Morgunblaðið - 11.12.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.12.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1977 53 Hannes Pétursson Kvæðasafn 1951 -1976 Ljóð Hannesar Péturssonar frá 25 ára skáldferli. Myndskreytingar eftir Jóhannes Geir listmálara. Öll Ijóð eins okkar mesta skálds aðgengileg í veglegri og vandaðri heildarútgáfu, sem skipa mun öndvegi á sérhverju menningarheimili. Vésteinn Lúðvíksson Stalín er ekki hér Leikrit Vésteins er nú sýnt á sviði Þjóðleikhússins og hefur hlotið ein- róma lof gagnrýnenda. Allir unnendur íslenskra bókmennta fylgjast vel með sérhverju verki frá hendi Vésteins, sem tvímælalaust er ein af »vonar- stjörnunum« í hópi ungra höfunda. Gunnar Gunnarsson Jakob og ég Saga manns, sem snýr baki við tryggri tilveru og öruggri framabraut til þess að glotta framan í gamla vini — og verður á að spyrja sjálfan sig: Hvers konar fifl er ég? — »Bókin er bráð- skemmtileg aflestrar«, segir Flosi Ólafsson. Fylgist með þessum unga höfundi.. .JH .. i<mná Jón Espólín og Einar Bjarnason Saga frá Skagfirðingum Viðamikið heimildarrit í árbókar- formi um tiðindi, menn og aldarhátt i Skagafirði 1685 - 1847 og raunar miklu víðar á Norðurlandi. Ber öll sömu höfundareinkenni og Árbækur Espólíns. I. bindi spannar tímann 1685 - 1786 og II. bindi nær fram til ársins 1830. í ritverki þessu segir frá fjölmörgum mönnum og sögulegum atburðum. ALDIRNAR ÖLDIN SAUTJÁNDA ÖLDIN SEM LEIÐ l-ll árln 1601-1700 árin 1801-1900 ÖLDIN ÁTJÁNDA l-ll ÖLDIN OKKAR l-lll árin 1701-1800 árin 1901-1960 Lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum, tvímælalaust vinsælasta ritverk sem út hefur komið á íslensku, jafneftirsótt af konum sem körlum og ungum sem öldnum. AHs 8 bindi, sem spanna tímann frá aldamótum 1600 til ársins 1960. Eignist öll 8 bindin áður en það verður um seinan. FORSETARÁNIÐ Alistair MacLean Forsetaránið Nýja bókin eftir hinn víðkunna met- söluhöfund, 18. bók höfundar, sem þýdd er á íslensku, og segir það sína sögu um vinsældir hans. — »Ugg- vænlega spennandi, ótrúlega hugvits- söm... besta bók MacLean um langt skeið« segir hið kunna blað Sunday Express. loftbbúiA h„____a Hammond Innes Loftbrúin Nýjasta bókin á íslensku eftir þennan margrómaða metsöluhöfund, sem fer á kostum í þessari snjöllu, þrauthugs- uðu og æsispennandi sögu. Spennan hefst strax á fyrstu siðum bókarinnar og nær óvæntu og dramatísku há- marki í tengslum við loftbrúna til Berlínar. David Morrell Angist Fyrir ári kom út bókin í greipum dauðans eftir Morrell, sem seldist upp á örskömmum tíma. Sú bók var ærið spennandi og áhrifamikil, en ekki er þessi síðri, enda ber Morrell nú hæst þeirra höfunda, sem kvatt hafa sér hljóðs á þessu sviði síðustu árin. Hann er raunsær höfundur og í bókum hans er ekkert, sem ekki gæti hafa gerst. Mary Stewart Örlagaríkt sumar Rómantísk og spennandi saga eftir höfund bókarinnar í skjóli nætur. — »Mjög vel gerð saga, þar sem spennu og ást er haglega blandað saman.« — The Observer. — »Afar spennandi saga, sem óumflýjanlega hlýtur að kosta andvökunótt.« The Guardiau.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.