Morgunblaðið - 12.11.1977, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977
4LIT4A1M
„Rússnesku byltinguna má telja til afdrifaríkustu mistaka mannkynsins. Okkar er að
læra af þessum mistökum."
eftir HANNES GISSURARSON
Svarað með þögninni
Það hefur ekki farið fram hjá mönnum, að
við Skafti Harðarson og Kristján Hjaltason
höfum gefið út blað um utanrikismál fslend-
inga, skorað á „herstöðvaandstæðinga" að
mæta okkur á fundum um þau í framhalds-
skólunum og valið okkur vígorðin Samvinna
Vesturlanda: Sókn til frelsis. Fyrsti fundur-
ínn, fjölsóttur, fróðlegur og skemmtilegur,
var haldinn í Menntaskólanum við Hamrahlið
7 nóvember sl Þennan upphafsfund nefni
ég, vegna þess að hann var haldinn réttum
sextiu árum eftir Rússnesku byltinguna og
stofnun Ráðstjórnarrikjanna, 7 nóvember
stjórnarinnar, reglan á dögum kommúnista-
stjórnarinnar Taka má sjálfan byltingarfor-
ingjann Lenín til dæmis um muninn á kúgun-
inni Hann var hatrammur andstæðingur
keisarastjórnarinnar, en gat stundað ritstörf í
Siberiuvist sinni og tekið á móti gestum, en
það hefði verið óhugsandi i vinnubúðavitum
Stalíns
Atvinnulíf drepið
í dróma
Hagkerfinu var í rauninni ekki heldur
breytt til batnaðar eftir byltinguna. Sú mynd,
sem dregin hefur verið upp af myrkrinu fyrir
hana í atvinnumálum og Ijósinu eftir hana, er
röng Iðnvæðing var hafin í Rússlandi fyrir
byltinguna, einkum kostuð með erlendum
lánum En iðnvæðingu ráðstjórnarinnar eftir
fyrstu erfiðleikaárin, borgarastyrjöldina.
vinnubúðum, ef þeir láta sér ekki lynda
hlutverk sýningardýra í sameignarburinu Af-
reksmenn eru sérhyggjumenn, en í ríki sam-
neyzlunnar eiga allir að vera samhyggju-
menn. Fróðleg grein um Lýsenkómálið birtist
í Morgunblaðmu 6 nóvember sl , en það var
og er sígilt dæmi'um afskiptasemi stjórn-
valda í alræðisríkinu af vísindum
En kerfið kemur ekki einungis niður á
afreksmönnum, heldur einnig öllum almenn-
ingi. Einstaklingarnir-fá ekki að ákveða þarfir
sínar sjálfir, miðstjórnin gerir það Þeir njóta
ekki réttarverndar, eru þegnar geðþóttavalds.
Kjör almennings eru bág, miðstjórnin fjár-
festir í vítisvélum (Kremlverjar kosta 13%
þjóðarframleiðslu Ráðstjórnarríkjanna til víg-
búnaðar, Bandaríkjamenn 6% þjóðarfram-
leiðslu sinnar til varna), hún leyfir litla einka-
neyzlu, vöruskortur er og skömmtun, hús-
næðisekla er landlæg, mönnum er mismun-
að eftir virðingarstigum, hin „nýja stétt"
flokksmanna nýtur forréttinda Það er þess
inni á einstaklinginn Stalín. Eg held, að orðin
„stalínismi” og „skrifræði” séu innantóm og
einungis smíðuð til þess að komast hjá
kjarna málsins.
Að skilja rök byltinga
Kjarni málsins er sá, að gerð var tilraun til
þess að bylta kerfi Rússlands, stofna sósíal-
istaríki, og þessi tilraun til sósíalisma mis-
tókst. Lenín, Stalín og Trotzký voru að
sönnu miskunnarlausir menn, töldu tilgang-
inn helga öll tæki, báru enga virðingu fyrir
öðrum mönnum, en það var vegna þess, að
þeir trúðu þeirri kenningu um frelsun
mannkynsins með mannafórnum, sem kölluð
er eftir Karli Marx. Og satt er það einnig, að
til varð „skrifræði , skrifstofubákn ríkisvalds-
ins, óháð öllu En hvers vegna? Rök allra
Tilraunin — sem mistókst
1917, og í ræðu, sem ég flutti á fundinum,
spurði ég „hérstöðvaandstæðinga", hvort
einhver þeirra treysti sér til þess að verja
kastalaherrana i Kreml, segja, að sextíu ára
gömul tilraunin i Ráðstjórnarrikjunum hefði
tekizt Ég fékk ekki önnur svör en þögnina
Og þessi þögn íslenskra sameignarsinna er
til marks um fullkomið gjaldþrot Kremlverja,
á þessari þagnarstund á heitum og hörðum
fundi blasti hún við Úr hópi róttæklinganna
ungu á fundinum treysti enginn sér til þess
að verja miðstjórnarmennina alráðu i austri,
sameignarbú þeirra er þrotabú allra vona.
