni nú stendur yfir í húsi félaganna við Amtmannsstfg og I kvöld talar sr. Jón Dalbú Ilróbjartsson um efnið Kristur — dómarinn. Stjörnandi vikunnar er sr. Jónas Gfslason og er hann hér ásamt Æskulýðskór KFUM og K sem söng m.a. á samkomu í gærkvöldi, en m.vndin er tekin á sunnudagskvöld. Æskulýðsvikunni lýkur n.k. sunnudags- kvöld. íirtstur ðýt |tú Hvitir sjúkraskór með trésólum. Stærðir 35-46 Hinir vinsælu sænsku skór með korksóla komnir aftur. Stærðir 35-46 GEíSiP cylndersen Œl, Lauth hf. Vesturgötu 17 Laugavegi 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.