Morgunblaðið - 19.01.1978, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.01.1978, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978 Fiskverð enn hjá yfirnefnd YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins, sem fjall- ar um almennt fiskverð, kom saman til fundar kl. 15.15 í gær, en ekki dró til neinna tíðinda á þessum fundi, sem stóð í VA klukkustund. Gert er ráð fyrir að annar fundur verði í dag, en ekki er Mbl. kunnugt um hvort fiskverð er væntanlegt þá. Lýst eft- ir konu LÖGREGLAN í Reykjavík lýsti í gær eftir þrítugri konu Kristjönu H. Júlíus- dóttur til heimilis að Yrsu- felli 3 í Reykjavík, en hún fór að heiman á sunnudags- kvöld. Þegar Kristjana fór að heiman var hún klædd í stuttan ullarjakka með belti, bláar flauelsbuxur og brún kúrekastígvél. Hún er 166 sm á hæð, dökkhærð með sítt hár. Enn enginn fundur með VR og við- semjendum EINS OG komið hefur fram í Morgunblaðinu óskaði Verzl- unarmannafélag Reykjavíkur eftir viðræðum víð viðsemj- endur sína um miðjan desem- ber s.l. með það fyrir augum að endurskoða samninga félags- ins á grundvelli upplýsinga sem komið hafa síðan samning- ar félagsins voru gerðir um raunverulegt útborgað kaup félaga VR og annarra stéttar- félaga. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar framkvæmda- stjóra VR hefur viðræðufund- ur ekki enn verið ákveðinn þrátt fyrir itrekuð tilmæli, en hins vegar sagðist Magnús von- ast til að fundur yrði haldinn á næstu dögum. INNLENT Janúarról í Breiðholti. Ljósm.: Friðþjófur. Fulltrúar SH til Japans: Rætt um sölu á loðnu, kolmunna og fleiri sjávarafurðum — VIÐ reiknum með að koma aftur frá Japan að loknum við- ræðum við þarlenda kaupendur kringum mánaðamótin, sagði Ey- jólfur tsfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, f samtali við Morgunblaðið f gær, en f morgun hélt hann áleiðis til Japans ásamt Hjalta Einarssyni, framkvæmdastjóra hjá SH, f þeim tilgangi m.a. að ræða við Japani um kaup á frystri loðnu og hrognum frá tslandi á yfirstandandi loðnuvertfð. í samtaliðnu við Morgunblaðið sagði Eyjólfur Isfeld, að á sfðasta ári hefðu þrjú fyrirtæki í Japan keypt frysta loðnu af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og kaupendur þar gætu allt eins orðið fleiri í ár; hins vegar yrði byrjað á að ræða við kaupendur frá í fyrra. — En það eru fleiri tegundir sjávarafurða en loðna og loðnu- hrogn, sem við munum ræða um sölu á við Japanina, sagði Eyjólf- ur. I fyrra var selt nokkurt magn af karfa og karfaflökum til Jap- ans, en ég veit ekki hvort fram- hald verður á því á þessu ári, af margvíslegum ástæðum. Þá send- um við unninn kolmunna í ýmsu formi til Japans í fyrra, en við vitum ekki enn hvernig útkoman varð, né hvað komið hefur út úr þessum tildraunasendingum, en um þessi mál verður einnig rætt í Japan. Grindavíkurkirkju bárust 3,2 millj. kr. að gjöf á 2 mánuðum Grindavfk. 