Tilraun þeirra mistókst, um það er ekki
lengur deilt.
Ég ætla i tilefni sextíu ára afmælisins að
reyna að fella rökstuddan dóm um rússnesku
byltinguna, afdrifarikasta og lærdómsrikasta
atburð tuttugustu aldarinnar
Ávinningurinn af
októberbyltingunni?
Ráðstjórnarríkin ber að telja tíl stórvelda,
máttur þeirra er geysimikill, Kremlverjar
stjórna iðnvæddu risariki, framfarir hafa orð-
ið i efnahagsmálum siðustu sextíu árin, náðst
hefur umtalsverður árangur í ýmsum efnum i
landi þeirra En var einhver raunverulegur
ávinningur að októberbyltingunni (sem svo
er kölluð, með þvi að miðað er við þágildandi
timatal i Rússlandi, þó að byltingardagurinn
sé 7 nóvember)? Sá árangur, sem náðst
hefur i alræðisrikinu austræna, er auðvitað
ekki metínn einn sér, heldur er miðað við
einhvern mælikvarða, kerfi eru metin saman:
allt mat er einhver samanburður. Og mæli-
kvarðarnir, sem leggja má á kerfið i Ráð-
stjórnarrikjunum, stjórnkerfið og hagkerfið,
eru tveir: annar er stundarinnar, saman-
burður kerfissins fyrir byltinguna og eftir
hana. hinn staðanna. samanburður þessa
austræna kerfis og kerfis Vesturlanda Fyrri
mælikvarðinn er falinn í spurningunni: „Var
Rússneska byltingin til bóta fyrir almenning i
Ráðstjórnarrikjunum?" — en seinni mæli-
kvarðinn í spurningunni: „Næst jafnmikill
árangur i alræðiskerfi Ráðstjórnarríkjanna og
í lýðræðiskerfi Vesturlanda?"
Kúgunin
margfaldaðist
Algeng er sú skoðun á byltingunni, þegar
annar mælikvarðinn, sögulegur samanburð-
ur, er lagður á hana, að stjórnkerfið eftir
hana hafi verið betri kosturinn af tveimur
slæmum, hinn hafi verið kerfi rússnesku
keísarastjórnarinnar En hyggja ber að þvi,
að lýðræðisstjórn var bylt i nóvember af
bolsévikum, þvi að keisarastjórninni hafði
verið bylt i marz af lýðræðissinnum Og i
kosningunum til þjóðþings í árslok 1917 —
eftir bolsvikabyltinguna — fengu bolsévikar
einungis um fjórðung greiddra atkvæða, en
Lenin, foringi þeirra, hafði þær kosningar að
engu Októberbyltingin var með öðrum orð-
um valdarán mikils minni hluta, ráðstjórnin
var kúgunarstjórn eins og keisarastjórnin Og
munurinn var á afköstum kúgaranna: Talið er
til dæmis, að 25 þúsundir manna hafi verið
teknar af lifi á árunum 1866—191 7, sið-
asta aldarhelmingi keisarastjórnarinnar, en
fimmtíu sinnum fleiri menn voru að
minnsta kosti teknir af lifi á fyrstu hálfu öld
kommúnistastjórnarinnar. Áríð 1912 sátu
182 þúsundir manna í fangelsum keisarans,
en sjötiu sinnum fleiri menn sátu að
minnsta kosti i fangelsum kommúnista. þeg-
ar þeir voru flestir á timum Stalíns Pynding-
ar voru undantekningin á dögum keisará-
hungursneyðir og valdabaráttu, sem lömuðu
allt athafnalíf, varð að kosta með þeim óhag-
kvæma hætti að ræna bændur öllum eignum
sinum og tekjum, stundum (ifinu sjálfu,
framkvæmdur var með miskunnarlausu
vopnavaldinu stórkostlegur flutningur fjár-
magns frá landbúnaði til iðnaðar, bændur
voru milljónum saman gefnir hungurdauðan-
um Sannleikurínn er sá, að með Rússnesku
byltingunni var hægt á allri iðnþróun i Rúss-
landi. Úkraníu og öðrum löndum í austri eins
og hagtölur sýna Og iðnvæðing ráðstjórnar-
innar var síður en svo kraftaverk, iðnþróun i
Bandarikjunum á nítjándu öldinni (sem eru
um sumt sambærileg við Ráðstjórnarrikin á
hinni tuttugustu) var til dæmis miklu hraðari
Af öllum þessum staðreyndum má ráða, að
byltíngin i nóvember 1917 var alls ekki til
bóta fyrir allan almenning þeirra landa. sem
