Morgunblaðið - 12.11.1977, Síða 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977
Leitin að Haraldi hef-
ur engan árangur borið
Tveir menn eru á bátnum
BATAR sem leita Haralds SH 123 fundu f gær brak á reki, ekki fjarri
þeim stað sem sfðast heyrðist til bátsins. Meðal þess sem fannst var
lestarborð, en f gærkvöldi var ekki búið að kveða upp úr um, úr hvaða
skipi brakið væri. A Haraldi eru tveir menn, Bragi Magnússon og
Benedikt (iunnarsson. Þeir eru báðir um þrftugt, búsettir á Grundar-
firði. I gær leituðu 25 skip að Haraldi, auk þess flugvél I.andhelgis-
gæzlunnar TF-SÝN og fjölmennir flokkar úr björgunarsveitum Slysa-
varnafélagsins á Snæfellsnesi gengu fjörur, en leit bar engan árangur.
Það var um kl. 20.45 í fyrrakvöld, sem síðast er vitað um Harald. Þá
Bankamenn sam-
þykktu með yfir-
gnæfandi meirihluta
BANKAMENN samþykktu ný-
gerða kjarasamninga með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða í
allsherjaratkvæðagreiðslu. sem
fram fór um land allt. t gær, er
enn höfðu ekki bori/.t 2% at-
kvæða vegna samgönguerfiðleika
við Norðurland, voru úrslit taln-
ingar þau, að 1529 bankamenn
sögðu já, en 167 sögðu nei. Auðir
seðlar voru 39 og ógildir 2. Kjör-
Strætis-
vagnafar-
gjöld hækka
um 15%
VERÐLAGSNEFND hefur heim-
ilað 15% fargjaldahækkun hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur og
Kópavogs.
Samkvæmt frétt frá Strætis-
vögnum Reykjavíkur kostar nú 70
krónur fyrir fullorðna með
strætisvagni í stað 60 áður, barna-
fargjöldin hækka úr 18 í 20
krónur. Farmiðum á 2000-þlísund
króna spjöldum fækkar úr 44 í 38
og á 1000-króna spjöldum fækkar
miðunum úr 19 í 17. Barnafarmið-
unum á 500-króna spjaldinu
fækkar úr 40 í 34.
Farmiðaspjöld aldraðra og ör-
yrkja með 38 miðum kosta nú
1000 krónur.
í frétt SVR segir að meðaltals-
hækkun fargjaldanna sé 14.7%.
Landris með
meiri hraða
við Kröflu
LANDRIS á Kröflusvæðinu er nú
allbreytilegt. Slðastliðinn hálfan
annan sólarhring hefur vestur-
hluti svæðisins risið mun hraðar
en áður og er ris þess á þessum
tíma jafnt 8 sólarhringa risi það
tfmabil á undan. Vita menn
ógjörla hvað þessar breytingar
geta haft í för með sér eða hvað
þær boða.
Skjálftavirkni var í fyrrinótt og
gær allmiklu meiri en hún hafði
verið. 1 fyrrinótt á tímabilinu frá
klukkan 23 til 07 urðu 18 skjálftar
eða jafnmargir og allan sólar-
hringinn þar á undap. Annars
sagði vaktmaður í skjálftavakt i
gærkveldi að erfitt væri að fylgj-
ast með skjálftunum vegna trufl-
ana, sem kæmi fram á mælum
vegna vonzkuveðurs.
gögn höfðu þá ekki borizt að norð-
an frá nokkrum stöðum eins og
áður segir og voru þar 33 á kjör-
skrá.
Bankarnir hafa fyrir sitt Ieyti
samþykkt gerðan kjarasamning,
en meðal félaga I Sambandi ís-
lenzkra bankamanna varð kjör-
sókn í allsherjaratkvæðagreiðsl-
unni um 90%. Samkvæmt upplýs-
ingum Sólons Sigurðssonar, for-
manns SIB, verður sú kauphækk-
un, sem bankamenn fá á júlílaun
að meðaltali um 18,2%, en einnig
koma á launin áfangahækkanir,
4% miðað við 1. september og 4%
miðað við 1. desember. Þá kemur
að auki viðbót á launin um næstu
mánaðamót, sem talið er að verði
hartnær 10%.
hafði Grundfirðingur SH sam-
band víð Harald, og var báturinn
þá staddur um 7 sjómílur NV af
Öndverðarnesi og var á heimleið.
Var þá allt í stakasta lagi um
borð. Veður á þessum slóðum var
þá frekar slæmt, stóð vindur af
ANA, 7—8 ^vindstig, en að sögn
manna ekki mjög þungt í sjó. Eft-
ir veðurfréttir kl. 22.15 kallaði
skipstjóri Grundfirðings á ný í
Harald, en þá svaraði báturinn
ekki, en þá áttu að vera 8—10
sjómilur á milli bátanna og Harald
ur átti að vera í höfn upp úr kl.
23. Þegar háturinn kom ekki til
hafnar á réttum tima, var farið að
spyrjast fyrir um hann og haft
samband við Slysavarnafélagið.
Upp úr miðnætti var hafin leit og
lagði þá fjöldi báta af stað til
leitar frá höfnum á Snæfellsnesi
og skip sem voru á nálægum slóð-
um. A sama tima voru meðlimir
björgunarsveita Slysavarnafélgs-
ins kallaðir út til leitar og var
Framhald á hls. 22.
