Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 6

Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1977 NOKKRAR LEIDBEININSAR FRÁ FOSTRHFELAfil ÍSLANDS FÓSTRUFÉLAG íslands hefur ákveðið að kynna starf fóstra á næstu mánuðum. Innan félagsins starfa ux þessar mundir ýmsir hópar, þar á meðal einn, sem fjallar um mikilvægi leiksins og gildi góðra leikfanga. Hópurinn telur rétt að senda frá sér leiðbeiningar til fólks um val á góðum leikföngum nú fyrir jólin. Fyrir hver einustu jól er varið stórum fjárfúlg- um til leikfangakaupa. 1 verslunum gætir margra grasa. Þar fást leikföng frá svo að segja öllum heimshornum, bæði góð leikföng og slæm. Það getur verið býsna erfitt að velja rétt. Hæfir leik- fangið aldri barnsins? Er það sterkt? Er það þroskandi? Er það skemmtilegt? Hvetur leikfangið til leikja? Leikur barnið sér með það langtímum saman? Þetta eru allt spurningar sem kaupandinn þarf að kunna skil á. Leikföng mikilvæg Hvers vegna er það svo mikilvægt að barnið eigi góð leikföng? Vegna þess að frá fæðingu til 7 ára aldurs er leikur mikil- vægasti þátturinn í at- höfnum barnsins — allt sem það lærir, lærir það af leik. Leikföng eru verkefni leiksins. Góð leikföng hvetja og veita ánægju í leik. Sagt hefur veið að við þurfum að læra meira á fyrstu 7 árunum en það sem eftir er ævinnar og mestur hluti þessa lær- dóms er fenginn úr leikjum. Hvernig er gott leikfang og hvað hæfir hverjum aldursflokki? Tilgangur þessarar greinar er að leiðbeina væntanlegum kaupendum á leik- föngum, þannig að gefandinn og þiggjand- inn verði báðir ánægðir. Formkassar kosta frá 850 kr. til 2.000 kr. Trélest med braut kostar frá 2.500 kr.—10.000. Tengdir kubbar kosta frá kr. 1.695—3.270. Hvernig ergott leikfang? — Gott leikfang vekur forvitni og áhuga barnsins og heidur athvgli þess vakandi. — Gott leikfang er ekki of fínt til þess að nota það og þoiir að leikið sé með það. — Gott leikfang er hægt að nota á ýmsan hátt. Bangsar kosta frá kr. 2.400. Keilan kostar 850 kr. Veltipétur 'kostar 5.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.