18. jan. EINS og áður hefur verið skýrt frá í Mbl., gaf Fiskimjöl og lýsi h.f. f Grindavík Grindavfkur- kirkju 1 millj. kr. hinn 12. nóvember s.l. og áður hafði sama fyrirtæki gefið kirkjunni 1 millj. kr. Hinn 12. desember s.l. gaf Kvenfélag Grindavfkur einnig 1 millj. kr. til kirkjunnar og er það f annað sinn, sem kirkjunni berst sama upphæð frá þvf félagi. Hinn 31. des. s.l. gaf Fiskanes h.f. í Grindavík ennfremur 1 millj. kr. til kirkjunnar og hinn 12. desember s.l. afhenti systkyn- in frá Isólfsskála kírkjunni kr. 100 þús. að gjöf til minningar um foreldra sína, hjónin Agnesi Jóns- dóttur og Guðmund Guðmunds- son. Hinn 14. des. gáfu fjöl- skyldurnar frá Helgafelli og Staðarhrauni 15 f Grindavík 100 þús. kr. til kirkjunnar til minn- ingar um hjónin Valgerði Lillien- dahl og Lárus Jónsson frá Bræðraborg í Grindavík. Þannig hafa kirkjunni á tæpum tveimur mánuðum borist að gjöf kr. 3,2 millj. auk nokkurra smærri gjafa, en væntanlega verður birtur listi um gjafir og áheit, sem kirkjunni hafa borizt á tveim síðustu árum. Þess skal svo getið nú, að á sfðasta ári gáfu systkinin frá As- garði kirkjunni stóran og fagran ljóskross til minningar um foreldra sina, hjónin Valgerði Guðmundsdóttur og Dagbjart Einarsson, og hefur krossinum verið komið fyrir á turni hinnar nýju kirkjubyggingar. A síðasta ári var kirkjan gerð fokheld, járn sett á þak og gler.í glugga og verður unnið áfram við kirkjubygginguna eftir þvi sem fjárhagur framast leyfir. Allar þessar höfðinglegu gjafir sem kirkjunni hafa borizt, bæði nú og áður fyrr, þakkar sóknar- nefnd af alhug í nafni alls safnaðarins. — Guðfinnur. Flestir greiddu skuldina við RARIK — 30-40 aðilar skulduðu 200 milli. kr. — LANGFLESTIR þeirra, sem skulduðu RARIK og hafði verið hótað, að lokað yrði fyrir rafmagnið, greiddu sfnar skuldir, þannig að ekki þurfti að koma til vfðtækra lokana, sagði Gylfi Þórðarson hjá Rafmagnsveitu rfkisins I samtali við Morgunblað- ið I gær, þegar hann var inntur eftir hvernig fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög vfðsvegar um land hefðu brugðizt við þeirri hótun RARIK að lokað yrði fyrir raf- magn til þeirra ef skuldir yrðu ekki greiddar fyrir 15. janúar. í samtalinu við Morgunblaðið sagði Gylfi það hefðu verið milli 30 og 40 aðilar, sem hefðu skuldað það mikið, að hótað hefði verið að loka ef skuldir yrðu ekki greiddar og samtals hefðu þessir aðilar skuldað um 200 milljónir króna. Það koma fram hjá Gylfa, að ekki hefði öllum tekizt að greiða sínar skuldir, en það var aðallega á Snæfellsnesi, sem vandkvæðin voru mest, en hinsvegar hefðu allir reynt- að bjarga sér fyrir horn og greiða í það minnsta eitt- hvað. Eyjar: Kennsla felld nið- ur sökum ófærðar VERSTA veður gekk hér yfir í morgun, og var kennsla felld nið- ur I skólum af þeim sökum í morgun. Strax I gærkvöldi byrj- aði að kólna hér og fór veður versnandi eftir því sem leið á nóttina. Veðurhæðin I morgun var ekkert meiri en oft er I Vest- mannaeyjum, en hins vegar var ófærð á götum, sökum mikils krapa og vatnselgs, þannig að erf- itt var yfirferðar, og mun skólum hafa verið lokað af þeirri ástæðu. Bátar réru ekki i gærkvöldi, en þeir komu almennt inn siðari hluta dags í gær. Afli hefur verið tregur frá því um áramót, en