Morgunblaðið - 24.01.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978
27
Hollenriingar stóðu sig mjös vel I HM I Þýzkalandi 1974. Iiæpið er að þeir verði eins framarlega næst þvl I
liðið vantar nú stðrstirnið Johan Gruvff, sem þarna sðst fanna sigri yfir BelRum f haust. sem tr.vRRði
Ilollandi farseðilinn til Arpenlínu.
SAGA HM í
STUTTU MÁLI
• 1930 1 URUGUAY
Undanúrslit: Argentina —
Bandarikin 6:1, Uruguay —
Júgóslavía 3:0. Urslit: Uruguay
— Argentina 4.2. Markakóngur:
Stabile frá Argentínu með 8
mörk.
• 1934 A lTALlU
Undanúrslit: Tékkóslóvakía —
Þýzkaland 3:1, ítalía — Austur-
riki 2:1. Urslit: ítalía — Tékkó-
slóvakia 2:1. Leikur um þriðja
sætið: Þýzkaland — Austurriki
3:2. Markakóngar: Schiavio,
Italíu, Nejedly Tékkóslóvakíu, og
Conen, Þýzkalandi, 4 hver.
• 1938 I FRAKKLANDI
Undanúrslit: Ungverjaland —
Svíþjóð 5:1, Itali — Brasilia 2:1.
Leikur um þriðja sætið: Brasilía
— Sviþjóð 4:2. Urslit: Italía —
Ungverjaland 4:2. Markakóngar:
Leonidas, Brasilíu, Szengeller,
Ungverjalandi, 8 mörk hvor.
• 1950 t BRASILlU
Urslitariðill: Brasilia — Svi-
þjóð 7:1, Uruguay — Svíþjóð 3:2,
Svíþjóð — Spánn 3:1. Loka-
staðan: 1. Uruguay, 2. Brasilia, 3.
Sviþjóð. 4. Spánn. Markakóngur:
Ademir, Brasilíu 7 mörk.
• 1954 1 SVISS
Undanúrslit: V-Þýzkaland —
Austurríki 6:1, Ungverjaland —
Uruguay 4:1. Urslit: V-Þýzkaland
— Ungverjaland 3:2 eftir fram-
lengingu. Leikur um þriðja sætið:
Austurríki — Uruguay 3:1.
Markakóngur: Kocsis, Ungverja-
landi, 11 mörk.
• 1958 I SVlÞJÓÐ
Undanúrslit: Svíþjóð — V-
Þýzkaland 3:1, Brasilia — Frakk-
land 5:2. Leikur um þriðja sætið:
Frakkland — V-Þýzkaland 7:3.
Urslít: Brasilia — Svíþjóð 5:2.
Markakóngur: Fontaine, Frakk-
landi, 13 mörk.
• 1962 1 CHILE
Undanúrslit: Brasilía — Chile
4:2, Tékkóslóvakía — Júgóslavía
3:1. Leikur um þriðja sætið: Chile
— Júgóslavia 1:0 Urslit: Brasilía
— Tékkóslóvakía 3:1. Markahæst-
ir: Albert, Ungverjalandi, Ivanov,
Sovétríkjunum, Sanchez, Chile,
Barrincha og Vava frá Brasiliu,
Jerkovic, Júgóslavíu, allir með 4
mörk.
• 1966 I ENGLANDI
Undanúrslit: V-Þýzkaland —
Sovétríkin 2:1, England — Portú-
gal 2:1. Leikur um þriðja sætið:
Portúgal — Sovétríkin 2:1. Urslit:
England — V-Þýzkaland 4:2 eftir
framlengdan leik. Markakóngur:
Eusebio, Portúgal, 9 mörk.
• 1970 I MEXlKO
Undanúrslit: Brasilía —
Uruguay 3:1. Italia — V-
Þýzkaland 4:3 eftir framlengingu.
Leikur um þriðja sætið: V-
Þýzkaland — Uruguay 1:0, Urslit:
Brasilía — Italia 4:1. Markakóng-
ur: Gerd Miiller, V-Þýzkalandi 10
mörk.
