Morgunblaðið - 19.01.1978, Síða 32

Morgunblaðið - 19.01.1978, Síða 32
AUÍiLÝSINGASÍMINN ER: 22480 Porgimblníiití FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978 Engin telex-skák á laugardag: Skáksambandið kærir A-Þjóðver ja N<J ER Ijóst að ekkert verður ú telexskákkeppni Islands og A- Þýzkalands^ sem fara átti fram n.k. laugardag, en það voru undanúrslit f hinni alþjóðlegu telexskákkeppni. Skáksambandi tslands barst f gær tilkynning frá A-Þjóðverjum, þar sem þeir lýsa sig vanbúna þvf að tefla á laugar- dag vegna einhverja orsaka. Skáksambandið vill hins vegar ekki sætta sig við þetta og hefur þegar kært framkomu A- Þjóðverjanna til FIDE (Alþjóða skáksambandsins) og hefur kraf- ist þess að tslandi verði dæmdur sigurinn eða að teflt verði á laugardag. Einar S. Einarsson forseti Skák- Framhald á bls. 18 LANDSLIÐIÐ í handknattleik heldur utan ifyrramálið til þátttöku i heimsmeistarakeppninni í handknattleik. sem fram fer i Danmörku. Landsliðið lék kveðjuleik i gærkvöldi gegn pressuliðinu og vann 36:28. Á undan Iéku skemmtikraftar og upprennandi stjórnmálamenn i knattspyrnu og urðu stjórnmálamennirnir að láta í minni pokann. Sjá iþróttir á bls. 30 og 31. I.jósm KAX 11 þúsund lestir Þrær brátt fullar á Nordurlandi Fyrsta loðnuhrotan: 29 skip með um Gunnar Guðbjartsson, form. Stéttarsambands bænda: Tel eðlilegt að leita tildómstóla með kæru bændasamtakanna „STJÓRN Stéttarsam- bands bænda mun einmitt ræða þetta mál á morgun, en persónulega er ég þeirr- ar skoðunar að við eigum að skjóta málinu til dóm- stóla“, sagði Gunnar Guð- bjartsson, formaður Stéttarsambands bænda, er Mbl. spurði hann álits á úrskurði Jafnréttisráðs um kæru bænda. „Ég lít svo á, að úrskurð- ur Jafnréttisráðs hafi fallið okkur algjörlega í vil“, sagði Gunnar, „en ráðið tekur fram, að það geti ekki kveðið upp dóm í mál- inu, en dóm tel ég eðlilegt að við sækjumst eftir að fá“. Lmlnunefnd hefur setió aö störfum undanfarna daga við að undirbúa starfsemina f vetur, sem verður ugglaust viðamikil ef að líkum lætur. Á mynd sem tekin var af nefndarmönnum i ba*kistöðvum loðnunefnd- ar í Tjarnargötu í gær eru: Andrés Finnbogason, vinstra megin við borðið. en hægra megin eru Björgvin Torfason og Þórður Asgeirsson, sem er formaður nefndarinnar. Bílamálið: Aðstoðar- maðurinn látinn laus t GÆR rann út gæzluvarðhald annars mannsins, sem setið hefur inni vegna rannsóknar bflamálsins svonefnda. Að sögn Erlu Jónsdóttur, deildar- stjóra rannsóknarlögreglu rfkisins, þótti ekki ástæða til að framlengja gæzluvarðhald mannsins og var honum þvf sleppt lausum. Maður þessi, sem er opinber starfsmaður í Hafnarfirði, var handtekinn 20. desember s.l., grunaður um að hafa aðstoðað við innflutning á notuðum Mercedes Benz bílum frá V- Þýzkalandi, en innflytjandinn flutti þá inn með ólöglegum hætti og situr enn i gæzluvarð- haldi. Erla Jónsdóttir vildi í gær ekki gefa neinar frekari upp- lýsingar um rannsókn málsins. FYRSTA loðnuhrotan var i fyrri- nótt og gærmorgun vestur af Kol- beinsey, og er veiðisvæðið óvenju- lega vestarlega miðað við árstíma, en á sama tfma f fyrra og hitteð- fyrra var loðnan komin austur fyrir Langanes. Frá þvf í fyrra- kvöld þar til kl. 18 í gær tilkynntu 29 skip um afla, samtals 10.860 lestir. Flest fóru skipin til Siglu- fjarðar, þá til Raufarhafnar, Krossaness og Bolungavfkur. Vit- að er um tvö skip sem fóru til Faxaflóahafna. Var annað þeirra Víkingur AK með 1200 