Morgunblaðið - 03.11.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1977
39
SIGFUS OG JON I
GÓÐUM FÉLAGSSKAP
,,ÉG Hljóp á fullu alla leiðina en
koms þó ekki inn framarlega. Ég get
þó ekkert kvartað því ég tók á allan
tímann. Maður er bara ekki i betra
formi ennþá, en svo var hlaupið lika
mjög sterkt." Þannig mælti Sigfós
Jónsson, hlauparinn góðkunni úr ÍR,
en hann og Jón Diðriksson, UMSB,
tóku þátt i miklu götuhlaupi i bæn-
um Gateshead í Englandi um helg-
ina. Varð Sigfús í 43. sæti en Jón i
61. sæti af um 300 keppendum,
þ.ám. voru flestir beztu hlauparar
Bretlandseyja og nokkrir góðir
Evrópubúar.
Sigfús sagði að hann hefði komið í
mark samtímis mörgum öðrum, sem
hefðu fylgzt að Hlaupið var tæpir 9
kílómetrar að lengd, en sökum stað-
setningar sinnar hlaut hvorki Sigfús né
Jón tima Sigfús sagði að hlaupnir
hefðu verið þrir hringir og byrjað og
endað á Gateshead-
frjálsíþróttavellinum Sagði han að Jón
hefði verið aðeins rétt á eftir sér að
loknum tveimur hringjum en upp frá
þvi hefði Jón skort úthald og þvi
dregizt aftur úr undir lokin Sigfús
sagði að þeir félagar æfðu mikið um
þessar mundir en væru ekki i neinu
keppnisformi, enda æfingarnar miðað-
ar við næsta sumar. Hlaupið vann
núverandi Evrópumeistari unglinga í
5000 metra hlaupi, Skotinn Nat Muir.
A hæla hans komu aðrir ágætir Skotar
en hinn ágæti Englendingur Dennis
Coates, sem er einn bezti hindrunar-
hlaupari heims, varð ekki nema tiundi
Karel Lismont, tvivegis verðlaunamað-
ur á Evrópumeistaramótum og
Ólympiuleikjum í maraþonhlaupi og
góður 10 km hlaupari, varð aðeins
sjöundi í hlaupinu að sögn Sigfúsar
Sigfús og Jón munu á næstunni kcppa
i ýmsum hlaupum að sögn Sigfúsar.
með skóla sinum. en skólinn cr nú
með eitt bezta hlauparalið af enskum
háskólum Liklega munu þeir svo
keppa i miklu alþjóðlegu víðavangs-
hlaupi í Gateshead í lok nóvember.
Gateshead er heimabær hins mikla
hlaupara Brendan Fosters.
Sigfús
Jon
Haustmót BLÍ:
ÍS og Vík-
ingur unnu
HAUSTMOT Blaksambands Is-
lands fór fram um síðustu helgi.
í karlaflokki iéku Þróttur og IS
lil úrslita og vann ÍS 2:1 í mjög
skemmtilegum og jöfnum leik.
Hrinurnar enduðu 13:15, 15:12 og
16:14. Þar með tókst ÍS að rjúfa
óslitna sigurgöngu Þróttar.
i kvennaflokki var einnig um
mjög skemmtilega og jafna bar-
áttu að ræða millí Víkings og
Völsungs og vann Víkingur naum-
an sigur.
i keppni um 3. sætið í karla-
flokki vann UMFL Mími 2:0.
Hef opnað rakarastofu mína að
HÓTEL LOFTLEIÐUM
Góð bílastæði Góð þjónusta.
Garðar Sigurbergsson
Góðir hestar
Walter Feldmann eldri óskar eftir að kaupa
tamda hesta til útflutnings. Þeir sem hafa hesta
til sölu vinsamlegast hafið samband við:
Sigurð Hannesson og Co. h. f.
Ármúta 5. Reykjavík.
Sími 855 13.
Baráttunefnd 1. des. 1977
verður stofnuð undir kjörorðunum:
1. Veljum sjálfræði íslands.
2. Gegn erlendri stóriðju
3. ísland úr Nato — Herinn burt.
4. Gegn báðum risaveldunum, U.S.A og
Sovét
Nefndin er öllum opin sem styðja þessi kjörorð.
Stofnfundur verður haldinn fimmtudaginn 3.
nóv. n.k. kl. 20.30 í Norræna húsinu.
Á fundinum verða ræðuhöld, hópumræður og
menningarefni. Frumkvæðisnefnd.
