Morgunblaðið - 06.01.1978, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
4. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 6. JANUAR 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Evrópa aldrei
aftur í hættu”
— segir Carter í Normandí
Farís, 5. janúar. AP, Reuter.
CARTER forseti Banda-
ríkjanna og Giscard
d’Estaing Frakklandsfor-
seti áttu í dag með sér
viðræður og snerust þær
einkum um viðræður stðr-
veldanna um takmörkun
vígbúnaðar (SALT-
viðræðurnar), friðarhorf-
ur í Miðausturlöndum og
málefni Afríku. Carter
fullvissaði Giscard um að
Bandaríkin mundu í
SALT-viðræðunum gæta
varnarhagsmuna V-
Evrópu eins og sinna eigin
og gæta þess að í samning-
um sem þær kynnu að
leiða til væru ákvæði til að
tryggja framkvæmd sam-
komulagsins.
Forsetarnir ræddust vió í járn-
brautarlest á leið þeirra til París-
ar frá ströndum Normandí en
þangað héldu þeir í morgun til að
minnast innrásar bandamanna 6.
júní 1944 sem leiddi til loka
heimsstyrjaldarinnar síðari. For-
setarnir lögðu báðir blómsveig að
Framhald á bls. 18
Ankara, 5. janúar. AP, Reuter.
BULENT Ecevit tók í dag
við embætti forsætisráð-
herra Tyrklands og lagði
fram ráðherralista sinn. I
ríkisstjórninni sitja 35 ráð-
herrar, flestir úr jafnaðar-
mannaflokki Ecevits.
Stjórnin hét því í dag að
koma á ró í landinu og
ar aðgerðir í efnahagsmál-
um. Þetta er í þriðja sinn
sem Ecevit verður for-
sætisráðherra, en hann
gegndi því embætti í átta
Brezhnev
aftur á ferli
IVIoskvu, 5. janúar. Reuter. AP.
BREZHNEV forseti Sovétríkj-
anna sást í dag á ferli opinber-
lega í fyrsta sinn í langan tíma
og leit út fyrir að vera þreyttur
og veiklulegur. Spruttu þegar
upp nýjar sögusagnir um
heilsufar Brezhnevs eftir að
hann sást í dag í sjónvarpi
veita nokkrum æðstu mönnum
Sovétríkjanna heiðursmerki.
Brezhnev sem nú er 71 árs sást
síðast opinberlega 7. desember
en hefur í miilitíðinni frestað
ýmsum mikilvægum fundum
og ræðuhöldum. Af opinberri
hálfu var í dag sagt í IVIoskvu
að hann hefði átt við innflú-
ensu að stríða undanfarið en
væri annars alheill.
Ný stjórn í Tyrklandi:
„Kýpurmálid
hefur forgang”
— segir Ecevit forsætisrádherra
samstöðu um nauðsynleg-
Carter Bandarfkjaforseti og Valery Giscard d’Estaing forseti Frakk-
lands veifa til mannfjöldans sem kom og fagnaði þeim er þeir gengu
eftir Champs Elysées breiðgötunni f París í fyrradag. 1 baksýn er
franski sigurboginn. (Símamymi ai>)
Dollarinn
styrkist
vegna rád-
stafana
stjórnar-
innar
London. Frankfurt, Ncw York.
5. janúar. AP. Rcuter.
BANDARlKJADOLLAR hækk-
aði í dag í verði á alþjóðagjald-
eyrismörkuðum þegar áhrifa
mikilla kaupa bandaríska seðla-
bankans á gjaldmiðlinum tók að
gæta. Bandarísk stjórnvöld
ákváðu í gær að grípa til ráðstaf-
ana til að styrkja dollarann og
voru dollarakaupin f d:g ein
þeirra. Dollarinn hækkaði gagn-
vart svissneska frankanum úr
1,9375 frönkum á miðvikudag í
2,035 franka, gagnvart þýzka
markinu úr 2,073 í 2,1515 mörk og
gagnvart franska frankanum úr
4,62 í 4,75 franka. Brezka pundið
lækkaði úr 1,996 dollurum eins og
það var hæst á miðvikudag í
1,8825 dollara.
