Morgunblaðið - 26.01.1978, Síða 19
MORGUNBCAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1978
' • ' ‘ j ---------------------------
19
Haf nir lokaðar
í V -I>ýzkalandi
Hamborg, 25. jan. Reuler.
FYRSTA verkfall hafnarverka-
mann í 82 ár skall á í V-
Þýzkalandi f dag með þeim afleið-
ingum að átta hafnir við Norður-
sjó og Eystrasalt lokuðust. Um
hafnir þessar fara um 3 milljónir
tonna hvers kyns varnings f viku
hverri og f Hamborg lágu 120 skip
hreyfingarlaus við bryggju. Talið
er að þetta verkfall 20.000 hafnar-
verkamanna geti leikið grátt
utanrfkisviðskipti V-Þjóðverja.
Tilraun til sátta fór út um þúf-
ur í gærkvöld, en hafnarverka-
menn hafa krafizt níu prósent
launahækkunar en atvinnurek-
endur ekki viljað fallast á meira
en 5,8 prósent. Haugar af vörum
hafa hlaðizt upp í geymsluhúsum
og við járnbrautir. Hafa þó verið
veittar undanþágur til að afferma
geymsluþolslausan varning. Drag-
ist verkfallið í viku segja verzlun-
armenn að skortur verði á aðflutt-
um ávöxtum.
Þetta gerðist
Þetta gerðist 26. janúar.
1971 — Sovézk stjórnvöld til-
kynna að ómannað geimfar
Sovétríkjanna hafi lent mjúkri
lendingu á Venus.
1962 — Bandaríkjamenn skjóta
geimfari á loft. Geimfarið er
ómannað en hefur innanborðs
vfsindaáhöld sem koma á fyrir
á tunglinu.
1957 — Samvinnusamningur
milli Ihdlands og Kashmirs tek-
urgildi.
1952 — Æstur múgur, sem
krefst þess að- Bretar fari frá
Súez, kveikir í einu þekktasta
hóteli f Kairó, Hótel Shepherd.
1943 — Rússar vinna sigur á
Þjóðverjum við Voronezh f
heimsstyrjöldinni sfðari.
1942 — Fyrstu herir Banda-
rfkjamanna koma til Evrópu,
nánar tiltekið til Norður-
Irlands.
1939 — Francisco Franco, hers-
höfðingi, nær Barcelona á sitt
vald með góðri aðstoð Itala.
1931 — Mahatma Gandhi er
sleppt úr fangelsi, þvf hann á
að eiga viðræður við stjórnina.
1885 — „Makdíinn" tekur
Khartoum-borg og brezki hers-
höfðinginn Charles Gordon læt-
ur lifið í þeim átökum.
1841 — Lýst er yfir brezku full-
. veldi i Hong Kong.
1699 — Austurrfki, Rússland,
Pólland og Feneyjar semja frið
við Tyrkjaveldi í Karlowitz.
1628 — Hertoginn af Wallen-
stein hertekur Mecklenburg.
I dag eiga afmæli: Ugo Foscolo,
ítalskur rithöfundur
(1778—1827), Benjamin R.
Haydon, brezkur listamaður
(1786—1863), Douglas Mac-
Arthur, bandarfskur hershöfð-
ingi (1880—1964), og Eartha
Kitt, bandárískur söngvari og
skemmtikraftur (1928—...).
Hugleiðing dagsins. „Heilbrigð
sál f hraustum lfkama er nokk-
uð sem allir ættu að óska sér.“
Juvenal, rómverskur lögmaður
og ádeiluhöfundur (uppi um
lOOe.kr.).
Karamanlis hittir
Callaghan í London
Lonrion, 25. jan. AP.
FORSÆTISRAÐHERRA Grikk-
lands, Constantine Karamanlis,
kom til London f dag til viðræðna
við James Callaghan, forsætisráð-
herra Breta varðandi umsókn
Grikkja um inngöngu í Efnahags-
bandalag Evrópu. Einnig munu
þeir ræða Kýpurdeilu Grikkja og
Tyrkja.
Lítisháttar handagangur var í
öskjunni, er vél forsætisráðherr-
ans lenti, því óvenjulega þótti
rjúka úr hjólbörðum hennar. Allt
var þó eðlilegt þegar nánar var að
gætt. Á næstkomandi fimmtudag
Lík Viola fyrrverandi borgarstjóra borið út í sjúkrabíl.
