Morgunblaðið - 19.01.1978, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.01.1978, Qupperneq 14
14 / MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1978 — en staðfest að þeim var beitt Bretar sýkn- aðir af pynt- ingaákæru íra Strasbourg—Duhlin, 18. jan. AP. MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL Evrópu, sem I sitja 17 dómarar, úrskurðaði á miðvikudag að „ómannleg og smánarleg með- ferð“ Breta á föngum f N-trlandi árið 1971 væri vítaverð, en þetta ár nálgaðist hryðjuverkaaldan há- punkt. Hins vegar hafnaði dóm- stóllinn einróma fordæmingu ráðherranefndar Efnahagsbanda- lagsins, sem haft hefur vakandi auga með efndum á mannrétt- indasáttmála Evrópu, þess efnis að yfirheyrsluaðferðir Breta hefðu verið blákaldar „pynting- ar“. írar kærðu málið fyrir dóm- stólnum 1971 þegar sannað þótti að öryggisverðir brezka hersins notuðu svonefnda „fimm liða að- ferð“ til að hafa upplýsingar upp úr föngum í baráttunni gegn mis- kunnarlausum hermdarverkum hins ólöglega írska lýðveldishers. Liðirnir í aðferðinni voru eftir- farandi: að setja sekk á höfuð fangans, láta sífelldan hávaða bylja. í eyrum hans, varna honum svefns, láta hann standa i kvala- fullri stöðu i langan tíma og svipta hann mat og drykk. 1 úr- skurði dómstólsins var það viður- kennt að aðferðir þessar hefðu í raun verið notaðar, hins vegar hefðu Bretar svarið eið í þá veru að þær hefðu aðeins verið við- hafðar i þrjá mánuði í einu fanga- húsi í Belfast en þeim hefði síðan verið hætt og öllum viðkomandi föngum greiddar bætur. Kæran var byggð á frásögn alls fjórtán fanga. Mál þetta er fyrsta klögumálið milli stjórna, sem dómstóllinn hefur fengið til umfjöllunar síðan hann var settur á laggirnar árið 1959 og er talið að kostnaður beggja stjórnanna af því hafi numið alls einni milljón punda, en það er meira en 400 milljónir islenzkra króna. í úrskurðinum sagði að dómar- arnir hefðu ekki getað misst sjón- ar á þeim atburðum, sem voru undanfari þessara aðgerða Breta, en tekið var fram að í niðurstöð- unni væri ekki felldur dómur yfir Framhald á bls. 18 Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Sir Harold Wilson, t.v. ræðir við sjónvarpsmanninn vfðkunna Magnús Magnússon, sem kosinn var pfpumaður ársins 1978 í tímariti brezkra pfpu- og tóbaksframleið- enda. Sóttu þeir hefðbundna matveizlu pípumanna í Savoy-hótelinu í London á miðvikudag. Sovétmenn æ reiðubúnir að bjarga fórnardýrinu — segir Tass Moskvu, Nairobí, London, París, Briissel, 18. jan. AP. Reuter. SOVÉTMENN vfsuðu á miðviku- dag til föðurhúsanna frásögum um hernaðarlega fhlutun þeirra f strfði Sómala og Eþfópfumanna og kölluðu þær „uppspunnar dylgjur“. Kom fram hjá hinni op- inberu fréttastofu Sovétmanna „Tass“ að Sómalar hefðu útbreitt frásögur þessar til þess eins að afskræma uppruna og stöðu Oga- den-deilunnar sjálfum þeim til framdráttar. Þá var þvf einnig neitað f herráði Eþíópíu f dag að nokkrum kúbönskum eða sovésk- um hernaðarráðuneytum væri til að dreifa f landinu hvað þá að sovésk herskip hefðu komið á vettvang til að verja hafnarborg- ina Massawa f Eritreu. Þá hafa Frakkar lýst því yfir að þeir muni Verður bólusett