Morgunblaðið - 11.01.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.01.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR 8. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Víetnam — Kambódía: Minni háttar átök á landamærunum Bangkok. 10. janúar. AP. Reutor. LÍTIÐ VAR barizt 4á landamærum Víetnams og Kambodíu í dag, en þó urðu átök á nokkrum stöðum, að því er haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Bangkok. Víetnamar gerðu sig ekki líklega til að halda yfir Mekong-fljót, að því er sömu heimildir herma, en það bendir til þess að þeir hyggi ekki á töku Phnom Penh í bráðina. Víetnamska liðið heldur sig að mestu á „Páfa- gauksnefinu“, í námunda við helztu borg þar um slóðir, Svay Rieng, sem er miðja vegu milli Phnom Penh og Ho Chi Minh-borg, áður Saigon. Deiluaðilar skiptast á harð- vítugum orðsendingum, sem að vanda stangast mjög á, en flestum ber þó saman um að Víetnamar hafi mun betur í átökunum, enda hafa þeir á að skipa margfalt fjöl- mennara liði, auk þess sem vopna- búnaður þeirra er mun fullkomn- ari en Kambódíuhers. Víetnamar Napalm í Erítreu? Kafró. 10. jan. Reuler. AP. TALSMAÐUR Frelsishreyfingar Erftreu sagði f dag, að undan- farna þrjá daga hafi herþotur stjðrnarhersins f Eþfðpfu dreift napalm-eitri yfir sex þorp f Erí- treu, með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa látið Iffið. t nafni samtaka sinna, ELF-PLF, skoraði talsmaðurinn á Sam- einuðu þjóðirnar að taka til sinna ráð til að stöðva þessi f jöldamorð á saklausum borgurum. í yfirlýsingu ELF-PLF í dag sagði, að sovézkar MIG- orrustuþotur undir stjórn kúbanskra flugmanna hefðu gert napalm-árásirnar. hafa yfir að ráða miklu vopna- búri, — og eru hergögnin ýmist sovézk vopn, eða hergögn, sem tekin voru herfangi af Banda- ríkjamönnum í lok styrjaldarinn- ar i Víetnam. Stjórnmálaskýrendur eru al- mennt á einu máli um að verulegt mannfall hafi orðið í Kambódíu- her síðan átökin á iandamærun- um hófust, og hafi Rauðu khmer- arnir þess vegna tekið upp nýja baráttuaðferð. Muni þeir á næst- unni ekki láta skerast í odda á „Páfagauksnefinu", heldur snúa sér að skæruhernaði úr norðri og suðri f staðinn, í því skyni að flæma Víetnama á brott. Kambódíu-stjórn sendi frá sér orðsendingu í dag þar sem fullyrt er að „nokkur þúsund“ manna hafi fallið í bardögum i norð- austurhluta landsins i innrás Víetnama, og hafi átökin staðið um þjóðveg, sem liggur í áttina að Phnom Penh. Hafi fjöldi óbreyttra borgara fallið í þessum átökum og mikið hafi verið um rán og gripdeildir, en um leið er þvi haldið fram að Kambódíuher gangi ötullega fram f því að hrekja innrásarliðið á brott. Þá halda Kambódíumenn því fram Framhald á bls. 18 Varaforsætisráðherra Vfetnams, Nguyen Duy Trinh, sem jafnframt er utanríkisráðherra, er í Thailandi um þessar mundir til viðræðna við ráðamenn um bætt samskipti rfkjanna. Ráðherrann hitti meðal ann- arra að máli sovézka sendiherrann, og er fullvíst tálið að viðræður þeirra hafi einkum snúizt um átökin á landamærum Vfetnams og Kambódfu. Hér ræðir Trinh við sendiherrann, Boris Iiyichev. (Ai’- símamynd). Vara við langvarandi notkun ró- andi lyfja Washington, 10. janúar. AP. MATVÆLA- og lyfjastjórnin, FDA, byrjaði herferð á mánu- dag til að vekja athygii lækna á þvf að engar sannanir séu fyrir þvf að valfum, librium og önnur róandi lyf séu árangurs- rfk til lækninga þegar þeirra er neytt að staðaldri. Stjórnin sagði að ef læknar gæfu lyfseðil upp á róandi lyf til neyzlu til lengri tfma en fjóra mánuði þá ættu þeir að endurmeta þörf sjúklingsins á lyfinu með jöfnu millibili. Ráðgjafarnefnd FDA komst að þeirri niðurstöðu að lang- varandi notkun lyfjanna væri óviturleg, ef ekki væri á sama tfma með öðrum leiðum reynt að finna orsakirnar fyrir veikl- un sjúklingsins. Nefndin sagði að ekki væri sannað að valfum, lfbrfum og önnur róandi lyf færðu nokkra lækningu ef Framhald á bls. 18 Kaírófundurinn: Prófsteinn á friðar- vilja ísraelsmanna? Kafró, 10. janúar. AP. Reuter FUNDUR ísraelskra og egypzkra hershöfðingja, sem hefst í Kaíró á morg- un, verður prófsteinninn á Bretar óttast flota Spánverja og Portúgala á EBE-miðum Lundúnum, 10. janúar AP BRETAR hafa varað aðrar fiskveiðiþjóðir í Efnahags- bandalagi Evrópu við þvf að aðild Spánar og Portú- gals að bandalaginu við óbreyttar aðstæður í fisk- veiðimálum kunni á næstu árum að hafa lamandi áhrif á útgerð þeirra fisk- veiðiþjóða, sem fyrir eru í bandalaginu. Bent er á að sameiginlegur