lestir, en Hnúfbakur- inn hvarf með netatrossu fasta við sig „ÞAÐ kom okkur á óvart að sjá hnúfbak fastan við stjórann, við áttum sfzt von á þvf. Við gátum ekki losað hvalinn frá stjóranum og urðum frá að hverfa, næst þegar við komum að var hvalurinn horfinn með alla netatrossuna," sagði Nfels Gunnarsson skipstjóri á vél- bátnum Nfelsi Jónssyni frá Hauganesi, en fyrir nokkru festist stór hnúfbakur f stjóra við netatrossu bátsins á Eyja- firði. „Við ætluðum að fara að Framhald á bls. 18 það var mesti afli á skip f fyrri- nótt. Morgunblaðið fregnaði í gær að bræðsluskipið Norglobal myndi senn halda norður fyrir land og leggjast við Grímsey í fyrstu, ef það yrði hægt vegna veðurs. Hins vegar var ekki ljóst f gærkvöldi hvort Norglobal hefði lagt af stað frá Seyðisfirði. -vegna þess að mik- ill útsynningur var á miðunum austur og norður af landinu. Andrés Finnbogason starfsmaður loðnunefndar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ef áfram- haldandi veiði yrði fyrir norðan land væri nauðsynlegt að fá Norglobal á miðin til þess að skip- in þyrftu ekki að sigla jafn mikið, annað hvort austur fyrir eða vest- ur fyrir land með aflann. Skipin tilkynntu um afta til loðnunefndar voru þessi: Öskar Halldórsson RE 400 lestir, Örn KR 540, Grindvíkingur GK 500, Eldborg GK 180, Gísli Arni RE 500, Víkingur AK 1200, Rauðsey AK 450, Hilmir SU 530, Gunnar Jónsson VE 100, Þórshamar GK 400, Skírnir AK 330, Loftur Bald- vinsson EA 500, Víkurberg GK 180, Hrafn Sveinbjarnarson GK 200, Helga 2. RE 400, Skarðsvík SH 500, Pétur Jónsson RE 580, Guðmundur Kristinn SU 100, Fíf- ill GK 350, Albert GK 330, Guð- mundur RE 400, Svanur RE 240, Sandafell GK 200, Huginn VE 200, Harpa RE 260, Börkur NK 540, Stapavík SI 200, Hrafn GK 200 og Isafold 350 lestir. 20 tonn af smjöri seld í gær A FYRSTA degi smjörútsöl- unnar, sem var í gær, er talið að hátt í 20 tonn af smjöri hafi selzt. Kristinn Guðnason sölu- stjóri hjá Osta- og smjörsöl- unni sagði i samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að ekki væri vitað með vissu hve mikið hefði selzt í gær, en ljóst væri að það væri á bilinu 15—20 tonn. Sagði Kristinn að meðal- smjörsala á dag væri þetta 3—5 tonn, þannig að salan i gær væri margföld á við það, sem venjulega væri. Rólegra á Kröflu- svæði í gærkvöldi ÓRÓINN, sem hófst á Kröflu- svæðinu um kl. 18 f gær var i rénum á tólfta tímanum f gær- kvöldi og var goshætta þá talin úr sögunni f bili, en um tfma óttuð- ust jarðfræðingar að gos væri yfirvofandi sérstaklega einhvers- staðar f Gjástykki, en óróinn virt- ist hvað mestur nyrst f Gjástykki. Um kl. 11 í gærmorgun kom skjálftahrina á svæðinu, sem atti sér upptök nyrst i Gjástykki og mældust þá allmargir nokkuð sterkir kippir, um leið og sighraði jókst á Kröflusvæðinu, að þvi er Páll Einarsson jarðeðlisfræðing- ur tjáði Morgunblaðinu í gær. Stærstu kippirnir munu hafa ver- ið í kringum 3,5 stig á Richter- kvarða. Upp úr hádeginu fór að róast aftur á þessu svæði og kyrrð var komin á Síðari hluta dags. Það var svo kl. 18.15 að mikill gosórói byrjaði i Gjástykki og var óróinn ekki minni en þegar land- sigið byrjaði fyrir einni og hálfri viku síðan. Jarðfræðingar óttuð- ust því um tíma að gos væri yfir- vofandi. Var fólkið á innstu bæj- um i Kelduhverfi beðið að athuga hvort nokkur ummerki um gos væru sjáanleg; eins voru menn úr Kröflubúðum sendir á vélsleðum, Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.