Morgunblaðið - 17.01.1978, Page 39
T
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANUAR1978
39
Óttast átök eft-
ir verkfallið
London, 16. jan. AP.
BRESKIR slökkviliðsmenn sneru
Viðskipti
Kína við
útlönd
jukust
Hong Kong. 16. jan. Reuter.
KÍNA jók verzlunarviSskipti sin
vi8 önnur lönd um 12% á siðasta
ári, að sögn fréttastofunnar Nýja
Kina i dag.
Fréttastofan sagði að heildar-
viðskiptin hefðu verið mun meiri
en nokkur tima áður, viðskipta-
jöfnuðurinn „hagstæður" en
engar tölur voru nefndar. Út-
flutningur hefði verið mikill á
óunninni oliu, kolum, vefnaði,
silki og reiðhjólum. en inn i land-
ið hefðu verið keypt ýmis efni og
lyf, plastik. sjónvarpstæki og út-
búnaður og fleira til framkvæmd-
ar áætluninni um aðlögun lands-
insað nýja timanum.
aftur til vinnu sinnar fullir
gremju á mánudag, eftir mis-
heppnað 9 vikna verkfall og hót-
uðu þeim starfsbræðrum sfnum
vandræðum sem á sfnum tfma
vildu ekki taka þátt f verkfallinu.
Ríkisstjórnin hefur skipað 18
þúsund mönnum, sem voru
kallaðir til og þjálfaðir í skyndi til
slökkvistarfa í verkfallinu, að
vera áfram til aðstoðar. Hún ótt-
ast að að til átaka komi á milli
þeirra 36 þúsunda verkfalls-
manna og um 1 þúsund slökkvi-
liðsmanna sem neituðu að fara í
verkfall og reynt verði að fyrir-
byggja að eðlilegt ástand komist á
í slökkvimálum.
Nokkrir leiðtogar slökkviliðs-
mannanna sem þátt tóku i verk-
fallinu hafa látið i ljós þá skoðun
sína að reka eigi þá sem ekki
vildu fara i verkfall á sínum tíma,
í það minnsta úthýsa þeim og gera
þeim lífið leitt með því að tala
ekki við þá.
Slökkviliðsmennirnir töpuðu
baráttu sinni fyrir 30% hækkun
launa. Þeir samþykktu 10%
launahækkun strax og síðan frek-
ari hækkun i nóvember 1979.
Þessi úrslit eru talin vera mikill
sigur fyrir ríkisstjórnina í baráttu
hennar gegn verðbólgunni, með
því að launahækkanir fari ekki
fram úr 10% á þessu ári.
Waldheim hóf-
lega bjartsýnn
Nikosfa, Aþenu, 16. janúar. AP. Reuter.
KURT Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði
f Aþenu f dag að eftir viðræður
sfnar við leiðtoga Grikkja og
Tyrkja á Kýpur væri hann von-
betri en áður um að deiluna
mætti leiða til lykta, en hann gaf
f skyn að ekki væri ástæða til að
búast við skjótum málalokum.
Waldheim lagði áherzlu á að
framhaldsfundi yrði að undirbúa
af mikilli kostgæfni ef einhver
árangur ætti að nást.
Waldheim þykir hafa unnið um-
talsverðan sigur með því að fá
forystumenn Grikkja og Tyrkja á
einni til að koma saman til fundar
í fyrsta skipti um helgina. Engu
að síður segja fréttamenn að aug-
ljóst sé að Waldheim hafi ekki
haft árangur sem erfiði, þar sem
hann hafi verið mun opinskárri í
bjartsýnislegum yfirlýsingum sfn-
um fyrir helgina.
Waldheim sagði að undirbún-
ingur að næstu fundum myndi
taka nokkrar vikur.
Waldheim kom til Aþenu sið-
degis á mánudag og mun hann
verða um kyrrt í Aþenu i tvo daga
og m.a. tala við Karamanlis for-
sætisráðherra, Papaligouras utan-
rfkisráðherra og Tsatsos forseta
Grikklands.
