Morgunblaðið - 22.01.1978, Side 1
48 SIÐUR
18. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Portúgal:
Miðdemókrat-
ar fá utanrík-
isráðuneyti
Lissabon. 21. jan. Reuter.
FRETTIR eru á kreiki um það I
Lissabon að Mario Soares muni
láta Miðdemðkrataflokkinn fá ut-
anrfkisráðuneyti f væntaniegri
rfkisstjórn CDS og PS. Hefur dr.
Victor Sa Machado verið nefndur
sem sá maður sem Soares hefur
mestan augastað á f embætti ut-
anrfkisráðherra. Sa Machado er
44 ára gamall þingmaður fyrir
Aveiro, lögfræðingur að menntun
og fyrrverandi forstjðri Gulben-
kianstofnunarinnar f Lissabon.
Hann er kvæntur fslenzkri konu,
Kirsten Thorberg.
Mbl. hringdi til Kirsten og
spurðist fyrir um málið. Hún
Saudi Arabía:
Fráskildar
konur fá lán
Nikosin. 21. jan. AP.
SC ákvörðun fasteignasjóðs
Saudi Arabiu að gefa fráskild-
um konum kost á að fá lán
hefur orðið (il þess að skilnað-
ir hafa færzt mjög I vöxt segir
f blaði sem gefið er út i Saudi
Arabiu. Eftir að frá þessu var
gengið þyrpast konur til dóm-
sala að leita eftir skilnaði og
hefur þetta haft f för með sér
mikið umrót og rask á fjöl-
skyldum og mun nú ætlunin
að endurskoða ákvörðunina
segir i blaðinu.
sagðist ekki geta staðfest þetta,
því að ekkert hefði verið afráðið,
en frá málum yrði gengið nú um
helgina. Aðspurð um hvað hún
teldi um væntanlegt stjórnarsam-
starf PS og CDS sagði hún:
„Allir gera sér grein fyrir þvi
að erfiðir tímar eru i vændum í
Portúgal, en bæði Sósíalistaflokk-
ur Mario Soares og CDS — mið-
demókratar hafa lýst því yfir af
mikilli einurð að nú skuli allt gert
sem unnt er til að koma málum
hér i betra horf, enda allir orðnir
dauðþreyttir á því ástandi og
ringulreið sem hér hefur ríkt og
stöðugt magnast." Kirsten sagði
að formaður CDS, Freitos do Am-
aral, hefði sagt i sjónvarpsviðtali
er samvinna flokkanna var fast-
mælum bundin, að enda þótt CDS
og PS væru vitanlega geróiikir
flokkar, þá hefði það verið mat
þeirra að nú þyrftu þeir, á þessari
stundu, nú og strax, að taka sam-
an höndum og reyna að leiða þjóð-
ina út úr þeim ógöngum sem hún
væri komin í. Hefði stjórn með
þennan þingstyrk betri mögu-
leika til þess eru minnihluta-
stjórn.
Skiptingu ráðuneyta er ekki
lokið en miðdemókratar munu að
öllum likindum fá auk utanrikis-
ráðuneytisins, dómsmálaráðu-
neytið og ferðamálaráðuneytið og
ef til vill fleiri ráðuneyti. Freitos
do Amaral, formaður CDS, mun
ekki gegna ráðherraembætti i
Framhald á bls. 46.
Póstútburður
í New York
Hin mesta ringlureið var enn i
New York — og viðar i Banda-
rikjunum — á laugardag eftir
að mesta snjókoma og fjúk
háfði gengið yfir einkum á
austurströndinni.
New York var einna likust
draugabæ á laugardag og fðr
fðlk varla út úr hðsi og reyndar
komust menn ekki til vinnu
sinnar viða nema með harm-
kvælum og sérstakri útsjðnar-
semi. Einn þeirra var pðstur-
inn Sarah sem sést hér á hesti
sfnum og með hundinn sinn við
útburðarstörf á laugardag.
Allar samgöngur I Banda-
rikjunum hafa meira og minna
lagzt niður og Kennedy og La
Guardia flugvellirnir lokuðust
fyrir umferð fram eftir laugar-
degi. Spáð var að úr snjðkomu
myndi draga en mikil hálka og
ófærð er á flestum vegum f
austurhluta Bandarfkjanna.
Jórdanir lýsa yfir
stuðningi við Sadat
Amman, Kafró. 21. jan.
Reuter.
JÓRDANIR lýstu I dag yfir full-
um stuðningi við Egypta f friðar-
umleitunum i Miðausturlöndum.
Sagði f yfirlýsingunni að Egyptar
hefðu axlað gffulega ábyrgð þeg-
ar þess væri gætt hvernig tsraelar
hefðu komið fram f friðarvið-
ræðunum. Um leið kom sú skoðun
Vance kom til Grikklands í gær
eftir árangurslitla ferd til Tyrklands
Aþena. Ankara. 21. jan. Reuter.
CYRUS Vance utanrfkisráðherra
Bandarfkjanna kom til Aþenu
sfðdegis laugardag og voru mikl-
ar öryggisráðstafanir gerðar þar
af hálfu lögreglu af þvf tilefni. Er
ðttast að til ðeirða geti komið.
Vance mun ræða við Karamanlis
um deilu Grikklands og Tyrk-
lands vegna Kýpur. Stjðrnarand-
stöðuflokkarnir f Grikklandi hafa
risið öndverðir gegn heimsðkn
Vance og segja talsmenn þeirra
að þeir Ifti á hana sem tilraun til
að neyða Grikki til að gera sam-
komulag um Kýpur, er ekki væri
þeim sæmandi. Mótmælafundur
hefur verið boðaður við Aþenuhá-
skðla á laugardagskvöld vegna
komu Vance.
