Morgunblaðið - 11.12.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.12.1977, Blaðsíða 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1977 Efst er Helga Níelsdóttir. meó dótturdætrum sínum. Þá Helga í Ijósmóðurbúningnum 1929. Á neðri mvndunum eru Helga og Kristinn Helgason ökukennari og í byggingu fæðingarheimilið á Eiríksgötu, sem Helga reisti af eigin rammleik. Endurminnmgar Helgu Nielsdóttur komnar út ENDURMINNINGAR Heigu Ní- elsdóttur Ijósmóður eru komnar út hjá Almenna bókafélaginu undir nafninu „Þegar harn fæð- ist". Helga Níelsdóttir er þjóð- kunn f.vrir Ijósmóðurstörf sín og margvísleg félagsmál í tengslum við fæðingarhjáip og 1 þágu kvenna. allt frá því hún hóf þau 1930. Mörg sfðustu ár. eða fram til 1976 sá hún um heimilishjálp- ina í Reykjavík. Gylfi Gröndal hefur skráð endurminningar Helgu, þar sem hún segir frá benskuárunum í Eyjafirði og fólki þau, frá náms- ferli hennar, m.a. i Kaupmanna- höfn, og ævistarfi hennar í Reykjavík. Helga hefur tekið á móti 3800 börnum um dagana. Tvö stórhýsi hefur hýn reist í Reykjavík. Ann- að er við Eiríksgötu, þar sem Fæð- ingarheimili Reykjavíkurborgar er til húsa, en þar rak Helga í fyrstu fæðingarheimili í 7 ár. I ljósmóðurstarfinu í höfuðborg- inni fór Helga hús úr húsi og kynntist þá vel heimilum fóiks, m.a. á tímum kreppu og hernáms. Frá þessu. segir hún hispurslaust í endurminningum sínum. Títill bókarinnar er tekinn úr ummæl- um Helgu:" Þegar barn fæðist ríkir gleði meðal viðstaddra. Ég hefi verið svo lánsöm að geta glaðsl yfir lífsundrinu aftur og aftur." Bókin er 216 bls. að stærð með nafnaskrá og nær 30 myndum. Hún er prentuð í Odda, bundin í Sveinabókabandinu og bókarkápa er gerð í Grafik og hönnun. t Arleg jóla- pappírssala NJARÐAR að hefjast HIN árlega jólapappíra- sala Lionsklúbbsins Njarð- ar hefst nú um helgina. Hún fer fram með þeim hætti að gengið verður í hús jafnframt því sem sala fer fram í miðhænum og víðar. Þar sem þetta er eina fjáröflunarleið þeirra félaga þá vonast Njarðar- menn til þess að Revkvík- ingar taki þeim vel sem endra nær. Njörður hefur á undan- förnum árum lagt áherzlu á aö bæta og auka viö tækjabúnaó háls-, nef- og eyrnardeildar Borgar- spítalans, og er skemmst aó minnast, er klúbburinn færöi deildinni aö gjöf heyrnarmælingarbúnað, sem er hinn eini sinnar tegundar hér á landi. Þá hefur klúbburinn styrkt Flugbjörgunarsveitina til kaupa á bílum. Mun Njörður starfa áfram að hliðstæðum verk- efnum og er nú þörf á styrk og aðstoð borgarbúa og annrra, segir að lokum í fréttatilkynningu frá klúbbnum. Félag í Nirði við undir- húning jólapappírsölunnar. Sumargjöf' tekin við rekstri Völuskríns SÍÐASTLIÐIÐ sumar festi Barnavinafélagið Sumargjöf kaup á verzluninni Völuskrín, sem hefur sérhæft sig í verzlun með sérstaklega valin leikföng fyrir börn. Forstöðumaður verzlunarinnar er Margrét Páls- dóttir fóstra, og sér hún um inn- kaup og innflutning og er til ráðuneytis í verzluninni. Með rekstri þessarar verzlunar vill Sumargjöf stuðla að því, að börn landsins fái í hendurnar góð leikföng, leikföng sem þjóna upp- eldislegum tilgangi og örva börn- in til hollra leikja. ■ Raunsönn og hrífandi bók sem lýsir baráttu hollenskrar fjölskyldu við grimmd og miskunnarleysi þýska innrásariiðsins. Hún hætti öryggi sínu við að hjálpa ofsóttum gyðingum og verður að gjalda þess með fangabúðavist. Þar stendur hún ennþá í fylkingar- brjósti fyrir þá ofsóttu og ber trú sinni vitni með fádæma hugrekki og dirfsku. FYLGSNIÐ hefur hvarvetna hlotið mikla eftirtekt og lof, (er t.d. metsölubók í Banda- ríkjunum í fyrra (yfir 6 millj. eintök). Kvikmynd eftir bók- inni hefur verið gerð og mun væntanlega koma til sýninga hér á landi. Fylgsnið er 277 blaðsíður og kostar kr. 3.864.- Leikbrúðu- land komið úr leikferð til Luxem- borgar LEIKBRÚÐULAND sýndi brúðuleikritið ,,Jóla- sveinar einn og átta“ í Luxemborg s.l. sunnudag fyrir íslendingafélagið þar. Var aðsókn mjög góð og sýningunni ágætlega tekið. Nú hefjast sýningar á verkinu á ný í Reykjavík að Fríkirkjuvegi 11. Sýningar veröa á morgun, : sunnudag, og aftur sunnudaginn 18. desember. Þá verður einnig sýning fyrir sendiráöin og þá sem hafa áhuga laugardaginn 17. desember á enskri tungu. Þetta eru þriðju jóiin sem Leikbrúöu- land sýnir verkið, auk þess hefur j það tvívegis verið sýnt í Chieago 1975 og 1976. Höfundur verksins er Jón Hjartarson og hefur hann einnig séð um leikstjórn. Tónlist annast þeir Siguróli .Geirsson og Freyr Sigurjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.