Morgunblaðið - 11.12.1977, Page 32
80
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1977
ÚRVALSBÆKUR
d
Guðmundur G. Hagalín
HAMINGJAN
ER EKKI ALLTAF ÓTUKT
segir Guðmundur Hagalin. í þessari nýju skáldsögu
bætir hann enn við hinn sérstæða persónuleika, sem
hann hefur skapað á nær 60 ára ritferli. Hér er það
lítill Ijótur maður — Markús Móa-Móri. Það er
einmitt Ijótleikinn, sem ræður sköpum — gerir
Markús að miklum manni og hamingjumanni.
Gísli J. Ástþórsson
FÍFA
Skáldsagan Fifa er háðsk nútimasaga.ádeilusaga og
ástarsaga. Hún segir frá Fífu ráðherradóttur, sem
neitar að gerast þátttakandi í framakapphlaupi föður
síns og gerir yfirleitt allt andstætt því, sem faðirinn
hefði kosið
E.L. Doctorow.
RAGTIME
Spennandi saga úr bandarísku þjóðlífi í byrjun
þessarar aldar. Við kynnumst hetjum og úrhrökum,
auðmönnum, sósialískum byltingarseggjum og kyn-
þáttahatri.
Viðurkennd einhver merkasta skáldsaga siðustu ára.
Þýðandi Jóhann S. Hannesson.
Guðmundur Danielsson
VESTANGÚLPUR GARRÓ
Aðdáendum vel skrifaðra sakamálasagna býðst nú
mikill fengur. I skáldsögunni Vestangúlpur Garró
skröltum við eftir gamla Keflavíkurveginum að
næturþeli i fornfálegum vörubil. Á pallinurn eru
likkistur. Um innihald þeirra vitum við ekkert.
Gréta Sigfúsdóttir
SÓL RÍS í VESTRI
Norður er nú upp eftir, suður niðureftir, austur er til
hægri og vestur er til vinstri — eða öfugt. Svo er
jafnvel komið að sól ris i vestri. Þannig lýsir Gréta
siðgæðisvitund okkar. Hún sýnir okkur stéttamis- •
mun, vafasama viðskiptahætti, pólitiskan loddaraleik
og siðspillingu.
Jóhann S. Hannesson
FERILORÐ
Höfundur Ferilorða, Jóhann S. Hannesson, mennta-
skólakennari er ekki margra bóka skáld, en Ijóð hans
eru þeim mun haganlegar gjörð Ljóðin í þessari bók
eru ort á 20 ára tímabili (1956—1975).
Hamii
ekkiall
• SKALDSÁ3A
m er
íótulct
/ PLÚPP í
fer tíl borgarinnar
GUÐMUNÐUR GISLASON HflGALtN
m
fltsu j tórwísssoN
Kéri Tryggvason
[BORNINOGl
HEIMURINN |
ÞEIRRA1
I
:
'
Gylfi Groiulal
Þegar bam fæðist
Kndttrminnin>íar
lleltín M Nit-lsdóttur IjiMður
SÓL RÍS
ÍVESTRI
Gréta Sigfúsdóttir
GYLR ÞGlSLASON
Jafnaóar
stefnan
á>
Inga Borg
PLÚPP FER
TIL BORGARINNAR
Önnur bókin eftir sænska barnabókahöfundinn Ingu
Borg. Bráðskemmtileg ævintýri í máli og myndum
um sænska huldusveininn Plúpp og ævintýri hans í
stórborginni.
Þýðandi Jóhannes Halldórsson.
Sir Andrew Gilchrist
ÞORSKASTRÍÐ
OG HVERNIG Á AÐ TAPA ÞEIM
Hvers konar starfsemi fer fram innan veggja erlendra
sendiráða í Reykjavík og hvert er hlutverk sendiherr-
anna? Lesið berorða lýsingu Sir Andrews Gilchrists
fyrrum sendiherra Breta á íslandi á samskiptum hans
við forystumenn þjóðarinnar á dögum þorskastríðs-
ins mikla 1 958 — 1 960.
Kári Tryggvason
BÖRNIN OG
HEIMURINN ÞEIRRA
er úrval úr ýmsum barnabókum Kára Tryggvasonar
og að hluta smásögur, sem ekki hafa birzt áður. Efnið
er valið af höfundi sjálfum.
Gylfi Gröndal
ÞEGAR BARN FÆÐIST
Endurminningar Helgu Níelsdóttur Ijósmóður. Helga
þorir að standa á eigin fótum í þjóðfélagi þar sem
karlmenn ráða ríkjum. Hún hefur meðal margs
annars tekið á móti 3800 börnum um dagana. Helga
segir hér hispurslaust frá því sem fyrir hana hefur
borið
Gylfi Þ. Gíslason
JAFNAÐARSTEFNAN
Hvað vilja jafnaðarmenn (sósialdemókratar)? Hver er
hinn fræðilegi grundvöllur stefnu þeirra? Hvaða
hugsjónir liggja að baki aðgerðum þeirra, þar sem
þeir eru eða hafa verið við völd? Slikum spurningum
og fjölmörgum öðrum svarar bókin Jafnaðarstefnan.
Jónas Rafnar
EYFIRZKAR SAGNIR
Skrásettar af Jónasi Ragnar yfirlækni fjalla um
drauga og mennska menn i Eyjafirði, um siðustu
aldamót. Þessar sögur glitra af kímni og fyndni auk
þess sem þær varðveita merkilegar þjóðháttalýsing-
ar.
A Almenna bókafélagið, A>
(JU Austurstræti 18, BolholtL VsD
sími 19707
Bolholti,
sími 32620