Morgunblaðið - 03.11.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.11.1977, Blaðsíða 18
18 MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1977 Atvinnumöguleikar ungs fólks: Jafnvægi milli menntunar og atvmnueftirspumar Tillaga þingmanna Sjálfstæðisflokksins FIMM þini'menn Sjálfstæöisflokksins, Guðmundur II. Gardarsson, Ólafur G. Einarsson, Ragnhildur Helgadótt- ir, Pétur Sigurösson og Albert Guðmundsson, flytja tillögu til þingsályktunar um atvinnumöguleika ungs fólks, svohljóðandi: „Alþingi ál.vktar að fela ríkisstjórn- inni að láta gera athugun á vinnuaflsþörf íslenzkra atvinnuvega í nánustu framtíð með sérstöku tilliti til atvinnumöguleika ungs fólks. Við gerð þessarar athug- unar verði lögð áherzla á að ganga úr skugga um, hvort æskilegt jafnvægi sé milli menntunar ungs fólks annars vegar og eðlilegra þarfa atvinnuveganna hins vegar í þeim efnum. Athugun þessari skal lokið fyrir árslok 1978.“ í greinargerð með lillögunni segir m.a.: Eitl mesta vandamál núlíma- þjóðfélaga er aö tryggja ungu fólki atvinnu í samræmi við menntun og hæfní. í svonefndum velferðarríkjum hafa á siðustu árum komiö fram alvarlegir gallai' í skipulagningu og sam- ræmingu mennta- og atvinnumála með þeim afleiðingutn, að milljónir ungra manna 25 ára og yngri fá enga alvinnu að námi loknu eða eiga í mikluin erfið- leikum með að fá viðunandi atvinnu. Á ráðherrafundi OECD, Efna- hags- og framfarastofnunar Evrópu, sem haldinn var i Paris dagana 23.—24. júní s.l., var fjallað um þessi mál, enda hafa forráðamenn þátttökuríkja mikl- ar áhyggjur vegna vaxandi al- AIÞMGI vinnuleysis ungs fólks í viðkomandi rikjum. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðavinnu- málaslofnuninni — International Labour Organization (ILÓ) — munu um 7 milljönir manna und- ir 25 ára aldri vera atvinnulausir i OECD-ríkjunum. Það eru um það bil 40% allra atvinnuleysingja í þessum ríkjum. Meöal helstu ann- marka þessarar þröunar eru of hröð iönvæöing og uppbygging atvinnufyrirtækja, sem byggjast á mikilli vélvæðingu og háþróaðri tækni. Sjálfvirkni og lölvutækni hefur viða leyst mannshöndina af hólmi, án þess að samsvarandi atvinnumöguleikar hafi skapast á öórum sviðum. Þá hefur reynst erfitt að stilla saman menntun og breytta atvinnuhætti, með þeim afleiðingum, að ungu fólki hefur ekki nýst mennlun þess sem skyldi. Hérlendis hefur þessarar þróunar ekki orðið vart í rikum maeli enn sem komið er. Tii þessa hafa þarfir þjóðarinnar fyrir menntað fólk á flestum sviðum verið svo miklar, að flestir hafa fengið starf við hæfi að námi loknu, hvort sem um hefur verið að ræða háskólanám eða nám á öðrum sérsviðum atvinnulífsins. Þó má búast við að á næstu árum verði hreyfing til hins verra i þessum efnum, ef ekki er hugað að þessum málum í tæka tíð. Ljöst er, að í ýmsum atvinnugreinum er vinnumarkaðurinn að mettast. í flestum þeirra er ungt fólk í mikl- um meiri hluta, þannig að ekki er breytinga að vænta til hins betra í nánustu framtið. Nægir í þessu sambandi að vísa til takmörkunar Háskóla íslands á námsmöguleik- um í ákveðnum greinum. Hið sama er upp á teningnum hjá fjöldamörgum háskólum erlendis. Það er keppikefli sérhverrar þjóðar, að sem flestir geti notið mikillar og góðrar menntunar, en sú viðleitni getur verið unnin fyr- ir gýg eða haft takmarkaða þýðingu, ef menntunin kemur ekki að þeim notum sem stofnað er til með löngu og erfiðu námi auk þess sem það hlýtur að valda viðkomandi einstaklingi fjárhags- legu tjóni og sársauka að sjá vonir ekki rætast að námi loknu. Það er því mikilvægt að jafn- vægi sé milli menntunar annars vegar og atvinnumöguleika hins vegar á hverjum tíma. Til þess að unnt sé að gera sér skynsamlega grein fyrir ástandi þeirra mála er nauðsynlegt að jafnan liggi fyrir sem gleggstar upplýsingar um eftirspurn