Morð á leiðtoga á
Spáni vekur óhug
mun Karamanlis svo halda til
Brtissel og hitta forsætisráðherra
Belga, Leo Tindemans, og Joseph
Luns, en í viðræðum þeirra er
talið að hlutverk Grikklands inn-
an Atlantshafsbandalagsins muni
bera á góma. Hann mun síðan
eiga viðræður við valdamenn í
Bonn og Parfs.
Grikkjum hefur fundizt lítið
miða með umsókn þeirra um aðild
að EBE síðan þeir sóttu um 1975.
Flestir hafa þó tekið henni vel að
undanteknum frönskum bænd-
um, sem óttast samkeppni þeirra.
Barcelona, 25. jan. Reuter. AP.
HRYÐJUVERKAMENN myrtu f
dag fyrrverandi borgarstjóra
Barcelona, Joaquin Viola Sauret,
og konu hans og óttazt er að morð-
ið sem hefur vakið óhug á Spáni
leiði til ásakana um að stjórnin sé
óhæf um að halda uppi lögum og
reglu.
Þrfr grfmubúnir og vopnaðir
menn og ein kona ruddust inn f
fbúð Viola, bundu sprengju um
hann miðjan og afhentu honum
orðsendingu með kröfu um
lausnargjald. Sprengjan virðist
hafa sprungið fyrr en ætlað var
og höfuðið feyktist af Viola. Blóð
fossaði frá andliti eins hryðju-
verkamannsins þegar hann flýði
úr fbúðinni.
Maður nokkur hringdi f
spænska útvarpið, kvaðst bera
ábyrgð á morði Viola og sagði að
að þvf hefðu staðið lítt þekkt sam-
tök í Frakklandi er kalla sig al-
þjóðaarm spænska kommúnista-
flokksins. Maðurinn sagði að
sömu samtök hefðu staðið fyrir
sprengjuárás á lögreglustöð við
aðalfangelsið í Barcelona fyrir
tveimur dögum.
Helztu stjórnmálaflokkar Spán-
ar fordæmdu morðið og kváðu
það samsæri öfgasinna um að
spilla lýðræðisþróuninni á Spáni.
Juan Carlos konungur bað um að
fá að fylgjast með rannsókn máls-
ins og Adolfo Suares forsætisráð-
herra fyrirskipaði umfangsmikla
leit að morðingjunum.
Lögreglustjórinn í Barcelona,
Jose Maria Calleja, sagði að svip-
uð sprengja hefði verið notuð til
að myrða Jose Maria Bulto, for-
stjóra eins stærsta efnavörufyrir-
tækis Spánar, í maí í fyrra. Vopn-
aðir menn bundu sprengju um
Bulto og kröfðust lausnargjalds
að upphæð 500 milljónir peseta.
Sprengjan virðist hafa sprungið
þegar Bulto reyndi að fjarlægja
hana.
Fjórir vinstrisinnaðir stúdentar
voru handteknir í júli og sakaðir
um að bera ábyrgð á dauða Bult-
os. Þeir voru látnir lausir þegar
pólitískir fangar voru náðaðir
seint í fyrra þrátt fyrir mótmæli
innanríkisráðuneytisins.
Calleja lögreglustjóri segir all-
ar líkur benda til þess að morðin
séu ekki af pólitískum toga
spunnin.
Er suðurskaut-
íð að bráðna?
London 25. janaúar Rcuter
BANDARtSKUR vísindamaður
John Mercer, sagði í dag, að yrði
haldið áfram að brenna olfu,
kolum og gasi f jafnmiklum mæli
og nú er gert, gæti svo farið, að
suðurskautið bráðnaði innan 50
ára. Ef svo færi gæti það haft
Gervihnötturinn hefði
getað valdið stórtióni
Washington 25. janúar AP.
BANDARtSKI kjarnorku-
fræðingurinn John Abbotts
sagði í gær, að ef sovézki
njósnagervihnötturinn Cosmos
954 hefði ekki brunnið upp f
efsta lagi gufuhvolfs jarðar,
heldur þvf ncðsta, hefði illa
getað farið. Að mati Abbotts
hefðu allt að 40 týnt Iffi og 300
særzt og miklar skemmdir orð-
ið á mannvirkjum, ef hann
hefði komið niður f þéttbýli.