Waldheim sagði einnig að hann
myndi verða að biða eftir nýjum
tillögum frá tyrknesku stjórninni
um málið áður en slikum fundum
yrði komið í kring. En færi allt
samkvæmt áætlun myndu fundir
aðila vonandi geta hafist i marz-
mánuði. Hann sagðist hafa farið
frá Kýpur með þá tilfinningu að
menn væru á réttri leið.
Teng Hsiao-ping
til Burma og Nepal
Belgrad, 16. janúar. AP. næstu viku f heimsókn til Burma
TENG Hsiao-ping, aðstoðarfor- og Nepal, að þvf er júgóslavneska
sætisráðherra Kína, fer í lok fréttastofan Tanjug f Peking
skýrði frá f dag. Er hann æðsti
kfnverski leiðtoginn sem heim-
sækir erlend rfki frá láti Maos
formanns.
Tanjug fréttastofan telur að
upphaflega hafi Chou En-lai for-
sætisráðherra verið boðið til land-
anna,
Fréttastof-
an bætir við að heimsóknirnar
kunni að vekja athygli þar sem
þær eigi sér stað á sama tfma og
afdrifaríkir viðburðir eru að ger-
ast í Suðaustur-Asíu, og er þá
einkum átt við deilur Kambódíu
og Vietnams.
Giulio Andreotti, fráfarandi forsætisráðherra Italfu ræðir við fréttamenn eftir að hann hafði rætt við
Leone forseta og tjáð honum þá ákvörðun sfna að segja af sér forsætisráðherradómi. Búizt er við að
Leone muni siðan fela Andreotti myndun nýrrar ríkisst jórnar á fimmtudag.
Sovétmenn flytja mikið
af vopnum til Eþíópíu
London, 16. jan. Reuter.
SOVÉTENN eiga nú f mestu
vopnaflutningum sfnum frá
Kúbudeilunni 1962, en þeir flytja
nú mikið af vopnum til Eþfópfu
sem á f strfði við heri Sómalfu.
Þessar fregnir koma frá blaða-
manni brezka blaðsins Sunday
Telegraph, sem staddur er f Öm-
an, en daglega koma flugvélar
sovésku loftbrúarinnar að strönd-
um landsins til að forðast brezkar
radarstöðvar f Salalah.
í fregnunum frá Óman er sagt
að í loftbrúnni séu um 200—300
flugvélar. Daglega fljúga nokkrar
flutningavélar með hergögn til
Eþiópíumanna til Aden, höfuð-
borgar Suður-Jemens. Einnig losa
stór sovésk flutningaskip hergögn
til Eþíópiu i Aden i hverri viku,
segja fregnirnar.
Brezki fréttamaðurinn segir
ljóst vera, að þrátt fyrir að Sovét-
menn afneiti afskiptum af strfði
Sómala og Eþíópíumanna, sé það
nú æðsta takmark Kremlar að
vinna striðið gegn Sómölum, þvi
að þar með fái Sovétmenn alger
yfirráð yfir leiðinni inn á Rauða-
hafið.
Soldáninn í Óman, Qaboos Bin
Said, sagði i viðtali við Sunday
Telegraph að hann hefði áhyggj-
ur af þvf hve sein Vesturlönd
væru að átta sig á næsta takmarki
Sovétmanna eftir að þeir hefðu
náð horni Afrfku á sitt vald. Það
takmark sagði hann vera að ná
hinum oliuauðuga Arabiu-skaga á
New York, 16. jan. AP.
AUKIÐ magn koltvfildis f gufu-
hvolfi jarðar eykur stöðugt hita-
stig andrúmsloftsins. Þessi þróun
getur haft alvarlegar afleiðingar
á helztu fæðuframleiðslusvæði
jarðarinnar. Þessi er niðurstaða
greinar sem birtast mun f næsta
hefti Newsweek, en þar eru
dregnar fram f dagsljósið nýjustu
upplýsingar f þessum málum og
m.a. sagt, að æ fleiri veðurfræð-
ingar hallist að þvf að andrúms-
loftið sé stöðugt að hitna en ekki
að kólna, eins og stundum er
haldið fram.