þó fékk e'inn trollbáturinn 18. tonn af stórri ýsu í tveimur róðrum. Vitað er að einhverjir Þorláks- hafnarbátar hafa lagt net hér austur af Vestmannaeyjum í dýp- inu, og hefur Jón á Horfi fengið 60 tonn af stórufsa á þessum slóð- um á skömmum tíma. — Sigurgeir. Mæðraheimili breytt í unglingaheimili „NÝTINGIN á Mæðra- heimilinu er nú slík, að við teljum ekki fært að halda rekstri þess áfram og 1. september í haust ætlum við að fara af stað með unglingaheimili að Sól- vallagötu 10,“ sagði Sveinn Ragnarsson, félagsmála- stjóri Reykjavíkurborgar, í samtali við Mbl. í gær. „f tillögu til fjárhagsáætlun- ar borgarinnar var tillagan um að keypt yrðu húsnæði undir unglingaheimili, en Ráðstefna um verk- fall BSRB BSRB mun I lok þessa mánaðar og fram I febrúar standa fyrir ráðstefnu um kjarasamninga og verkfall BSRB. Munu fyrstu fimm umræðufundirnir verða haldnir í Reykjavlk og sfðan mun starfshópar vinna í Munaðarnesi og þar lýkur ráðstefnunni. Þátttaka er heimil öllum þeim, sem störfuðu í verkfalls- og kjara- baráttu BSRB og aðildarfé- laganna en gert er ráð fyrir að menn sæki alla ráðstefnuna en ekki einstaka fundi. Meðal efnis á ráðstefnunni verða eftirfarandi viðfangsefni; Kjarasamningalögin og kröfugerð BSRB, samningaviðræður ríkis- starfsmanna, — sáttatillaga og kjarasamningur, verkfall og samningar bæjarstarfsmannafé- laga, störf kjaradeilunefndar, áróður og upplýsingastarf, starf verkfallsnefndar BSRB og að lok- um framkvæmd verkfallsins. Ráðstefnunni lýkur með panel- umræðum, þar sem framsögu- menn munu svara fyrirspurnum. með því að taka Sólvalla- götu 10 til þess, er unnt að setja 22 milljónir króna til þess að flýta byggingu barnaheimilis í Breiðholti I.“ Mæðraheimilið að Sólvallagötu 10 var opnað í marz 1971, fyrir konur sem væntu sín, og til dvalar fyrstu mánuði eftir barnsburð. Rými var fyrir sex konur, en á síðasta ári var meðalnýtingin tvær konur. Sveinn Ragnarsson sagði, að á fyrirhuguðu unglingaheimili væri ætlunin að unglingar, og væri þá stefnt á aldrinum 14—16 ára, gætu átt þar afdrep og notið umönnunar. Með þvi að taka Sól- vallagötu 10 undir unglingaheim- ili sagði Sveinn að eftir nauðsyn- leg tækjakaup stæðu eftir 22 milljónir króna af þvf fé, sem fyrirhugað var að verja til hús- næðiskaupa, og verður nú hægt í þess stað að verja þeirri upphæð til framkvæmda við barnaheimili sem risa á í Breiðholti I og verður fyrir 97 börn. Sagði Sveinn að þetta fé gerði kleift að hefja fram- kvæmdir á þessu ári og yrði heim- ilið væntanlega tekið í notkun á næsta ári, sem yrði þá ári fyrr. en ella. r Asgeir með .110 tonn ASGEIR RE, hinn nýi skuttog- ari Isbjarnarins h.f. í Reykja- vik, kom til hafnar úr sinni fyrstu veiðiferð s.I. mánudag og landaði þá 110 tonnum, en alls var Asgeir 12 daga í veiði- ferðinni. Fyrstu dagana varð skipið fyrir ýmsum frátöfum við veiðarnar. Asgeir landaði aflanum beint upp í hið nýja frystihús Isbjarnarins, sem nú er í byggingu á Norðurgarði, og um leið var fiskgeymsla hússins tekin í notkun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.