Morgunblaðið - 17.01.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1978
23
Vinsældir Cart-
ers minnka enn
Washington, 15. jan. AP.
ÁNÆGJA Bandarikja-
manna með frammistöðu
Carters forseta í embætti
fer minnkandi þrátt fyrir
ferð hans yfir hafið, að þvi
er niðurstöður skoðana-
könnunar á vegum AP og
NBC sjónvarpsstöðvarinn-
ar gefa til kynna.
Aðeins 41 % þeirra sem létu álit
sitt i ljós töldu hann hafa staðið
sig mjög vel eða ágætlega. Um
57% töldu hann hafa staðið sig
sæmilega eða illa, en 2% voru
óákveðnir. Þetta hlutfall er það
lægsta sem út hefur komið frá þvi
að Carter tók við embætti fyrir
einu ári. 1 siðustu könnun sem
sömu aðilar stóðu að i nóvember
s.l. voru 43% ánægðir með starf
Carters i forsetastóli, en 54%
óánægðir.
Venjulega hafa ferðir forseta
Bandarikjanna til annarra landa
aukið mjög á vinsældir þeirra, og
var búist við þvi að 9 daga ferð
Carters um áramótin myndi auka
álit fólksins á honum. T.d. eftir
ferð Carters til Englands og Sviss
í mai á siðasta ári, voru það 61% í
skoðanakönnun sem voru ánægð-
ir með starf hans og aðeins 28%
sem lýstu óánægju sinni með ann.
t þessari nýju könnun voru
u.þ.b. 39% þeirra sem spurðir
voru fremur ánægðir með utan-
ríkisstefnu Carters gegn 55 % sem
töldu hana siæma. Er það nokkuð
betri útkoma en i nóvember s.l.
Varðandi hlutverk Carters i
samningaviðræðum um frið í Mið-
Austurlöndum voru nokkuð fleiri
ánægðir með frammistöðu hans
en I nóvember s.I.
Áhöfn Soyuzar 27.
til jarðar í Soyuzi 26.
Þessar m ammútstennur komu nýverið I Ijós er verið var að vinna að framræslu votlendis á
samyrkjubúi á Kirov-svæðinu I Sovétrikjunum. Tennurnar eru úr mammút, sem látist
hefur 50 ára að aldri. Eru þær nú til sýnis á Feodocia-safninu. Forstöðumaður safnsins
sést hér á fundarstaðnum. . _ . .
Mannræningi slapp
— en sneri aftur
Vfn 15. janúar. Reuter.
MAÐUR, grunaður um mannrán,
slapp úr höndum lögreglunnar
með þvf að hoppa út um glugga á
annarri hæð lögreglustöðvarbygg-
ingar f gærnótt, en hringdi stuttu
seinna f lögregluna og bað hana
að sækja sig, að sögn lögreglunn-
ar.
Talsmaður lögreglunnar sagði
að Paul Francsics, 27 ára náms-
maður hefði hlaupjð talsverða
íkveikja
í nætur-
klúbbi
vegalengd þrátt fyrir slæm bein-
brot á fæti og höndum, sem hann
hlaut við stökkið úr 14 metra hæð
út um gluggann.
Innan klukkustundar hringdi
hann i lögregluna og bað um
hjálp, þar sem hann væri illa
meiddur. Franciscs v.ar grunaður
um að hafa rænt eiginkonu
efnaðs kaupsýslumanns i síðasta
mánuði. Hann skýrði frá þvi á
sjúkrahúsinu að hann hygðist
fremja sjálfsmorð fremur en að
þola lengri vist i fangelsi.
Hann var handtekinn ásamt
öðrum manni á fimmtudag, en
þeir hafa báðir viðurkennt á sig
mannránið og nokkur bankarán á
siðasta ári. Lausnargjaldið fyrir
konuna hefur næstum allt komist
til skila.
Moskvu, 16. janúar. AP. Reuter.
SOVÉSKU geimfararnir f Soyuzi
27. lentu f dag heilu og höldnu
eftir að hafa dvalið fimm daga
um borð f Salyut-
geimvfsindastöðinni ásamt tveim-
ur öðrum Sovézkum geimförum.
Lenti farkostur þeirra „mjúkri
lendingu'* á fyrirframákveðnum
stað, 310 kflómetra vestur af borg-
inni Tselinograd f Kazakhstan.
Geimfararnir Dzhanibekov og
Makarov sem héldu I fyrri viku út
i geiminn í Soyus 27. sneru til
jarðar i Soyusi 26.
Á Soyusi 26. héldu þeir
Romanenko og Grechko út I geim-
inn fyrir um 5 vikum en þeir
dvelja áfram í Salyut. Er fyrst-
nefndu geimfararnir tengdu far
Níkótínúðun í
stað vindlinga
Barcelona, Spáni, 15. janúar.
Reuter. AP.
EINN stærsti næturklúbburinn á
Spáni brann næstum til grunna f
dag. Nokkrir menn hafa verið
handteknir, en lögreglan telur að
um fkveikju hafi verið að ræða.
Einn maður lét Iffið og þriggja
er saknað, en þeir voru allir
starfsmenn næturklúbbsins sem
var lokaður er eldurinn braust út.
Vitni að brunanum I Scala-
næturklúbbnum segir að nokkur
ungmenni hafi verið völd að
brunanum og m.a. hefði stúlka
kastað eldsprengju inn um dyr,
sem þau hefðu rifið upp. Lögregl-
an telur að árásin á næturklúbb-
inn geti verið liður í mótmælaað-
gerðum félaga úr hópi Mao-
sinnaðra kommúnista, en þeir
köstuðu eldsprengjum að lög-
reglumönnum og inn i verzlanir i
miðborg Barcelona á sunnudags-
kvöldið.