I greininni er skýrt frá, að árið
2050 verði andrúmsloftið að jafn-
aði þre.nur gráðu n á Celcius leit-
sitt vald. Soldáninn sagði að ef
sovésku flutningaflugvélarnar
brytu lofthelgi Ómans yrðu þær
neyddar til að lenda i landinu, en
lofther landsins stjórna brezkir
menn.
ara en í dag, haldi menn áfram að
nota eldsneyti í sama mæli og nú.
1 greininni segir ennfremur að
nauðsynlegt sé að halda áfram
ítarlegum rannsóknum á hvaða
afleiðingar aukið hitastig and-
rúmsioftsins hefur, hverjar séu
helztu orsakir hins aukna hita-
stigs og hvort beita megi ein-
hverjum ráðum til að snúa þróun-
inni við, telji menn hana hættu-
lega. „Nauðsynlegt er að taka af
allan efa f þessum efnum," segir
blaðið. „Þær hættur sem koltví-
ildið getur haft í för með sér
eykur á nauðsyn þess að menn
temji sér eldsneytissparnað og
þrói aðrar aðferðir til orkufram-
leiðslu", segir blaðið að lokum.
Koltviildi eykur hita-
stig andrúmsloftsins
Stjórn Andreottis
farin frá á Ítalíu
Rómaborg, 16. jan. AP.
VEÐUR
víða um heim
Amsterdam 3 skýjað
Aþena 15 bjart
Berlin 3 bjart
Brússel 7 skýjað
Chicago + 8 skýjað
Kaupmanrtah 2 bjart
Frankfurt 5 skýjað
Genf 5 skýjað
Helsinki 2 skýjað *
Jóhannesarb. 26 sól
Lissabon 11 skýjað
London 6 rigning
Los Angeles 16 rigning
Madrid 5 skýjað
Miami 16 bjart
Majorka 10 alskýjað
Malaga 15 léttskýjað
Moskva + 10 skýjað
New York + 4 bjart
Ósló 2 þoka
Paris 4 skýjað
Rómaborg 11 skýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Tel Aviv 16 bjart
Tókió 11 skýjað
Vancouver 8 skýjað
Vinarborg 3 skýjað
GIULIO Andreotti, forsætisráð-
herra ltalfu, afhenti Leone Italfu-
forseta lausnarbeiðni slna sfðdeg-
is á mánudag, eins og búizt hafði
verið við. Stjórn hans hefur verið
við völd f sautján mánuði. Búizt
er við að Leone muni á fimmtu-
dag óska eftir þvf við Andreotti
að hann taki að sér að reyna að
mynda nýja stjórn.
Stjórnmálaástandið á Italiu er
nú mjög erfitt og afsögn stjórnar-
innar kemur þegar órói á vinnu-
markaði er mikill, atvinnuleysi
um 9 prósent og pólitisk hryðju-
verk hafa færzt í aukana. Stöðnun
í iðnframleiðslu Itala er og litin
alvarlegum augum.
Andreotti veitti forstöðu minni-
hlutastjórn flokks sins Kristilega
demókrataflokksins en afhenti
lausnarbeiðni sína eftir að ljóst
varð fyrir helgina að kommúnist-
ar myndu hverfa frá stuðningi við
stjórnina. Kristilegi demókrata-
flokkurinn fékk umdeilda stuðn-
ingsyfirlýsingu frá bandariska
utanríkisráðuneytinu þar sem
sagði að Bandaríkin myndu ekki
sætta sig við beina þátttöku
kommúnista i rikisstjórn eða rikj-
andi meirihluta í þinginu eins og
sagt hefur verið frá. Til að koma i
veg fyrir að boða þurfi til nýrra
kosninga, sem myndu liklega ekki
skýra pólitískar línur neitt að
ráði, verður Kristilegi demókrata-
flokkurinn nú að finna lausn sem
vinstrimenn gætu sætt sig við.
Kommúnistaflokkurinn sem
Enric Berlinguer stýrir fékk 34%
greiddra atkvæða i siðustu
kosningum 1976 eða aðeins 4%
minna en kristilegi demókrata-
flokkurinn. Fengu kommúnistar
m.a. forsetastöðu í annarri deild
þingsins og lykilstöðu i ýmsum
þingnefndum og fengu siðan
stuðning annarra flokka til að
neyða Andreotti stjórnina til að
Framhald á bls. 25.