Tölur þessar byggir Abbotts
á magni úranfumsins sem var f
gervihnettinum og má geta
þess, að mannskaðinn og tjónið
hefði orðið aðeins lítill hluti
þess, sem slys f kjarnorkustöðv-
um í þéttbýli gæti valdið.
Gervihnötturinn hafði verið
stjórnlaus allt frá því fyrir ára-
mót, en þá uppgötvaði radar-
stöð í Bandaríkjunum, að hann
var kominn út af braut sinni og
lét ekki að stjórn. Náið eftirlit
var haft með hnettinum og
þegar hann hafði enn nálgast
jörðina 12. þessa mánaðar hafði
ráðgjafi Bandaríkjanna í örygg-
ismálum landsins samband við
sovézka sendiráðið og tilkynnti
Sovétmönnum áhyggjur Banda-
ríkjamanna. Eftir það höfðu
sérfræðingar landanna náið
samstarf sín í milli og reyndu
með öllum ráðum að koma í veg
fyrir að hnötturinn sneri aftur
til jarðar. Einkum voru það tvö
atriði sem sérfræðingarnir ótt-
uðust: Að kjarnaofninn brynni
ekki upp i efsta lagi gufuhvolfs-
ins, heldur í þvi neðsta, og að
ekki var vitað hvar hnötturinn
kæmi niður. Braut hans náði
yfir alla jarðkringluna og þvi
var ómögulegt að segja með
nokkurri vissu um lendingar-
stað hnattarins.
Sem betur fer brann hnöttur-
inn allur upp i efsta laginu og
vísindamenn þykjast nú vissir
um að engin útgeislun hafi átt
sér stað.
Bandaríkjamenn eru nú með
aðeins einn kjarnorkuknúinn
« gervihnött i notkun og var hon-
um skotið upp árið 1965. Stjórn-
völd í Bandaríkjunum hafa sagt
að engin ástæða sé til að óttast
að svipað slys hendi þá, gervi-
hnötturinn sé þannig útbúinn
að hann eigi að geta verið á
braut umhverfis jörðina í 4.000
ár og þá muni hann eyðast, auk
þess sem Bandarikjamenn noti
plutóníum en ekki úraníum.
Slys sem þessi hafa þó komið
fyrir Bandaríkjamenn. Árið
1964 brann gervihnöttur frá
Bandaríkjunum upp i efsta lagi
gufuhvolfsins. Var hann þá yfir
Indlandshafi en geislavirkni
náði til jarðar.
Annað slys varð 1968, en þá
féll gervihnöttur í sjóinn úti af
strönd Kaliforníu. Athuganir
leiddu í ljós að hnötturinn var
alveg þéttur og að engra áhrifa
geislavirkni hefur orðið vart á
dýralífi þar.
Þriðja og síðasta slysið átti
sér stað fyrir sjö árum en þá
féll kjarnaofn í Kyrrahafið, en
sem fyrr var engin hætta á ferð-
um.
hrikalegar afleiðingar I för með
sér. Mercer sagði, að brennsla
eldsneytis gæti orsakað helmingi
meiri myndun koktvísýrings (
andrúmsloftinu. Koltvísýringur
dregur að sér geisla sólarinnar og
hitar þannig yfirborð jarðarinn-
ar.
Ef suðurskautið bráðnaði
myndi yfirborð sjávar hækka um
fimm metra, og margar hafnar-
borgir yrðu illa úti í þeim flóðum.
Þá sagði Mercer einnig, að þegar
væri fyrir hendi vitneskja sem
benti til þess að suðurskautið
væri byrjað að bráðna.
Skiptar skoðanir hafa verið
meðal visindamanna um það hver
áhrif aukins koltvisýringsgæti
haft. Hafa sumir hallazt að þvi að
hanh gæti valdið kólnandi veður-
fari um allan heim, og aðrir sagt
hið gagnstæða. En þeim vísinda-
mönnum fer fjölgandi sem telja
að brennsla eldsneytis geti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir veður-
far í heiminum.
Sibir til
íshafsins
Kaupmannahöfn 25. jan.
SOVÉZKI Isbrjóturinn Sibir
sigldi á gæri í gegnum Stórabelti
á leið sinni út I Atlantshaf. Sibir
er nýr fsbrjótur og er hann knú-
inn kjarnorku. Hann er systur-
skip Arktika og Lenins sem hafa
haldið sig f tshafinu að undan-
förnu. Fyrr í ár sigldi ísbrjótur-
inn Arktika yfir Norðurpólinn.
Framhald á bls. 22.