atvinnuvega eftir starfskröftum. . uiidssoii. Eignaréttur bænda til umræðu: Vatnsorka, jarð- varmi og jarðef ni Tillaga um stjórnarskrárbreytingu Afréttir og náttúruauðæfi Ragnar Arnalds (Abl) mælti í efri deíld Alþingis fyrir frum- varpi til stjórnskipunarlaga, þess efnis, að „öll verðmæti í sjó og á sjávarbotni innan efnahagslög- sögu, svo og almenningar, afréttir og önnur öbyggð lönd utan heima- landa, teljast sameign þjóðarinn- ar allrar, einnig niálmur í jörðu, orka í rennandi vatni og jarðhiti neðan við 100 m dýpi“. Þá segir í frumvarpsgreininni: ,,Með þeim takmörkum, sem hér greinir, skal við það miða að bændur haldi eignarrétti á jörðum sínum, beiti- rétti í óbyggðum og öðrum þeim Þingfréttir í stuttu máli — Tillaga til þingsályktunar: Innkaupastof nun ríkisins sett þingkjörin stjórn Alþýðuflokkur flytur frumvörp um atvinnulýðræði Innkaupastofnun ríkisins sett stjórn. Albert Guðmundsson (S) mælti fyrir frumvarpi til laga í efri deild í gær þess efnis, að Innkaupastofnun ríkisins verði selt þingkjörin 5 manna sljörn. Hann sagði m.a.: ,,Þaö er kunnara en frá þurfi að segja, að Innkaupaslofnun ríkisins hefur sætt nokkurri op- inberri gágnrýni á liðnum ár- um. Skoöanir hafa verið skiplar um sum þeirra atriða, sem gagnrýnd hafa verið en um önnur hefur ekki þurft að deila í VI. kal'la I. um skipan opin- berra framkvæmda nr. 63 frá 1970 eru umsvif Innkaupa- slofnunarinnar aukin verulega frá því sem eldri lög kváðu á um. Þar er henni fengió vald til að taka ákvarðanir um veíga- miklar framkvæmdir, sem snerta verulega hagsmuni al- mennings og afkomu þjöðar- búsins í heild. Veldur því á miklu, að starfsemi stofnunar- innar og ákvarðanir, er hún tekur, séu ífiillu samræmi við vílja þings og þjóðar. Láta mun nærri, að velta stofnunarinnar á síðasta ári hafi numið 2.7 milljörðum kr. pg eru þá ekki taldir með verksamningar, sem stofnunin hefur annast og ber ábyrgð á, en þar er um mjög verulegar fjárhæðir að ræða. Með frv. þessu er því lagt til, að Alþingi kjósi sjálft stjórn stofn- unarinnar og tryggi með því, að stefnu þess sé fylgl í öllum meiri háttar málum, er stofnun- in á ákvörðunarvald í og þess sé jafnan gætt, að starfseminni sé gert að fylgja viðteknum við- skiptavenjum." Atviiinulýöræði Sighvatur Björgvinsson (A) mælti fyrir fjórum frumvörp- um í neðri deild Alþingis í gær: um Hlulafélög, Samstarfs- nefndir starfsfólks og sljórn- enda fyrirtækja, Áburðarverk- smiðju ríkisins og Sements- verksmiðju ríkisins. Frumvörp- in eru efnislega samhljóða frumvarpi um atvinnulýðræði, sem Alþýöuflokkurinn flutti á sl. þing, þó nú sé deilt í fjögur frumvörp i staö eins. Frum- vörpin miða í skeinmstu máli að því að starfsfólk fyrirtækja af vissri stærð fái fuiltrúa i stjórn- ir þeirra og samstarfsnefndum stjórnenda og starfsfólks verði komið á fót. Vitnaði Sighvatur til norskrar löggjafar um þetta efni sem og ýmiss konar athug- ana og aðgerða með öðrum þjóðum í þessa veru. Magnús Kjartansson (Abl) sagði hér komiö við mikilvægt mál en lausatök á frumvarps- flutningi. Hann sagði orðið at- vinnulýöræði fara illa i is- lenzku máli. Betri væri: lýð- ræði á vinnustöðum eða efna- hagslýðræði. Ekki væri nóg aö fjölga í stjórnum stærri fyrir- tækja, sem væri útvíkkun bitl- ingakerfis. Bre.vta þyrfli inn- viðum stjörnunar í fyrirtækj- um lil að ná settum mörkum um lýðræði á vinnuslöðum.. Sighvatur harmaði lélegar undirtektir Alþýðubandalags undir slórl hagsmunamál verkalýðs í landinu. hlunnindum I heimalöndum og utan þeirra, sem fylgt hafa ís- lenzkum búskaparháttum á liðn- um öldum.