• 1974 I V-ÞYZKALANDI
Milliriðill: Pólland — Sviþjóð
1:0, V-Þýzkaland — Svíþjóð 4:2
Svíþjóð — Júgóslavía 2:1. Leikur
um þriðja sætið: Pólland —
Brasilía 1:0, Orslit: V-Þýzkaland
— Holland 2:1. Markakóngur:
Grzegory Lato, Póllandi, 7 mörk.
HM-borgirnar fjórar
% Buenos Aires
I höfuðborg Argentinu búa um
9 milljónir manns og þar fara
flestir leikir heimsmeistara-
keppninnar fram. Leikið verður á
tveimur leikvöngum í borginni,
Estadio River Plate, sem tekur 85
þúsund áhorfendur, og Estadio
Velez Sarsfield, sem tekur 55 þús-
und áhorfendur. I riðlakeppninni
verða 7 leikir í Buenos Aires og
þar á meðal fyrsti leikur keppn-
innar hinn 1. júní. A River Plate
verða úrslitaleikirnir um þriðja
sætið og sjálf úrslitin 24. júni.
0 Mar Del Plata
Borgin er um 400 kílómetra frá
höfuðborginni og er þekktust fyr-
ir stórkostlegar baðstrendur. A
vetrum, þ.e.a.s þegar sumar er á
Islandi, breytist ibúafjöldi
borgarinnar úr um 360 þúsundum
í tvær milljónir. Strandhótelin
verða opin fyrri hluta næsta sum-
ars til að taka á móti áhorfendum
leikjanna í heimsmeistarakeppn-
inni. Sérstaklega er búist við að
Brasilíumenn verði fjölmennir,
en hinir þreföldu heimsmeistarar
frá Brasilíu leika i riðlinum í Mar
del Plata. Leikvangurinn þar tek-
ur 50 þúsund áhorfendur og þar
verða sex af leikjum riðlakeppn-
innar.
0 Rosario
Borgin er um 320 kílómetra
aorður af Buenos Aires og þar
búa 1,3 milljönir íbúa. Þar verða
Argentinumenn ætla sér stóra hluti á heimavelli. Myndin er frá leik í
1. deildinni argentinsku nýlega.
brir leikir í riðlakeppninni og
j afn margir í milliriðli.
9 Cordoba
Cordoba er borg með um eina
milljön íbúa. Leikvangurinn þar
tekur um 60 þúsund áhorfendur,
en er að mörgu leyti frekar hugs-
aður fyrir aðrar íþróttir en knatt-
spyrnu, þar sem hlaupabrautir
eru milli knattspyrnuvallarins og
áhorfendasvæðis. Er áhorfendum
bent á að hafa með sér kíki hafi
þeir ekki tryggt sér beztu sæti á
vellinum.
% Mendoza
Mendoza er lengst frá höfuð-
borginni af keppnisstöðunum í
HM, rúmlega þúsund kilómetra
vestur af Buenos Aires, nálægt
landamærum Chile. Þar býr um
hálf milljón manna. Þar hafa orð-
ið alvarlegir jarðskjálftar og því
er áhorfendafjöldi á leikvangin-
um takrnarkaður við 40 þúsund
áhorfendur. Að auki er knatt-
spyrnuvöllurinn nokkuð niður-
grafinn. Hollendingar og and-
stæðingar þeirra í fjórða riðli
leika i Mendoza og þar verða 3
leikir riðlakeppninnar og þrir
leikir í milliriðli.
Snjallir í
minni bolta
STRÁKARNIR i Ármanni sigr-
uðu í Reykjavikurmóti fjórða
flokks í minni bolta, en mótinu
lauk fyrir nokkru. Unnu þeir and-
stæðinga sina örugglega og var
stigatala liðsins 323:104. Aðeins
IR veitti þeim keppni, en leik
þessara liða lauk með 45:42 sigri
Ármanns. Ármann vann Fram
98:27, KR 96:21 og b-lið Armanns
84:14. Fyrirliði. Ármenninganna
er Einar Einarsson og gerði hann
124 stig i leikjunum fimm.
Á meðfylgjandi mynd eru leik-
menn Armanns ásamt þjálfurum.
I fremri röð eru Valdimar Grims-
son, Þorkell Garðarsson, Einar
Einarsson, Jón Otti Jónsson og
Andri Marteinsson. I aftari röð:
Heimir Gunnarsson þjálfari, Karl
Guðlaugsson, Jón Ingvar Jónas-
son, Jóhannes Jóhannesson, Karl
Þráinsson, Þórður Bachmann og
Mike Wood þjálfari.