Landsmálafélagið Vörður,
samband félaga Sjálfstæðismanna
í hverfum Reykjavikur
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtu-
daginn 3. nóvember 1 977 í Valhöll, Háaleitis-*
braut 1 Fundurinn hefst kl 20:30
O Skýrsla stjórnar um starfsemi
félagsins á liðnu starfsári.
0 Reikningsskil
0 Kjör stjórnar og endurskoðenda
0 Önnur mál.
£ Ingólfur Jónsson, alþingismaður
flytur ræðu og svarar fyrirspurn-
um fundarmanna.
Stjórnin.
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER — KL. 20:30 —
VALHÖLL
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AllSTURBÆJARRin frumsýnir einhverja
frægustu stórmynd aldarinnar:
Það er vafamál að nokkur kvikmynd hafi fengið jafn glæsleg
ummæli kvikmyndagagnrýnenda og þessi mynd allt frá upphafi
vega:
Hér eru nokkur sýnishorn af þeim ummælum frá hinum ýmsu
löndum:
Frakkland —
„Ég fagna Barry Lyndon sem
fegurstu mynd aldarinnar Ég
hylli Stanley Kubrick sem mesta
kvikmyndastjóra aldarinnar Ég
hafð aldrei áður séð mynd, sem
mann langar til að sjá tiu
sinnum, nei, 100 sinnum.” —
Galerie Jardin des Arts. Paris.
„Svo fullkominni list verður vart
með orðum lýst." — France
Soir, Paris
„Fegursta kvikmynd i heimi
Ryan O'Neal og Marisa
Bersenson sýna sannarlega stór-
fenglegan leik.” — LAurore.
Paris.
Þýskaland —
„Kvikmynd á við þessa hefur
aldrei verið til áður Hún verður
ein hinna frægustu, sigildu
mynda ” — Frankfurter All-
gemeine Zeitung
„Hún verkar eins og rothögg
Maður er i vímu af furðulegri
fegurð hennar/' — Der Tages-
spiegel, Berlin
„Kubrick hefur skráð enn nýjan
kafla i sögu kvikmyndanna ‘ —
Tip, Berlin
Danmörk —
„Barry Lyndon er furðuverk,
'sem fær mann til að reka upp
stór augu Það er eins og
kvikmyndirnar hafi einmitt verið
fundnar upp ’ — Ekstra Bladet
— sem gaf henni 6 stjörnur
„Meistaraverk Kubricks Berg-
málsins frá því mun alltaf gæta "
— B T , sem einnig gaf 6
stjörnur.
„Fullkomin kvikmynd — eins
fullkomm og maður getur óskað
sér ” — Kristeligt Dagblad
Sviss —
„Barry Lyndon er ekki aðems
meistaraverk — hún er full-
komnasta kvikmynd, sem gerð
hefur verið " — Tagblatt der
Stadt, Zúrich
„Það, sem Herbert von Karajan
er tónlistarheiminum, er Stanley
Kubrick kvikmyndaheiminum '
— Der Bund, Bern
..Merkasta kvikmynd. sem
nokkru sinni hefur verið sýnd "
— National-Zeitung. Basel
Finnland —
„Stanley Kubrick er besti kvik-
myndasmtður i heimi Þessi
mynd er fullkomnuð með dásam-
legri þekkingu '' — Helsingin
Sanomat
„Myndtn leiftrar eins og demant-
ur með ótal litbrigðum'' —
Kansan Uutiset
Ítalía —
„Töfrandi mynd Kubrick hefur
aldrei náð slíkri fullkomnun
áður." — Corriere della Sera.
Róm
„Fullkomin i hverju tilliti ' — La
Stampa. Róm
„Einu sinni voru Oscarverðlaunin
fyllilega verðskulduð '' — II
Giorno, Róm
Holland —
„Ógleymanlegt atvik Þetta er
besta kvikmynd Kubricks —
De Volkskrant Rotterdam
„Meistaraverk Fullkomin i hv!-
vetna." — HaagsePost Haag
„Það er erfitt að telja upp kosti
þessarar fullkomnu kvikmyndar
Þeir eru of margir — De
Waarheid
Austurríki —
„Stórfenglegur kvikmyndavið-
burður Meistaraverk ' —
Oberösterreichische Tageblatt
„Hvert fet i þessari kvikmynd er
stórviðburður ' — Oberöster-
reichische Nachrichten
Belgia —
„Ein fegursta mynd allra tima "
— Knack
„Glæsileg að öllu leyti Smlldar-
verk '' — Pourqoui pas Brussel
„Þetta er mesta kvikmynd. sem
gerð hefur verið árum saman '
— Radio Television Belge
Frumsýning myndarinnar er í dag
kl. 5 og 9.
Hækkað verð.