floti togara, sem eru yfir 100 tonn að stærð, í eigu Spánverja og Portúgala, sé yfir 710 þús- und tonn, en fiskveiðiþjóð- ir innan bandalagsins hafi samanlagt aðeins á að skipa 842 þúsund tonna flota fiskiskipa af sömu stærð- Formaður stofnunar þeirrar í Bretlandi, sem hefur með höndum stjórn- un fiskveiða á grunnmið- um, Charles Meek, sagði á fundi með blaðamönnum í dag, að fiskimiðum EBE yrði bráð hætta búin þegar og ef Spánverjar og Portú- galar fengju aðgang að þeim, um leið og hann lét í ljós efasemdir um að Efna- hagsbandalagið hefði gefið þessari hlið málsins nægi- legan gaum með tilliti til þess að um þessar mundir sigldu Spánverjar, Portúgalar og Grikkir hraðbyri inn í bandalagið. raunverulegan friðarvilja tsraelsmanna, að því er haft var eftir áreiðanleg- um heimildum í Kaíró í dag, en yfirlýsingar Isra- elsstjórnar undanfarna daga hafa valdið egypzkum ráðamönnum sívaxandi áhyggjum. Telja Egyptar að afstaða fsraelsku full- trúanna á fundinum á morgun muni skera úr um það hvort Menachem Beg- in hafi raunverulega verið alvara með yfirlýsingum sínum um að ísraelskir landnemar yrðu áfram á hernumdu svæðunum, sem A-Berlín: Der Spiegel úthýst Berlfn. 10. jan. AP. AUSTUR-þýzka stjórnin lokaði f dag skrifstofu fréttaritara v- þýzka fréttablaðsins Der Spieg- el, f Austur-Berlín og er ástæð- an sú að blaðið hefur f tveimur sfðustu tölublöðum sínum birt opið bréf frá a-þýzkum andófs- mönnum. Der Spiegel segir að skjalið sé komið frá áhrifa- mönnum innan a-þýzka kommúnistaflokksins, sumum hverjum mjög hátt settum, sem myndi fyrstu skipulögðu and- spyrjuhreyfinguna gegn harð- stjórn kommúnista f íandinu. Austur-þýzk stjórnvöld bera Der Spiegel og erindrekum v- þýzku stjórnarinnar á brýn að hafa falsað skjalið, en þar er borin fram harðorð gagnrýni á stjórnarhætti kommúnista og sovézka ihlutun i innanrikismál A-Þýzkalands, og því meðal annars haldið fram að fámenn klika sem i rauninni sé allsráð- andi, sé gjörspillt. Enginn var í skrifstofu Der Spiegel þegar a-þýzka lögreglan kom og lokaði henni f dag, og ritstjórn blaðsins barst tilkynn- ing um þá framkvæmd um fjar- rita. 1 orðsendingunni sagði m.a.: „Á undanförnum mánuð- um hefur timarit yðar farið með illgirnislegt slúður um Al- þýðulýðveldið Þýzkaland og bandamenn þess í sívaxandi mæli og af yfirlögðu ráði reynt að eitra samskipti [við V- Þýzkaland] með tilbúnum fréttum og frásögnum“. í orðsendingunni var Der Spiegel ásamt v-þýzku leyni- þjónustunni, sakað um að hafa falsað umrætt skjal og þannig brotið reglur um starfshætti erlendra fjölmiðla og frétta- ritara i A-Þýzkalandi. V-þýzka stjórnin hefur for- dæmt lokun skrifstofu Der Spiegel f A-Berlín og telur að hér sé um að ræða alvarlega skerðingu á athafnafrelsi blaðamanna. Sagði talsmaður Bonn-stjórnarinnar ennfremur að þessi ákvörðun a-þýzku stjórnarinnar væri skref aftur á bak i þeim tilraunum að bæta samskipti stjórnanna i Bonn og A-Berlín, enda sé hér tvímæla- laust um að ræða brot á samningi þeirra um að koma á eðlilegri sambúð og tryggja í því skyni blaðamönnum viðun- andi skilyrði til að flytja fréttir á milli Austur- og Vestur- Þýzkalands. ætlunin er að skila aftur í hendur Egypta, eða hvort hann hefur aðeins verið að friða gagnrýnendur sína heima fyrir. Niðurstaða viðræðna hershöfðingj- anna mun, samkvæmt sömu heimildum í Kaíró, ráða úrslitum um afstöðu Egypta í stjórnmálavið- ræðum fulltrúa ríkjanna, sem hefjast 16. þessa mán- aðar. Varnarmálaráðherrar rikjanna hefja viðræðurnar í kvöld, og er ætlunin að þeir snúi sér beint að því að ræða þau atriði, sem hingað til hafa valdið mest- um ágreiningi, þ.e. vandamálum Palestínuaraba, svo og búsetu Israela á Sinaiskaga. Weizman, varnarmálaráðherra Ísraels, hitt- ir Sadat forseta að máli meðan hann stendur við i Kairó, og er talið að þeir muni fyrst og fremst ræða Sianí-málið. Fundahöld til undirbúnings viðræðunum hafa verið mikil, bæði i Kairó og Jerúsalem. Menn velta nú mjög fyrir sér hvort Sinaí-málið verði nýr þröskuldur i friðarviðræðunum, en óstaðfestar Framhald á bls. 18 Soares með flensu Lissabonn, 10. janúar. AP. UTSÉÐ er um að Mario Soares myndi stjórn I dag eða á morgun, eins og búizt hafði verið við, þar eð hann lagðist f rúmið í dag með flensu og háan sótthita. Stjórnar- myndunarviðræðurnar eru þó taldar svo langt á veg komnar, að Soares geti gert Eanes forseta grein fyrir árangrinum strax og hann nær heilsu að nýju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.