Vance er að koma frá Ankara
þar sem hann ræddi við Biilent
Ecevit forsætisráðherra og var
honum gefið þar ótvírætt í skyn
að Tyrkir kærðu sig ekki heldur
Framhald á bls. 46.
fram að lsraelar hefðu f rauninni
ekki áhuga á farsælum málalykt-
um.
Búizt er við þvf að Anwar Sadat
Egyptalandsforseti gefi mikil-
væga yfirlýsingu varðandi friðar-
umleitanirnar f Miðausturlönd-
um þegar egypzka þingið kemur
saman til skyndifundar i dag. A
fundinum mun Sadat gera þing-
inu grein fyrir þeirri ákvörðun
sinni að fresta friðarviðræðunum
við lsraela. Sadat sagði f gær, að
„dyrunum að friði hefur ekki ver-
ið lokað“, um leið og hann sagði
að á þessu stigi málsins væri
nauðsynlegt að taka málið allt til
endurmats.
Carter Bandarfkjaforseti, sem
hefur verið f sambandi við Sadat,
segir það skoðun sina að hléið á
friðarviðræðunum sé mjög alvar-
legs eðlis, en vonir standi til að
hér sé aðeins um að ræða tfma-
bundna erfiðleika, þannig að
stjðrnmálaviðræðurnar hefjist að
nýju innan skamms tfma.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
ABC skýrði frá því i gær að þegar
Sadat kailaði stjórnmálanefndina
heim frá Jerúsalem á miðviku-
daginn hefði honum ekki verið
kunnugt um að Israelsmenn
hefðu fallizt á að það væri réttur
Palestínuaraba á vesturbakka
Jórdanárinnar og á Gaza-svæðinu
að vera hafðir með i ráðum þegar
ákvarðanir væru teknar um fram-
tið þeirra, enda þótt hér hefði
verið um að ræða meiriháttar til-
slökun.
Carter forseti vildi i gær engu
spá um framvindu mála i Mið-
Framhald á bls. 46.
Skilyrði Kortsnojs að fjöl-
skyldan f ái að f ara f rá Sovét?
t VIÐTALI, sem skákfréttarit-
arinn Richard de Weger hefur
átt við Viktor Kortsnoj, kemur
fram að hann hefur mikinn
hug á þvf að ná konu sinni og
syni frá Sovétrikjunum, og
hann útilokar ekki að hann
muni setja þetta sem skilyrði
fyrir þvi að tefla við Anatoly
Karpov um heimsmeistaratitil-
inn, en Kortsnoj bar sem kunn-
ugt er sigur úr býtum f áskor-
endaeinvfgjunum fyrir heims-
meistarakeppnina.
Orðrétt er svar Kortsnojs við
þeirri spurningu, hvort hann
setji fararleyfi fjölskyldu sinn-
ar sem skilyrði fyrir þvi að
hann tefli við Karpov, svohljóð-
andi:
„Þetta er viðkvæmt mál. Ég
berst í rauninni á tvennum vfg-
stöðvum. Annars vegar er skák-
in einvörðungu og hins vegar
eru stjórnmálin. Að sjálfsögðu
vil ég verða næsti heimsmeist-
ari og þvf mun ég tefla við
Karpov. Hins vegar vil ég ná
'fjölskyldu minni út úr Sovét-
rikjunum . . . Ég ætla að orða
þetta svo: Ég berst við tvenns
konar óréttlæti. Ég tel að það sé
óréttlæti að Karpov haldi
heimsmeistaratitlinum, og ég
mun sigra hann. Það er líka
óréttlæti að fjölskylda mín
skuli þurfa að vera i Sovétríkj-
unum og gegn þvf óréttlæti
mun ég einnig berjast, en ég vil
ekki blanda þessu tvennu sam-
an — það ættu ekki að verða
tengsl milli þessa tvenns konar
óréttlætis."
Um orðróminn um að Korts-
noj hefði hug á að tefla við
Fischer, fyrrverandi heims-
meistara, áður en heimsmeist-
araeinvigið hæfist, og hvort
hann hefði hitt Fischer og rætt
við hann um slika keppni, sagði
Kortsnoj:
„Ég hitti Fischer i Pasadena
þegar ég tefldi i Bandaríkjun-
um í september, en ekki kom til
mála að við tefldum saman. Ég
held að Fischer sé ekki áfjáður
í að tefla lengur. Hann er ekki
samur maður og hann var. Hins
vegar var það merkilegt að
Fischer var með sams konar
hattkúf og Spassky setti síðar
upp meðan á einvigi okkar i
Belgrad stóð i því skyni að
rugla mig i riminu. Spassky
langar til að vera sams konar
maður og Fischer, — siðan
Spassky tapaði heimsmeistara-
Framhald á bls. 47.
Nixon verð-
ur loks afi
Washington 21. jan. AP.
JULIE Eisenhower, dóttir
Nixons fyrrverandi Banda-
rfkjaforseta, á von á barni og
verður það fyrsta barnabarn
Nixons. Julie er gift sonarsyni
Eisenhowers forseta og hafa
þau verið gíft f tfu ár. Barnsins
er von f maf eða júni.
Flensa magn-
ast í Banda-
ríkjunum
Atlantla. (áeorgia. 21. jan. AP.
Inflúensufaraldur hefur magn-
ast f Bandarikjunum, einkum f
austurhluta þeirra og hafa æ
fleiri látizt. Skýrslur úr ‘121 borg
sem byggt er á sýna að 855 manns
hafa látist úr flensu og lungna-
bólgu fyrstu viku janúarmánaðar
og er það hærra hlutfall en eðli-
legt og venjulegt er, eða um 500
fleira en hefur verið á þessum
stöðum.