Stofnaður minningarsjóður
um Guðmund Sveinbjörnsson
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning frá fþrótta-
bandalagi Akraness:
Sá forystumaður Iþróttahreyfingar-
innar á Akranesi, sem best og lengst
allra manna hefur starfað á sviði
íþróttamála I þessum bæ er Guðmund-
ur Sveinbjörnsson (d 9.1 '71).
(þróttafólk og allir sem viðurkenna
nauðsyn iþróttaiðkana standa í þakkar-
skyld fyrir þessi störf hans. Þau verða
best þökkuð með þvi að standa vörð 1
um það málefni, sem hann vann að, og
halda uppi þvi merki sem hann vann
svo dyggilega fyrir og láta það aldrei
falla.
Fyrir nokkru síðan var stofnaður
minningarsjóður um Guðmund Svein-
björnsson i virðingar- og þakklætis-
Guðmundur Sveinbjörnsson.
skyni fyrir hin veigamiklu störf hans i
þágu íþróttabandalags Akraness,
iþrótta- og menningarmálasjóðurinn er
stofnaður af íþróttabandalagi Akra-
ness, og er i vörslu þess. Þriggja
manna stjórn fer með yfirráð sjóðsins,
skal formaður ÍA vera sjálfkjörinn for-
maður hennar, en tveir meðstjórnend-
ur eru kosnir árlega í þingi ÍA. Stjórn
sjóðsins ákveður styrkveitingu og ræð-
ur því hvort auglýsa skuli eftir umsókn-
um eða ekki
Styrki má veita efnilegum íþrótta-
Breiðablik
AÐALFUNDUR knattspyrnu-
deildar Breiðabliks verður hald-
inn sunnudaginn 29. janúar n.k. I
félagsheimili Kópavogs og hefst
hann klukkan 16. Venjuleg aðal-
fundastörf.
Stjórnin.
mönnum til náms. Eínnig má styrkja
iþróttaþjálfara. sem sýnt hafa sérstakan
áhuga I starfi til náms i iþróttaþjálfun,
og aðra þá sem vinna að æskulýðs og
bindindisstörfum i bænum.
Á 33. ársþingi ÍA i nóv. s.l. kom
fram tillaga. sem var samþykkt, þess
efnis, að gerð yrðu minningarkort fyrir
minningarsjóðinn, til eflingar sjóðnum.
Nú hefur stjórnin látið gera þessi kort
og verður hægt að fá þau i versluninni
Óðni h.f. Kirkjubraut 5, Akranesi.
Einnig hefur stjórn sjóðsins og stjórn
ÍA mikinn hug á að meistaraflokkur ÍA
leiki i sumar fjáröflunarleik til fjáröflun-
ar fyrir Minningarsjóðinn, þannig að
hann geti starfað undir því merki er til
hans var stofnað
Stjórn sjóðsins er þannig nú, en hún
var kosin á 33 ársþingi ÍA i nóv s.l.
Form: Þröstur Stefánsson
Meðstj: Ársæll Valdimarsson og
Kristján Sveinsson
Blikarnir
ráða Tékka
Breiðablik hefur nú ráðið tékk-
neskan þjálfara fyrir 1. deildar
lið félagsins I knattspyrnu. Heitir
sá Jan Fabera og hefur getið sér
gott orð 1 heimalandi slnu. Hann
hefur m.a. þjálfað landslið Tékka
I knattspyrnu og verið við þjálfun
I 20 ár. Hann tekur til starfa hjá
Breiðabliki 1. marz og verður með
alla flokka félagsins.
Jón P. til
Jönköping
JÓN PÉTURSSON knattspyrnu-
maður úr Fram hefur ákveðið að
leika með sænska félaginu Jön-
köping tvö næstu keppnistimabil.
Var Jón ytra i siðustu viku og var
þá gengið frá þessum málum.
Eins og kunnugt er hefur Teitur
Þórðarson leikið með Jönköping,
en hann hefur nú skipt um félag
innan Sviþjóðar og fært sig upp
um eina deild. Næsta surnar leik-
ur hann með Öster i 1. deildinni
sænsku.