Rikisútvarpið hefur skýrt frá
þvi, að þangað hafi hringt óþekkt-
ur maður, sem Iýst hafi öfgafull-
an hóp vinstrisinna ábyrgan fyrir
brunanum.
Washíngton, 15. janúar, AP.
TILRAUNIR með að láta reyk-
ingamenn anda að sér nikótfni
úr úðunarbrúsum, benda til
þess, að með þeim hætti megi
venja þá af sigarettureyking-
um, samkvæmt upplýsingum
frá bandarfsku krabbameins-
rannsóknastofnuninni.
Þó að rannsóknirnar séu enn
á frumstigi, eru vísindamenn
vongóðir um að níkótínúðun
reynist skaðlausara en siga-
rettureykingar, sem auk níkó-
tins innihalda mjög skaðlegt
carbon-monoxið, tjöru og aðrar
skaðvænlegar gastegundir.
Fýrstu niðurstöðurnar í þess-
um tilraunum benda til þess að
níkótínþörf viðkomandi geti
með öllu horfið með þessari að-
ferð.
Að sögn dr. Giobatta Gori,
yfirmanns þeirrar deildar
stofnunarinnar sem rannsakar
orsakir krabbameins og varnir
gegn þvi, lofa prófanirnar mjög
góðu. Ætlunin sé ekki sú að
beina ávana reykingamanna
frá sígarettum að neyzlu hreins
nfkótíns, en þó væri það álit
visindamanna að sigaretturnar
væru öllu skaðlegri. Stefnt
væri að þvi að venja menn af
sígarettureykingum og síðan af
neyzlu níkótfns.
Gori sagði jafnframt að af
öllum tilraunum i þá átt að
finna lyf til hjálpar fólki til að
venja sig af reykingum hafi
sitt Salyut voru þrjú geimför i
fyrsta sinn tengd saman í geimn-
um.
Sovétmenn hafa lítið látið uppi
um ferð þessa, en álitið er að hún
sé eitt mikilvægasta skrefið sem
þeir hafa stigið. I þeirri áætlun
sinni að starfrækja mannaða
geimrannsóknastöð i geimnum.
Hugmynd þeirra er að hafa að
jafnaði mannaða visindastöð
starfandi i háloftunum og verður
mannskap „skotið" á milli jarðar
og stöðvar eftir þvi sem henta
þykir.
Dzindzihashvili
vann í Hastings
ISRAELSKI stórmeistarinn
Roman Dzindzihashvili fór með
sigur af hólmi á skákmótinu i
Hastings, sem lauk á laugardag.
Hann tefldi í siðustu viku við
Vlastimil Hort og sömdu þeir
fljótlega um jafntefli, en ung-
verski stórmeistarinn Sax gafst
upp fyrir Nunn eftir 58 leiki, og
varð Sax því jafn Petrosjan að
vinningum, en Petrosjan gerði
jafntefli við Shamkovich í 15
leikja skák. Dzindzihashvili hlaut
nikótínúðun reynst árangurs-
ríkust. Fyrsta tilraunin hafi
verið gerð fyrir 7 mánuðum, er
20 menn buðu sig fram til þátt-
töku. Meirihluti þeirra hefðu
að þremur vikum liðnum hætt
reykingum að fullu. Niðurstöð-
ur sýndu að árangurinn væri
meiri en þau 20% sem væri
mesti árangur sem fengist
hefði úr tilraunum sem gerðar
hafa verið til varnar gegn reyk-
ingum.
10V4 vinning á mótinu, Petrosjan
og Sax 9V4 og Hort varð fjórði með
9 vinninga. Jonathan Mestel náði
árangri sem dugir til stórmeist-
aratitils og er hann fjórði stór-
meistarinn, sem Bretar eignast,
og landi hans Jonathan Speelman
náði alþjóðlegum meistaratitli.
Þeir tveir tefldu saman i síðustu
umferð og þurfti hvor um sig
hálfan vinning til sins titils. Þeir
sömdu um jafntefli eftir 11 leiki.
Næstur Hort að uinningum kom
Mestel með 8V4 vinning, Tarjan
hlaut 8 vinninga, Sveshnikov l'A,
Speelman 7, Nunn og Shamkovich
6V4, Fedrowicz og Webb 5'A, Tid-
sall 41á og Botterill og Kagan ráku
lestina með 3'á vinning hvor.
Önnur úrslit i síðustu umferð-
inn: T:rjan og Fedorowicz gerðu
jafntefli, Webb vann Tisdall,
Kagan vann Sveshnikov i 75 leikj-
um, Botterill sat hjá.
Fótbrotnaði
í leit að
ótrúrri
Milanó, 16. jan. AP.
AFBRÝÐISSAMUR eiginmað-
ur fótbrotnaði er hann reyndi
að siga i bandi niður húsvegg
ibúðablokkar hér i borg. Hann
ætlaði að standa ótrúa eigin-
konu sina að verki, en bandið
brast og maðurinn féll niður á
svalir og brotnaði á öðrum
fæti. tbúar sem urðu hans var-
ir töldu þjóf vera á ferð og
kölluðu á lögreglu. Við eftir-
grennslan kom i ljós að eigin-
kona hans var ekki i húsinu.