Morgunblaðið - 17.01.1978, Blaðsíða 40
AUCÍLÝSÍNCÍASÍMINN ER;
22480
AUfíLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorgunblabiti
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1978
Gjengedal saksóknari í Ósló:
íslenzk fyrirtæki
ekki í tengslum við
Ankerlökken-máKð
— ÞAÐ HEFUR ekkert komið
fram og það er ekkert, sem bendir
til að íslenzk fyrirtæki séu tengd
Ankerlökken-málinu hér í Nor-
egi, sagði Arnstein Gjengedal
saksóknari við bæjarþingið í
Ósló, þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær.
Gjengedal sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann, að hann
væri langt kominn með rannsókn
málsins, ætti aðeins eftir að raða
niður atriðum og sinni rannsókn
lyki ekki síðar en 15. febrúar n.k.
Kvað hann Ankerlökken-málið
svo til eingöngu beinast að sam-
skiptum fyrirtækisins við fyrir-
tæki og dótturfyrirtæki i Þýzka-
landi og Sviss. Sú deild Anker-
lökken, sem hefði haft mest sam-
skipti við ísland, virtist vera með
hreinan skjöld, sagði hann að lok-
um.
44 milljónir á gjald-
eyrisreikningum.
SAMTALS hefur nú verið lagður
gjaldeyrir inn á innlenda gjald
eyrisreikninga I Landsbanka og
(Jtvegsbanka að verðmæti um 44
milljónir fslenzkra króna. Reikn-
ingarnir eru nú alls orðnir 354 að
tölu. Um það bil helmingur gjald-
eyrisins er f vestur-þýzkum mörk-
um, en sfðan koma dollarar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í Landsbank-
anum í gær eru reikningarnir þar
245 talsins og fjárhæðin tæplega
33 milljónir króna. í (Jtvegsbank-
anum voru reikningarnir 100 og
fjárhæðin 11 milljónir króna.
Samdráttur í notkun
fiskmjöls í Evrópu
LlTIL eftirspurn er eftir lýsi og
mjöli þessa dagana og er Morgun-
blaðinu t.d. kunnugt um að Danir
hafa verið að selja lýsistonnið á
419 dollara að undanförnu, en lít-
ið sem ekkert hefur verið selt af
mjöli þaðan. Seljendur vilja þó
ekki kenna lágu verði á soyamjöli
og olíu um sölutregðuna, heldur
fremur að mjölnotendur hafa
minnkað mjölnotkun undanfarið
sökum þess, að þeir telja verð á
fiskmjöli nú of hátt. T.d. er talið
að neyzla á fiskmjöli hafi minnk-
Mótframboðið
ólöglegt að mati
kjörstjórnar
KJÖRSTJÖRN til stjórnarkjörs I
Verkamannafélaginu Dagsbrún
úrskurðaði f gær mótframboð
gegn stjórn félagsins ógilt, þar
sem ekki var nægilegur fjöldi
frambjóðenda f trúnaðarráði fé-
lagsins og ennfremur var ekki
tilskilinn meðmælendafjöldi
Framhald ábls. 25.
að um 15% af þessum sökum á
undanförnum mánuðum.
Menn mega ekki tapa öllum
Ijósadýrð
áttum í hinni miklu
Ljósm Mbl.: RAX
Fjársvikamálið í
Itandsbankanum:
Þáttaskila
að vænta
innan tíðar
UNNIÐ var sleitulaust að
rannsókn hins meinta fjár-
svikamáls í Landsbankan-
um um helgina bæði af
hálfu Rannsóknarlögregl-
unnar og bankans. Hall-
varður Einvarðsson rann-
sóknarlögreglustjóri sagði
í samtali við Mbl. f gær, að
þáttaskila væri að vænta í
rannsókninni innan tíðar.
Gæzluvarðhaldsúrskurður
fyrrverandi forstöðu-
manns ábyrgðadeildar
bankans rennur út 1.
febrúar.
