Morgunblaðið - 14.01.1978, Síða 1
40 SÍÐUR
11. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dr. Soares á
í erfiðleikum
Lissabon, 13. jan. Reuter.
MARIO Soares forsætisrádherra
sagði í dag að hann hefði lent í
erfiðleikum í tilraunum sínum til
að tryggja nýrri stjðrn traustan
meirihluta og sagði að ástandið
væri „mjög alvarlegt“.
Hann sagði þegar hann hafði
gefið Antonio Kamalho Eanes
forseta skýrslu um tilraunir sínar
til að leysa stjórnarkreppuna að
kommúnistar hefðu neitað að
fallast á samkomulag sem mundi
treysta nýja stjðrn í sessi og gert
nýjar kröfur sem jafnaðarmenn
gætu ekki gengið að.
Soares kvaðst ætla að íhuga
ástandið og hafa samráð við flokk
sinn áður en hann gengi aftur á
fund Eanesar forseta annað kvöld
til að tilkynna honum hvort hann
teldi að hann gæti haldið tilraun-
um sínum áfram.
Dr. Soares hefur orðið mest
ágengt í viðræðum við CDS,
Framhald á bls. 28.
Sómalir fúsir
til viðræðna
London, 13. janúar. Reuter.
MOHAMED Siad Barre, forseti
Sðmalfu, hefur skorað á Afríku-
ríki að miðla málum í því skyni
að binda enda á stríðið við
Víetnamar
vilja friðar
viðræður
París, 13. janúar. Reuter.
VfETNAMAR hvöttu í dag til
friðsamlegrar lausnar á landa-
mæradeilunni við Kambðdíu-
menn og hvöttu vinveitt ríki
um allan heim til þess að
stuðla að viðræðum milli
deiluaðila.
Sendiherra Víetnams í
París, Vo Vang Sung, sagði á
blaðamannafundi að stjórnin í
Hanoi væri reiðubúin til við-
ræðna við stjórnina í Phnom
Penh hvenær sem væri og,
hvar sem væri.
Hann vildi ekki halda því
fram að Víetnamar hefðu farið
með sigur af hólmi í landa-
mærastríðinu og sagði að
kambódískar hersveitir væru
enn í suðurhluta Vietnam milli
Hatien og Chau Doc.
„Við verðum kannski að
gera hernaðariegar ráðstafanir
til þess að hrekja þá yfir landa-
mærin,“ sagði hann.
Sendiherrann neitaði að
svara beint þegar hann var að
því spurður hvort víetnamskar
hersveitir væru í Kambódíu.
Aður hafði fyrrverandi
franskur öldungadeildarmað-
ur nýkominn frá Víetnam sagt
blaðamönnum að kambódískir
hermenn hefðu myrt alla 463
íbúa landamæraþorpsins Tan
Lap.
Eþfópíu og segir að stjórn lands-
ins sé fús til viðræðna við
Eþfðpíustjðrn að því er segir f
tilkynningu frá sðmalska sendi-
ráðinu í London í dag.
Þar er haft eftir Barre forseta
að stjórn hans sé fús til viðræðna
ef Eþíópiustjórn sé það einnig. í
gær skoraði Carter forseti á
Sómalíustjórn að hvetja opinber-
lega til viðræðna við Eþíópiu-
menn.
1 ræðu, sem vitnað er i, itrekaði
Barre gagnrýni sína á hernaðar-
aðstoð Rússa og Kúbumanna við
Eþíópíumenn í stríðinu og kvað
hana brjóta í bága við stofnskrá
Einingarsamtaka Afríku og sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóða.
Barre forseti segir það skyldu
heimsins og Afríkuríkja alveg
sérstaklega að binda enda á
hernaðarátökin á austurhorni
Afríku. Hann segir að stjórn sín
sé fús til viðræðna þótt Eþíópiu-
menn hafi gert sig seka um til-
efnislausa árás á Sómalíu.
Ezer Weizman, landvarnaráðherra ísraels, með egypzka stúlku sem hann hitti
þegar hann skoðaði pýramídana í gær. ísraelskir fulltrúar til hægri.
Sadat telur Mðar-
tilrauramar í hættu
Aswan, 13. janúar.
Reuter. AP.
ANWAR Sadat forseti sagði f
Aswan í kvöld að ágreiningur
Egypta og tsraelsmanna um
Palestfnumálið og búsetu Gyð-
inga á herteknum svæðum tsra-
elsmanna stefndi f hættu tilraun-
um til að koma á friði f Mið-
austurlöndum.
Hann minnti á að samkomulag
hefði ekki náðst um þessi ágrein-
ingsefni á fundi hans og
Menachem Begins forsætisráð-
herra f Ismailia f síðasta mánuði
og kvað þennan ágreining sér-
staklega hættulegan þar sem
friðartilraunirnar væru á mikil-
vægu stigi.
Mohammed Gamassi hershöfð-
ingi, hermálaráðherra Egypta,
sagði fyrr f dag að búseta Gyðinga
á Sinai væri enn helzti ásteyting-
arsteinninn f viðræðunum.