eru í ráðstjórnarbandinu, úr hagvexti og
iðnþróun dró, og allar kjarabætur almenn-
ings voru tafðar með byltingunni, bæði til
langs tima og skamms, en auk þess framdi
ráðstjórnin það, sem ekki verður tölum talið:
myrti tugmilljónir manna
Minni árangur í
miðstjórnarkerfinu
Það blasir við sextíu árum eftir Rússnesku
bultinguna, þegar hinn mælikvarðinn,
samanburður kerfa samtimans, er lagður á
hana, að kerfi Ráðstjórnarríkjanna er varla
nefnandi og notandi ’ samanburði við kerfi
Vesturlanda, Kremlverjar neyðast til þess að
kaupa vélar og visindalega þekkingu af Vest-
urlandabúum og stundum matvæli vegna
þess eilífðarvanda, sem landbúnaðarmál eru
i í Ráðstjórnarríkjunum En þeir geta lítið selt
Vesturlandabúum annað en hráefni Hagkerfi
þeirra er vanþróað og atvinnuhættir ótrúlega
frumstæðir Og einstaklingarnir skila ekki
sömu afköstunum, vinna ekki sömu afrekin,
ná ekki sama árangri og i kerfi Vesturlanda
Miðstjórnarkerfið eða sósíalisminn dregur
allan mátt úr afreksmönnum: Vísindamenn,
listamenn, listdansarar. íþróttamenn, sem af
öðrum bera í Ráðstjórnarrikjunum, eru gerðir
útlægir, vistaðir á geðveikrahælum eða i
vegna ekki undrunarefni, að óregla er al-
menn með þegnum Kremlverja og glæpir
algengir, þó að reynt sé að fela hvort tveggja.
Og svartur markaður er blómlegur í Ráð-
stjórnarríkjunum hann er samfara allri þeirri
skömmtun, sem sósíalistar kalla „samræmda
stjórn efnahagsmála" og „réttláta skiptingu
þjóðartekna" — hvort sem það er i austri eða
vestri
Skýringarnar á
mistökunum
Sameignarsihnar á Vesturlöndum eru flest-
ir sammála þeim, sem gagnrýna stjórnarfarið
i Ráðstjórnarrikjunum, þeir taka undir lýs-
ingarnar á lífi manna í austri, þó að þeir hafi
á sínum tíma talið Ráðstjórnarrikin sælulönd
i þessum heimi Á islenzku eru til tvær
ágætar heimildir um lífið i ríkjum sameignar-
sinna, Valdið og þjóðin eftir dr Arnór
Hannibalsson og Rauða bókin. En vestrænir
sameignarsinnar mótmæla þvi, að áfellis-
dómurinn, sem felldur er um Ráðstjórnarrik-
in, sé einnig um sósíalsimann. Og komið ef
að þvi, sem skiptir mestu máli Hver er
skýringin á mistökunum? Hvers vegna mis-
tókst tilraunin? Er unnt að samsama almenna
kenningu sósialista og framkvæmd hennar i
Ráðstjórnarrikjunum? Sameignarsinnar svara
flestir þessari spurningu svo, að Stalín og
menn hans hafi gert öll mistökin, lýðraeði
breytzt i „skrifræði ', skriffinnar fengið völd-
in. En þessi skýring er alls ekki fullnægjandi,
hún er fremur lýsing á mistökunum en
skýring á þeim Einhverja grein má reyndar
gera fyrir sögu Ráðstjórnarríkjanna með þvi
að visa til einstaklinga eins og Lenins, Stalíns
og Trotzkýs (Solsjenitsyn segir eftirminnilega
frá Lenín í nýbirtum kafla úr hinu mikla verki,
sem hann er að rita um Rússnesku bylting-
una; Lenín í Ziirich) og allra aðstæðna (til
dæmis var rikisrekstur miklu algengari í
Rússlandi keisarastjórnarinnar en á Vestur-
löndum) En hagkerfi Ráðstjórnarríkjanna er
miðstjórnarkerfi eins og það, sem flestir
sósíalistar hafa talið eftirsóknarvert. Og ein-
kennilegt er það, að þeir menn, sem hafna
hlut einstaklinga i sögunni, skella allri skuld-
byltinga — allra tilrauna til þess að bylta
kerfinu með valdi og breyta einstaklingun-
um, frelsa þá með ofbeldi — eru þau. að
valdasöfnun sé nauðsynleg til þess að fram-
kvæma kenninguna En valdið er vimugjafi,
dregur siðferðilegt afl úr mönnum. Ofbeldið.