Útsöluverð smjörsins
880 krónur hvert kíló
Á MORGUN, miðvikudag
hefst útsala á smjöri. Þá
verður hvert kg selt á 880
krónur f stað 1.3*42 króna,
sem það kostar nú. Um er
að ræða lækkun á smjöri,
sem nemur 34,4%. Þetta
var ákveðið í gær, eftir að
ríkisstjórnin hefði fjallað
um þessi mál. Er þetta
fyrsta sinni í 10 ár að efnt
er til smjörútsölu, en árið
1974 var ekki um svokall-
aða útsölu að ræða, þar
sem verðákvörðun var þá
ákveðin með auknum nið-
urgreiðslum úr ríkissjóði.
Nú er niðurgreiðsla úr
ríkissjóði stóraukin eðá um
74,7%, en á móti greiðast
rúmlega 300 krónur úr
verðmiðlungarsjóði mjólk-
urafurða, sem þýðir að
bændur sjálfir taka á sig
hluta verðlækkunarinnar.
500 gramma smjörstykki,
Næstmesta sig-
ið við Kröflu
StÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld
hófst landsig við Kröflu á nýjan
leik og hélt það enn áfram f gær-
kveldi. Var sigið þá orðið um einn
metri, þar sem það er mest. Er
þetta næst mesta sig, sem orðið
hefur frá þvf er jarðhræringarnar
hófust á svæðinu. Mesta sigið sem
enn hefur orðið við Kröflu varð f
desember 1975 og janúar 1976.
I fyrri viku hætti þetta sig
skyndilega. Að sögn Páls Einars-
sonar jarðeðlisfræðings er ekki
Ijóst, hvers vegna kvikustreymið
hefur stöðvazt um tima svo sem
raun ber vitni. Hefur þróun þessa
sigs verið allmiklu hægari en áð-
ur, en samt er sigið orðið hið
næstmesta eins og áður sagði. Um
leið og landið fór að síga að nýju
tók órói að gera vart við sig og
stóð hann fram eftir nóttu. Fór þá
einnig að bera á skjálftum og
voru upptök þeirra rétt fyrir
sunnan byggðina í Kelduhverfi.
Skjálftar mældust síðan eftir það
heldur minni. Eru þeir samt
margir og finnast naumast.
sem kostar nú 671 krónu,
kostar á morgun 440 krón-
ur við þessa breytingu.
Sambandið:
Brauð
hækka
í verði
BRAUÐ hækka í verdi
frá og með morgundeg-
inum og er hækkunin á
bilinu 8,6% til 21,5%.
Franskbrauð og heil-
hveitibrauð hækka mest
eða um 21,5%. Hvert 500
gramma brauð hækkar
úr 79 í 96 krónur. Malt-
brauð 675 gramma
brauð úr 85 i 94 krónur
eða 10,6% og seitt rúg-
brauð 1500 grömm
hækkar úr 175 í 190
krónur eða um 8,6%.
Hækkunin var sam-
þykkt á fundi verðlags-
nefndar í síðustu viku og
síðan staðfest í ríkis-
stjórninni.
Japanir væntanlegir
tíl viðræðna um kaup á
Érystri loðnu og hrognum
1 LOK þessa mánaðar eru
væntanlegir hingað til
lands fulltrúar frá jap-
anska stórfyrirtækinu
Mitsui Co. og munu þeir
eiga viðræður við forráða-
menn Sambandsins um
kaup á frystri loðnu og
loðnuhrognum til Japans.
Að sögn Sigurðar Magnús-
sonar framkvæmdastjóra
sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins, þá hefur þetta
japanska fyrirtæki keypt
frysta loðnu og hrogn af
Sambandinu undanfarin
ár, og hafa fulltrúar
Sambandsins ávallt farið
til Japans til söluviðræðna.
Nú þótti hins vegar kom-
inn tími til að breyta til og
koma Japanirnir hingað
nú, eins og fyrr segir.
Fiskverð
kom ekki
SÚ yfirnefnd Verðlagsráós sjáv-
arútvegsins, sem fjallar um al-
mennt fiskverð kom saman til
fundar í gær kl. 17 og var búist
við nýtt fiskverð yrði ákveðið þá.
Svo varð ekki og lauk fundi
nefndarinnar á röskri hálfri
Framhald á bls. 25.