Viðskiptaaðilar á gjaldeyris-
mörkuðunum tóku yfirleitt vel
ráðstöfunum Bandaríkjastjórnar,
en minnkandi verðgildi dollarans
undanfarnar vikur hefur komið
sér illa fyi'ir þau lönd sem flytja
út vörur til Bandaríkjanna og
sum fyrirtæki hafa orðið rnjög
hart úti.
Suntir þeirra sem verzla með
Framhald á bls. 18
Lítið ber í milli
okkar og ísraels
Ecevit
mánuði áriö 1974 og í
nokkra daga á sl. sumri.
Búizt er við því að hann
muni fara fram á trausts-
yfirlýsingu'í þinginu inn-
an 10 daga og er talið víst
að slík yfirlýsing verði
samþykkt.
Hin nýja stjórn Tyrklands hef-
ur aðeins tveggja atkvæða meiri-
hluta á tyrkneska þinginu, en
flokkur Ecevits vantar aðeins 12
Framhald á bls. 18
— segir Sadat í sjónvarpsviðtali
Kairó. Ncw York, Tcl Aviv,
5. janúar. AP. Rcutcr.
SADAT Egyptalandsfor-
seti sagði í dag í viðtali við
bandaríska fréttastofu að
nokkur árangur hefði
náðst í viðræðum hans og
Carters Bandaríkjaforseta,
en ekki vrði skýrt frá smá-
Andersen tómhentur
heim frá Teheran
Tehoran. 5. júnl. AP.
DANSKI utanríkisráðherrann,
K.B. Andersen. hélt í dag frá tran
áleiðis til Kaupmannahafnar
Taka Víetnamar
Phnom Penh?
Bangkok, 5. janúar. AP.
VÍETNAMSKAR hersveit-
ir hafa ráðizt langt inn; í
Kambódíu og eru nú
hugsanlega í aðeins 55
kílómetra fjarlægð frá
höfuðborginni, Phnom
Penh, að því er áreiðanleg-
ar heimildir í leyniþjón-
ustunni í Thailandi
hermdu í dag. Heimildar-
mennirnir sögðu að Víet-
namar hefðu sótt fram á
tveimur stöðum, annars
vegar í átt til þorpsins
Neak Luong á bökkum
Mekong-árinnar og hins
vegar á láglendi austur af
Phnom Penh. A báðum
stöðum hefðu varnir
Kambódíumanna verið
gjörsamlega brotnar a bak
aftur.
Sagt er einnig að
víetnamska herliðið, sem
nýtur stuðnings skrið-
dreka og sprengjuflugvéla,
geti hvenær sem er tekið
Phnom Penh, en hafi fyrir-
Framhald á bls. 18
eftir að hafa árangurslaust reynt
að fá stjórn Irans til að aflétta
viðskiptabanni því sem sett var á
Dani vegna þess að trönum þóttu
Danir taka of vægt á stúdentum
sem hertóku sendiráð Irans í
Kaupmannahöfn fyrir nokkru.
Andersen ræddi við Iranskeis-
ara, forsætisráðherra landsins og
utanríkisráðherra, en Amouzegar
Framhald á bls. 18
atriðum viðræðna þeirra
f.vrr en 15. janúar. Þann
dag eiga utanríkisráðherr-
ar Israels og Egyptalands
að hittast í Jerusalem. Sad-
at sagðist telja að Egypta-
land, Bandaríkin og ísrael
væru mjög nálægt því að
ná samkomulagi um mál-
Framhald á bls. 18
K.B. Andersen
Morðingja
Hamani
ákaft leitað
Lmidon, 5. jan. AP. Rculcr.
BREZKA lögreglan leitar nú
ákaft að morðingja Said Hamani,
fulltrúa frelsissamtaka Palestinu,
PLO, en hann var myrtur f gær á
skrifstofu sinni af manni sem
mælt hafði sér möt við hann þar.
Lögreglan segir að morðinginn sé
Arabi og gangi undir nafninu
Adel. Hann hafi koinið í skrif-
stofu Hamani og tekið í hönd
hans áður en hann skaut hann til
bana.
Fulltrúar PLO-hreyfingarinnar
komu í dag til London til að
sækja lík Hamani, en fréttastofa
hre.vfingarinnar hefur sakað
Bandaríkjastjórn um að bera
ábyrgð á morðinu. Vörður við
sendiráð Arabaríkjanna i London
hefur nú mjög verið hertur, en
Hamani er sjötti Arabinn sem er
drcpinn á stuttum tíma í London.