“ Með flutningi þessa frumvarps viljum við alþýðubandalagsmenn, sagði Ragnar, hnýta betur böndin milli verkalýðsstéttar og bænda og koma í veg fyrir óþarfa tog- streitu þeirra í milli um eigqarráð á landinu. Ragnar sagði nauðsynlegt að ákvarða fasta og skýra stefnu í eignarréttarmálum og tryggja öll- um landsmönnum umgengnisrétt á fslenzku landi. Þau réttindi, sem hér yrðu færð yfir til ríkis, væru þríþætt: orka í rennandi vatni, jarðhiti undir 100 m dýpi og málmar í jörðu. Varúð fíegn eigna- upptöku af bændum Albert Guðmundsson (S) sagði m.a. að fara yrði með allri gát í meðferð tillöguflutnings af þvi tagi, sem hér um ræddi, og varð- aði skerðingu á eignarrétti, hvort heldur bændur ættu i hlut eða aðrir. Hann hvatti viðkomandi þingnefnd sem fengi frumvarp þetta til umfjöllunar til að halda vöku sinni í þessu efni. Allar til- lögur til breytinga á íslenzkri stjórnarskrá bæri að meðhöndla af stakri varúð, ekki sízt þeim sem í lævísi vísuðu leið til sósial- isma. Tvö frumvörp en ólík Einar Ágústsson, utanrfkisráó- herra, fór nokkrum orðum um tvö frumvörp, sem fjölluðu um þetta efni, frumvarp Alþýðuflokks- marfna annars vegar og Alþýðu- bandalagsmanna hins vegar. Hann sagði mikinn mun á þessum frumvörpum, þar sem frumvarp Alþýðubandalagsmanna gengi mun skemmra í skerðingu eigna- réttar. Einar sagði stefnu Alþýðu- flokksins ranga. Hann fagnaði þvi að formaður Alþýðubandalagsins viðurkenndi það, að það væri röng stefna að ríkisvaldið ætti allt land. Einar sagðist í fljótu bragði faliast á ýmis sjónarmið í þessu frumvarpi, þó að hann hefði fyrir- vara á um önnur atriði. Ósamræmi í tillöguflutningi og málflutningi Jón llelgason (F) sagði það sitt mat að afréttir ættu áfram að vera eign sveitarfélaga, sem þær hafi nytjað frá örófi alda. Tals- menn þessa frumvarps segðu í málflutningi að bezt færi á því að bújarðir væru áfrant í eigu bænda, enda myndi land bezt varðveitt og skilað til afkomenda með þeim hætti. Sama máli gegndi um afréttir. Þær væru bet- ur komnar í höndum þeirfa, er nytjuðu þær og þekktu en em- bættismanna í Reykjavík. Jón sagði meira samræmi í því að bændur ættu bújarðir en heima- sveitir afréttir. Sveitarfélögin hefðu vissar kvaðir gagnvart þess- um afréttum sem eignaraðilar. Ef ríkið tæki þennan eignarétt til sin, fylgdu þessar kvaðir með. Þær gætu orðið ríkinu þyngri baggi í framkvæmd en heimaaðil- um. Umferðarréttur almennings um afréttir væri í engu betur tryggður þótt ríkisvald i Reykja- vík héldi um eignartauma. í meginatriöum sammála. Steingrfmur Hermannsson (F) sagðist í meginatriðum sammála „þeirri stefnu, sem þetta frum- varp markar“. Ég hefi að vísu ekki kynnt mér það í öllum atrið- um en það tekur „af allan vafa, eða eins langt og unnl er, um eign á ýmsum landsvæðum, sem um hefur verið deilt, og um eign á orku og náttúruauðlindum. bæði í sjó, sjávarbotni og á landi. Stein- grímur sagðist þó hafa á allan fyrirvara um einstök atriði, eins og utanríkisráðherra hefði einnig tekið fram. En hér hefði orðið greinileg stefnubreyting hjá al- þýðubandalagsmönnurn, afstaða þeirra væri jarðbundnari orðin. Þegar adstæður krefjast ríkiseignar jarða. Stefán Jónsson (Abl) sagði það rétt vera við núverandi aðstæður, að landið væri eign bænda; enda þar betur komið en í höndum ríkis og ráðuneyta, að óbreyttum öllum aðstæðum. Þjóðnýting lands væri þvi aftarlega á verk- efnaskrá Alþýðubandalagsins. Hins vegar gæti að því komið, þegar aðstæður krefðust slíks, að þjóðnýting þess yrði að veruleika. Eign og stjórn heimaaðila. Steinþór Gestsson (S) mælti móti frumvarpinu. Hann sagðist ekki sjá að afréttir væri betur komnar í stjórn og umsjá ráðu- neytisdeildár í Reykjavik en heimasveita og manna, er hefðu staóbundna þekkingu á aóstæðum og nýtingu. Hann færði fram ýmis rök tii stuðnings eignarrétti við- komandi sveitarfélaga á afrétt- um. Huga þyrfti vel að réttar- stöðu bænda varðandi meðferð þessa frumvarps í þinginu — og gæta þess vel að gera ekki hlut þeirra verri en áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.