Morgunblaðið - 17.01.1978, Síða 38

Morgunblaðið - 17.01.1978, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANUAR 1978 Kambodia/Víetnam: Fréttir um bar- daga stangast á Peking. Bankok. 16. jan. Reuter. AP. Innrás í Sómalíu í undirbúningi? DAGBLAÐ Alþýðunnar, hið opinbera málgagn kfnversku Höfuð- djásni stolið Sulmona. ttalíu 16. jan. AP. BISKUPSMITUR, frá fimmt- ándu öld, alsett eðlum steinum var stolið úr dómkirkju í Sul- mona á Mið-Italíu í nótt. Þjóf- arnir sem földu sig í kirkjunni á sunnudagskvöldið tóku höf- uðfat silfurstyttunnar af heil- ögum Panfilio, verndardýrl- ingi Sulmona. Við verknaðinn skemmdu þjófarnir styttuna nokkuð. Lögregluyfirvöld telja ógerning að áætla verðmæti mítursins, en sóknarprestur- inn, sem uppgötvaði þjófnað- inn á mánudagsmorgun sagði mítrið væri söfnuðinum ómet- anlegt. S-Líbanon: Sidon, Libanon, 16. jan. AP. AÐFARANÓTT mánudags og fram eftir degi stóð yfir mjög harður bardagi milli P:lestlnu- skæruliða og hægrisinnaðra krist- inna herflokka Lfbana f Suður- Lfbanon. Sjðnarvottar segja að eldflaugum hafi verið skotið frá stöðvum skæruliða á hrjá og ein- angruð þorp Lfbana og hafi ali- margir óbreyttir borgarar látið Iffið. Atök á þessu svæði hafa magnast mjög sfðustu daga, en þar hafði verið kyrrt frá þvf sfðla nóvembermán aðar. Istanbul. 16. jan., AP FJÓRIR létu lífið og tugir manns særðust f skotárásum, átökum og sprengjuárásum vfðs vegar f Tyrklandi um helgina. Fjöldi lát- inna f óeirðunum í landinu er þar með kominn yfir 30 frá áramót- um og yfir 200 manns hafa særst á sama tíma. Þingmenn í handalögmálum Ankara, 16. janúar Reuter. TIL átaka og barsmíða kom milli þingmanna í þingi Tyrklands um helgina í ofsafengnum umræðum um friðar- og sameiningaráætlun Ecevits forsætisráðherra. Tókust þingmenn fangbrögðum og létu einnig hendur skipta er Ecevit stjórnarinnar lauk í dag lofsorði á her Kambódíu fyrir að „vernda og styðja föðurlandið" I grein sem rituð er f tilefni 10 ára af- mælis byltingarhers Kambódfu sem er á morgun. Kína hefur harmað bardagana milli Kambódíu og Víetnams og hefur reynt að forðast að taka beina afstöðu, en þó fer enginn í grafgötur um að stuðningurinn er Kambódíumanna megin, enda eru Sovétríkin stuðningsaðili Víet- nams. Fregnir um bardaga voru ekki miklar í dag, mánudag, en um helgina sagði í fréttum frá Bang- kok að Kambódískar hersveitir sem notið hefðu stuðnings fall- byssusveita hefðu ruðzt yfir landamæri ríkjanna, en verið hraktar á braut. Hafi þyngst at- laga verið gerð að stöðvum Víet- nama á miðhálendi landsins og i áttina suður á bóginn til Mekongóshólmanna. Fréttum helgarinnar ber þó ekki saman frekar en venjulega og i öðrum er sagt að Víetnamar hafi enn á sínu valdi mjög mikil- vægar landamærastöðvar og séu eKRUá þeim buxunum að hverfa þaðan. Israelar settu herlið i við- bragðsstöðu við landamærin eftir að Palestinuskæruliðar færðu bækistöðvar sfnar suður á bóginn eftir að borgarastyrjöldin í land- inu endaði, að minnsta kosti að nafninu til. 1 Beirut varð sprenging í skóla f Batroun, sem er vestur af Beirut og létust tveir nemendur og mikl- ar skemmdir urðu á skólanum og næsta nágrenni. 1 fréttum segir ennfremur að rán og gripdeildir f verzlunum í höfuðborginni og út- hverfum hennar hafi farið vax- andi síðustu daga. Tyrklandi í fjögur ár. Nú eru að koma í Ijós merki þess að stjórn Bulents Ecevits forsætisráðherra sé að takast að draga úr óeirðun- um. I því sambandi er bent á að lögreglu hafi tekist að koma í veg fyrir átök og óeirðir í sambandi við mótmælagöngu öfgasinna um helgina, en mótmæli á sama stað í fyrra leiddu til átaka og mann- falls. varði frumvarp sitt, en það varð tilefni vantraustsyfirlýsingar og verða atkvæði greidd um hana á morgun. Embættismenn í þinginu sögðu að engin alvarleg meiðsl hefðu hlotist í handalögmálunum. Reiknað er með að Ecevit standi af sér vantrauststillöguna og fest- ist i sessi sem forsætisráðherra, en hann gegnir því embætti nú í þriðja sinn. Nairóbí, 16. janúar. Reuter AP. SÓMALIUMENN halda þvf fram að varnarmálaráðherrar Sovét- rfkjanna og Kúbu, Dmity Ustinov marskálkur og Raul Castro aðmfr- áll, séu nú á laun f Eþfópfu til að aðstoða undirmenn sfna þar við gerð innrásaráætlunar í Sómaliu. I frétt frá hinni