Morgunblaðið - 06.01.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANUAR 1978
15
Barbra Streisand
Robert Redford
Streisand
og Redford
vinsaelust
Los Angeles. 5. jan. Reuter.
ROBERT Redford og Barbra
Streisand voru f gær kosin vin-
sælustu leikarar ársins 1977 og
er þetta í þriðja sinn, sem
bæði hljóta þennan titil. Kosn-
ingin fór fram á grundvelli
könnunar, sem gerð var af er-
lendum fréttastofum.
Redford var kosinn vinsæl-
asti karlleikarinn annað árið í
röð. Hann var einnig kosinn
árið 1974. Streisand var kosin
árin 1970 og 1974.
Könnunin fór fram 1 sextíu
löndum á vegum Reuters-
fréttastofunnar. Kvikmynda-
leikararnir fá styttur í verð-
Iaun vió formlega athöfn 28.
janúar n.k.
Vörður efld-
ur við sendi-
ráð í London
London 5. jan. Reuter
ARABtSKIR og ísraelskir
diplómatar í London hafa
fengið aukna lögreglu-
vernd eftir morðið á aðal-
fulltrúa Frelsissamtaka
Palestínu (PLO) í London
í gær. Tilræðismaðurinn er
talinn vera ættaður frá
Miðausturlöndum að áliti
brezkra yfirvalda en eng-
inn hefur verið handtek-
inn grunaður um aðild að
morðinu.
Fljótlega eftir morðið var tekið
upp sérstakt eftirlit með farþeg-
um flugvéla, sem fljúga til Mið-
austurlanda á Heatrow-flugvelli.
Sérþjálfaðir verðir hafa tekið sér
stöðu við israelska sendiráðið,
sendiráð og ræðismannsskrifstof-
ur Arabaríkja og skrifstofur
ísraelskra og arabískra flugfélaga
og ferðaskrifstofa.
Jafnframt stendur yfir rann-
sókn á dauða tveggja starfsmanna
sýrlenzka sendiráðsins og . á
sprengingunni i bíl þeirra. Yfir-
völd segja að enn sé ekki sannað
að nokkurt samband sé é milli
þessara mála. Sendiráð Iraks vis-
ar á bug þeirri frétt að komin sé
til London sveit atvinnumorð-
ingja, sem hafi verið þjálfaðir í
Irak .og fengið það verkefni að
myrða kunna Araba, sem styðja
friðarumleitanir Egypta.
10 ár frá valdatöku Dubceks:
Þjáðist af mikilmennsku-
br jálæði — segir Rude Pravo
Prag 5. janúar AP.
MALGAGN tekkóslóvak-
íska kommúnistaflokksins,
Rude Pravo, birti í dag
leiðara í tilefni þess að 10
ár eru liðin frá því að Alex-
ander Dubcek var kjörinn
formaður kommúnista-
flokks landsins og byrjaði
þar með „Pragvorið“. t
leiðaranum er ráðizt
harkalega á Dubcek, sem
steypt var af stóli með inn-
rás sovézka hersins og Var-
sjárbandalagsríkjanna í
landið 21. ágúst 1968, þótt
honum væri ekki endan-
lega varpað út í kuldann
fyrr en í apríl árið eftir.
Sagt er að Dubcek hafi
þjáðst af mikilmennsku-
brjálæði og að hann hafi
svikið málstað hinna vinn-
andi stétta og kommúnista-
rfkisins.
Segir blaðið að Dubcek hafi orð-
ið fyrir þrýstingi frá hægri, sem
hann hafi algerlega látið undan
og traðkað niður allt það, sem
hann hefði áður unnið að. Hann
hefði afvegaleitt þúsundir heiðar-
legra manna, sem trúað hefðu á
hann og sem hann hefði valdið
miklum vonbrigðum. Sú hætta,
sem sósíalisma í landinu hafi staf-
að af gerðum Dubceks, hafi einn-
ig steðjað að öðrum sósíalistaríkj-
um svo og einingu og stöðugleika
í hinum kommúnistiska heimi.
Því hafi verið nauðsynlegt að
grípa til aðgerða til að bægja þess-
ari hættu frá og koma i veg fyrir
að innlendir og erlendir endur-
Alexander Dubcek
skoðunarsinnar næðu að hrinda
áætlunum sínum í framkvæmd.
Segir blaðið að lokum: „Þetta
skildu kommúnistar og það fólk í
landinu, sem hélt tryggð við hug-
sjónir kommúnismans og sem
sneri sér til bandamanna okkar
og vina með hjálparbeiðni."
Bankastræti 14, Sími 25580