HARALDUR S.H. 123 — Mynd þessi at Haraldi var tekin skömmu
eftir að bátnum var hleypt af stokkunum í Vestmannaeyjum. Bar
báturinn þá einkennisstafina SF—70. Fyrir nokkrum árum kom
upp eldur i Haraldi og var honum breytt nokkuð eftir það.
Hrun á 8 metra kafla
í Oddsskarðsgöngum
HRUN hefur orðið I Oddsskarðs-
göngum á 8 metra kafla í bás við
útskot i göngunum Eskifjarðar-
megin. Það magn, sem hrundi,
mun vera á að gizka 10 til 14
smálestir. Ráðgert hafði verið að
Mynd þessi var tekin við Oddsskarðsgöng f sumar. Vlgsluathöfn
ganganna átti að fara fram hinn 25. nóvember næstkomandi, en nú
verður sennilegast að fresta henni vegna hrunsins í göngunum.
— Ljósm: Þórloifur.
vígja göngin hinn 25. nóvember
næstkomandi, en þetta hrun kann
að tefja eitthvað fyrir áður en
vígsluathöfn getur farið fram.
Nauðsynlegt mun vera að steypa
upp f það svæði, sem hrundi úr.
Annars var mjög erfitt að ná
simasambandi við Austfirði í gær
og nánast útilokað í gærkveldi,
eftir að símastöðvum var lokað.
Var þetta vegna þess að Gagn-
heiðarstöðin bilaði i gær og var
svæðið þvi nær simasambands-
laust, auk þess sem Austfirðingar
sáu ekki sjónvarp í gærkveldi. Þó
tókst Morgunblaðinu í gærkveldi
að ná sambandi við Egil Jónasson
umdæmisverkstjöra Vegagerðar-
innar á Reyðarfirði og sagði hann
að menn frá Vegagerðinni hefðu
farið upp í Oddsskarðsgöng i gær,
en þangað var þá þæfingsfærð,
enda versta veður á Austfjörðum
í gær og blindhríð.
Menn voru við vinnu i göngun-
Franihald á hls. 22.
Vonzkuveður um
norðanvert land
— Færð víða að spillast
MIKIÐ hvassviðri gekk yfir land-
ið í fyrrinótt og f gær. Var síðdeg-
is f gær enn mikið hvassviðri á
fjöllum, á Vestfjörðum, Norður-
landi og á Norðausturlandi. Víða
fylgdi mikil snjókoma þessu
hvassviðri.
Samkvæmt upplýsingum Vega-
Kom á lítilli seglskútu til
Siglufjarðar frá Noregi
„ÞAR sem enginn vissi hvernig er að sigla Iftilli seglskútu frá
Evrópu til tslands á þessum árstíma, þá fannst mér sjálfsagt að
reyna það, og það sem af er, hefur ferðin gengið vel,“ sagði
V-Þjóðverjinn Axel Czuday frá Múnchen en hann kom siglandi á
9 metra seglskútu til Sigluf jarðar f fyrranótt eftir 8 daga siglingu
frá Bodö f Noregi. Þrátt fyrir mjög slæmt veður síðustu daga
siglingarinnar lét Czuday vel af ferðinni þegar Mbl. ræddi við
hann.
„Þetta er ein bezta ferð sem
ég hef farið á skútu. Ég hafði
allan tímann sterkan meðvind á
eftir mér, þannig að ég bókstaf-
lega sveif áfram. Eftir þá
reynslu, seni ég hef öðlast af
siglingunni til Islands, tel ég
vel mögulegt að sigla litlum
bátum á milli landanna á þess-
um árstíma, hins vegar verður
maður að fara varlega og fylgj-
ast vel með öllu, t.d. kannaði ég
áður en ég fór frá Bodö allar
ísspár sem giitu fyrir svæðið
millí Islands og Noregs. Að
sigla svona skútu, er svipað öðr-
um störfum, sem maður þarf að
vinna, maður þarf að læra það
eins og annað,“ sagði Czuday.
Czuday sagði að óákveðið
væri hve lengi hann yrði i
Siglufirði, en hann væri ákveð-
inn í að sigla þaðan til Þýzka-
lands í vetur, enda byðu hans
þar störf. Meðal annars væri
hann að semja bók og fengist að
auki við kvikmyndagerð.
Áður en Czuday sigldi til Is-
lands hafði hann farið á skút-
unni sinni austur með norður-
strönd Rússlands, ailt til
Framhald af hls. 40
gerðar ríkisins var greiöfært í
Borgarfjörð og Dali um Heydal. Á
Svínadal og i Gilsfirði var færð
hins vegar mjög að þyngjast. Hið
sama var að segja um færð i Vest-
ur-Barðastrandarsýslu, en þar
voru þó vöruflutningabifreiðar að
reyna að brjótast til Patreksfjarð-
ar, en talið var óvist, hvort þær
kæmust leiðar sinnar. Rafnseyr-
arheiði, Breiðdalsheiði, Botns-
heiði og Þorskafjarðarheiði voru
allar ófærar í gær.
Versta veður var á Holtavörðu-
heiði í fyrrinótt og i gær og var
ekki hægt að moka snjó af vegin-
um þar. Skömmu fyrir hádegi var
bílalest fylgt norður yfir heiðina,
Framhald á bls. 22.
Ekið á telpu
í Njarðvíkum
UMFERÐARSLYS varð á Reykja-
nesbraut í Narðvíkum síðdegis i
gær, er bifreið, sem var á leið
suður, ók á 11 ára gamla telpu.
Hlaut telpan slæmt fótbrot og
fleiri skrámur og var flutt í Borg-
arspítalann i Reykjavík. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar í Keflavík mun telpan ekki
vera í lífshættu.