opinberu fréttastofu Sómalíu, Sonna, sagði að ljóst væri að brátt hæfist loft-, land- og sjóárásir á Sómalíu. Það verða Rússar, Eþíópíumenn og bandamenn þeirra sem munu framkvæma þessar aðgerðir í þeim tilgangi að ná á sitt vaid hernaðarlega mikilvægum svæð- um í Sómaliu, sagði fréttastofan. „Innrásaráætlunin er undirbú- in af hernaðarráði Eþíópíu sem í eru átta háttsettir rússneskir her- foringjar, fjórir Eþíópíumenn og þrír Kúbanir, en þeim til aðstoðar eru varnarmálaráðherrar Sovét- rfkjanna og Kúbu,“ sagði Sonna í frétt sinni. Upplýsingamálaráðherra Sóma- líu, Abdulkasim Salad Hassan, sagði í yfirlýsingu sem Sonna greindi frá, að Sómalíustjórn væri tilbúin að vinna að friði í Ogaden-stríðinu á Afríkuhorninu. Neitaði ráðherrann beinni þátt- Tókíó, 16. jan. AP. SÍDEGIS á mánudag var töku Sómaliustjórnar f stríðinu, Eþíópíumenn væru að berjast við sómalísk hryðjuverkasamtök sem lytu ekki stjórnun Sómalíustjórn- ar. I yfiriýsingu sinni kallaði ráð- herrann á friðelskandi þjóðir heims til að styðja Sómalíu í sátta- tillögum sínum og tilraunum landssins til að koma í veg fyrir yfirvofandi innrás. vitað að 21 maður hefði beðið bana í jarðskjálftun- um sem urðu í Japan um helgina. Björgunarsveitir leita að fjórum sem enn er saknað á Ixuskaganum, sem er um það bil 160 km suðvestur af Tókíó. Tvær ár menguðust mjög er úr- gangur úr efnaverksmiðj- um komst i þær vegna hamfaranna. Jarð- skjálftunum hefur ekki linnt enn og þrettán kippir komu í dag frá 1—7 stig á jarpanskan kvarða. Fjöru- tíu kippir mældust á sunnudag og virðist því sem hrinan sé í rénum. Óttast er að allur fiskur i ánum tveimur Mochikoshi og Kano hdyilagzt geiskeldisstöðvar við Surugaflóa við mynni Kanofljóts mun hafa orðið fyrir skemmdum. Lögreglumenn segja að 111 manns hafi slasast og um þrjú þúsund hús skemmzt meira eða minna. Sérfræðingar segja að enda þótt jarðskjálftakippunum sé að fækka megi gera ráð fyrir að þeir geti komið öðru hverju næsta mánuð og sumir kynnu að vera um 6 stig á Richterkvarða. Þeir telja þó ekki að neinn meiriháttar jarðskjálfti komi á næstunni. Þetta gerðist 17. janúar 1977 — Morðinginn Gary Gil- more var Ifflátinn í Utah, en þá hafði dauðarefsingu ekki verið fullnægt í Bandarfkjunum f 10 ár. 1976 — Richard Nixon, fyrrver- andi forseti Bandarfkjanna, skýrði frá því fyrir dómi, að hann sjálfur hefði aldrei tekið ákvörðun um hverja FBI skyldi hlera í þeim tilgangi að finna hvaðan upplýsingar um leyni- leg málefni stjórnarinnar lækju út. 1975 — Indverjar neituðu Isra- elum og S-Afríkubúum að taka þátt í tenniskeppni í Kalkútta. 1974 — Israelsmenn og Egypt- ar komust að samkomulagi um að skilja að heri landanna við Suez-skurðinn. 1971 — Skæruliðahreyfing í Jórdaníu hótaði að beita vopn- um gegn vinstrisinnuðum hópi Palestfnumanna sem hvatti til þess að Hussein konungur yrði settur frá völdum. 1967 — Utanrfkisráðherra Indónesíu, Adam Malik, ráð- lagði Sukarno forseta að segja af sér embætti, þar sem honum að öðrum kosti yrði bolað frá völdum með vansæmd. 1954 — Milovan Djilas rekinn úr júgóslavneska kommúnista- flokknum. 1951 — Kínvérjar höfnuðu frið- artillögum samninganefndar Sameinuðu þjóðanna varðandi Austurlönd fjær. 1945 — Rússneskar hersveitir og pólskir föðurlandsvinir frelsuðu Varsjá frá nazistum, sem þá höfðu haft borgina á valdi sfnu í meira en fimm ár. 1920 — Paul Descanel tók við embætti Frakklandsforseta. 1917 — Brndaríkin kaupa Jóm- frúareyjar af Dönum fyrir 26 milljónir dollara. 1893 — Hawaii var yfirlýst lýð- veldi. 1656 — Konigsbergsamningur- inn milli Svfþjóðar og Branden- burgar. __________ 1595 — Henrik IV P'rakklands- konungur lýsti yfir striði við Spán. Afmæli: Leonhard Fuchs, þýzk- ur læknir, (1501 — 1566), Píus páfi V (Michel Ghislieri) (1504 — 1572), Pedro Caldreon de la Barca spánskt skáld (1600 — 1681), Benjamin Franklin bandarfskur stjórnspekingur (1706 — 1790), Anton Chek- hov, rússneskur rithöfundur (1860 — 1904). Setning dagsins: „Þú getur ekki klifið stiga velgengninnar kaldur á fótum af ótta,“ höf- undur óþekktur. Átökín fær- ast í aukana Tyrkland: Fjórir létu lifið og margir særðust Pólitískur órói hefur ríkt f Jar ósk j álf t ar nir í rénun í Japan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.