Sadat hefur rætt við James
Callaghan, forsætisráðherra
Breta, í Aswan og hann sagði að
þeir hefðu i vissum atriðum náð
Stjórn Andreottis að
því komin að fara frá
samkomulagi um deiluefnin í
Miðausturlöndum. Hann kvaðst
ekki gera ráð fyrir því að Callag-
han gæti miðlað málum í deilum
Egypta og Israelsmanna en hann
gæti stuðlað að þvi að koma skriði
á friðarumleitanirnar þar sem
hann væri vinveittur báðum þjóð-
unum.
Ezer Weizman, landvarnaráð-
herra ísraels, kom f dag til Tel
Aviv frá Kairó og hafði meðferðis
hugmyndir sem Egyptar komu
fram með þar um fram tið Sinai-
skaga. Hann sagði að það sem
næst gerðist yrði á valdi utan-
ríkisráðherra landanna sem koma
saman til fundar í Jerúsalem i
næstu viku. Báðir aðilar sögðu að
Framhald á bls. 28.
Róm, 13. janúar. Reuter
FALL ríkisst jórnar Guilio
Andreottis forsætisráðherra virt-
ist yfirvofandi f dag og kommún-
istar sökuðu Bandaríkjamenn um
afskipti af ítölskum innanlands-
málum.
Lfran varð fyrir miklum þrýst-
ingi og Italfubanki varð að kaupa
sem svarar 50—100 milljónum
dollara til að treysta gengi henn-
ar.
Andreotti forsætisráðherra hef-
ur boðað fundi með þingleiðtog-
um kristilegra demókrata á morg-
un og leiðtogar kommúnista,
sósfalista og Lýðveldisflokksins
munu Ifklega draga til baka
stuðning sinn við 17 mánaða
gamla minnihlutastjórn Andre-
ottis á mánudag.
Krafa V-Þýzkra fangavarða:
Engar einkaviðræður
Stuttgart, 13. jan. Reuter
SAMTÖK fangavarða í Vestur-
Þýzkalandi kröfðust þess í dag
að yfirvöld legðu blátt bann við
því að verjendur hryðjuverka-
manna fengju að ræða við þá f
einrúmi. Þessi krafa kemur í
kjölfar yfirlýsinga um að lög-
fræðingar hryðjuverkafólks
hefðu smyglað byssum þeim,
sem Baader og Raspe réðu sér
bana með f október s.l„ inn í
Stammheim-fangelsið f Stutt-
gart.
Hingað til hafa yfirvöld í V-
Þýzkalandi verið andvíg því að
skerða rétt lögfræðinga til að
ræða við skjólstæðinga sína i
einrúmi og hafa í því sambandi
vfsað til stjórnarskrárákvæða.
Skýrt hefur verið frá þvi að
starfsmaður í skrifstofu lög-
fræðingsins Croissants, sem
Frakkar framseldu nýiega til
V-Þýzkalands, hefði látið í té
upplýsingar um að byssunum
hefði verið smyglað inn í fang-
elsið til Raspes og Baaders s.l.
vor. Samkvæmt vitnisburði
skrifstofumannsins voru
byssurnar faldar í plötuspilara
og milli þilja i fangaklefa þar
til fangarnir gripu til þeirra.
Kristilegir demókratar hafa
neitað að verða við kröfum um
myndum þjóðstjórnar og komm-
únistar svöruðu því í dag með því
að boða baráttu um alla ítaliu til
stuðnings þeirri hugmynd.
Kommúnistamálgagnið L’Unita
kallaði það gróf afskipti af itölsk-
um innanlandsmálum að banda-
riska utanríkisráðuneytið sendi
frá sér í gær yfirlýsingu þess efn-
is að Bandaríkjamenn vildu að
dregið yrði úr áhrifum kommún-
ista hvar sem væri i Vestur-
Evrópu.
Bandariski sendiherrann,
Richard Gardner, sagói þegar
hann kom aftur i dag frá Wash-
ington þar sem hann ræddi við
Carter forseta að yfirlýsingin
hefði skýrt vel afstöðu Banda-
ríkjamanna fyrir þeim sem vildu
hlusta.
I Washington jók bandariska
utanrikisráðuneytið gagnrýni
sina á italska kommúnista í dag
og útfærði hana nánar. Ráðuneyt-
ið sagði í skrifuðu svari við spurn-
ingum að „margar vísbendingar"
Framhald á bls. 28.
Funda
áfram um
fargjöld
Genf, 13. janúar. Reuter.
FULLTRUAR 37 flugfélaga
ákváðu í dag að halda áfram
fundum í Genf um helgina til
þess að reyna að samræma far-
gjöld á flugleiðum yfir Norð-
ur-Atlantshaf.
Talsmaður Alþjóðasamtaka
flugfélaga (IATA) sagði að
fulltrúarnir á fundinum
mundu sennilega ákveða á
morgun hvort grundvöllur
væri fyrir samkomulagi þann-
ig að ástæða væri til að halda
viðræðunum áfram i næstu
viku.
Tilgangur viðræðnanna er
að ná samkomulagi um sam-
eiginleg fargjöld á flugleiðum
milli Bandaríkjanna og borga í
Evrópu annarra en London.
Samkomulag hefur þegar
tekizt um ódýr fargjöld á flug-
leiðinni London-New York til
að keppa við flugfélag Freddie
Lakers.