sem vær tæki, verður tilgangur Byltingar-
mennirnir „gera illa nauðsyn að dyggð" eins
og Árni Bergmann orðaði það i athyglisverðri
grein um byltinguna i Þjóðviljanum 6
nóvember sl og hafði reyndar eftir Rósu
Lúxembúrg Enn er það, að allir menn eru
ófullkomnir, gera mistök. einnig valdhafar
Ef þeir hafa öll völdin. margfaldast mistök
þeirra, koma niður á tugmilljónum manna í
rauninni á ekki að kenna Stalin um ógna-
stjórnina, heldur kerfinu. sem gerði stjórn
Stalins framkvæmandi, og kenningunni,
sem gerði einstaklingana að verkfæri valds-
ins Sökin er miðstjórnarkerfis sósialista,
byltingarkennmgar þeirrar og mannkyns-
frelsunar Mistökin voru óhjákvæmileg. Sú
var einnig afstaða Orwells og Koestlers:
Byltingin krefst mannblóta.
Opið kerfi tilrauna eða
lokað kerfi tilskipana
Tilraunin sextuga til þess að stofna’ fyrir-
myndarriki mistókst En ber okkur að hafna
allri tilraunastarfsemi i stjórnmálum? Öðru
nær í rauninni er markaðs- og lýðræðiskerfi
Vesturlanda kerfi tilrauna; það er opið fyrir
öllum nýjungum og nýmælum, skipulagið er
fyrir frelsið, en ekki gegn þvi, og vegna
dreifingar hins efnahagslega og stjórnmála-
lega valds og áhættunnar kostar hver tilraun,
sem gerð er til að framleiða nýja vöru eða
framkvæma nýja kenningu. litið, þó að mikið
megi af henni læra, sifelld upplýsingasöfnun
fer fram án mikillar áhættu En þegar valdinu
er safnað saman og tilraunin gerð á öllu
kerfinu í einu, er of mikil áhætta tekin af
óhjákvæmilegum mistökum — sem kunna
að kosta lif og frelsi manna Vandinn er
þessi: Menn afla þekkingar með þvi að gera
tilraunir og læra af mistökum sinum En
hvernig er hægt að afla þessarar þekkingar
án þess að taka of mikla áhættu af mistökun-
um? Og lausnina er að finna i markaðskerf-
inu, dreifingu efnahagslegra ákvarðana
Þessi er andinn i allri umbótastefnu En
alræðiskerfi Ráðstjórnarrikjanna er ekki opið
fyrir nýjum tilraunum. kerfi þeirra er lokað.
Menn reyna ekki að læra af mistokunum.
heldur að fela þau Auk þess er kenningin sú,
að umbætur séu óhugsandi i fullsköpuðu
fyrirmyndarríki Hagfræðingar telja það
reyndar eina ástæðuna til litilla framfara i
Ráðstjórnarrikjunum, að fáar tilraunir eru
gerðar i framleiðslu, framkvæmdum og
rekstri Hin „nýja stétt" valdhafa óttast allar
nýjungar, tilgangur hennar er sá einn að
halda völdunum, hún stjórnar með tilskipun-
um Það er til dæmis vegna þessa munar á
opnu kerfi Vesturlanda og lokuðu kerfi
Austurlanda, sem vistfræðivandi nútimans.
en hann er áhyggjuefni margra æskumanna,
er auðleystari innan markaðskerfisins en mið-
stjórnarkerfisins. það er sveigjanlegra
Einfeldnin en veldur þvi, að margir hafna
„kapitalisma" eða markaðskerfi vegna þessa
vanda
Rússnesku byltinguna má telja til afdrifa-
rikustu mistaka mannkynsins. En hún var
gerð, ekki verður fengizt um það, og okkar er
að læra af þessum mistökum, velja umbóta
stefnu. en ekki byltingarstefnu, manninn, en
ekki miðstjórnina