gegn brjóstkrabbameini? Ijá óhljóðseyru beiðni Sómala um vopnabirgðir þar sem Sómalar kæmu þeim fyrir sjónir sem árás- araðilinn f deilunni. A hinn bóg- inn hefur ráðherranefnd EBE tekið vel f málaleitan Sómala og brezki utanríkisráðherrann, D:vid Owen, lýst því yfir að til- burðir Sovétmanna á svæðinu geti blásið málið upp sem þrætu- epli Austur- og Vesturveldanna. í tilkynningu Tass- fréttastofunnar sagði að orðspor um hlutdeild sovésks herafla og laumulega ferð utanríkisráðherra Sovétríkjanna til Eþíópíu væri til- hæfulaust með öllu. Tilgang EF skilningur manna á rannsókn- um, sem gerðar hafa verið á verk- legri rannsóknarstofu í læknis- fræði f Harrow f Bretlandi, reyn- ist réttur eru líkur á að teknar verði upp bólusetningar sem vörn gegn brjóstrabbameini. Menn hafa vitað um margra ára skeið, að myndun æxlis fylgja oft efnismyndanir, sem oftast nær eru aðeins frammkallaður af fóst- urfrumum með eiginleikum, sem vinna gegn myndum æxlis. Ein helzta ráðgátan í þessu efni hefur verið, að þótt þungun leiði til framleiðslu þessara gagnverk- andi efna, minnkar inngjöf efnis- ins hættuna á brjóstkrabbameini, ef þungun á sér stað snemma á ævinni en eykur hana ef hún verður seint á æviskeiði. Ef þungun hefur í för með sér þessi gagnverkandi efni, hvernig má það þá vera að þau verka Sá fátæki átti Rolls Royce Norton-on-Tees, 18. jan. AP. MAÐUR nokkur var í dag sektað- ur um 250 ensk pund fyrir að svíkja fé út úr almannatrygg- ingunum. Hann hafði tjáð vel- ferðarstofnunum að hann væri blásnáuður. I ljós kom þó eftir ábendingu, að hér var svindlari á ferðinni. Fred Rowntree, sem vikulega fékk 49 pund ávísun senda heim til sín, reyndist eiga Rolls Royce Limousine bifreið, tvær aðrar bifreiðar, stórt hús svo og stórt byggingarfyrirtæki. öfugt eftir því hvort áhrifa þeirra gætir snemma eða seint á þung- unarskeiði? Sir Peter Medawar og dí'. Ruth Hunt gefa til kynna í skýrslu í tímaritinu „Nature“ að sömu efni geta haft þveröfug áhrif eftir því hvort þeirra gætir á undan eða eftir að myndun æxl- is er hafin. Hefur niðurstaða þessi fengizt af rannsóknum á músum, sem bólusettar voru með fósturfrumum á mismunandi tím- um fyrir og eftir að þeim voru gefin æxlishvetjandi efni. Kom í ljós að mýs, sem sprautaðar voru 14 dögum áður en þær fengu æzl- ishvatann, voru næstum algerlega Framhald á bls. 18 slíkra sögusagna sagði fréttastof- an augljósan; að breiða yfir ráða- brugg vissra aðila á Vesturlönd- um i deilunni. „Staðreynd máls- ins er sú að Sovétrfkin gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð til að fyrir- byggja að í odda skærist með Iöndunum,“ sagði Tass en bætti við: „Þegar leiðtogar Sómalíu ganga hins vegar í berhögg við heilbrigða skynsemi og hefja hernaðaraðgerðir gegn Eþíópiu haga Sovétmenn sér sem endra- nær og leggjast á sveif með fórnarlambinu." Kom fram að Eþíópíumenn hefðu snúið sér til Sovétmanna til að fá efni og tækniráðgjöf og hefði verið orðið við beiðni þeirra. Herforingi i stjórn Eþíópíu, Berhanu Bayin, sagði í dag að tölur Bandaríkjamann, sem sýndu að í landinu væru um 3000 Sovétmenn og Kúbanir, væru ekki annað en áróður heimsvalda- sinna. „Við þurfum ekki á útlend- ingum að halda til að leggja á ráðin eða að berjast fyrir okkar málstað,“ sagði hann. Talsmenn Frelsishreyfingar Eritreu báru Framhald á bls. 18 Þetta gerðist Fimmtudagur 19. jan. AP. 1969 — Mótmæl'agöngur gegn :fskiptum Sovétmanna fara af stað f Tékkóslóvakiu eftir að námsmaður kveikir i sjálfum sér í Prag til að sýna andúð sína á sovézkum yfirráðum. 1945 — Rússneskir herir taka Kraká í Póllandi í seinni heims- tyrjöldinni. 1942 — Japanskar hersveitir ráðast inn i Burma. 1941 — Bretar taka Kassala í Súdan hernámi. 1937 — Bandarikjamaðurinn Howard Hughes setur heims- met á flugleiðinni yfir Atlants- haf með þtfi að fara hana á 7 tímum og 28 minútum. 1918 — Bolsevikar leysa upp stjórnþing Rússa í Pétursborg. 1916 — Innrás Rússa í Galica í Póllandi hefst. 1915 — Þýzkar flugvélar varpa sprengjum á hafnir f A- Englandi. 1871 — Þjóðverjar bera sigur- orð af Frökkum við St. Quentin i Frakklandi. 1859 — Frakkar og Sardinubú- ar undirrita sambandssamning. 1812 — Brezkar hersveitir und- ir forystu hertogans af Welling- ton leggja undir sig Ciudad Rodrigo á Spáni og Frakkar ná aftur á sitt vald löndum Svía í Þýzkalandi, Rtigen og Pomm- ern. 1795 — Franskt herlið ryðst yfir Holland. 1493 — Frakkar og Spánverjar undirrita Barcelónasamkomu- lagið Maximilian, konungur, bjargar Þjóðverjum við innrás Frakka i orrustunni við Salin- as. Afmæli eiga í dag: James Watt, skozki uppfinn- ingamaðurinn (1736 — 1819), Auguste Comte, franskur heim- spekingur (1798 — 1857), Edg- ar Allan Poe, bandarískur rit- höfundur (1809 — 1849), Paul Cezanne, franskur listmálari (1839 — 1906), VSctor Mature, bandarískur leikari (1916 — ). Setning dagsins: „Hvort kon- ur eru skárri en menn get ég ekki sagt til um — en hitt get ég sagt, að þær eru vissulega engu verri.“ Golda Meir, fyrr- verandi forsætisráðherra Isra- els. John Daniel Lyng látinn Osló. 18. jan. AP. JOHN Daniel Lyng, fyrrverandi utanríkis- og forsætisráðherra Noregs, lést árdegis í dag 72 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein, að þvf er opinber- lega var skýrt frá í dag. John Daniel Lyng, sem var flokksmaður í Ihaldsflokknum, gegndi störfum forsætisráðherra í mánaðartíma árið 1963. Utan- ríkisráðherraembætti gegndi hann í stjórn Per Bortens frá því október 1965 fram i maí 1970. Lyng fæddist í Þrándheimi 22. ágúst 1905. Hapn stundaði nám í lögfræði við Öslóarháskóla og að loknu námi 1927 lagði Lyng stund á nám í stjórnlagafræði í Kaup- mannahöfn, Danmörku og Heidel- berg. Hann sat i Stórþinginu á árunum 1943 til 1953 og frá 1957 til 1965. VEÐRIÐ víða um heim Amsterdam 4 skýjað Aþena 10 skýjað Berlin 3 skýjaS Brússel 6 heiBskirt Chicago + 4 skýjaS Frenkfurt 4 heiðskirt Genf 2 snjókoma Helsinki i 0 skýjað Jóhannesarb. 26 sólskin Kaupmannah. 3 skýjað Lissabon 12 rigning London 5 sólskin Los Angeles 18 skýjaS Madrid S sólskin Málaga 12 léttskýjaB Miami 27 skýjaS Moskva + 9 heiSskirt new York + 1 skýjaS Ósló 1 skýjað Palma 9 skýjaB Paris 6 skýjað Róm 9 skýjaS Stokkhólmur 2 skýjað Tel Aviv 20 heiBskirt Tókió 3 snjókoma Vancouver 7 rigning Vín 1 skýjaS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.